Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 64

Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 64
64 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Bílar 100% lánamöguleiki. Subaru Im- preza 2.0 Wagon 4WD árg. 1999. Ek. 139 þ. km. Ásett 690 þ. Tilboð 580 þ. 100% lánamöguleiki. Meðal af- borganir 20 þ. á mánuði. Getum bætt bílum á plan og skrá. Sími 567 4000. 100% lánamöguleiki. VW Passat Sedan árg. 12/2003. Ek. 49 þ. km. Ásett 1.690 þ. Tilboð 1.550 þ. Áhvíl- andi 1.480 þ. Afborganir 22 þús. á mánuði. Getum bætt bílum á plan og skrá. Sími 567 4000. Golf ´99. Fallegur Golf árg. ‘ 99, þarfnast smá viðgerðar á húddi, rúðu og nýja dempara, fæst á aðeins 350 þ. Listaverð 650 þ. Áhugas. hafa samband í s. 669 9398 eftir kl. 3. Hyundai árg. '05, ek. 15.000 km. Til sölu Getz, 4 dyra, lítur mjög vel út. Fæst gegn yfirtöku á láni.Upplýsingar í síma 565 9574, 895 6274, Erna. Hyundai Santa FE GRDI 12/2005 Díselbíll sem nýr, sjálfsk., cruise, ál f., ek. aðeins 11 þ. km. Verð 3.390 þ. Bílalán. Litla Bílasalan s. 587 7777. Hyundai Tucson LUX V6 2700cc, sjsk., 8/05. Til sölu fallegur, reyklaus bíll, ekinn 16 þús. km. LUX pakkinn, plús fjarstart, vindskeið, krókur, negld vetrardekk á álfelgum. Ásett verð 2.900 þús. Sími 893 4648. Toyota RAV4 árg. '02, ek. 67 þús. km. Til sölu fallegur Toyota RAV4 4WD. 2.0 150 h. 5 dyra, sjálfsk., dráttark. Engin skipti. Uppl. í síma 861 5303 og 895 6300. Bílavörur Hjólbarðar/Felgur. Til sölu 4 nýjar stálfelgur undan Suzuki Grand Vitara. Verð 20.000 kr. Sími 893 4957/Ólafur. Hjólbarðar Insa Turbo negld vetradekk 4 stk 185/65 R 15 + vinna kr. 27.900. 4 stk. 175/70 R 13 + vinna kr. 24.900. Kaldasel ehf , Dalvegur 16 b, Kópavogur s. 544 4333. Insa Turbo negld vetradekk. 4 stk. 205/70 R 15 + vinna 38.000 kr. Kaldasel ehf. , Dalvegur 16b, Kópavogur, s. 544 4333. Matador ný vetrardekk. Tilboð 4 stk. 195/65 R 15 + vinna 31.900 kr. Kaldasel ehf. , Dalvegur 16b, Kópavogur, s. 544 4333. Matador vetradekk tilboð 4 stk. 31x10.5 R 15 + vinna kr. 59.600. 4 stk 215/70 R 16 + vinna kr. 51.900. 4 stk 225/70 R 16 + vinna kr. 59.600. 4 stk. 215/65 R 16 + vinna kr. 55.900. Kaldasel ehf, Dalvegur 16 b, Kópavogur, s. 544 4333. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið, Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Snorri Bjarnason BMW 116i, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Vélsleðar YAMAHA RX 1 ónotaður. Til sölu YAMAHA RX 1 árg. 2003, ek. aðeins 1.000 km, lítur úr sem nýr. Vél fjór- gengis 1000cc. 140 hp. Verð 590 þús. stgr. Ath! Engin skipti! Uppl. í síma 896 8882. Bílar aukahlutir HÖGGDEYFAR Fyrir bílinn: Gabriel höggdeyfar, gormar, stýrisliðir, vatnsdælur, sætaáklæði, sætahlífar fyrir hesta- og veiðimenn, burðarbog- ar, aðalljós, stefnuljós, ASIM kúplingssett. GS varahlutir, Bíldshöfða, sími 567 6744. Fornbílar Dýrðlingsbílar, 2 st. Til sölu 2 st. Volvo sportbílar til uppgerðar. Annar er S1963 og hinn E1970. Verðtilboð. Upplýsingar og myndir á www.studioverk.com. Sími 844 2068. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl RÚSSAR halda þessa dagana minningarmót um töframanninn frá Ríga, Mikhail Tal, sem hefði orðið sjötugur þann 9. nóvember sl. hefði honum enst aldur til. Hann lést hins vegar langt fyrir aldur fram árið 1992. Þegar þetta er ritað leiðir Ruslan Ponomariov mótið með 2½ vinningi af 3 mögulegum. Í 2.–3. sæti eru Pet- er Svidler og Boris Gelfand með 2 vinninga, Shirov, Leko, Mame- dyarov og Aronian eru í 4.–7. sæti með 1½ vinning, Grischuk og Magnús Carlesen eru í 8.