Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 2
2 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
edda.is
leitin og óvenjuleg
Sigþrúður er
einstæðingur og
vinnur fyrir sér með
blaðburði. Djúpt í
sálinni búa draumar
um annað líf −
draumar sem hún
hefur fengið í arf frá
konum sem lifðu og
dóu við lítil efni.
Áhrifamikil saga
um óvenjulegt efni.
KOMIN Í
VERSLANIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Laugardagur 11. 11. 2006
81. árg.
lesbók
VÍKINGAR EFNISINS
ÚTRÁSIN ER Á GÓÐRI LEIÐ MEÐ AÐ VERÐA
GRUNDVÖLLUR NÚTÍMAGOÐSAGNAR UM ÍSLAND » 6-7
Í blóma lífsins snerist allt um dauðann » 20
Ást „Ef hægt væri að kjarna yrkisefni Bjarkar frá Debut, „fyrsta“ hljómdisknum, til þess nýjasta í einu orði, væri það ást. Þessi ást er rómantísk, persónu-
leg, munúðarfull, húmorísk og hættuleg.“ Fjallað er um texta Bjarkar, tónlist og ímynd í Lesbók í dag í tilefni af heildarútgáfu á verkum hennar. »3-5
Þór Whitehead segir að Jón Ólafs-
son hafi gert lítið úr ofbeldisverkum
sem flokksmenn Kommúnistaflokks
Íslands hafi unnið hér hvað eftir
annað í stjórnmálabaráttu sinni. Í
Lesbók í dag svarar Þór grein Jóns
sem birt var í blaðinu fyrr í haust
undir fyrirsögninni: Voru íslenskir
kommúnistar hættulegir?
Þór heldur því fram að Jón hafi
horft fram hjá mikilvægum heim-
ildum, meðal annars í sínum eigin
skrifum, þegar hann svarar spurn-
ingunni í fyrirsögninni neitandi.
Sjálfur svarar Þór spurningunni
með því að vísa til þess sem Áki Jak-
obsson, ráðherra Sósíalistaflokksins
1944–1947 og einn helsti leiðtogi ís-
lenskra kommúnista, hafði um það
efni að segja. Áki sagði skilið við
Sósíalistaflokkinn vegna þess að
hann „vildi að flokkurinn hætti und-
irgefni við Sovétríkin“, segir Þór og
bætir við að Áki hafi ekki verið í
neinum vafa um að hann og félagar
hans hefðu verið hættulegir lýðræð-
inu í landinu ekki síður en sjálfum
sér:
„Íslenska þjóðin var í mestri
hættu að verða ofbeldi að bráð 1932.
Þá munaði litlu að við leystumst upp
í stríðandi hópa, sem berðust á göt-
unum. … Íslenskir kommúnistar
mega vera þakklátir fyrir að hafa
ekki komist til valda, því þá hefðu
margir þeirra orðið verri menn en
þeir nú eru. … Allt er afgreitt með
þessum orðum: Flokkurinn, kenn-
ingin þarfnast þessa og hins. Og í
krafti þess er ofbeldi beitt.“ » 8–9
Komm-
únistar
hættulegir?
Þór Whitehead svarar
Jóni Ólafssyni
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
30. mars 1949 Svæsnasta atlaga
sem gerð hefur verið að Alþingi,
segir Þór Whitehead.
Það sem til þarf
kassi
pappír
litir
band
lím
bolti
Það sem gera skal
Klipptu út rófu,
eyru og fætur.
Litaðu og límdu
bútana á kassann.
Bittu band-
spottann síðan í
hann.
Settu kassann
ofan á boltann.
Síðan er komið að
því að leika sér.
Þú getur búið til hund úr kassa
með lítilli fyrirhöfn fyrir litla
bróður eða litlu systur. Þau geta
dregið hann á eftir sér.
Föndur
laugardagur
11. 11. 2006
börn
TÝNT OG FUNDIÐ
Í VERÐLAUNALEIK VIKUNNAR REYNIR Á GLÖGGSÝNI
LESENDA. FINNIÐ FALDA HLUTI. » 2
„Bíðið strákar, við erum að verða frægar hérna,“ kallar Yrsa » 3
Glæsilegar Í félagsmiðstöðvum um land allt er líf og fjör í
tuskunum. Keppni í Stíl er haldin í flestum skólum.
