Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 65

Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 65 Jólasendingin komin Gjafavara, kommóður, bókaskápar, langborð. Ótrúlegt verð Skólavörðustíg 21, s: 552 2419 Airwaves var slitið síðastasunnudag eftir fimm dagatónlistarlega alsælu. Ég skemmti mér stórkostlega á hátíð- inni og er þegar farinn að hlakka til þeirrar næstu. Það er eitthvað við vélavirki þessarar hátíðar sem ljær henni ákveðna töfra, eft- irsóknarverðir eiginleikar sem hafa náð út fyrir strendur lands- ins og vakið áhuga hundraða er- lendra tónlistaráhugamanna – og atvinnumanna – á tónlistarlífi landans. Það er allt með þessari hátíð; hið andlega, listræna gildi er í hávegum og öll þessi leiðinda tölfræði (sem skiptir víst máli líka), eins og ferðamannastraumur og fjármagnsstreymi dansar sömuleiðis í takt við hátíðina.    Ég rakst á nokkur starfssystkinmín á hátíðinni eins og geng- ur, og stundum var sest niður til skrafs og ráðagerða. Einn Þjóð- verjinn byrjaði að tala um álfa og langþreyttur ég nánast hreytti í hann til baka. „Á ég að segja þér hvar álfarnir búa? Þeir búa í hausnum á þýsku fólki.“ Bless- unarlega var þó mest rætt um tónlist og blaðamennirnir áttu að sjálfsögðu ekki til orð yfir gróskunni, orkunni og æðinu í ís- lensku tónlistarlífi. Svo mikið var um þetta rætt að maður var orð- inn dauðleiður á þessu, þetta var eins og biluð plata. Maður fór hjá sér yfir oflofinu, en var auðvitað ekkert að draga úr því. Jú, það er gróska og líf og allt það en Sigur Rós fæddist ekki í heitum hver og það er ekki annar hver maður skáld. Ég var beðinn um skýringar og það var ekki ferð til fjár fyrir blaðamennina. Hvað er það sem gerir tónlistarlífið hérna svona öflugt? Það engin einhlít skýring, eitthvað í samfélagsuppbyggingu og sameiginlegri þjóðarvitund er ástæðan en hvaða þættir og punktar það eru nákvæmlega er erfitt að segja til um. Það er a.m.k. ekkert pláss fyrir slíka rannsókn hér. Sumir stjórnmálamenn eiga til að gera sig breiða á tyllidögum og fullyrða að það eigi að fjárfesta fyrir alvöru í íslensku tónlist- arsenunni. Hræsni. Í stað þess að vera með innantómt atkvæða- veiðablaður ættu ráðamenn frekar að líta til þess að í þessu ótrúlega gróskumikla tónlistarumhverfi er varla til staður lengur til að spila á. Grand Rokk er hætt að styðja við grasrótina og Gaukurinn í limbói. Það er hjákátlegt að hreykja sér yfir allri orkunni þeg- ar hvergi er staður til að hleypa henni út. En hey, nýja tónlistarhúsið! Hvað var ég að hugsa … það er hægt að hýsa þessa fjöldamörgu tugi af efnilegum dægurtónlist- armönnum þar. Er það ekki mál- ið? Eða á að keyra húsið á bull- andi ríkisstyrkjum og halda illa sótta blokkflaututónleika trekk í trekk? Jú, ætli það verði ekki bara málið frekar.    Í einni af fyrstu fræðilegu út-tektunum á meistaraverkinu The Simpsons, sem birt var 1993, reit Tad Friend þessi orð: „Gott listaverk sem nær til þrjátíu millj- óna manna og lætur þeim líða eins og þeir eigi eitthvað sameiginlegt kann að hafa meira fram að færa en stórkostlegt listaverk sem nær til þrjú þúsund manns en skilur eftir sig lítið annað en einmana- kennd. Á okkar tímum hafa staðl- ar listarinnar breyst, víkkað út. Framtíðin tilheyrir Bart Simp- son.