Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Rannsaka 30 samsæri
Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar segir hana fylgjast með yfir 1.600 mönnum
í um 200 hreyfingum sem grunaðar eru um að undirbúa hryðjuverk í Bretlandi
London. AFP. | Eliza Manningham-Buller, yfirmað-
ur bresku leyniþjónustunnar MI5, sagði í gær að
verið væri að rannsaka áform um nær þrjátíu
hryðjuverk. Hún skýrði ennfremur frá því að
njósnarar leyniþjónustunnar fylgdust með u.þ.b.
1.600 mönnum í 200 hreyfingum sem grunaðar
væru um aðild að samsærum um mannskæð
hryðjuverk.
Manningham-Buller sagði hryðjuverkamenn
myndu hugsanlega beita heimagerðum sprengjum
í fyrstu en þegar fram liðu stundir kynnu þeir að
beita efna- eða sýklavopnum, sprengjum sem
dreifa geislavirkum efnum eða jafnvel kjarnorku-
sprengjum.
Manningham-Buller sagði að málum sem vörð-
uðu stuðningsmenn hryðjuverkasamtaka hefði
fjölgað um 80% á árinu. Margir þeirra væru
breskir ríkisborgarar.
Hafa hindrað fimm samsæri
Málin tengjast ýmist samtökum, sem fá fyrir-
mæli frá leiðtogum al-Qaeda í Pakistan, eða laus-
tengdum hópum sem styðji kenningar þeirra um
heilagt stríð gegn vestrænum ríkum.
Bresk yfirvöld hafa verið með mikinn öryggis-
viðbúnað frá sprengjutilræðunum í London 7. júlí
á síðasta ári þegar fjórir íslamskir öfgamenn urðu
sjálfum sér og 52 öðrum að bana. Manningham-
Buller sagði að síðan þá hefðu yfirvöld „hindrað
fimm meiriháttar samsæri um hryðjuverk í Bret-
landi og þar með bjargað hundruðum og jafnvel
þúsundum mannslífa“.
Hún kvaðst hafa áhyggjur af því hversu mikils
stuðnings hryðjuverkamenn virtust njóta meðal
ungmenna. Sumir þeirra sem bendlaðir væru við
hryðjuverkasamsæri væru aðeins sextán ára.
Washington. AFP. |
Harry Reid, leið-
togi demókrata í
öldungadeild
Bandaríkjaþings,
lýsti því yfir á
þinginu fyrir ári
að „kraftaverk“
þyrfti til að
demókratar
fengju nógu mörg
þingsæti til að fella meirihluta repú-
blikana í deildinni.
Hann og félagar hans sönnuðu í
vikunni að kraftaverk gerast enn því
nú er ljóst að demókratar fengu 49
öldungadeildarsæti í kosningunum á
þriðjudaginn var og þar sem tveir
óháðir þingmenn í deildinni styðja
demókrata eru þeir í raun með
meirihluta þar.
„Kann að berjast“
Reid er mormóni og fyrrverandi
hnefaleikamaður. Hann þykir gagn-
orður og þýðmáll en er sagður geta
verið harður í horn að taka.
„Ég hef alltaf viljað dansa frekar
en berjast,“ hefur hann sagt um
sjálfan sig. „En ég kann að berjast.“
Reid fæddist í námubænum
Searchlight í Mojave-eyðimörkinni í
Nevada 2. desember 1939 og ólst þar
upp. Faðir hans var námumaður,
móðir hans þvottakona og þau
bjuggu í húsi sem var án heits vatns
og salernis.
Hann ferðaðist yfirleitt á putt-
anum þegar hann var unglingur til
að geta stundað nám í næsta fram-
haldsskóla.
Hann gekk síðan í Ríkisháskóla
Utah og lauk laganámi við George
Washington-háskóla. Á náms-
árunum var hann jafnframt lög-
reglumaður í bandarísku höfuðborg-
inni á kvöldin.
Reid hefur átt það til að beita mál-
þófi á þinginu í baráttunni við repú-
blikana. Eitt sinn hélt hann uppi
málþófi með því að lesa bók sem
hann skrifaði um heimabæ sinn,
Searchlight.
Reid hefur verið leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni í tvö ár.
Hann þykir íhaldssamari en flestir
aðrir demókratar á þinginu. Hann er
kirkjurækinn mormóni og algerlega
andvígur fóstureyðingum.
Fremur kalt hefur verið á milli
Reids og George W. Bush Banda-
ríkjaforseta en þeir segjast nú vera
tilbúnir að vinna saman til að koma
einhverju í verk.
„Þeir hafa sýnt slæmt fordæmi
með því að vinna ekki með okkur,“
sagði Reid um Bush og embætt-
ismenn hans eftir kosningasigur
demókrata. „En við ætlum ekki að
fara að dæmi þeirra.“
Íhaldssamur og
gamall boxari
Harry Reid
NÝJAR myndir frá Cassini, könn-
unarfari NASA, Geimvísindastofn-
unar Bandaríkjanna, sýna storm
sem geisar á suðurpól Satúrnusar
og líkist fellibyl. Stormurinn er
8.000 kílómetrar að þvermáli, eða
sem nemur um tveimur þriðju af
þvermáli jarðar.
