Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 73
dægradvöl
Staðan kom upp í fyrri hluta Flug-
félagsdeildar Íslandsmóts skákfélaga
sem fór fram fyrir skömmu. í
Menntaskólanum í Hamrahlíð. Dagur
Arngrímsson (2305) hafði svart og
lék nú stórmeistarann Henrik Dani-
elsen (2524) grátt eftir eingöngu 12
leiki. 12... h6! svartur vinnur nú
óumflýjanlega mikið lið eftir þetta
þar sem hvíta drottningin verður
innikróuð.13. Bxh6 Bxh6 14. Dxh6
Rg4 15. Dh4 g5! 16. Dh5 Kg7 17. h4
f6! 18. hxg5 Hh8 19. Dxh8+ svartur
hefur teflt af miklum móð og var fall
hvítu drottningarinnar óumflýjanlegt
þar eð 19. gxf6+ hefði verið svarað
með 19...Dxf6 20. Dxd5 Dxf2#. Lok
skákarinnar urðu: 19... Dxh8 20. Rf1
fxg5 21. dxe4 d4 22. cxd4 Rxd4 23.
e3 Df8 24. f4 gxf4 25. gxf4 Ba6 og
hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Spurning um stíl.
Norður
♠Á
♥10642
♦Á106
♣ÁD643
Vestur Austur
♠D6542 ♠7
♥7 ♥KDG953
♦G542 ♦K3
♣752 ♣KG109
Suður
♠KG10983
♥Á8
♦D987
♣8
Það er enginn á hættu og suður tek-
ur fyrstur til máls. Hvað á hann að
segja? Pass, einn spaða, tvo spaða,
kannski þrjá spaða? Þetta er spurning
um stíl, en Bjarna Einarssyni leist best
á þrjá spaða þegar spilið kom upp í
Deildakeppni BSÍ fyrir skömmu.
Norður hækkaði í fjóra spaða og nú var
austur í erfiðri stöðu. Frá hans bæjar-
dyrum gátu NS verið að fórna fyrir-
fram og geim unnist í AV. Alla vega
valdi austur að melda fimm hjörtu. Þar
var hann doblaður og galt fyrir 800
þrátt fyrir að fá slag í afslátt. Í þetta
sinn hefði gefist betur að passa fjóra
spaða (eða dobla), en það er auðvelt að
vera vitur eftirá. Kjarni málsins er þó
þessi: þrír spaðar er eina sögnin sem
setur pressu á mótherjana, án þess að
gefa ranga mynd af spilunum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 bitur kuldi,
4 skip, 7 draga úr, 8 mjó-
an dúk, 9 samhljóman
orða, 11 harmur,
13 drepa, 14 heiðurinn,
15 ættar, 17 hestur,
20 handfang, 22 þröng
hola, 23 glufum,
24 hafna, 25 gamla.
Lóðrétt | 1 nirfill, 2 hæn-
ur, 3 mjög, 4 brún,
5 hindra, 6 kind,
10 dimmviðrið, 12 fugl,
13 hryggur, 15 ánauð,
16 jurt, 18 er til, 19 deila,
20 skotts, 21 geri tilkall
til.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 tónsmíðar, 8 ilmur, 9 afmáð, 10 nál, 11 dorga,
13 dýrin, 15 flesk, 18 satan, 21 oft, 22 segul, 23 allan,
24 fannbarin.
Lóðrétt: 2 ólmar, 3 sárna, 4 íhald, 5 armar, 6 hind, 7 æð-
in, 12 gas, 14 ýsa, 15 fisk, 16 engla, 17 kolin, 18 staka,
19 tolli, 20 nánd.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
1Matsfyrirtækið Fitch hefur veittríkissjóði Íslands nýtt lánshæfis-
mat. Hvað heitir hitt fyrirtækið sem
gefur Íslandi samskonar mat?
2 Farsóttarlæknir Íslendinga gefurekki mikið fyrir nýjustu kenningar
um að bólusetning aldraðra við inflú-
ensku sé gagnslaus. Hvað heitir
læknirinn?
3 Hannes Pétursson hefur sent frásér nýja ljóðabók eftir 13 ára hlé.
Hvaða titil ber ljóðabókin?
4 Kvenskörungurinn Nacny Polesileiddi demókrata til sigurs í full-
trúadeild bandaríska þingsins. Síðan
unnu demókratar nauman sigur í öld-
ungadeildinni. Hver fer fyrir þeim þar?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Nýr varnarmálaráðherra í stað Rums-
felds, er Robert Gates. Hann gegndi áður
áhrifamesta embætti í Bandaríkjunum.
