Morgunblaðið - 11.11.2006, Síða 36
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
Hófstilltir brúðkaupssiðirog látlausar veislur erusérstakt einkenni ís-lenskra hjónavígslna,
eins ótrúlegt og það kann að
hljóma. Svokölluð stofubrúðkaup
tíðkuðust hérlendis fram yfir miðja
síðustu öld þar sem nýtnin og hag-
sýnin var allsráðandi.
„Það má segja að stofubrúð-
kaupin hafi verið ákaflega íslenskt
fyrirbæri,“ segir Hanna Rósa
Sveinsdóttir, safnvörður á Minja-
safni Akureyrar en þar fer senn að
ljúka sýningu sem fjallar um brúð-
kaupssiði fyrr og nú. „Þá gifti
presturinn brúðhjónin heima í
stofu hjá sér eða öðru hvoru þeirra
en þessi háttur var algengastur á
fyrri hluta 20. aldar og fram yfir
hana miðja. Viðhöfnin var lítil,
kannski bara kaffi hjá foreldrum
brúðarinnar fyrir allra nánustu
ættingja. Það var ákveðið látleysi
og ekkert bruðl enda þótti hrein-
lega ekki við hæfi að hafa mikið
við.“
Svartur og praktískur
Sýninguna setur Minjasafnið
upp í samstarfi við Þjóðminjasafns
Íslands og atvinnuljósmyndara á
Akureyri, auk þess sem ein-
staklingar á Akureyri og nágrenni
lánuðu muni á sýninguna. Sýning-
argripirnir eiga það sammerkt að
tengjast giftingum og samdrætti
karls og konu í gegn um tíðina.
Meðal annars má sjá brúðkaups-
klæði frá ólíkum tímum sem mörg
hver bera nýtnina og hagsýnina
með sér. „Töluvert var um að kon-
ur sem höfðu minni efni fengu lán-
uð góð peysuföt eða jafnvel skaut-
búning, sem var það allra fínasta,“
útskýrir Hanna Rósa. „Í kring um
1920 byrjuðu danskir brúðarkjólar
að sjást hérna og upp úr því fór
tískan að móta brúðarfatnaðinn.
Þetta má t.d. sjá á Charleston-
tímabilinu þar sem margir kjólar
voru með sítt mitti. Á árunum milli
1930–1950 þegar vöruskortur var
létu konur sauma á sig dragtir eða
einfalda kjóla, gjarnan svarta, sem
nýttust svo áfram sem samkvæm-
iskjólar lengi á eftir. Karlmenn
keyptu sér hins vegar jakkaföt
sem þeir notuðu síðan áratugum
saman.“
Einstaka efnaðir einstaklingar
efndu þó til meiri hátíðahalda þótt
slíkt væri ekki almennt. Sterkefn-
að fólk á fyrri öldum hélt svokölluð
viðhafnabrúðkaup sem voru
margra daga veislur þar sem ekk-
ert var sparað í mat og drykk. Sá
siður lagðist af um 1750. „Dæmi
voru um að fólk steypti sér í skuld-
ir til að geta haldið brúðkaup eftir
einhverjum viðmiðum sem það réð
ekki við. Það gat tekið mörg ár að
vinna sig út úr því. Einhverjir eru
svo sem líka að gera það í dag,“
segir Hanna Rósa og brosir.
Nýgift og háalvarleg
Auk brúðkaupsklæða má m.a.
sjá á sýningunni tryggðapanta,
brúðkaupsgjafir, giftingarhringa,
bónorðsbréf, styttur af brúðkaups-
tertum og stórt safn brúðhjóna-
mynda. Þeim er raðað upp í tíma-
röð, allt frá árinu 1895 til 2005 og
sýna vel þróunina, ekki bara í fata-
tískunni heldur líka því hvernig
myndatakan hefur breyst. „Á elstu
myndunum eru hjónin háalvarleg
og milli þeirra er ekki mikil nánd,“
segir Hanna Rósa. „Smám saman
verður yfirbragðið léttara og í dag
má sjá mikla nálægð í myndunum
og jafnvel ýmiskonar sprell sem
áður hefði alls ekki þótt við hæfi.“
Eins og myndirnar bera með sér
hefur mikið vatn runnið til sjávar í
brúðkaupssiðum landans und-
anfarin ár og látleysi er sennilega
það síðasta sem kemur fólki til
Ekki við hæfi að hafa mikið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Myndasafn Hanna Rósa Sveinsdóttir safnvörður segir litla nánd milli
brúðhjóna á elstu myndunum sem teknar voru fyrir aldamótin 1900.
Litfagur Fjólu-
blátt er áberandi
litur í hönnun og
heimilisskrauti í
vetur, 89.980 kr.
Húsgagnahöllin.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttir
uhj@mbl.is
Þeir eru nettir, litríkir og formfagrir, stólarnir sem nú eru stáss-ið í stofunni. ,,Sófarnir eru að stækka og form þeirra að mýkj-ast. Þeir eru hjartað í stofunni sem oftar en ekki er fjölrými ogþá eru minni stólar notaðir með sófunum. Þeir gefa stofunni
um leið léttara yfirbragð,“ segir Hjalti Einar Sigurbjörnsson versl-
unarstjóri í Exó en hann fór á húsgagnasýninguna í Mílanó í vor. ,,Stól-
arnir eru oft í öðrum lit en sófinn og geta staðið einir og sér ef því er að
skipta. Stólar sem gefa möguleika á að halla baki eða hægt er að snúa er
einnig vinsælir. Formin eru margskonar en almennt virðast form hús-
gagna vera að mýkjast.“
hönnun
Svanurinn Fagur og fyr-
irmynd margra, eftir Arne
Jacobsen, 245.900 kr. Epal.
Þú getur
stólað á þá …
Á snúningsfæti
Það er hægt að
snúa sér í marga
hringi á stólunum
í vetur, 141.200
kr. Exó.
Hippalegur
Þessi er í
anda sjöunda
áratugarins,
80.554 kr. Bo.
daglegt líf
36 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
EF ÞÚ FINNUR EKKI LIT SEM PASSAR Í STOFUN
EKKI KENNA OKKUR UM
Hvar fást húsgögn sem sameina notagildi og frábæra hönnun? Jú, hjá BoConcept® þar sem við leggjum metnað okkar í að ná fram því besta í öllum
framleiðsluvörum okkar - allt frá heildarhönnun til minnstu smáatriða. Þú munt einnig sjá að verðið er jafn úthugsað og húsgögnin og aukahlutirnir.
Verð frá
78.214 kr.