Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 33
heilsa MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 33 LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 551-6646 Opið í dag Laugardag frá kl 10-16 EKKI eru það ný tíðindi að reyk- ingar auka hættu á krabbameini en nú hefur verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að þeir sem byrja mjög ungir að reykja og einnig þau börn sem þurfa að þola óbeinar reykingar eru líklegri en aðrir til að fá þvagblöðrukrabbamein seinna á ævinni. Kemur þetta fram í rannsókn sem greint er frá á net- miðli BBC, en 430.000 manns um alla Evrópu tóku þátt í henni. Þvagblöðrukrabbamein er fjórða algengasta krabbamein meðal karl- manna og dregur 4.800 manns til dauða í Bretlandi á ári hverju. Fyrrnefnd rannsókn leiddi í ljós að þeir sem byrja að reykja fyrir 15 ára aldur eru þrefalt líklegri en þeir sem aldrei hafa reykt til að fá krabbamein í þvagblöðru seinna á ævinni. Reykingafólk á öllum aldri er þá í fjórfalt meiri hættu en aðrir og þeir sem í barnæsku þurftu að þola óbeinar reykingar voru 40% líklegri en aðrir til að greinast með það. Ekki voru hins vegar tengsl milli þvagblöðrukrabbameins og óbeinna reykinga hjá fullorðnum. Rannsóknin, líkt og margar fyrri, bendir því til að börn séu mun við- kvæmari en fullorðnir fyrir krabba- meinsvaldandi efnum og er því enn ein ástæða til að banna reykingar á opinberum vettvangi. Af þessu má ljóst vera að foreldrar sem reykja ættu að sjálfsögðu aldrei að reykja í návist barna sinna. Börn viðkvæm fyrir óbeinum reykingum Hættulegt Þeir sem byrja að reykja undir fimmtán ára aldri eru líklegri en aðrir til að fá krabbamein í þvagblöðruna. Á fundi KvæðamannafélagsinsIðunnar á föstudagskvöld í liðinni viku var haldið agnarlítið hagyrðingamót. Sigrún Haraldsdóttir orti um hvali: Litla eigum virka vörn í vandlætingarflóði þjóða er markvisst myrða börn meður köldu blóði. Þá Helgi Zimsen: Græningja ef gegna á grófu alræði langreyðar hér lifa þá og lúta kvalræði. Og hann sneri út úr yrkisefninu: Öfughneigð í ýmsum brýs, undan líta hinir. Masókistar munu víst mestu kvalavinir. Loks orti Ragnar Böðvarsson: Varasamt er að veiða hval vitað ég hef það nokkuð lengi. En gjarnan þess ég geta skal að gott er bragðið af súru rengi. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Hvalir á fundi Iðunnar Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.