Hópar af krökkum taka sig saman, velja sér módel og út-
færa það í ákveðnum stíl. Hóparnir hanna og sauma klæðn-
aðinn. Síðan toppa þeir stílinn með hárgreiðslu og málun.
Þemað í ár er móðir náttúra.
Þessi keppni er haldin árlega og fjöldi unglinga leggur
mikla vinnu í að heildarmynd módelsins verði sem best.
Lokaeinvígið milli allra félagsmiðstöðvanna fer fram um
næstu helgi.
Þessi mynd er tekin í Setbergsskóla þar sem Hafn-
arfjarðakeppnin í Stíl var haldin um síðustu helgi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Líf og fjör í tuskunum
Einn góður …
Heyrt á förnum vegi.
Veistu hvenær
Silla á afmæli?
Nei, en ég held að
það sé á þessu ári.
laugardagur 11.
11. 2006
íþróttir mbl.is
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
enski boltinn
Didier Drogba hefur skorað ellefu mörk fyrir meistara Chelsea >> 4
SKORAR HENRY?
FYRIRLIÐI ARSENAL HEFUR SKORAÐ ÁTTA MÖRK
Í ELLEFU LEIKJUM SÍNUM GEGN LIVERPOOL >> 4
Reuters
Sigur Sir Alex Ferguson, sættir sig við ekkert annað en sigur. Hér gefur þessi mikli skoski keppnismaður einfalda fyrirskipun til sinna manna út á völlinn og þeir vita vel hvað hann er að fara
fram á. Ferill knattspyrnustjórans sigursæla hjá Manchester United er rakinn í opnu blaðsins; Einum leik frá því að vera rekinn. | E2,E3
Keane var einn þekktasti harðjaxl deildarinnar
og telur ekkert athugavert við það að leikmenn
sparki hver í annan upp að vissu marki, en það
sé óþolandi þegar menn reyni að klekkja hver á
öðrum á óheiðarlegan hátt og blekkja dóm-
arann. Það sé kominn tími til að knattspyrnu-
stjórarnir berji í borðið og stöðvi þetta, og það
sé hann sjálfur að reyna að gera hjá Sunder-
land.
Dauðfeginn að vera hættur
„Dómararnir verða fyrir gagnrýni úr öllum
áttum og þeir fá enga aðstoð frá leikmönnum,
sem reyna að svindla hver á öðrum. Ég er
dauðfeginn að ég skuli sjálfur vera hættur að
spila, sérstaklega í úrvalsdeildinni. Maður
horfir á leik í sjónvarpinu og er stöðugt að velta
fyrir sér hvort um brot hafi verið að ræða þeg-
ar leikmaður dettur. Ég þoli ekki að horfa upp
á það þegar einhver veltist um völlinn og virð-
ist sárþjáður, en stendur á fætur hálfri mínútu
síðar og heldur áfram eins og ekkert hafi í
skorist,“ segir Keane, sem þykir ótrúlega ró-
legur og yfirvegaður á hliðarlínunni hjá Sun-
derland.
Ekki lengur bundið við útlendinga
Hann segir að margir erlendir leikmenn hafi
haft slæmt orð á sér fyrir leikaraskap en
vandamálið sé ekki lengur bundið við þá. „Nú
sjáum við marga enska landsliðsmenn haga sér
svona, líka írska og skoska. Strákar sem ég
spilaði með eru farnir að kasta sér niður og það
er óþolandi að horfa upp á það.
Ég skil ekki hvernig menn sem beita svona
blekkingum í leik geta horfst í augu við fjöl-
skyldu sína að leik loknum eins og ekkert hafi í
skorist. Ef ég hefði hagað mér svona í leik,
reynt að koma mótherja í vandræði með óheið-
arleik, hefði mín fjölskylda afneitað mér,“
sagði Keane
„Þessu verður að linna, leikmenn verða að
koma heiðarlega fram gagnvart dómurum.
Þegar þeir liggja á vellinum verður það að vera
af góðri og gildri ástæðu. Leikmennirnir vita
sjálfir hverjir eru heiðarlegir og hverjir ekki,
og allir vita að Paul Scholes og Steven Gerrard
haga sér ekki svona.