Hvert er það? Svar: Forstjóri CIA. 2. Óvissa
er um framtíð Íslendingabókar. Annað fyrir-
tæki starfrækir gagnagrunninn. Hvað heitir
það? Svar: Friðrik Skúlason ehf. 3. Hvaða
knattspyrnukappi hefur beitt sér fyrir stofn-
un Vinafélags Grímseyjar? Svar: Helgi Daní-
elsson. 4. Hvaða kvikmynd Pedros Almo-
dóvars er með sex tilnefningar fyrir
evrópsku kvikmyndaverðlaunin? Og hvað
þýðir titillinn. Svar: Volver – að koma aftur.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
ÞAÐ er alltaf
skemmtilegt að fá
tækifæri til þess að
heyra frumlegar
hljómsveitir spila
vandaða og vel út-
setta tónlist. Bob er svo sannarlega í
þeim hópi. Tónlistin þeirra er hvorki
hefðbundin né ofhlaðin, hún er
merkilega sérstök og dramatísk.
Útsetningarnar eru afar vand-
aðar. Það er mikið um að vera en
samt sem áður tekst að setja það
fram á mínímalískan hátt. Gítar-
hljómurinn á plötunni tengir lögin
skemmtilega saman og gefur henni
góðan heildarhljóm án þess þó að ég
hafi fengið það á tilfinninguna að ég
væri alltaf að hlusta á sama lagið.
Þennan hljóm er ekki auðvelt að út-
skýra en hann er þó ekki óþekkt
fyrirbæri í íslenskri tónlist. Kannski
minnir hann örlítið á neðanjarðar-
tónlist Íslendinga á níunda áratugn-
um. Þetta er samt ekki beint pönk
eða nýbylgja – lögin eru nefnilega
skreytt með fallegum strengjaút-
setningum og píanótónum og stund-
um verða þau sálarrík og einkar
melódísk.
Það má endalaust telja upp aðra
tónlistarmenn eða hljómsveitir sem
Bob líkjast. Á Dodqoqpop fannst
mér ég heyra áhrif allt frá Kuklinu
til Placebo og þaðan yfir í Frank
Zappa. Reyndar er tónlist Bob of
fjölbreytt til þess að megi líkja henni
við nokkurn skapaðan hlut. Þeir eru
eins og annað afbrigði af þeim frum-
leika sem kemur fram hjá virkilega
góðum hljómsveitum sem eru ekki
hræddar við tilraunastarfsemi. Það
er svo merkilegt að mér finnst lögin
verða kannski fulldramatísk á köfl-
um, en svo tekst Bob alltaf að brjóta
það upp og skapa orku sem sjaldan
finnst í tónlist sem þessari.
Það sem mér þótti helst vanta upp
á tengist söngnum, mér þótti söngv-
ararnir fínir en oft var eins og laglín-
urnar væru ekki nægilega sterkar
eða að samruni söngs og lags gengi
ekki fyllilega upp, þetta gildir þó
ekki um öll lögin. Ég var til dæmis
mjög hrifin af söngnum í Melody
Sheep. Kannski vegna þess að ég er
mikill sökker fyrir grípandi melódí-
um og hressilegum bassalínum. Mér
finnst einnig vert að taka það fram
að hljóðfæraleikurinn á plötunni er
frábær. Það skiptir engu máli hvaða
hljóðfæri um er rætt. Framúrskar-
andi alveg hreint.
Umslag plötunnar er saga í heila
grein út af fyrir sig. Það má fletta
bæklingnum og skoða þar nafn
hljómsveitarinnar og plötunnar á
ýmsa vegu. Enda hafa liðsmenn Bob
leikið sér vel með grafískar hug-
myndir nafns síns (bobdodqoqpop).
Þetta er ekki plata sem síast auð-
veldlega inn, hún er ekki þess eðlis
að hún eigi að skiljast auðveldlega.
Ég er ekki viss um að hún eigi eftir
að verða vinsælasta platan en hún er
ein af þeim frumlegustu og vönd-
uðustu sem ég hef heyrt lengi. Hún
er avant garde – án tilgerðar.
Frumlegt án tilgerðar
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur hljómsveitarinnar Bob,
nefndur Dodqoqpop. Lög og textar eru
eftir Bob. Bob eru þeir Skúli Agnarr sem
leikur á bassa, Matthías Arnalds á gítar,
Finnur Pind á gítar og Friðrik Helgason á
trommur. Auk Bob koma fram á diskinum
Gunnar Jónsson, söngur, Spaceman,
söngur, Sigtryggur Baldursson, ásláttur,
Þórður Þorsteinsson á saxófón, Anna
Finnbogadóttir á selló, Elín Pjetursdóttir
á flautu og Guðrún Mist Sigfúsdóttir á
fiðlu. Umsjón með upptökum í Gróður-
húsinu hafði Sturla Mio Thorisson. Hljóð-
blandað í Gróðurhúsinu af Mio og Bob.
Rass gefur út.
Bob – Dodqoqpop
Helga Þórey Jónsdóttir
Hljómsveitin Bob eru Finnur Kári Pind Jörgensson, Matthías Arnalds
Stefánsson, Friðrik Helgason og Skúli Agnarr Einarsson.