Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði lít-
illega í 6.439 milljón króna við-
skiptum með hlutabréf í gær, eða
um 0,07% og var hún skráð
6.243,81 stig þegar Kauphöllinni
var lokað.
Hlutabréf Actavis hækkuðu
mest eða um 2,83%. Bréf Marels
hækkuðu um tæp 2% og bréf Al-
fesca hækkuðu um 0,6%. Bréf
Glitnis lækkuðu um 0,88% og
bréf FL Group lækkuðu um
0,87%.
Hlutabréf hækka
● NÝ raftækja-
verslun, MAX,
verður opnuð við
Kauptún í Garða-
bæ laugardag-
inn 18. nóv-
ember nk.
Verslunin er í
jafnri eigu Haga,
dótturfélags
Baugs Group, og
SM fjárfestinga
sem eiga m.a. Sjónvarpsmiðstöðina
og Heimilistæki.
Einar Ólafur Speight, rekstr-
arstjóri MAX, segir að verslunin muni
kappkosta að hafa glæsilegasta
vöruúrvalið frá sem flestum fram-
leiðendum. „Lágt vöruverð hjá MAX
er neytendum til hagsbóta og eykur
á samkeppnina á íslenskum raf-
tækjamarkaði,“ segir hann en að-
standendur MAX halda því fram að
þetta verði stærsta raftækjaverslun
landsins.
Boða lækkun á
verði raftækja
Einar Ólafur
Speight
● HEILDARÚTLÁN Íbúðalánasjóðs
námu 6,2 milljörðum króna í októ-
ber, sem er 82% aukning frá fyrra
mánuði. Hjá sjóðnum er þessi
mikla aukning milli mánaða sögð
vera að hluta til komin vegna um-
talsverðrar aukningar í leiguíbúð-
alánum, en alls námu þau 2,2
milljörðum króna í mánuðinum.
Almenn útlán sjóðsins námu 4
milljörðum króna í október sem er
tæplega 23% aukning milli mán-
aða. Samtals hefur sjóðurinn því
lánað tæplega 40 milljarða króna
á þessu ári, en áætlanir hans gera
ráð fyrir heildarútlánum á bilinu
43–49 milljarðar króna í árslok
2006.
Útlán Íbúðalánasjóðs
aukast um 82 prósent
STJÓRNIR Sparisjóðsins í Keflavík
og Sparisjóðs Ólafsvíkur hafa und-
irritað áætlun um samruna spari-
sjóðanna sem miðast reikningslega
við 1. júlí síðastliðinn. Í tillögu sem
lögð verður fyrir fund stofnfjáreig-
enda er gert ráð fyrir því að eigið fé
hins sameinaða sjóðs verði um átta
milljarðar króna. Við samrunann
verður miðað við sama hlutfall á milli
stofnfjár og annars eigin fjár í báð-
um sjóðunum. Til að ná því markmiði
hefur verið ákveðið að auka stofnfé í
Sparisjóði Ólafsvíkur, segir í til-
kynningu frá sparisjóðunum.
Í sameinuðum sjóði munu stofn-
fjáreigendur í Sparisjóði Ólafsvíkur
eiga um 3,2% stofnfjár en eigendur
stofnfjár í Sparisjóðnum í Keflavík
96,8% af heildarstofnfé.
„Rekstur beggja sjóða hefur
gengið vel og þeir hyggjast halda
áfram stöðu sinni sem máttarstólpar
í heimabyggð. Það er markmið
stjórna sjóðanna með tillögu um
sameiningu að efla starfsemi á
starfssvæðum sínum og sækja fram
á nýjum vettvangi. Stjórnirnar telja
sameiningu sparisjóða nauðsynlega
til að mæta kröfum tímans um al-
hliða og hagkvæma fjármálaþjón-
ustu við einstaklinga og fyrirtæki,“
segir m.a. í tilkynningunni.
