Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Félagslíf
Núna er rétti tíminn til að
skrá sig í aðventu- og
áramótaferðirnar.
Tryggðu þér pláss, mikil bókun
er í ferðirnar og biðlisti í jeppa-
ferðina .
1.-3.12. Aðventuferð í Bása -
Kjörin fjölskylduferð.
Brottför frá BSÍ kl. 20:00.
0612HF01. Fararstj. Marrit Mein-
tema og Emilía Magnúsdóttir.
V. 11.500/13.200 kr.
9.-10.12. Aðventuferð í
Bása - Kjörin fjölskylduferð -
jeppaferð
Brottför kl. 10:00 frá Hvolsvelli.
0612JF01. Biðlisti. Fararstj.
Guðrún Inga Bjarnadóttir og
Guðmundur Eiríksson.
V. 2.900/3.500 kr.
30.12.-1.1.2007. Áramót í
Básum
Brottför frá BSÍ kl. 8:00.
0612HF02
Áramótaferðir Útivistar hafa
fyrir löngu unnið sér fastan sess.
Það er sérstakt að fagna nýju ári
og strengja ný heit á fjöllum. Þar
njóta flugeldarnir og áramóta-
brennan sín vel.
V. 14.400/16.400 kr.
Skráningar í ferðir á skrif-
stofu Útivistar í síma 562 1000
eða utivist@utivist.is.
Sjá nánar á www.utivist.is
Næsta myndakvöld FÍ:
Miðvikudaginn 15. nóvember kl.
20. Björn Hróarsson sýnir
myndir úr undirheimum Íslands
sem og af Laka og Lakagígjum
Örnefni í utanverðum Eyja-
firði. Valgarður Egilsson vara-
forseti FÍ heldur fyrirlestur í dag,
laugardaginn 11. nóv. kl. 13.00 í
Lögbergi, stofu 1, um örnefi í
utanverðum Eyjafirði.
Allir velkomnir.
Fótspor á fjöllum. Út er komin
bókn ,,Fótspor á fjöllum”. Viðtöl
við sex valinkunna ferðafé-
laga. Páll Ásgeir Ásgeirsson
ræðir við Valgarð Egilsson,
Höskuld Jónsson, Sigrúnu Val-
bergsdóttur, Gerði Steinþórs-
dóttur og Ingvar Teitsson. Bókin
er á sérstöku tilboðsverði fyrir
ferðafélaga og hægt að nálgast
hana á skrifstofu Ferðafélagsins.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
EUMA félagið (European Manage-
ment Assistants) eða „félag aðstoð-
armanna yfirmanna“ hélt almenna
ráðstefnu á Grand hótel í Reykja-
vík, í október sl.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru
dr. Agnes Agnarsdóttir, Ásdís
Halla Bragadóttir, Halla Tóm-
asdóttir, dr. Herdís Þorgeirsdóttir
og Thomas Möller.
Ráðstefnan var afar vel sótt og
ákvað félagið að láta gott af sér
leiða og gefa af þessu tilefni hundr-
að þúsund krónur til söfnunarátaks
Krabbameinsfélagsins – bleiku
slaufunnar.
Guðrún Agnarsdóttir veitti við-
töku framlagi félagsins.
Gjöf Guðrún Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, tek-
ur við gjafabréfi EUMA á Íslandi. Guðrún Erla Leifsdóttir, formaður
EUMA (t.v.), og Hanna Jónsdóttir gjaldkeri (t.h.) afhentu gjöfina.
EUMA-félagið lætur
gott af sér leiða
BIFREIÐAUMBOÐIÐ Askja verð-
ur með opið hús í dag, laugardag, í
húsakynnum sínum í Skútahrauni 2a
í Hafnarfirði kl. 10–16 til að fagna því
að fyrirtækið hefur hlotið formlega
viðurkenningu sem fullgildur sölu-
og þjónustuaðili Mercedes Benz á Ís-
landi. Af því tilefni efnir Askja til
samkeppni um hver eigi fallegasta
Mercedes Benz-atvinnubílinn á Ís-
landi.
