Morgunblaðið - 11.11.2006, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 71
menning
GESTIR þáttarins Orð skulu standa
í dag eru Frosti Friðriksson leik-
myndahöfundur og Hildigunnur
Rúnarsdóttir tónskáld. Þau, ásamt
liðsstjórunum Hlín Agnarsdóttur og
Davíð Þór Jónssyni, fást við þennan
fyrripart, ortan vegna frétta um
stóraukna sölu á sviðakjömmum á
BSÍ í kjölfar sýningar á kvikmynd-
inni Mýrinni:
Aldrei höfum áður snætt
slíkt ógnarmagn af sviðum.
Fyrripartur síðustu viku var ortur af
augljósu tilefni:
Næðingssamur nóvember
nístir inn að beini.
Botn Davíðs Þórs þarfnast sögu-
skýringa. Á þessum tíma í fyrra var
varpað fram fyrripartinum:
Í nóvember er nepjan mest
og næðingurinn alltaf verstur.
Guðmundur Andri Thorsson botnaði
þá:
Síðan Árelíus lést
líkar mér nú enginn prestur.
Davíð kinkar nú kolli til botns Guð-
mundar Andra:
Árelíus líkar mér,
en líst ekki á Khomeini.
Lísa Pálsdóttir brá fyrir sig nýyrði í
þættinum:
Vætusamur vetur er
ég vítiskuldann reyni.
Anna Kristjánsdóttir botnaði með
bókmenntalegri tilvísun:
Freðið nefið á mér er
undir stórum steini.
Hlín botnaði svo:
Dásamlegur desember
til dýrðar ungum sveini.
Sigurþór Heimisson lætur ekki sitt
eftir liggja frekar en endranær:
Kremur mig í krumlum sér
sem kreist sé vatn úr steini.
Dimmur verður desember
með dauðans angistarkveini.
Dreymir mig um desember,
að drekka og blóta í leyni.
Pálmi R. Pétursson sendi þennan:
Bráðum styttast biðin fer
bljúgum eftir sveini.
Á heimili Finns Sturlusonar og Ey-
rúnar Birgisdóttur fóru hjónin ólík-
ar leiðir. Finnur orti:
Í dásamlegum desember
dvelja jól í leyni.
Eyrún fór aðra leið:
Dvel ég ein í desember
með digrum jólasveini.
Þórhallur Hróðmarsson orti m.a.:
Von er til þá vetra fer,
að veður manninn reyni.
Í gang fer mikill gerlaher,
sem geymdi sig í leyni.
Valdimar Lárusson m.a.:
Helst þá er að hlýja sér
háum undir steini.
Prófkjörin ég held að hér
hrindi hverju meini.
Valur Óskarsson sendi þennan:
Þá er gott að gamna sér
og gera það í leyni.
Auðunn Bragi Sveinsson sendi tvo:
Bætir lítt að berja sér,
bara veldur meini.
En hann verður eflaust mér
ekki neitt að meini.
Guðmundur Guðmundsson orti
þessa tvo:
Kvefið þá um klakann fer,
kvölum með og veini.
Kverkaskítur kominn er
í kok á ungum sveini.
Helgi R. Einarsson átti þessa:
Í ullarbol og brækur fer
brosi og þrauka reyni.
Hátíð ljóss að höndum fer
í henni ylinn greini.
Og loks Jónas Frímannsson:
Lægðin yfir landið fer
og lýðum veldur meini.
Útvarp | Orð skulu standa
Sviðakjammar Erlends
Orð skulu standa Umsjónarmaður þáttarins Karl Th. Birgisson ásamt
liðstjórunum Hlín Agnarsdóttur og Davíð Þór Jónssyni
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
FYRIRSÖGNIN „Klassík við kerta-
ljós“ laðaði greinilega marga að tón-
leikum Tríós Reykjavíkur á sunnu-
dagskvöld, enda óneitanlega
lokkandi agn í aðsteðjandi skamm-
degi. Að venju voru höfundar og
verk munnkynnt, og hjó maður eftir
því að sónöturnar þrjár í Op. 30
væru hinar fyrstu sem Beethoven
samdi fyrir stærri konsertsal, ólíkt
hinum undangengnu fimm við hæfi
nándar „salonsins“. Hitt hefur
margan áður undrað hversu létt
virðist yfir settinu frá 1802, þótt
samið sé í miðri sálarkreppu yfirvof-
andi heyrnarmissis eins og „Heil-
igenstadt-erfðaskráin“ ber átak-
anlegastan vott um.