Sparisjóðirnir í Keflavík
og Ólafsvík sameinast
Stofnfé sameinaðs sjóðs um átta milljarðar króna
talsverð spenna sé á vinnumarkaði
og launahækkanir skilir sér jafnan
inn í hækkun á verði þjónustu.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
segir um nýjustu vísitölu neyslu-
verðs að áhugavert sé að skoða
breytingu á þriggja mánaða verð-
bólgu. Hún sé komin niður í 3,2% og
hafi lækkað verulega síðan í vor. Sú
hreyfing gefi mesta vísbendingu um
það sem kunni að vera fram undan.
Því séu þetta mjög jákvæðar tölur og
í samræmi við spár greiningardeilda
bankanna.
Vísitala neysluverðs
lækkar lítillega
Verðbólga mælist 7,3 og eykst úr 7,2% í október
Morgunblaðið/Sverrir
Lækkar óvænt Matvöruverð lækkaði lítillega milli mánaða, en Greining
Glitnis segir að á þessum tíma séu venjulega meiri líkur á hækkun.
VÍSITALA neysluverðs er skráð
266,1 stig í nóvember og lækkaði um
0,04% frá fyrri mánuði, að því er
kemur fram í nýrri mælingu Hag-
stofunnar. Tólf mánaða verðbólga
mælist nú 7,3% og eykst úr 7,2% í
október. Undanfarna þrjá mánuði
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 0,8% sem jafngildir 3,2% verð-
bólgu á ári.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur
lækkað umtalsvert að undanförnu og
auk þess styrktist krónan um 3% í
síðasta mánuði. Vega þessir þættir
þyngst til lækkunar; verð á bensíni
og dísilolíu lækkaði um 3,5% milli
mánaða og hefur 0,23% áhrif til
lækkunar vísitölunnar.
Kostnaður vegna eigin húsnæðis
hækkaði hins vegar um 0,6% og hafði
0,1% áhrif til hækkunar vísitölunnar.
Þar af voru áhrif af hækkun mark-
aðsverðs 0,02% og af hækkun raun-
vaxta 0,08%. Þá segir Greining
Glitnis það athyglisvert að matvöru-
verð lækki lítillega þrátt fyrir líkur á
hækkun um þessar mundi.
Verðbólga á niðurleið
Nokkra hækkun má greina í þjón-
ustuverði í mánuðinum. Þjónusta á
hótelum og veitingastöðum hækkar
um 0,4% milli mánaða, auk þess sem
verð á tómstundum og menningu
hækkar um 0,55%. Að sögn greining-
ardeildar Kaupþings kemur ekki á
óvart að þjónusta hækki, þar sem
Í HNOTSKURN
» Síðastliðna tólf mánuðihefur vísitala neysluverðs
hækkað um 7,3%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 0,8%.
» Lægra eldsneytisverð íkjölfar gengishækkunar
og lækkunar á heimsmark-
aðsverði vegur þyngst til
lækkunar á vísitölunni.
TILLAGA þess efnis að nafni Avion
Group verði breytt í Hlutafélagið
Eimskipafélag Íslands verður tekin
fyrir á hluthafafundi Avion, sem
haldinn verður þriðjudaginn 21. nóv-
ember næstkomandi. Þetta kemur
fram í fundarboði sem sent var til
Kauphallar Íslands í fyrradag.
Miklar breytingar hafa orðið á
eignarhaldi Eimskipafélagsins á
undanförnum árum. Á gamlársdag
árið 2002 var undirritaður samning-
ur um kaup eignarhaldsfélagsins
Samsonar, sem þá var í eigu Björg-
ólfs Guðmundssonar, sonar hans
Björgólfs Thors, og viðskiptafélaga
þeirra Magnúsar Þorsteinssonar, á
45,8% hlut í Landsbanka Íslands.
Landsbankinn og tengdir aðilar
eignuðust ráðandi hlut í Hf. Eim-
skipafélagi Íslands í einni víðtæk-
ustu uppstokkun fyrirtækjasam-
steypa hér á landi rúmum átta
mánuðum síðar, eða í september
2003.
Á aðalfundi í Hf. Eimskipafélagi
Íslands í mars 2004 var nafni félags-
ins breytt í Burðarás hf. Þá fékk
dótturfélagið Eimskip ehf. nafnið
Eimskipafélag Íslands.
