Morgunblaðið - 26.11.2006, Side 25
stofna fyrirtæki utan um þetta
hugarfóstur sitt þótti ekki ástæða
til þess að njósnarinn gengi fyrir
ætternisstapa, þótt höfundur hans
liði undir lok.
Það var hins vegar ekki sjálf-
gefið, hver fengi að taka við penn-
anum af Ian Fleming. Brezki rit-
höfundurinn Kingsley Amis var
mikill Bond-aðdáandi og hafði
skrifað tvær staðreyndabækur um
efni tengt Bond, en ekkju Flem-
ing, Ann, hugnaðist hann ekki
sem arftaki eiginmannsins á rit-
vellinum. Þrátt fyrir það skrifaði
Amis fimmtándu bókina um Bond
og kom hún út 1968 undir skáld-
anafninu Robert Markham. Hug-
myndin var að fá fleiri höfunda til
liðs við Bond undir þessu skáld-
anafni, en úr því varð ekki. Og
Amis var heldur ekki fenginn til
frekari skrifa.
Nú leið nokkur tími unz ný
Bond-bók leit dagsins ljós, en
þegar hún birtist kom í ljós að
það var engin liðleskja sem menn
höfðu fengið til liðs við njósn-
arann. John Gardner var í hópi
þekktustu spennusagnahöfunda
heims og hann hefur sagt að sín
fyrstu viðbrögð hafi verið að af-
þakka boðið um að gerast Bond-
höfundur. Bæði vildi hann halda
sínu striki og sínum hetjum og
svo hræddi endasleppur höfund-
arferill Kingsley Amis, en bók
hans hafði ekki þolað samanburð-
inn við Ian Fleming. En á end-
anum sló Gardner til og fyrsta
bók hans um Bond, þar sem leyfi
njósnarans var endurnýjað kom
út 1981. Gardner þótti standa
undir nafni sem Bond-höfundur
og á fimmtán árum skrifaði hann
16 bækur um 007, þar af tvær
sem byggðust á kvikmyndahand-
ritum. (Gardner er höfundur á
fimmta tug skáldsagna.)
Þótt Gardner hafi lifað nokkur
ár í Bandaríkjunum, var hann
brezkur inni við beinið og bjó
lengst af á Englandi eða Írlandi.
Sá sem tók við Bond-pennanum
af honum var hins vegar fæddur
Bandaríkjamaður; Raymond Ben-
son. Leið Benson lá í leikhúsið,
og í New York bæði steig hann á
fjalirnar og stýrði leiksýningum.
Níu ára sá hann Bond-myndina
Goldfinger 1964 og þar vaknaði
áhugi hans á njósnaranum. Tæp-
um tuttugu árum síðar hóf hann
að rita bók um persónuna James
Bond með viðbótum um ævi Ian
Fleming og eigin athugunum á
bókum og kvikmyndum um
James Bond. Bókin; The James
Bond Bedside Companion, kom
út í Bandaríkjunum 1984 og þá
var höfundurinn orðinn varafor-
seti aðdáendaklúbbs James Bond
007.
Í efnisöflunarferð til Bretlands
komst Benson í kynni við ættingja
Fleming og fyrirtæki þeirra og
hann hélt því sambandi, tók meira
að segja eitt og annað að sér;
skrifaði m.a. leikrit eftir Casino
Royale, sem reyndar hefur ekki
verið sett á svið ennþá. Síðla árs
1995 var Benson boðið að verða
næsti Bond-höfundurinn, en þá
hafði John Gardner tilkynnt að
hann væri búinn að fá sig full-
saddan af njósnaranum.
Benson tók tækifærinu fegins
hendi og fram til 2003 skrifaði
hann sex skáldsögur um James
Bond, þrjár bækur byggðar á
kvikmyndum um kappann, og
þrjár smásögur.
Lausnarbeiðni Benson hélzt í
hendur við breyttar áherzlur sem
forráðamenn Ian Fleming Publica-
tions Ltd. vildu setja í öndvegi.
Bækurnar um James Bond
höfðu selzt í um hundrað millj-
ónum eintaka vítt og breitt um
veröldina, en nú var talinn tími til
þess að yngja Bond upp og prjóna
framan við ferilinn. Rithöfundur-
inn Charlie Higson var ráðinn til
þess að skrifa bækur um hinn
unga Bond. Sú fyrsta kom á mark-
að 2005, önnur kom út í janúar á
þessu ári og þriðja bókin er vænt-
anleg 4. janúar 2007. Bretum gefst
nú kostur á að velja henni nafn og
stendur valið milli þriggja titla
sem höfundurinn hefur lagt til.
» Fjórði rithöfund-
urinn fetar nú í
fótspor Ian Fleming
og skrifar um full-
orðinsár 007.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 25
Outlander 4X4
Öflug tveggja lítra 136 hestafla vél
Staðalbúnaður:
• Sítengt aldrif
• Álfelgur
• Vindskeið
• Þakbogar
• Skyggðar rúður
• ABS hemlalæsivörn
• Mikil veghæð, 19,5 cm
26.116 kr. á mánuði
2.495.000 kr.
Flottur sportjeppi
á frábæru verði
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Miðað við 30% útborgun og gengistryggðan bílasamning SP til 84 mánaða.
’Fótboltinn hefur verið okkaráhugamál og það er draumur
fyrir okkur báða að þetta skuli
vera gengið í gegn.‘Eggert Magnússon, formaður KSÍ, þegar
fyrir lá að tilboði hans og Björgólfs Guð-
mundssonar í enska úrvalsdeildarliðið
West Ham United hafði verið tekið.
’Það er margstaðfest að að þaðer mun meiri áhugi á öllu því
sem okkur viðkemur og tengist
viðskiptum heldur en áður var.‘Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir
fund með bandarískum kaupsýslumönnum
á sérstökum Íslandsdegi í kauphöllinni í
New York.
’Ég ætla bara að taka fram aðmér þykir mjög leitt að þetta
skul hafa gerst og biðst afsök-
unar á því. ‘Valgerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra í umræðu á þingi um mikið tjón
sem varð á gamla varnarsvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli þegar kaldavatnsrör
sprungu þar í húsum.
’Það má heldur ekki gleyma þvíað þetta óskabarn þjóðarinnar á
djúpar rætur í sögu hennar og
margir hafa saknað nafnsins.‘Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður,
um þá samþykkt aðalfundar Avion Group
að breyta nafni félagsins í Hf. Eimskipa-
félag Íslands.
Ummæli vikunnar
Formaður Eggert Magnússon, formaður KSÍ, kampakátur á Upton Park,
heimavelli West Ham. Eggert verður stjórnarformaður félagsins.