Hin kínverska Danwen Jiang lék á
móti Peter í A-dúr-sónötunni og
tókst sá samleikur með miklum
þokka. Að vísu hefði mátt örla á
meiri skaphita, fyrir utan hvassara
stakkató hjá báðum og kannski að-
eins færri loftnótur í píanóvíravirki
vinstri handar, auk þess sem fínall-
inn (III) bar ekki alltaf með sér
næga samæfingu, sízt í 3. tilbrigði.
En inntakið skilað sér samt í meg-
inatriðum, fallegast í syngjandi mið-
þættinum.
Fjórþætt Sónata Prokofjevs fyrir
tvær fiðlur frá 1932 var aðeins ári
yngri en 44 fiðludúó Bartóks og
freistaði í fljótu bragði til að gruna
Rússann um þá fyrirmynd, jafnvel
þótt hér færi öllu meiri úrvinnsla en
í ungversku örstykkjasvítunni. Enda
kvaðst Prokofjev hafa fengið hug-
myndina þegar afleitt verk fyrir
sömu áhöfn hvatti hann til að bæta
um betur. Fiðlurnar bráðnuðu ljúf-
lega saman í I. þætti, í hvassri and-
stöðu við vígtenntan II. og þjóðlegt
hergöngulan lokaþáttinn. Þeirra á
milli flaut III sem fíngert brön-
ugras. Flest var þetta skemmtilega
útfært af þeim stöllum – að frátöldu
ófyrirskrifuðu fótastappi í hraðþátt-
unum er magnaðist óvart um helm-
ing af holrými upphækkaða sviðsins.
Alltaf er spennandi að heyra til-
tölulega sjaldflutta perlu sem þessa,
er skv. mínum gögnum var hér síð-
ast leikin í hitteðfyrra. Sama mátti
enn frekar segja um fjórþætt loka-
atriðið eftir Schumann, því eftir
sömu heimildum fór það síðast á loft
2002. Það þykir hafa staðið í skugga
hins frægari Píanókvintetts að ófyr-
irsynju; hugsanlega fyrir heim-
ilislegra yfirbragð sitt. Varla þó
nema í fyrstu þrem þáttum, því
magnaður fúgató-rondó-fínallinn
stendur sízt lokaþætti kvintettsins á
sporði að glæsileika. Né heldur
dofnuðu hlustir við skelmisglettinn
6/8 Jónsmessunæturdansinn (II) og
fölskvalausan ástarvals III. þáttar,
þökk sé funheitri spilamennsku
þeirra fjórmenninga.
Funheit
heimilistónlist
TÓNLIST
Hafnarborg
Beethoven: Fiðlusónata nr. 6 í A Op.
30,1. Prokofjev: Sónata Op. 56 fyrir fið-
ludúó. Schumann: Píanókvartett í Es Op.
47. Tríó Reykjavíkur (Guðný Guðmunds-
dóttir fiðla/víóla, Gunnar Kvaran selló og
Peter Máté píanó). Gestur: Danweng Ji-
an fiðla. Sunnudaginn 5. nóvember kl.
20.
Kammertónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Sýningarnar eru opnar virka daga frá kl. 11 -17 og um helgar frá kl. 13 - 16
Gerðuberg • sími 575 7700
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Söngperlur Sigvalda Kaldalóns
Í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs
sunnudagskvöldið 12. nóvember kl. 20
Miðasalan er hafin á www.salurinn.is
Aðgangseyrir: Kr. 3.000, eldri borgarar kr. 2.500
Í samstarfi við Salinn, Tónlistarhús Kópavogs
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Gunnar Guðbjörnsson, tenór
Hulda Björk Garðarsdóttir, sópran
Jónas Ingimundarson, píanóleikari
Flytjendur:
Auður Gunnarsdóttir, sópran
Bergþór Pálsson, baritón
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Hugarheimar
Guðrún Bergsdóttir
Sýning á útsaumsverkum og tússmyndum
Síðasta sýningarhelgi
Flóðhestar og framakonur
Afrískir minjagripir á Íslandi
Reykjavík - Úr launsátri
Ljósmyndasýning Ara Sigvaldasonar
!
"
# $
$
! %!
$
$
& ' Fréttir á SMS