Morgunblaðið - 26.11.2006, Qupperneq 54
54 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Prófkjör Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi 2006
Sæti og fylgi samkvæmt prófkjörsreglum Sæti og fylgiskv. hlutfalls-
1. 2. 1.-2. 3. 1.-3. 4. 1.-4. 5. 1.-5. 6. 1.-6. kosningum
Árni Mathiesen 1 2659 352 3011 228 3239 260 3499 181 3680 212 3892 1 3048
Árni Johnsen 2 1877 425 2302 247 2549 226 2775 171 2946 188 3134 2 2294
Kjartan Ólafsson 3 137 1086 1223 355 1578 341 1919 342 2261 400 2661 4 1019
Björk Guðjónsdóttir 4 77 478 555 825 1380 732 2112 505 2617 538 3155 5 965
Unnur Brá Konráðsd. 5 23 116 139 357 496 644 1140 1452 2592 604 3196 6 752
Drífa Hjartardóttir 6 132 833 965 531 1496 532 2028 472 2500 465 2965 3 1030
Hlutfallskosningar eru meginregla
í íslenskum kosningalögum til Al-
þingis og einnig á Alþingi sjálfu. Með
þeim er reynt að tryggja að flokkar
eða hópar sem bjóða
fram lista í kosningum
fái sanngjarnan fjölda
fulltrúa, í hlutfalli við
fylgi sitt. Reglan er sú
að þegar settur er kross
við raðaðan og óbreytt-
an framboðslista fær sá
sem er fyrstur á listan-
um atkvæðið óskipt. Sá
sem er annar á listan-
um fær hálft atkvæði,
sá þriðji þriðjung úr at-
kvæði og þannig áfram.
Þegar talning fer fram
hljóta kosningu þeir
frambjóðendur á öllum listum sem fá
flest atkvæði, vegin á þennan hátt.
Í þeim prófkjörum sem flokkarnir
hafa efnt til á undanförnum árum hag-
ar ekki eins til. Reyndar merkir kjós-
andinn við tiltekinn fjölda frambjóð-
enda í töluröð. En vegna þess að ekki
raða allir kjósendur frambjóðendum á
sama hátt hlýtur hver frambjóðandi
atkvæði í fleiri en eitt sæti og eftir því
verður að haga talningu. Samt sem áð-
ur er hægt að láta meginreglu hlut-
fallskosninga gilda. Atkvæðin sem
hver frambjóðandi fær í hvert sæti eru
þá vegin eftir reglu hlutfallskosninga,
en síðan eru þessi vegnu atkvæði hans
öll lögð saman. Þannig fæst fylgi hvers
frambjóðanda með einni tölu. Eftir
þessum samanlagða vegna at-
kvæðafjölda raðast frambjóðendur á
listann að loknu prófkjöri. Ekki skal
því haldið fram að með þessari aðferð
veljist endilega bestu frambjóðend-
urnir, enda er ætlunin einungis að fá
sem réttastan mælikvarða á það traust
sem kjósendur sýna þeim í kjörklef-
anum.
Eins og kunnugt er hafa menn ekki
farið eftir þessari meginreglu ís-
lenskra kosningalaga í talningu próf-
kjörsatkvæða. Í stað þess hefur helst
verið notuð aðferð sem var mótuð og
tekin upp hjá Sjálfstæðisflokknum
fyrir aldarfjórðungi eða
svo. Aðrir flokkar hafa
sumir tileinkað sér að-
ferðina í góðri trú, rétt
eins og annað kæmi
ekki til greina. Þá er sá
settur efstur á lista sem
fær flest atkvæði í
fyrsta sæti, en ekkert
tillit er tekið til þess
þótt annar frambjóð-
andi sem fær litlu færri
atkvæði í það sæti hljóti
miklu meira fylgi í önn-
ur sæti. Sams konar
gölluð aðferð er notuð
til að skipa önnur sæti. Hljóti tveir
frambjóðendur til dæmis álíka mörg
atkvæði í neðstu sæti er ekki tekið
neitt tillit til þess hvernig atkvæði
þeirra skipast í efri og neðri sæti. Ný-
leg dæmi um afleiðingarnar eru mörg
en hér skulu aðeins nefnd þrjú.
Í töflu yfir niðurstöður prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi nú árið 2006 kemur fram
að Drífa Hjartardóttir skyldi lenda í
6. sæti . Ef atkvæðin eru talin saman
eftir meginreglu hlutfallskosninga
má sjá að samanlagt fylgi Drífu
reiknast heldur meira en þeirra sem
töldust í 3., 4. og 5. sæti. Eftir því ætti
hún að hljóta þriðja sætið, færast upp
um þrjár tröppur. Það munar um
minna. Önnur dæmi eru þau að eftir
reglu hlutfallskosninga hefði Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir átt að hljóta 4.
sæti í stað þess sjötta í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks í Suðvest-
urkjördæmi, og í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík hefði Val-
gerður Bjarnadóttir átt að færast úr
10. sæti í 8.
Að sjálfsögðu er ekki hægt að búast
við öðru en að farið sé eftir þeim reglum
sem ákveðnar eru áður en prófkjör fara
fram. En sé skilyrðum um bindandi
kosningu ekki fullnægt er vissulega
hægt að taka tillit til ýmissa sjónarmiða
við endanlega röðun á listann, svo sem
þeirrar reglu hlutfallskosninga sem ég
hef reifað í þessari grein.