Ég sparkaði í marga mótherja en blekkingar
gagnvart dómara voru ekki mín deild. Þeir eru
alltaf í vanda því ef þeir ákveða að gera ekkert í
því þegar leikmaður liggur á vellinum, og síðan
kemur í ljós að hann er alvarlega meiddur, þá
eru þeir í slæmum málum,“ segir Roy Keane,
baráttumaðurinn mikli, sem kallaði ekki allt
ömmu sína í leik.
Fjölskyldan hefði afneitað mér
Roy Keane var til í að sparka í mann og annan en þolir ekki óheiðarleikann sem fer vaxandi á Englandi
ROY Keane knattspyrnustjóri Sunderland og
fyrirliði Manchester United til margra ára er
afar óhress með sívaxandi leikaraskap fót-
boltamanna í ensku úrvalsdeildinni. Keane
sagði við dagblaðið The Mirror í gær að fjöl-
skylda sín hefði afneitað sér ef hann hefði
hagað sér eins og svo margir leikmanna
deildarinnar hafa gert það sem af er þessu
keppnistímabili – þeir dyttu af minnsta tilefni
og veltust um á vellinum eins og þeir hefðu
verið skotnir.
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Bréf 48
Staksteinar 8 Kirkjustarf 49
Veður 8 Messur 52
Viðskipti 16 Minningar 53/60
Erlent 18/20 Skák 64
Listir 22/24 Menning 66/71
Akureyri 26 Myndasögur 72
Austurland 26 Dagbók 73/77
Landið 28 Staður og stund 74
Árborg 28 Víkverji 76
Daglegt líf 30/39 Velvakandi 76
Forystugrein 40 Bíó 74/77
Umræðan 42/48 Ljósvakamiðlar 78
* * *
Erlent
Tamílskur þingmaður, sem
studdi uppreisnarmenn úr röðum
tamíla, var skotinn til bana í gær í
Colombo, höfuðborg Sri Lanka, og
ekkert lát var á átökum stjórn-
arhersins og uppreisnarsveita Tamíl-
tígranna. Talsmenn Sameinuðu þjóð-
anna fordæma morð hersins á tugum
óbreyttra borgara í vikunni. » 20
Eliza Manningham-Buller, yf-
irmaður bresku leyniþjónustunnar
MI5, sagði í gær að verið væri að
rannsaka áform um nær þrjátíu
hryðjuverk. Hún skýrði ennfremur
frá því að njósnarar leyniþjónust-
unnar fylgdust með u.þ.b. 1.600
mönnum í 200 hreyfingum. » 18
John Bolton, hinn umdeildi sendi-
herra Bandaríkjastjórnar hjá Sam-
einuðu þjóðunum, er talinn eiga litla
sem enga möguleika á að halda stöðu
sinni, eftir að demókratar og repú-
blikaninn og öldungadeild-
arþingmaðurinn Lincoln Chafee
lýstu því yfir að þau myndu leggjast
gegn því að framlengja dvöl hans hjá
SÞ sem rennur út í janúar. » 18
Innlent
Prófkjör verða í fjórum kjördæm-
um í dag. Hjá Samfylkingunni í báð-
um Reykjavíkurkjördæmunum og
hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðvestur-
og Suðurkjördæmum. »8
Heklugosið árið 2000 olli staðbund-
inni þynningu á ósonlaginu í um það
bil tvær vikur, en jafnaði sig eftir það.
Þetta er í fyrsta sinn sem menn verða
vitni að staðbundinni þynningu óson-
lagsins vegna eldgoss. » 1
Alls eru um 490 nemendur á nám-
skeiðum í íslensku hjá Mími-
símenntun á haustönn og eru þeir frá
58 þjóðlöndum. Langflestir eru frá
Póllandi, en einnig nokkur fjöldi frá
Litháen, Þýskalandi, Filippseyjum
og Taílandi. » 14
Forstjóri Sjóvár hefur óskað eftir
því við lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins og samgönguráðherra
að hugmyndir þeirra um að trygg-
ingarfélögin fái einhvers konar að-
gang að upplýsingum um umferð-
arlagabrot verði skoðaðar. » 80
Héraðsdómur hefur sýknað
Hannes Hólmstein Gissurarson
prófessor af kröfum Auðar
Sveinsdóttur, ekkju Halldórs
Laxness, um brot á höfundarrétti
vegna bókarinnar Halldór sem
Hannes ritaði. » 4
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
segir að við jákvæðari tón kveði í
nýrri skýrslu matsfyrirtækisins
Fitch Ratings um lánshæfi íslenska
ríkisins. Aðalmálið sé að lánshæfis-
mat Íslands sé staðfest, þótt horfur
séu áfram neikvæðar.