–9. sæti með 1 vinning og Moroze- vich rekur lestina með ½ vinning. Mótið fer fram í Moskvu. Mikhail Tal er sennilega eitt merkasta fyrirbæri skáksögunn- ar og það er sennilega ekki fjarri lagi sem einhver skrifaði að mað- urinn virtist vera í „sérstökum leiðangri“. Hann kom inn í skák- ina með meiri krafti en dæmi eru til um; lagði heiminn bókstaflega að fótum sér á árunum 1957– 1960. Þegar hann vann Sovét- meistaramótið í fyrsta sinn árið 1957 kvaðst Mark Taimanov myndu éta hattinn sinn ef Tal sigraði aftur. Með komu Tal á sjónarsviðið var eins og sleginn væri nýr tónn; leiftrandi fórn- arskákir í anda Morphys áttu þá ekki upp á pallborðið í sovéska skákskólanum, eða réttara sagt Botvinnik-skólanum. Tal var ungur og glæsilegur fulltrúi nýs tíma. Á hinu há- dramatíska Sovétmeistaramóti ’58, sem lauk með frægri við- ureign Tals og Spasskíjs, varð Tal Sovétmeistari aftur. Tal-fórnir voru skyndilega á hvers manns vörum. Tal vann síðan millisvæðamótið í Portoroz ’58 og 1959 varð hann efstur í áskorendamótinu í Júgóslavíu. Hann tefldi svo við Mikhael Botv- innik um heimsmeistaratitilinn árið 1960 og vann, 12½:8½, og stóð þá á hátindi ferils síns, heimsmeistari aðeins 23 ára gam- all. En næstu ár voru Tal erfið. Kom þar til lélegt heilsufar, Tal var nýrnaveikur og þurfti hvað eftir annað að gangast undir upp- skurði og ánetjaðist upp úr því sterkum verkjalyfjum, hann drakk of mikið og reykti eins og strompur. Á hann vantaði tvo fingur hægri handar; hann var bæði hárprúður og sköllóttur í senn. Blaðamaður sem lagði leið sína á Loftleiðahótelið á Reykja- víkurmótinu 1986 lét þess að get- ið að Tal væri sennilega „fótógen- ískasti“ maður sem hann hefði séð. Þess var getið í grein nýlega að Tal hefði einhverju sinni verið boðið hlutverk prófessors Wo- lands í uppfærslu á Meistaranum og Margarítu eftir Búlgakov. Tal lagði stund á bókmenntir við há- skólann í Ríga og að sögn Bents Larsens kynnti hann sér verk Halldórs Laxness alveg sérstak- lega. Fundum þeirra bar saman þegar Tal tefldi á fyrsta Reykja- víkurskákmótinu árið 1964. Skáksaga Íslendinga væri stórum fátækari hefði Tal ekki notið við. Hann kom fyrst til Ís- lands árið 1957 á heimsmeistara- mót stúdenta. Tveir verðandi heimsmeistarar voru í sigurliði Sovétmanna, Tal og Boris Spass- kíj. Á Reykjavíkurmótinu gerði Tal jafntefli við Guðmund Pálma- son en vann aðrar skákir og hlaut 12½ vinning af 13 mögulegum. Hann kom næst 22 árum síðar á Reykjavíkurmótið 1986 og varð í 2. sæti. Á IBM–mótinu 1987 varð hann aftur í 2. sæti, og þriðji á heimsbikarmótinu 1988. Þar tap- aði hann sinni einu skák á Ís- landi, fyrir Alexander Beljavskíj sem varð annar á eftir Kasparov. Upp úr 1972 hófst nýtt tímabil í lífi Tals, hin síðari sigurganga, sem hratt af stað bollaleggingum um að hann yrði jafnvel næsti áskorandi heimsmeistarans sem þá var Bobby Fischer. Tal vann hvert mótið á fætur öðru og tefldi á köflum 50–60 skákir án taps. Á millisvæðamótinu í Leníngrad ’73 var sigurganga hans hins vegar stöðvuð. Sex árum síðar í Ríga vann hann aftur millisvæðamót og með miklum yfirburðum, hlaut 14 vinninga af 17 mögulegum. Hann tapaði í fyrstu hrinu áskor- endakeppninnar fyrir Polugajevs- kíj og hafði ekki sama kraft og á gullaldarárunum. Síðasta sigur á skáksviðinu vann hann gegn ermska stór- meistaranum Akopjan í Barce- lona 1992, nokkrum vikum áður en hann lést. Þá skák má telja tæra snilld. Næmt auga hans fyr- ir leikfléttum er greinilegt, t.d. fléttan 32. De5+ ásamt 33. Hd8+ Jafnframt má finna hárfínt jafn- vægi í vörn og sókn, 21. Da7, 26. Kf2, 29. Hd4 og 31. Rg5. Þetta var tvímælalaust ein af bestu skákum Tals. Barcelona 1992: Mikhail Tal – Vladimir Akopj- an Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6 4. 