Hitt er svo annað mál að annarrar
vaxandi gagnrýni gætir nú á fram-
kvæmd prófkosninga. Það er spilling
og ekki jafnræði að óhemju misjöfn
fjárráð manna geti ráðið velgengni í
kosningum. Það er líka hæpið jafn-
ræði að frambjóðendur tileinki sér
ákveðin sæti og reyni þannig að
þvinga aðra neðar á listann, líkt og
þegar dýr í hjörð skipa sér sjálf í virð-
ingarröð. En ef það tækist að komast
fram hjá þessum og öðrum ágöllum
prófkjörsaðferða væri ef til vill ein-
faldast og affarasælast að sameina
prófkjörin kosningunum sjálfum. Þá
mundi kjósandi tölusetja tiltekinn
fjölda frambjóðenda og síðan yrðu at-
kvæði talin eftir hlutfallsreglunni.
Spurning er hvort ástæða væri til að
heimila kjósanda að velja frambjóð-
endur af fleiri en einum lista en það
væri tæknilega auðvelt með hlutfalls-
reglunni. Um þessi og fleiri atriði
tengd prófkjörum og kosningum er
full þörf málefnalegrar umræðu.
Reglur hlutfallskosninga
í prófkjörum
Páll Bergþórsson skrifar
um útreikning á sætaskipan
í prófkjörum
»En vegna þess aðekki raða allir kjós-
endur frambjóðendum á
sama hátt hlýtur hver
frambjóðandi atkvæði í
fleiri en eitt sæti...
Páll Bergþórsson
Höfundur er veðurfræðingur
og rithöfundur.
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Nóatún 15
Opið hús í dag á milli kl. 14-16
Um er að ræða tvær eignir sem báðar hafa verið endurgerðar hvað varðar
gólfefni, lagnir, gler, glugga o.fl. Annars vegar er um að ræða 61,0 fm jarð-
hæð með stórri stofu, góðu eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og sérinn-
gangi með hita í útitröppum. Ásett söluverð 19,9 millj.
Hins vegar er um að ræða hæð og ris með bílskúr, samtals 121,8 fm. Tvö
svefnherbergi á sérhæð, samtengd stofa, borðstofa, borðkrókur og stórt
eldhús með Miele tækjum og glæsilegri innréttingu. Gestasalerni sem er flí-
salagt. Forstofa og hol flísalagt, teppalagður stigi að rishæð þar sem er
hjónasvíta ásamt fataherbergi og góðu baðherbergi sem er flísalagt í hólf
og gólf. Fermetrafjöldi er meiri heldur en mat getur til um þar sem hluti riss
er undir súð. Eins og jarðhæð hefur eignin verið tekin í gegn hvað varðar
gólfefni, lagnir, gler, glugga o.fl. Bílskúr er með nýju þaki, gluggum og þar
er einnig hiti og kalt vatn ásamt rafmagni og sjálfvirkum hurðaopnara.
Ásett söluverð 39,9 millj.
Þetta eru sérlega glæsilegar eignir þar sem ekkert hefur verið til sparað.
Sérinngangur í báðar íbúðir.
Hraunbraut 3
Opið hús í dag á milli kl. 14-15
Um er að ræða tvær eignir. Neðri hæð, 82,9 fm. í tvíbýli á góðum stað í
vesturbæ Kópavogs. Sérinngangur og góð verönd með suður garði. Verð
21 millj. Anna og Reymond taka á móti þér. S: 695-4669.
Sérhæð í tvíbýli á frábærum stað í vesturbæ Kópavogs. Hæðin er 156,9 fm
auk bílskúrs sem er 36 fm eða samtals er eignin : 192,9 fm. V 44 millj.
Margarita og Magnús taka á móti þér s: 695-4669
Eignin getur einnig selst í einu lagi - Upplagt tækifæri fyrir samrýmdar fjöl-
skyldur.
EFNALAUG – ÞVOTTAHÚS - KÓPAVOGI
Til sölu vegna sérstakra ástæðna, rekstur og búnaður
góðri efnalaug-þvottahúsi í Kópavogi.
Vinsamlega hafið samband við sala@firmus.is
eða Þorstein í 694 3401
Um er að ræða fyrirtæki sem hefur fest sig í sessi sem leiðandi fyrirtæki á sínu sviði þ.e. þjónustu- og afþreying-
armiðstöð fyrir ferðamenn, sem byggir starfsemi sína á því hvað hægt er að gera með íslenskum jarðhita í rækt-
un á plöntum auk verslunar- og veitingasölu. Miklir möguleikar eru í að þróa starfsemina frekar og tengja hana í
ríkari mæli við Hveragerði sem er vaxandi bær fyrir
heilsutengda þjónustu.
Fyrir liggur tillaga að deiliskipulagi sem gerir ráð
fyrir 1.500 fm stækkun gróðurhúsa og tengibygg-
ingar aftan við núverandi veitingasal. Einnig er gert
ráð fyrir fjögurra hæða hótelbyggingu með fjölda
herbergja, auk kjallara, á austurhluta lóðarinnar.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
EDEN EHF. HVERAGERÐI
Aldingarður í alfaraleið
Fáðu úrslitin
send í
símann þinn