Keppnin fer fram í þremur þyngd-
arflokkum: 2.000–6.900 kg, 7.000–
15.900 kg og 16.000 kg og stærri, og
velur fimm manna dómnefnd frá
Öskju og Mercedes Benz fallegustu
bílana. Úrslitin verða tilkynnt á
heimasíðu Öskju, www.askja.is, en
aðalvinningurinn er heimsókn í
Mercedes Benz-verksmiðjurnar í
Þýskalandi, þar sem m.a. verður far-
ið í heimsókn í nýja Mercedes Benz-
safnið.
Einnig verður frumsýndur nýr
Mercedes Benz Sprinter en sala
þessara vinnubíla hefur gengið mjög
vel hér á landi á undanförnum miss-
erum, segir í fréttatilkynningu.
Leita að fallegasta Merc-
edes Benz-atvinnubílnum
BÓKAKAFFI í hinni rótgrónu
verslun Eymundsson í Austurstræti
verður opnað í dag, laugardag.
Gerðar hafa verið gagngerar
breytingar á húsnæðinu og bætt við
einni hæð þannig að mun rýmra
verður um viðskiptavini og vörur,
sérstaklega erlendar bækur. Te &
kaffi sér um rekstur kaffihússins þar
sem boðið er upp á kaffidrykki, sæl-
kerasamlokur, kökur og fleira. Við-
skiptavinir kaffihússins geta einnig
skoðað bækur og gluggað í tímaritin
sem fást í versluninni. Boðið er upp á
þráðlausan netaðgang og á góðum
dögum verður opnað út á skjólgóðar
suðursvalir kaffihússins fyrir gesti.
Í tilefni opnunarinnar verður boð-
ið upp á skemmtidagskrá tónlistar-
manna og rithöfunda í Eymundsson í
Austurstræti á laugardag. Einnig
býður Te & kaffi gestum og gang-
andi upp á kaffidrykki frá klukkan
11.
Kaffihús í Eymundsson-
versluninni í Austurstræti
JÓLAKORT Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna er nú
komið í sölu. Um er að ræða annað
kortið í nýrri seríu sem hönnuð er
af Braga Einarssyni og nefnist
þetta kort Giljagaur var annar …
Kortin eru 10 saman í pakka og
kostar pakkinn 1000 krónur. Jóla-
kortin eru tvöföld og fylgir hvítt
umslag með hverju korti. Mögulegt
er að fá nafn og/eða merki (logo)
fyrirtækis prentað inn á kortin og
eru verðin eftirfarandi:
Hægt er að fylla út pöntunarform
á heimasíðunni SKB (www.skb.is -
jólakort) en einnig er hægt að
senda pöntun með tölvupósti á
skb@skb.is eða kíkja í kaffi á skrif-
stofu félagsins að Hlíðarsmára 14 í
Kópavogi og fylla út pöntunarform.
Jólakort Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna
Í TILEFNI af fyrsta feðradeg-
inum á Íslandi heldur Félag
ábyrgra feðra ráðstefnu um stöðu
feðra og barna á Íslandi. Ráð-
stefnan verður haldin á Hótel
Nordica, sunnudaginn 12. nóv-
ember, húsið verður opnað kl.
13.45.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða: Magnús Stefánsson, félags-
málaráðherra. Gísli Gíslason, for-
maður Félags ábyrgra feðra, dr.
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í
félagsráðgjöf. Tom Beardshaw,
frá Fathersdirect í Englandi.
Vigdís Finnbogadóttir verður
heiðursgestur ráðstefnunnar og
Pálmi Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri verður fundarstjóri.
Ráðstefnan er haldin af Félagi
ábyrgra feðra í samvinnu við fé-
lagsmálaráðuneytið og Jafnrétt-
isstofu. Ráðstefnan er öllum opin
og aðgangur ókeypis.