Avion kaupir
Um mánaðamótin október-nóvem-
ber 2002 keypti Magnús Þorsteins-
son ásamt fjárfestum um helmings-
hlut í flugfélaginu Atlanta.
Eignarhaldsfélagið Avion Group,
móðurfélag Atlanta og fleiri félaga,
tók formlega til starfa í ársbyrjun
2005. Avion keypti svo Eimskipa-
félag Íslands af Burðarási hf. um
mánaðamótin maí-júní árið 2005 og
hefur Eimskipafélagið síðan verið
dótturfélag Avion. Af því tilefni sagði
Magnús Þorsteinsson að kaupin á
Eimskipafélaginu hefðu gengið und-
ir heitinu „himinn og haf“ innan fé-
lagsins, með vísan til starfseminnar,
skipa- og flugfélagsrekstrar.
Umsvif Eimskips hafa aukist mik-
ið að undanförnu með kaupum Avion
á félögum í Kanada. Í síðasta mánuði
seldi Avion hins vegar megnið af
flugrekstri sínum og vegur Eim-
skipafélagið því meira en nokkru
sinni í starfsemi Avion, sem vænt-
anlega mun bera nafnið Hf. Eim-
skipafélag Íslands innan tíðar, eins
og „óskabarn þjóðarinnar“ var nefnt
þegar það var stofnað árið 1914.
Avion snýr aftur til upphafsins
Stefnt er að því að Avion Group verði Hf. Eimskipafélag Íslands
Vegur meira Eimskip vegur meira í
starfsemi Avion en áður.
EIMSKIP og
Qingdao Port
Group hafa und-
irritað vilja-
yfirlýsingu um
rekstur á
stærstu kæli-
geymslu í Kína
sem verður á
Qingdao-
höfninni, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá Avion Group, móð-
urfélagi Eimskips.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni
munu aðilarnir tveir í sameiningu
byggja kæligeymslu eftir evrópsk-
um stöðlum en hún mun rúma um
50.000 tonn og verður því stærsta
einingakæligeymslan í Kína. Þá
felur yfirlýsingin í sér möguleika
á stækkun um allt að 50 þúsund
tonnum til viðbótar.
Qingdao-höfn er þriðja stærsta
gámaflutningahöfnin í Kína en
áætlað er að 8 milljón gámaein-
ingar fari um höfnina á þessu ári.
Segir í tilkynningunni að sam-
vinna Eimskips og Qingdao Port
Group muni hraða mjög vexti
hafnarinnar í flutningum á hita-
stýrðum afurðum og að talið sé að
bygging kæligeymslanna geri
höfnina að stærstu dreifing-
armiðstöð fyrir frystar og kældar
sjávarafurðir í Asíu.
„Þetta er mikilvægur liður í
þeirri sýn Eimskips að verða leið-
andi aðili í hitastýrðum flutn-
ingum á heimsvísu,“ er haft eftir
Baldri Guðnasyni, forstjóra Eim-
skips, í tilkynningunni.
Eimskip
með rekst-
ur í Kína
*,)*
-.
# ) ) !
/!) < +
/ !+
/< +
/) < +
=),< +
8$+
:2< +
< +
> ' +
2& ? &+
0 +
0 !:+ +
@A:/ !@
. B= %:(
+
C +
/0.&(
!
DE +
: < +
F! & !< +
7+( +
1# %,% +
5 ,% +
1 0%
'
**
. G . % &)
2 ,
FHDI
3
*)
"#
!
"!
!
!
"
"
"!
!
3 &B
) %
&
1 % &4
> .
B
B
B
B
B
B
5 % -
/13
J/+ :(, &
) %
B
B
B
. %
) %
)%
7&K
.L@ #!
#
$
$
M
M
:1.D
8/N
#
#!
%
M
M
H/H
60N.+
#
#!!
%"
M
M
60N>+,
7
"
#
%
%
M
M
FHDN 8O9
#
#
$
M
M