„Mestu skiptir að hrakspárnar,
sem ýmsir höfðu uppi eftir síðustu
skýrslu Fitch í febrúarmánuði á
þessu ári, hafa svo fjarri því ræst.
Þvert á móti er allt annar tónn í
þessari skýrslu en var hjá sömu að-
ilum í febrúar. Þetta er mikil og já-
kvæð breyting sem ber að fagna,“
segir Geir. Lánshæfiseinkunnir rík-
isins eru staðfestar í skýrslu Fitch
en horfur fyrir lánshæfismatið áfram
sagðar neikvæðar.
Geir segir að ríkisfjármálin standi
mjög vel og skuldir ríkissjóðs séu
orðnar litlar bæði innan lands og ut-
an.
„Hins vegar er þjóðarbúið sem
heild skuldugt vegna skulda sem
fjármálastofnanir og önnur fyrirtæki
hafa stofnað til, svo og heimilin, en á
móti koma gríðarlega miklar og vax-
andi eignir í útlöndum,“ segir Geir.
Varðandi ummæli skýrsluhöfunda
Fitch Ratings um mikla skuldastöðu
og hættu á kreppu segir forsætisráð-
herra að matsfyrirtækjum sem þess-
um beri skylda til að benda á þá veik-
leika og áhættu sem kunni að vera
fyrir hendi.
„Það er satt hjá þeim að miklar
skuldir í erlendri mynt geta falið í
sér sveiflur ef gengi breytast og
hærri vaxtakostnað. Í heildina tekið
er ég mjög sáttur við skýrsluna og
finnst hún mun raunhæfari en í febr-
úar sem mér fannst ekki hafa verið á
réttum nótum á þeim tíma,“ segir
Geir og bendir á að meira að segja
Danske bank sé farinn að tala um ís-
lenskt efnahagslíf á jákvæðari nót-
um en áður.
Kveður við jákvæðari
tón hjá Fitch Ratings
Forsætisráðherra segir ríkisfjármálin standa vel
Í HNOTSKURN
»Að mati Fitch Ratings erenn nokkuð langt í land að
jafnvægi náist í íslenska hag-
kerfinu.
»Geir sagði ríkissjóð fámjög góðar lánshæf-
iseinkunnir hjá Fitch Ratings
líkt og hjá öðrum matsfyr-
irtækjum.
» Í skýrslunni var bent á aðÍsland væri skuldugast
þeirra landa sem fyrirtækið
metur.
TÍU farþegar með langferðabifreið á vegum Hóp-
ferðamiðstöðvarinnar Trex sluppu með minni háttar
meiðsl ásamt bílstjóra sínum þegar bifreiðin fór út af
í snarpri vindhviðu á Holtavörðuheiði í gær. Bifreiðin
var á suðurleið þegar slysið varð. Var fólkið ýmist
aðstoðað niður í Brú í Hrútafirði eða í Borgarnes.
Bifreiðin lenti á mjúku undirlagi og voru allir í bíl-
beltum, að sögn Jóns Gunnars Borgþórssonar, fram-
kvæmdastjóra Trex. Bifreiðin mun hafa skemmst lít-
illega að sögn hans.
Ljósmynd/Fylkisson
Lenti á hliðinni með 10 farþega
RÚMLEGA tveir af hverjum tíu
stjórnendum í fyrirtækjum og
stofnunum stefna á starfslok fyrir
sextugt en stærstur hluti ætlar að
setjast í helgan stein milli sextugs
og sjötugs. Þetta kemur fram í nið-
urstöðum könnunar Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur meðal
stjórnenda á almennum og opinber-
um vinnumarkaði.
Í umfjöllun VR um niðurstöðurn-
ar segir að töluverður munur sé á
viðhorfi stjórnenda á almennum
markaði og hinum opinbera. 25%
stjórnenda á almennum markaði
hyggja á starfslok fyrir sextugt en
einungis 7% stjórnenda hins opin-
bera.