0–0 Bd7 5. He1 Rf6 6. c3 a6 7. Ba4 c4 8. d4 cxd3 9. Bg5 e6 10. Dxd3 Be7 11. Bxf6 gxf6 12. Bxc6 Bxc6 13. c4 0–0 14. Rc3 Kh8 15. Had1 Hg8 16. De3 Df8 17. Rd4 Hc8 18. f4 Bd7 19. b3 Bd8 20. Rf3 b5 21. Da7 Bc7 22. Dxa6 bxc4 23. b4 Dg7 24. g3 d5 25. exd5 Bxf4 26. Kf2 f5 27. gxf4 Dxc3 28. Dd6 Ba4 29. Hd4 Hg7 30. dxe6 Bc6 31. Rg5 Hxg5 32. De5 Hg7 33. Hd8 Hxd8 34. Dxc3 f6 35. e7 Ha8 36. Dxf6 Be4 37. Hg1 Hxa2 38. Ke1 – og Akopjan gafst upp. Lenka efst á Íslandsmóti kvenna Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková, leiðir með fullu húsi þegar þremur umferðum er lokið á Íslandsmóti kvenna. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er önnur með 2,5 vinninga, og hin unga og efni- lega skákkona Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir er þriðja með 2 vinninga. Margar ungar skákon- ur sækja nú hratt fram á skáksv- iðinu. Af átta þátttakendum á Ís- landsmótinu eru fimm 17 ára eða yngri. Þær eru auk Hallgerðar Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Tinna Kristín Finnbogadóttir úr Borgarfirði, sem er stúlknameist- ari Íslands, Sigríður Björg Helgadóttir og Elsa María Þor- finnsdóttir. Hin unga og efnilega Hrund Hauksdóttir sigraði í B-flokki sem lauk um síðustu helgi. Í 2. sæti varð Ulker Gasanova og þriðja var Birta Össurardóttir. Af töframanninum frá Ríga SKÁK Moskva, Rússlandi Minningarmót um Mikhail Tal 5. nóvember – 19. nóvember helol@simnet.is Helgi Ólafsson Töframaðurinn frá Riga, Mikhael Tal. Góð þátttaka hjá Bridsfélagi Borgarfjarðar Mánudaginn 6. nóvember hófu Borgfirðingar að spila aðaltví- menning félagsins með þátttöku 24 para. Keppnin er jöfn og spenn- andi og ljóst að salurinn hefur jafnast mikið. Kópakallinn er einn af okkar félögum sem trúir því að flókin sagnkerfi séu ekki „leiðin til lífsins“. Miklu nær sé að treysta á eigið hyggjuvit og borðtilfinningu. Það mátti glöggt sjá þegar hann mætti þeim félögum Sveinbirni og Lárusi á fyrsta kvöldinu. Kópa- kallinn hóf sagnir á millisterku grandi og Jói á Steinum (sem alla jafna er jarðbundinn spilari) svar- aði jákvætt á tveimur hjörtum. Því var umsvifalaust lyft í fjögur en þá setti Jóa hljóðan um stund en skömmu seinna hækkaði hann í sex hjörtu. Þá færðist bros yfir Kópakallinn sem bætti um betur og sagði sjö hjörtu. Engin leið að hnekkja þeim og uppskeran góð að vonum. Annars er það formað- urinn sem fer fyrir sínu fólki og leiðir en skammt á eftir lúra mestu tvímennishaukar félagsins, þeir Magnús í Birkihlíð og Sveinn á Vatnshömrum. Staðan að loknu fyrsta kvöldi af sex er annars sem hér segir: Jón Eyjólfsson – Baldur Á. Björnsson 50 Sveinn Hallgrímss.– Magnús Magnúss. 49 Sindri Sigurgeirss. – Egill Kristinsson 39 Alfreð Kristjánss. – Einar Guðm.s. 36 Stefán Kalmannss. – Sigurður Einars. 31 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson | norir@mbl.is Örstutt frá Bridsfélagi Hafnarfjarðar Spilaður var eins kvölds tvímenn- ingur mánudaginn 6. nóvember. Efstu pör urðu: Magnús Sverriss. - Jörundur Þórðars. 103 Sigurjón Harðarson - Sveinn Valdimarss. 89 Kristján Kristjánss. - Garðar Garðarsson 85 Hrund Einarsd. - Dröfn Guðmundsd. 83 Næsta mánudag, þann 13.nóvem- ber verður einnig spilaður eins kvölds tvímenningur en síðan hefst aðaltvímenningur BH. Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar á mánudögum kl. 19:30 í Hampiðju- húsinu, Flatahrauni 3 (Hraunsel). Alltaf heitt á könnunni í boði BH. Nánari upplýsingar veitir Hafþór í s. 899-7590.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.