Er þetta fyrsti fellibylurinn sem
greinst hefur á reikistjörnu annarri
en jörðinni, að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins,
BBC.
Vísindamenn segja að storm-
urinn sé með auga og ský sem líkist
fellibyljum á jörðinni. Hann virðist
hins vegar vera fastur á suð-
urpólnum og ekki færast til.
„Hann líkist fellibyl en hegðar
sér ekki eins og fellibylur,“ sagði
Andrew Ingersoll, vísindamaður
sem hefur rannsakað myndirnar.
Stormurinn snýst réttsælis á um
550 km hraða á klukkustund.
Myndir af
„fellibyl“ á
Satúrnus
Augað Mynd af Satúrnusarstormi.
Reuters
New York. AFP. |
Bandaríski sjón-
varpsfréttamað-
urinn Ed Bradley
lést af völdum
hvítblæðis, 65
ára að aldri, að
sögn bandaríska
sjónvarpsins
CBS í fyrradag.
Bradley starf-
aði við sjónvarpsþáttinn „60 mín-
útur“ í 25 ár, eða frá árinu 1981, og
fékk fjölda verðlauna fyrir vandaða
fréttamennsku, að sögn CBS. Brad-
ley hóf störf fyrir CBS-sjónvarpið í
París árið 1971 og starfaði síðan í
Saigon, nú Ho Chi Minh-borg, undir
lok Víetnamstríðsins.
Ed Bradley lést
úr hvítblæði
Ed Bradley
Belgrad. AFP. | Boris Tadic, forseti
Serbíu, staðfesti í gær að efnt yrði
til þingkosninga í landinu þann 21.
janúar n.k., en þingið hafði áður
samþykkt nýja stjórnarskrá þar
sem Kosovo-héraðið er skilgreint
sem hluti landsins. Á sama tíma til-
kynnti Martti Ahtisaari, erindreki
Sameinuðu þjóðanna í Kosovo, að
drögum um framtíð Kosovo yrði
frestað þangað til að þeim loknum.
Tilkynning Ahtisaaris vakti reiði
á meðal albanska meirihlutans í
Kosovo, auk þess sem að Vojislav
Kostunica, forsætisráðherra Serb-
íu, sagði ferlið óþarft, Kosovo
myndi ávallt tilheyra Serbíu.
Kosovo er enn skilgreint sem
hérað í S-Serbíu en hefur allt frá
átökunum á Balkanskaga verið
undir stjórn SÞ og Atlantshafs-
bandalagsins, NATO.
Íbúar Pristina, höfuðborgar Kos-
ovo, lýstu yfir vonbrigðum með
ákvörðun SÞ um að slá úrskurði um
framtíð héraðsins á frest og lýsti
forseti héraðsins, Fatmir Sejdiu, yf-
ir hneykslan á því að kosningarnar
hefðu ollið frestinum, en fastlega er
búist við að SÞ muni að lokum veita
albanska meirihlutanum fullt sjálf-
stæði.
Úrskurði um
Kosovo frestað
Gaza. AFP. | Við-
ræður Mahmoud
Abbas, forseta
Palestínu og leið-
toga Hamas, um
myndun þjóð-
stjórnar, eru í
fullum gangi eftir
nokkurra mánaða
þref.
„Viðræðurnar
hafa þokast í rétta átt og fundir mín-
ir með forsetanum skilað árangri.
Við höfum lagt grunninn að myndun
þjóðstjórnar,“ sagði Ismail Haniya,
forsætisráðherra Palestínu, í gær.
Hamas leiðir núverandi ríkis-
stjórn og sagði Haniya samkomulag
hafa náðst á milli samtakanna og
Fatah, hreyfingar Abbas forseta og
að „góðra frétta“ væri að vænta inn-
an tveggja til þriggja vikna.
Talsmaður forsetans, Nabil Abu
Rudeina, tók undir að viðræðurnar
gengju vel líkt og Fawzi Barhum,
talsmaður Hamas, sem bætti því þó
við að fylkingarnar væru enn ekki
tilbúnar að nefna nýjan leiðtoga
hinnar væntanlegu þjóðstjórnar.
Frá því að Hamas komst til valda í
upphafi ársins hafa viðskiptaþvinga-
nir gegn Palestínumönnum leitt til
mikils skorts og hefur Haniya boðist
til að segja af sér til að fá þeim aflétt.
Nálgast
þjóðstjórn
Haniya
LIÐSMENN uppreisnarsveita maóista og stuðnings-
menn þeirra á sigurfundi í Katmandu, höfuðborg Nep-
als, í gær. Tugir þúsunda maóista tóku þátt í sig-
urfundum sem haldnir voru í Katmandu og fleiri
borgum Nepals til að fagna friðarsamkomulagi upp-
reisnarmannanna og stjórnarinnar.
AP
Maóistar fagna friðarsamningi í Nepal