Feður í sam-
félagi nútímans
FÉLAG ÁBYRGRA feðra hélt aðal-
fund sinn fyrir skömmu. Í ályktun
frá fundinum segir að félagið fagni
því að Alþingi lögfesti sameiginlega
forsjá að meginreglu við skilnað
foreldra. Félagið harmar aftur á
móti að heimila ekki dómurum að
dæma í sameiginlega forsjá líkt og
lögheimildir eru fyrir í velflestum
nágrannaríkjum. Íslenskir dómarar
ættu að hafa óheftar hendur við að
dæma það sem þeir telji barni fyrir
bestu, þ.m.t að tryggja að barn njóti
forsjár beggja foreldra eftir skiln-
að, segir í ályktun fundarins.
Félag ábyrgra feðra hvetur
stjórnvöld til að lögfesta sameig-
inlega forsjá sem meginreglu, fyrir
öll nýfædd börn, einnig þegar for-
eldrar búa ekki saman. Öll börn
eiga að hafa sama rétt á að njóta
forsjár beggja foreldra sinna, óháð
hjúskaparstöðu foreldra. Félag
ábyrgra feðra fagnar því að félags-
málaráðherra hefur gert annan
sunnudag í nóvember að feðradegi
á Íslandi. Feðradagurinn táknræn
viðurkenning á mikilvægi föð-
urhlutverksins í okkar samfélagi.
Félag ábyrgra feðra skorar á rík-
isstjórn að endurskoða núverandi
meðlagskerfi frá grunni, sem og
viðurlög við umgengnistálmunum.
Félag ábyrgra feðra hvetur
dómssmálaráðherra til að skipa
nýja sifjalaganefnd. Þetta er nauð-
synlegt til að fylgjast með rétt-
arþróun erlendis og til að tryggja
að íslensk sifjalög tryggi ávallt sem
best réttindi barna á Íslandi, segir í
ályktuninni.
Vilja endur-
skoðun á með-
lagskerfinu
UNDANÚRSLITAKVÖLD
Skrekksins, hæfileikakeppni ÍTR
fyrir nemendur Grunnskóla Reykja-
víkur, eru að hefjast. Kvöldin eru
þrjú og verða haldin 13., 14. og 15.
nóvember í Borgarleikhúsinu. Allir
grunnskólarnir í Reykjavík hafa
skráð sig til þátttöku að þessu sinni.
Allir þátttakendur eru í 8.–10.bekk
grunnskólanna og eru umsjónarað-
ilar í hverjum skóla. Borgarleikhúsið
tekur takmarkaðan fjölda gesta og
verður miðasala alfarið í höndum fé-
lagsmiðstöðva ÍTR. Úrslitakvöldið
verður síðan í Borgarleikhúsinu 21.
nóvember og verður það sýnt í
beinni útsendingu á sjónvarpsstöð-
inni Sirkus. Þar fá sigurvegarar
keppninnar afhentar Skrekksstytt-
urnar eftirsóttu. Þetta er í 16. sinn
sem keppnin er haldin og má því
segja að þetta sé orðinn fastur liður í
skólastarfi Reykjavíkur.
13. nóv.:
Austurbæjarskóli
Breiðholtsskóli
Háteigsskóli
Húsaskóli
Ingunnarskóli
Langholtsskóli
Réttarholtsskóli
Seljaskóli
Víkurskóli
14. nóv.:
Álftamýrarskóli
Borgaskóli
Foldaskóli
Hagaskóli
Hólabrekkuskóli
Klébergsskóli
Landakotsskóli
Laugalækjarskóli
Vogaskóli
15. nóv.:
Árbæjarskóli
Engjaskóli
Fellaskóli
Hamraskóli
Hlíðaskóli
Hvassaleitisskóli
Korpuskóli
Rimaskóli
Ölduselsskóli
Hæfileikakeppni ÍTR fyrir nemendur Grunnskóla Reykjavíkur
Undanúrslitakvöld
Skrekksins framundan
JÓLAKORT Soroptimistaklúbbs
Grafarvogs eru komin í sölu.
Myndin „Gleðileg Jól“ eftir Elsu
Nielsen prýðir kortin að þessu
sinni. Hægt er að fá kortin bæði
með og án texta. Verð kortanna
með umslagi er 100 kr. stk. Þau eru
seld tíu saman í pakka.
Allur ágóði af sölu kortanna
rennur til líknarmála.
Jólakort
Soroptimista í
Grafarvogi