Morgunblaðið - 26.11.2006, Qupperneq 26
|sunnudagur|26. 11. 2006| mbl.is
Eftir Guðrúnu Eddu Einarsdóttur
gee2@hi.is
„Það er mikill heiður að hafa hlotið
sjónlistarorðuna, ekki aðeins fyrir mig
sem hönnuð heldur eru verðlaunin í
rauninni einnig hvatning fyrir aðra ís-
lenska hönnuði,“ segir Guðrún Lilja
Gunnlaugsdóttir, sem hlaut íslensku
sjónlistarverðlaunin í flokki hönnunar
fyrir framúrskarandi hönnun á Flat-
pack Antique og Inner Beauty hús-
gagnalínunum.
„Uppsetning Sjónlistar 2006 var
ákaflega vel skipulögð og skemmtileg
reynsla,“ segir Guðrún Lilja. Þetta
var í fyrsta sinn sem sambærileg verð-
laun og veitt hafa verið í bókmenntum,
tónlist, leiklist og kvikmyndum voru
veitt á sviði sjónlista.
Sækir innblástur í
íslenska arfleifð
Inner Beauty og Flatpack Antique
húsgagnalínurnar eru vönduð hönnun
þar sem hvert smáatriði er úthugsað.
Það vakti athygli dómnefndar á Sjón-
list 2006 hvernig Guðrún Lilja fléttar á
sérstakan hátt íslenskri náttúru,
handverki og menningararfi við nú-
tímann. Sú viðleitni í verkum hennar
að vekja upp tilfinningar og jafnframt
gamlar minningar er áhugaverð. Ís-
lenskt handverk og sagnahefð, sem
fylgt hafa Íslendingum í áraraðir end-
urspeglast í allri hönnun Guðrúnar
Lilju, en hún beitir nýstárlegri tækni
við vinnsluna. „Handverkið er ekki
nóg, hugsunin að baki skiptir miklu
máli og tengist því hver maður er sem
Íslendingur og hvað maður ætlar sér
með verkinu,“ segir hún.
Inner Beauty húsgagnalínan er fal-
legt samspil tækninýjunga og hefða.
Útskorin blómamynstur prýða borðin
að innan og mynda dýpt þannig að þau
verða eins og hluti af náttúrunni.
Spurð um hugmyndina á bakvið verk-
ið, svarar Guðrún Lilja að Inner
Beauty fjalli um tilfinningar, sem bær-
ast með okkur, og allt það fallega sem
leynist undir yfirborðinu. „Mig langaði
að hlutgera þessa hugsun í sérstökum
verkum, sem hefðu að einhverju leyti
svipaða sögu að segja,“ útskýrir hún.
Borðin, sem eru einnig vel til þess
fallin að nota sem kolla, eru sett sam-
an úr þykkum samlímdum lögum af
krossviðarplötum. „Inner Beauty fæst
annars vegar með dökkri brún, en þá
eru krossviðarplöturnar leysiskornar
og dökki liturinn myndast vegna
brunans, og hins vegar með ljósri
brún, en þá notast ég við sérstaka há-
þrýstiaðferð sem kallast vatns-
kurður,“ segir Guðrún Lilja, sem er
með allt á hreinu þegar efni og tækni
eru annars vegar. Hún notar svipaða
aðferð í Flatpack Antique línunni, en
þar er mynstrið mun fínlegra á út-
hliðum skápa og hirslna, sem hægt er
að taka í sundur og pakka saman á
einfaldan hátt í flatar einingar. Hillu-
samstæðan er unnin úr plastyf-
irdekktu mdf-efni og virðist hún við
fyrstu sýn vera fagurlega útskorin. En
þegar betur er að gáð má sjá gamla
handheklaða dúka undir ysta laginu.
Dúkunum sem prýða hirslurnar hefur
Guðrún Lilja sankað að sér í gegnum
tíðina.
„Dúkarnir eru ólíkir, hver og einn á
sína sögu, en þannig er Flatpack Anti-
que línan einstök fjöldafram-
leiðsluvara,“ segir hún.
Húsgagnalínurnar hafa fengið mik-
ið lof í útlöndum og hafa erlend tíma-
rit, t.d. Art Review, getið um hús-
gögnin sem eitt af því áhugaverðasta í
hönnun í dag og sýningastjórar víða
um heim hafa óskað eftir verkum Guð-
rúnar Lilju. Auk þess sem hún segir
það mikinn heiður að fá umfjöllun um
sig í fyrrnefndu tímariti finnst henni
það staðfesting á því að hún sé á réttri
braut.
Þróunarferli Inner Beauty og Flat-
pack Antique hefur mestmegnis farið
fram á Íslandi. „Ísland er frábært land
í „prótótýpu“-gerð, hér er mikil kunn-
átta til að vinna með nýstárleg efni og
tækni. Samstarfið hefur gengið vel og
iðnaðarmenn hafa oft á tíðum mjög
gaman af að takast við frumleg verk-
efni í samstarfi við hönnuði,“ segir
Guðrún Lilja.
Markmiðið hennar er að koma hlut-
unum í framleiðslu og að þeir verði á
færi sem flestra. Í mörg horn er að líta
Sýning Gestastofan í Ásbyrgi er upplýsingamiðstöð, sem unnin er fyrir Umhverfisstofnun. Þar verður opnuð sýning í gömlu fjárhúsi í apríl á næsta ári.
Gamlar minningar í nýju ljósi
Guðrún Lilja Gunn-
laugsdóttir hönnuður,
sem hlaut íslensku
sjónlistarverðlaunin í
sínum flokki í ár, fléttar
íslenskri náttúru, hand-
verki og menningararfi
við nútímann.
Heklað stál Hillur úr lökkuðu stáli, sem er gatað eins og heklumynstur.
Morgunblaðið/Sverrir
Nóg að gera Guðrún Lilja hönnuður hefur í nógu að snúast þessa dagana,
innan tíðar koma nýstárlegar hillur eftir hana í verslunina Saltfélagið.
daglegtlíf
Nýjasta skáldsaga Kristínar
Steinsdóttur er fyrir fullorðna
og segir af Sigþrúði blaðbera,
sem er á eigin vegum. » 32
lífshlaup
Þorgrímur Gestsson og Hildur
Finnsdóttir höfðu verkaskipt-
ingu að samtalsbók við Guð-
rúnu Halldórsdóttur. » 34
bækur
Einar Kárason, Ólafur Gunn-
arsson og Jóhann Páll Valdi-
marsson óku yfir Bandaríkin á
vængjuðum Kadilak. » 36
ökuferð
Elínbjörg Magnúsdóttir á helgar
stundir við sjónvarpið á laug-
ardögum yfir enska boltanum
og safnar leikvöngum. » 38
kjarnakona
Óskar Magnússon, höfundur
smásagnasafnsins Borðaði ég
kvöldmat í gær?, er gamaldags,
einfaldur sveitamaður. » 28
athafnaskáld