Yngri vilja hætta fyrr
Þá kemur í ljós að eftir því sem
stjórnendur eru yngri, því fyrr
stefna þeir á starfslok. 40% stjórn-
enda 35 ára og yngri vilja leggja
skóna á hilluna fyrir sextugt en
22% stjórnenda á aldrinum 36 til 50
ára. Stjórnendakönnunin var gerð í
maí og júní sl. og var 2.750 stjórn-
endum sendur spurningalisti. Svör-
un var 46%, eða 1.270. VR ætlar að
kynna fleiri niðurstöður úr könn-
uninni um miðjan mánuðinn.
20% stjórnenda
stefna á starfs-
lok fyrir sextugt KONAN sembrenndist illa í
eldsvoða í Ferju-
bakka síðastliðið
þriðjudagskvöld
lést af sárum sín-
um á gjörgæslu-
deild Landspítala
– háskólasjúkra-
húss á fimmtu-
dagsmorgun.
Hún hét Anna Hauksdóttir, til
heimilis í Ferjubakka 12 í Reykja-
vík. Anna var 58 ára, fædd 20. jan-
úar 1948.
Eftirlifandi eiginmaður Önnu
brenndist einnig illa. Hann liggur
enn þungt haldinn á gjörgæsludeild
LSH og er haldið sofandi í önd-
unarvél.
Anna
Hauksdóttir
Lést á gjör-
gæsludeild
LSH
laugardagur 11.
11. 2006
íþróttir mbl.is
íþróttir
Árni Gautur Arason í aðgerð á hné >> 3
VALLARMET Í KÍNA
TIGER WOODS SETTI VALLARMET Á SHESHAN-
VELLINUM Á MÓTI Í EVRÓPUMÓTARÖÐINNI >> 2
BIRGIR Leifur Hafþórsson,
atvinnukylfingur úr GKG, er í
5.–8. sæti af alls 156 kylfingum
að lokinni fyrstu umferð á
lokaúrtökumótinu fyrir Evr-
ópumótaröðina í golfi á San
Rouqe-vellinum á Spáni. Birg-
ir lék á 69 höggum í gær eða 3
höggum undir pari vallar.
Hann fékk tvo fugla (-1) á fyrri
9 holunum sem hann lék á 34
höggum. Á síðari 9 holunum
fékk hann tvo skolla (+1), einn
örn (-2) og einn fugl (-1).
„Það
var erfitt
að spila í
gær þar
sem að
vindurinn
var í aðal-
hlutverki.
Ég tók
réttar
ákvarðan-
ir í flest-
um höggum og það skilaði sér
vel. Það er ánægjulegt að
byrja vel en það er mikið eft-
ir,“ sagði Birgir Leifur í gær.
Þar sem aðeins annar af
tveimur keppnisvöllum móts-
ins er til reiðu leika kylfing-
arnir tvo hringi á fjórum dög-
um. Birgir lék ekki í fyrradag
og í dag er hvíldardagur hjá
honum en á sunnudag leikur
hann á ný. „Ég tek 9 holur í
dag á vellinum sem er lokaður
en þetta er undarleg staða að
fá hvíld á milli hringja en það
er ekkert sem truflar mig.“
Birgir Leifur
Hafþórsson.
Birgir er í 5.–8. sæti eftir
fyrstu umferð á Spáni
Fylkir tapaði með eins marks
mun gegn svissneska liðinu
TSV St.Otmar í fyrri viður-
eign liðanna í 32 liða úrslitum
Áskorendabikarsins í hand-
knattleik í gær en leiknum
lauk 30:29. Um var að ræða
heimaleik Fylkis en síðari
leikurinn verður einnig á
heimavelli svissneska liðsins
og fer fram á morgun, sunnu-
dag. Sigurður Sveinsson
þjálfari Fylkis sagði við
Morgunblaðið í gær að hann
hefði ekki séð margt jákvætt
við leik sinna manna þrátt fyr-
ir aðeins eins marks tap. „Við
vorum heppnir að hafa ekki
tapað með meiri mun. Vörnin
var slök. Sérstaklega í fyrri
hálfleik þar sem við vorum
tveimur mörkum undir, 18:6.
