Morgunblaðið - 26.11.2006, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 47
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
UNNARBRAUT - VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
Glæsilegt 320 fm tveggja íbúða
hús á einstökum útsýnisstað á
sunnanverðu Nesinu. Húsið
skiptist þannig: Á neðri hæð er
sér 3ja herbergja íbúð, stór bíl-
skúr og geymslur. Á efri hæð er
ca 160 fm íbúð með stórum stof-
um og mikilli lofthæð. Til eru
teikningar af stækkun og breyt-
ingum á húsinu. 5873
HÁTEIGSVEGUR - M. BÍLSKÚR
Falleg og vel skipulögð 6-7 her-
bergja 157,5 fm efri hæð í 4-býl-
ishúsi ásamt 20,6 fm bílskúr.
Hæðin skiptist í samliggjandi
suðurstofu og borðstofu, hol, eld-
hús, baðherb., geymslu og 5 her-
bergi. Húsið er nýviðgert að utan.
Verð 45,9 millj. 6277
SUMARBÚSTAÐUR - EIGNARLAND
ÞINGVELLIR - BYGGINGARRÉTTUR
Lítill og snotur 22,2 fm sumarbú-
staður á 5.000 fm eignarlóð. Bát-
askýli og dúkku-hús eru á lóðinni.
Bústaðurinn er á einni hæð með
svefnlofti. Skiptist bústaðurinn í
stofu, eldhús, bað og svefnloft.
Verð 8,5 millj. 6295
BÓLSTAÐARHLÍÐ - LAUS STRAX
Björt og vel skipulögð 2ja her-
bergja 42,9 fm íbúð á 7. og efstu
hæð í lyftuhúsi. Eignin er einung-
is ætluð þeim sem eru 63 ára og
eldri. 6293
SKÚLAGATA - FYRIR ELDRI BORGARA
Falleg 3ja herbergja íbúð á 3.
hæð í húsi fyrir eldri borgara við
Skúlagötuna með útsýni til sjáv-
ar og Esjunnar. Eignin skiptist
m.a. í hol, svefnherbergi, baðher-
bergi, stofu, borðstofu og eldhús.
Íbúðin á hlutdeild í samkomusal á
1. hæð og húsvarðaríbúð. Að-
gangur að mötuneyti með heitum
mat er í næsta húsi. Sérgeymsla
á jarðhæð. Öryggishnappur er í
íbúð. Húsvörður. Verð 23,9 millj.
6255
SÓLTÚN 5 - SÉRLEGA VÖNDUÐ OG FALLEG
Sérlega vönduð og falleg 130 fm.
íbúð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi
ásamt bílastæði í bílgeymslu.
Íbúðin skiptist í þvottaherbergi,
baðherbergi,eldhús með borð-
króki, óvenju stórar stofur, tvö
svefnherbergi og geymslu innan
íbúðar. Húsið er einangrað og
klætt að utan. Tvöföld gólf eru til
aukinar hljóðvistar. Hönnun hefur
verðlaunuð en húsið er teiknað af
Ingimundi Sveinssyni. Afhending
er í maí 2007. V. 41,5 m.- 6129
FJALLALIND KÓP. - FALLEGT RAÐHÚS
Bjart og fallegt 156 fm raðhús á
einni hæð með innbyggðum bíl-
skúr. Raðhúsið skiptist í forstofu,
hol, eldhús, borðstofu, dagstofu,
svefnherbergisgang, baðherb.,
hjónaherbergi með klæðaher-
bergi, tvö barnaherbergi, þvotta-
herbergi og bílskúr. Frábær stað-
setning. 6294
Sími 530 6500
Kynnum til sölu fimm íbúða raðhús. Staðsetning húsanna hefur
mikla sérstöðu í Norðlingaholti. Húsin eru byggð við óbyggt
vatnsverndarsvæði. Útsýnið af lóðunum er að Bugu, Rauðhól-
um, Heiðmörk, Elliðavatni og stórbrotnum fjallahring. Húsin eru
á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsin eru skráð 169,3 fm,
íbúðarrými 136,1 fm og bílskúr 33,2 fm. Skv. teikningu eru áætl-
uð þrjú svefnherbergi, innangengt í bílskúrinn og útgengt á lóð-
ina á fjórum stöðum. Húsin afhendast fullbúin að utan og máluð
og tilbúin til innréttinga að innan. Verð frá 37-39 m.
Allar nánari upplýsingar hjá söluaðilum.
