Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 43
isins og þeirra sveitarfélaga sem
ekki eru aðilar að héraðsskjalasafni.
Starf skjalasafnanna hefur á síð-
ustu árum orðið sífellt markvissara í
því skyni að tryggja varðveislu
þeirra skjala sem hefur verið ákveð-
ið að ástæða sé til að varðveita til
frambúðar. Það felst til dæmis í því
að kalla eftir skjölum sem á að vera
búið að skila, í gerð varðveisluáætl-
ana og eftirliti með skjalastjórn op-
inberra aðila og að ekki sé eytt skjöl-
um sem ástæða er til að varðveita til
frambúðar. Þjóðskjalasafn þarf á
þennan hátt að fylgjast með yfir þús-
und afhendingaraðilum og Borg-
arskjalasafn hefur um 200 afhend-
ingaraðila innan borgarkerfisins.
Þessi hluti starfsemi safnanna er
mikilvægur í því skyni að heildstæð
mynd þjóðarsögunnar varðveitist og
að markvissar ákvarðanir séu teknar
um hvaða skjöl séu varðveitt og
hvaða skjölum sé óhætt að eyða.
Skjöl eru varðveitt af marg-
víslegum ástæðum, m.a. lagalegum,
fjármálalegum, sögulegum eða
vegna þess að skjölin varðveita upp-
lýsingar sem einstaklingar gætu
þurft að leita í.
Skjalasöfnin hafa að geyma ýt-
arlegar upplýsingar um líf hvers ein-
staklings frá vöggu til grafar. Í raun
er ótrúlegt hvað finnst af skjölum
um einstaklinga í opinberum skjala-
söfnun. Ástæðan fyrir varðveislu
þeirra er að þau hafa oft að geyma
upplýsingar um réttindi fólks eða
fjalla um líf fólks og er töluvert spurt
um þau. Aðgangur að slíkum skjöl-
um er oftast takmarkaður og vel
skilgreindur í lögum. Það hefur sést
á umræðunni um svokölluð hler-
unarskjöl að slík skjöl geta skipt ein-
staklingana sem fjallað er um miklu
máli.
Skjalasöfnin varðveita líka mikið
af skjölum sem fjalla um ákvarðanir
stjórnvalda og aðdraganda þeirra,
allt frá minni til stærri mála. Má þar
til dæmis nefna skipulagsmál og
byggingu opinberra bygginga. Flest
skjöl um ákvarðanir stjórnvalda eru
öllum opin.
Eins og áður sagði, þá hefur í til-
efni af norræna skjaladeginum verið
opnaður sérstakur vefur,
www.skjaladagur.is. Söfnin sem eru
með sýningu á vefnum eru Þjóð-
skjalasafn Íslands og Borg-
arskjalasafn Reykjavíkur, auk hér-
aðsskjalasafna Kópavogs,
Mosfellsbæjar, Akraness, Borg-
arfjarðar, Ísafjarðar, Skagafjarðar,
Akureyrar, Þingeyinga, Austfirð-
inga, Vestmannaeyja og Árnesinga.
Á vefnum eru jafnframt upplýsingar
um dagskrár safnanna í tilefni af
deginum, auk þess sem starfsemi
þeirra er kynnt. Þá er einnig á vefn-
um getraun. Fólk er hvatt til að
heimsækja þau söfn sem hafa opið
hús eða skoða fjölbreytt efni skjala-
sýningarinnar á vefnum, en þar eru
mörg skjöl og ljósmyndir sem hafa
ekki komið fyrir almenningssjónir
áður. Þess má geta að Þjóð-
skjalasafn Íslands opnar sýningu kl.
11 í lessal sínum að Laugavegi 162.
Þar eru sýnd skjöl er fjalla um lagn-
ingu símans 1906, vikið er að nýrri
stétt símritara, sýnd skjöl um síma-
gabb, úr póstreikningum árið 1900
og loks verða sýnd þar með skýr-
ingum sjaldgæf frímerki sem Þjóð-
skjalasafn varðveitir.
Höfundur er borgarskjalavörður í
Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 43
...Í SPARNAÐI
- til að mæta ófyrirséðum
fjárútlátum og grípa óvænt
tækifæri.
VARASPARNAÐUR
- til að safna fyrir öllu því
sem hugurinn girnist.
NEYSLUSPARNAÐUR
- til að byggja upp
fjárhagslega velgengni í
framtíðinni.
LANGTÍMASPARNAÐUR
Þrískiptur sparnaður Glitnis
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Ný aðferð til að ná betri árangri í sparnaði.
Farðu í næsta útibú eða á www.glitnir.is og kláraðu málið!