Þeir skoruðu of mörg mörk úr
hraðaupphlaupum og fengu
að gera einfalda hluti án þess
að við værum að bregðast við
því. Þessi völlur er gryfja og
það var smá reynsluleysi sem
sagði til sín í leiknum en ég
held að við getum vel unnið
síðari leikinn,“ sagði Sigurð-
ur. Vladimir Ðuric átti frá-
bæran fyrri hálfleik þar sem
hann skoraði 10 mörk. Ðuric
var rekinn af leikvelli í þriðja
sinn í byrjun síðari hálfleiks
og kom því ekki meira við
sögu í leiknum. Hlynur Mort-
hens, markvörður Fylkis, var
valinn besti leikmaður leiks-
ins en um 2.000 áhorfendur
voru á leiknum.
Naumt tap Fylkismanna
í St. Gallen í Sviss
Reuters
Bannað Christian Schulz leikmaður Werder Bremen lét keppnistreyjuna ekki af hendi þrátt fyrir að
Brasilíumaðurinn Tinga úr liði Dortmund hafi sýnt því áhuga að ná treyjunni í leik liðanna í gær.
Helgi sagði við Morgunblaðið fyrir
mánuði að hann ætlaði sér að breyta
til og vildi losna undan samningnum
við Fram, sem hann skrifaði undir
þegar hann hætti hjá AGF í Dan-
mörku fyrir ári og samdi þá við Safa-
mýrarfélagið út tímabilið 2007. Með
Helga fremstan í flokki unnu Fram-
arar öruggan sigur í 1. deildinni í ár
og hann varð markakóngur deildar-
innar með 13 mörk.
Í kjölfarið á þeirri frétt tilkynntu
Framarar að sættir hefðu tekist um
það að Helgi myndi standa við sinn
samning og spila áfram með þeim í
úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Þegar æfingar undir stjórn nýs
þjálfara, Ólafs Þórðarsonar, hófust
fyrir skömmu var Helgi ekki mætt-
ur, og hann hefur ekki ennþá komið á
æfingu hjá liðinu það sem af er und-
irbúningstímabilinu.
Brynjar Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri hjá Fram, sagði við
Morgunblaðið í gær að ekki hefði
verið gengið frá neinni lausn á mál-
um Helga innan stjórnar knatt-
spyrnudeildar félagsins enn sem
komið væri. „Það eru skiptar skoð-
anir um málið, sumir vilja að hann
fari og aðrir að hann verði látinn
standa við samninginn,“ sagði
Brynjar.
Áfall fyrir Fram
Það yrði mikið áfall fyrir Framara
að missa Helga en auk þess að skora
flest marka liðsins í 1. deildinni átti
hann drjúgan þátt í mörgum hinna.
Tveir aðrir leikmanna Fram eru
horfnir á braut; þýski varnarmaður-
inn Frank Posch fór í Stjörnuna og
Gunnar Sigurðsson markvörður er
hættur í fótboltanum. Í staðinn hafa
þeir fengið Igor Pesic frá ÍA, Reyni
Leósson frá Trelleborg í Svíþjóð,
Theódór Óskarsson frá HK og mark-
vörðinn Hannes Halldórsson úr
Stjörnunni.
Brynjar sagði ljóst að Framarar
ættu eftir að bæta við leikmannahóp
sinn og væntanlega þyrftu þeir að
leita að frekari liðsstyrk erlendis.
Það er ljóst að margir stuðnings-
menn Fram eru ósáttir við brott-
hvarf Helga. Að sama skapi vilja
margir að hann fái að fara frá félag-
inu þar sem lítil not séu fyrir leik-
mann sem hefur ekki áhuga á því að
leika fyrir það. Helgi hefur ekki vilj-
að tjá sig um stöðu mála en heimildir
Morgunblaðsins herma að hann vilji
ná sáttum við Fram áður en hann
heldur í herbúðir Vals.
Helgi er á
leið í Val
Fram vill ná sáttum við framherjann
ÚTLIT er fyrir að fyrirliði knatt-
spyrnuliðs Fram á nýliðnu tímabili,
fyrrum atvinnu- og landsliðsmað-
urinn Helgi Sigurðsson, yfirgefi fé-
lagið von bráðar og gangi til liðs
við Valsmenn. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins bendir allt
til þess að þetta verði niðurstaðan í
kjölfar þess að Helgi hefur viljað
losna frá Fram í haust. Forsvars-
menn Safamýrarliðsins hafa á und-
anförnum dögum undirbúið starfs-
lok Helga hjá félaginu.