Sími 588 5530
BERG
FASTEIGNASALA
TIL SÖLU
HÓLAVAÐ 63-71
Á BORGARSTJÓRNARFUNDI
síðasta þriðjudag staðfesti meirihluti
sjálfstæðis- og fram-
sóknarmanna samning
um sölu á 45% hlut
borgarinnar í Lands-
virkjun.
Í samningsferlinu fór
borgarstjóri á bak
sinna eigin loforða um
að halda borgarráði
upplýstu um gang við-
ræðna við ríkið og
skrifaði eins og þekkt
er orðið undir þessa
samninga án þess að
um þá hafi verið fjallað í
borgarráði.
Í ljós kom á fund-
inum að borgarstjóri hafði í þessu
frumhlaupi sínu ekki kynnt sér fyr-
irliggjandi gögn í málinu, eins og
verðmætamat upp á 91,2 milljarða
sem lá fyrir, en samningsmarkmið
byggð á því mati urðu ásamt öðru til
þess að upp úr viðræðum slitnaði fyr-
ir rúmu ári. Ríkið vildi þá aðeins
borga tæpa 60 milljarða fyrir hlut
borgarinnar sem er um það bil sama
upphæð og borgarstjóri samdi núna
um að teknu tilliti til verðlagsbreyt-
inga.
Hagsmunir Orkuveitunnar
hafðir að engu
Jafnframt kom fram að borg-
arstjóri leitaði ekki álits Orkuveitu
Reykjavíkur á því hvaða áhrif salan
og hugsanleg einkavæðing Lands-
virkjunar í kjölfarið, hefði á sam-
keppnisumhverfi Orkuveitunnar. En
60% af þeirri raforku sem OR dreifir
um sitt kerfi eru keypt af Lands-
virkjun í heildsölu.
Þessir hagsmunir OR og þar með
raforkunotenda, heimilanna í Reykja-
vík, voru í engu tryggðir í samning-
unum um sölu á hlut borgarinnar í
Landsvirkjun. Þeir voru
ekki einu sinni kannaðir
en það hlýtur að teljast
mjög ámælisvert.
Samþykkt gegn
betri sannfæringu
Greiðsluformið á hlut
borgarinnar í Lands-
virkjun var einnig mjög
gagnrýnt og sú stað-
reynd að lífeyrissjóður
starfsmanna borg-
arinnar situr nú uppi
með óseljanleg bréf í
Landsvirkjun, sem að
auki bera breytilega
vexti í stað fastra vaxta sem væri
mun æskilegra fyrir sjóðinn. Það hef-
ur áður komið fram að stjórn lífeyr-
issjóðsins var ekki, frekar en aðrir,
höfð með í ráðum á samningstíma.
Stjórnarformaður sjóðsins Alfreð
Þorsteinsson, fyrrverandi borg-
arfulltrúi Framsóknarflokksins, hef-
ur lýst þeirri skoðun sinni op-
inberlega að bréfin séu óviðunandi
lausn fyrir sjóðinn.
Óskar Bergson, fulltrúi Framsókn-
arflokksins á borgarstjórnarfund-
inum, upplýsti að hann treysti Alfreð
Þorsteinssyni fullkomlega til að meta
hagsmuni sjóðsins.
Hvernig sá hinn sami Óskar
Bergsson gat í kjölfar þessara yf-
irlýsinga sinna samþykkt söluna og
þar með óviðunandi greiðsluform
gegn betri sannfæringu er með öllu
óskiljanlegt.
OR ekki einkavædd
Það eina jákvæða sem kom frá
meirihlutanum á fundinum var að
Óskar Bergson upplýsti að þrátt fyrir
yfirlýsingar stjórnarformanns OR,
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, um
hugsanlega sölu á gagnaveitu OR,
myndi Framsóknarflokkurinn ekki
standa að þeirri einkavæðingu.
Hvort það standist þegar á hólm-
inn er komið verður að koma í ljós því
undirlægjuháttur framsóknarmanna
virðist alger gagnvart Sjálfstæð-
isflokknum í samstarfinu í borginni
eins og atkvæði Óskars Bergssonar
um sölu á hlut borgarinnar í Lands-
virkjun ber vitni um.
Borgarstjóri semur af sér
Sigrún Elsa Smáradóttir
fjallar um sölu á hlut Reykja-
víkurborgar í Landsvirkjun
» Það hefur áður komið fram að
stjórn lífeyrissjóðsins
var ekki, frekar en
aðrir, höfð með í ráðum
á samningstíma.
Sigrún Elsa
Smáradóttir
Höfundur er varaborgarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar.
Heyrst hefur: Ég hlakka til helginnar.
RÉTT VÆRI: Ég hlakka til helgarinnar.
Gætum tungunnar