Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 67 menning Nordica hotel Suðurlandsbraut 2 VOX Bistro 11.30-22.30 Opið alla vikuna www.vox.is E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 9 9 6 Borðapantanir: 444 50 50 eða vox@vox.is Villibráðarmatseðill í nóvember. Norrænir gestakokkar Fyrstur í röðinni er Réne Redzepi frá hinu glæsilega veitingahúsi NOMA í Kaupmannahöfn. Réne matreiðir fyrir gesti VOX 23.-25. nóvember. Í jólaskapi Frá 1. des. verður jólamatseðill með íslenskri villigæs í aðalrétt. Þorláksmessa Hlaðborð með þjóðlegu ívafi. Gleðileg hátíð Hátíðarmatseðlar aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag. Nýársdagur Glæsilegur kvöldverður með íslensku hreindýrakjöti í aðalhlutverki. VOX Restaurant 18.30-22.30 Opið þri.-lau. Vetrardagskrá VOX girnileg vetrardagskrá Í DAG verða opnaðar þrjár sýningar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Í Arinstofu verða óhlutbundin verk í eigu listasafnsins til sýnis en lista- mennirnir Kristinn Már Pálmason og Kristín Helga Káradóttir sýna verk í sínum hvorum salnum. Sýning Kristins í Ásmundarsal er stór málverkainnsetning sem er unnin sérstaklega inn í rými sal- arins. Efnislega samanstendur inn- setningin m.a. af mannshári, áli, ljósi, olíulit og krossvið og er hún byggð á samþættingu ólíkra aðferða og merkingarfræðilegra þátta í tungumáli málverksins. Kristín Helga sýnir myndbands- sviðsetningu í Gryfju. Um er að ræða stutt sviðsett myndskeið sem er varpað upp í sýningarrýminu en það hefur verið klætt í búning sem rammar myndirnar inn. Sjálf kemur listakonan fram í myndskeiðunum. Sviðsetningin nýtur liðsinnis tónlist- armannsins Bjarna Guðmanns Jóns- sonar. Listamennirnir ræða verk sín Kristinn Már útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1994 og er auk þess með MFA- gráðu frá The Slade School of Fine Art í London. Hann hefur und- anfarin ár gert margvíslegar til- raunir í málverki. Kristín Helga útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2004 með viðkomu í Listaakademíunni í Kaup- mannahöfn sem skiptinemi. Mörg fyrri myndbönd hennar fjalla um til- vistina á einn eða annan hátt og lýsa líðan eða aðstæðum sem áhorf- endanum gefst kostur á að upplifa á sinn hátt. Næstkomandi sunnudaga klukk- an 15 munu listamennirnir svo ræða verk sín við gesti Listasafns ASÍ: Kristinn Már sunnudaginn 19. nóv- ember og Kristín Helga þann 26. sama mánaðar. Sýningarnar þrjár standa allar til 3. desember og er aðgangur ókeypis. Kristinn og Kristín í ASÍ Morgunblaðið/Eyþór Listamenn Kristinn og Kristín. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is „ÞETTA eru myndir af alls konar stöðum, t.d. geymslu, stofu, skrifstofu, klósetti og hvað- eina,“ segir ljósmyndarinn Spessi um við- fangsefni sýningarinnar Locations sem opnar í aðalsal Hafnarborgar klukkan 20 í kvöld. „Hver mynd er lítil saga. Þetta eru allt staðir þar sem þú sérð einhver ummerki mannfólks- ins auk þess sem hver staður hefur auðvitað sína sögu án aðkomu mannsins.“ Spessi segir myndir sínar vera hlutlausar að því leyti að hann taki ekki beina afstöðu til þess hvað það sé sem hann vilji sýna af til- teknum stað. „Ég reyni að vera eins hlutlaus og ég get. Þannig að þetta er líka svona heið- arlegt „documentary“.“ Tekur enga fagurfræðilega afstöðu Aðspurður um þær forsendur sem liggja að baki vali myndefnanna segist Spessi í raun ekkert sérstaklega hafa valið viðfangsefnin, þau hafi allt eins valið hann. „Ég fer bara af stað, í ferðalag hringinn í kringum landið eða innan Reykjavíkur. Svo er það bara spurning um hvað fangar mig, hvað mig langar að skrásetja. Ég tek enga fag- urfræðilega afstöðu í þessum myndum. Stund- um eru þær fallegar og stundum ekki.“ Stór hluti frá Kárahnjúkum Myndirnar hefur Spessi tekið á síðustu þremur árum vítt og breitt um landið. „Það er gaman að því að myndir sem ég hef tekið áður geta allt í einu passað inn í þessa seríu. Það geta t.d. verið bensínstöðvar eða tjaldstæði. Annars er stór partur myndanna frá Kára- hnjúkum.“ Verkin á sýningunni eru sýnishorn úr bók sem mun bera titilinn Locations og er vænt- anleg í desember. Meðan sýningin í Hafn- arborg samanstendur af 30 myndum er nýja bókin hins vegar mikill doðrantur sem hefur að geyma yfir 200 myndir. Spessi með sýningu í Hafnarborg Án upphafningar Ljósmyndir Spessa þykja blátt áfram og hreinskilnislegar, lausar við allar ýkjur og upphafningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.