“ Nú er ég alls ekki að segja að ég sé sammála þessari fullyrðingu. En pælum samt aðeins í þessu. Eftirþankar í boði Airwaves Iceland Airwaves Pétur Ben var meðal þeirra fjölmörgu tónlistarmanna sem komu fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves þetta árið. AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen » Jú, það er gróska og líf og allt það en Sigur Rós fæddist ekki í heitum hver og það er ekki annar hver maður skáld. arnart@mbl.is Ljósmynd/Árni Torfason ÞEGAR gengið er inn í Gallerí Tur- pentine í Ingólfsstrætinu mæta manni gríðarlegar drunur sem ber- ast úr nýopnuðu sýningarrými í kjall- aranum. Í samhengi sýningarinnar sem nú stendur yfir á jarðhæðinni (þar sem við blasa beinagrindur og hauskúpur) mætti ætla að sjálfur myrkrahöfðinginn væri þar að kynda undir salnum. Þar reynist hins vegar vera á ferð ný kvikmynd eftir Húbert Nóa sem ber heitið 50 Megawatts og sýnir borholu á Hellisheiðinni sem spýr gufu í tæpa klukkustund. Verk- ið er framlag til Sequences- myndlistarviðburðarins. Fjölmargir hátalarar miðla hávað- anum sem berst frá holunni, svo hátt að sýningargesturinn verður fyrir líkamlegum áhrifum af hljóðbylgj- unum. Sjónræn áhrif af við- stöðulausu uppstreymi gufubólstra eru dáleiðandi. Bólstrarnir þenjast út og mynda ýmis form sem leysast upp jafnóðum og önnur verða til og þannig myndast spenna milli tví- víðrar blekkingarmyndarinnar og þrívíðrar skynjunar gufu – sem jafn- framt er í eðli sínu óáþreifanleg en virðist nánast snertanleg. Titring- urinn sem berst um líkamann (vegna hljóðsins) ýtir undir slíka efnislega upplifun. Borholan er úti í náttúrunni, í bak- sýn sést fjallsbrún og nokkuð þungbúinn himinn. Kvikmyndin skír- skotar þannig til landslagsmálverks- ins og felur í sér óvænt og skemmti- legt framlag til þeirrar hefðar, einkum til mynda þar sem „gufa“ eða þoka hefur verið myndgerð í fjalls- hlíðum og dölum. Verkið byggist á einfaldri hug- mynd og endurspeglar jafnframt hugleiðingar um spor mannsins í náttúrunni og stefnu hans í ríki henn- ar. Stendur náttúrunni ógn af áform- um hans eða felur hvæsandi aflið í iðrum jarðarinnar í sér viðvörun til menningarinnar? Ógnaröfl Morgunblaðið/Kristinn 50 Megawatts Sjónræn áhrif af [...] uppstreymi gufubólstra eru dáleiðandi. MYNDLIST Gallery Turpentine Til 28. október Opið þri.–fö. kl. 12–18, lau. kl. 12–16. Ókeypis aðgangur. 50 Megawatts – Húbert Nói Jóhannesson Anna Jóa TÖKUR á bandarísku hryllings- myndinni Hostel: Part II fara fram hérlendis í næstu viku. Að sögn Ey- þórs Guðjónssonar, sem lék eitt aðal- hlutverkanna í fyrri myndinni og skipuleggur verkefnið hér á landi, er von á um það bil 30 manna hópi til landsins á mánudaginn vegna þessa. Tökur fara fram í Bláa lóninu, í lík- amsræktarstöðinni World Class í Laugardal og á Ingólfshvoli fyrir austan fjall. Að sögn Eyþórs verður einungis um „fallegar tökur“ að ræða, en fyrri myndin þótti ofbeldis- full í meira lagi. Hópurinn kemur hingað frá Prag. Hér heldur hann til fram á föstudag, en samkvæmt Eyþóri hafa einhverj- ir ákveðið að framlengja dvöl sína. Ástæðan ku vera að fagna að því að tökum sé lokið. Fyrirtækið True North kemur einnig að skipulagningu Íslands- hluta verkefnisins. Ógnvekjandi Mörg atriði í Hostel þóttu í meira lagi hrottaleg. Íslandstökur framhalds- myndar Hostel að hefjast

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.