Morgunblaðið - 26.11.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 23
mánuðinum sagði Chavez að auður
Noboa væri illa fenginn, hann hefði
orðið ríkasti maður Ekvador með því
að arðræna verkamenn og í þeim hópi
væri að finna mikinn fjölda barna.
Stjórnvöld í Ekvador mótmæltu
þessum orðum Chavez formlega og
sökuðu hann um „óþolandi“ afskipti
af innanríkismálum.
Noboa hefur lýst yfir því að hann
muni slíta stjórnmálasambandi við
Venesúela fari hann með sigur af
hólmi í dag. Kveður hann sýnt að and-
stæðingurinn, Rafael Correa, hyggist
„skipta upp landinu“ og fá vini sínum
Chavez væna sneið af því verði hann
næsti forseti Ekvador. Auðkýfingur-
inn hefur lýst andstæðingi sínum á
þann veg að þar fari „vinstri sinnaður
djöfull“ og „konungur hins illa“.
Boðar „byltingu“ í anda
Chavez og Bolivars
Rafael Correa hefur í engu reynt
að leyna því að hann er í mörgum efn-
um vopnabróðir Hugo Chavez. Cor-
rea er 43 ára gamall. Hann lauk mast-
ersprófi í hagfræði frá Katólska
háskólanum í Louvain í Belgíu en hélt
síðan til Bandaríkjanna og útskrifað-
ist sem doktor frá háskólanum í Ill-
inois árið 2001. Hann var um fjögurra
mánaða skeið fjármála- og efnahags-
ráðherra í bráðabirgðastjórn Alfre-
dos Palacio forseta en hafði fram til
þess tíma verið lítt þekktur háskóla-
kennari. Correa reyndi í stuttri ráð-
herratíð sinni mjög að efla tengslin
við Venesúela og auka framlög til fá-
tækrahjálpar m.a. með því að leysa
upp sjóð sem myndaður hafði verið til
að greiða erlendar skuldir. Svo fór að
hann sagði af sér og er það álit
margra í Ekvador að Bandaríkja-
menn hafi þrýst á forsetann um að
láta Correa taka pokann sinn.
Correa er sumsé menntaður í
Bandaríkjunum en hann verður seint
talinn til aðdáenda bandarískra
stjórnvalda. Þegar Chavez Vene-
súelaforseti líkti George W. Bush við
djöfulinn sjálfan í frægri ræðu á þingi
Sameinuðu þjóðanna kvaðst Correa
einkum hafa af því áhyggjur að
myrkrahöfðinginn gæti móðgast.
Correa hefur jafnan lagst gegn frí-
verslunarsamningi við Bandaríkin og
boðar almennt að samskiptin við
stjórn Bush eigi að vera eins lítil og
kostur er. Í aðdraganda kosninganna
kvaðst hann þeirrar hyggju að
Bandaríkjaforseti væri „fífl“ en hefur
nú dregið þau ummæli til baka og
sagt þau óviðeigandi. Correa hyggst
á hinn bóginn loka herstöð Banda-
ríkjamanna í hafnarborginni Manta
fái hann til þess umboð. Þar eru um
400 bandarískir hermenn.
Frambjóðandinn boðar herför
gegn spillingu og rótgrónum valda-
og hagsmunahópum sem ráðið hafa
Ekvador frá því að lýðræði var end-
urreist í landinu árið 1979. Í þeim efn-
um sýnist hann hafa áform uppi um
að fara svipaða leið og Chavez í Vene-
súela; auka völd forsetans til muna og
leggja af ýmsa grunnþætti hins lýð-
ræðislega aðhalds. Correa hefur
hundsað þingkosningarnar með öllu
enda hyggst hann senda þingið heim
og boða til samkundu sem falið verð-
ur að setja Ekvador nýja stjórnar-
skrá. Íbúar Ekvador hafa almennt og
yfirleitt lítið álit á þeim stofnunum
sem falið hefur verið að bera uppi lýð-
ræðið í landinu. Stjórnmálaflokkar
eru nátengdir fyrirtækjum og stór-
auðvaldi og margir telja það sama
gilda um dómstólana. Með þessu móti
telur Correa unnt að afnema „alræði
flokkanna“ og framkalla „byltingu“ í
landinu sem svipar um margt til
þeirrar sem Hugo Chavez gortar sig
af í Venesúela og hann kennir við
frelsishetjuna Simon Bolivar. Líkt og
Evo Morales í Bólivíu segir Correa að
samningar við erlend olíufélög verði
endurskoðaðir nái hann kjöri.
Correa nýtur aðeins stuðnings
smáflokks sem kennir sig við sósíal-
isma og víst er að valdastéttin og hið
pólitíska kerfi horfir með hryllingi til
framtíðar verði hann næsti forseti
Ekvador. Correa sem kveðst vera
„kristinn vinstrisinni“ og „húmanisti“
fer nærri því að geta talist „alþýðu-
hetja“ en óvíst er hvort sá stuðningur
nægir honum til að knýja fram þær
byltingarkenndu breytingar sem
hann telur nauðsynlegar.