Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Enn er Katla á ferð í
Álfheimum og
Benedikt búálfur og
vinir hans þurfa að
beita öllum
brögðum til að
berjast gegn henni.
Ný og spennandi
saga um vinsælar
persónur.
edda.is
Benedikt búálfur
kemst í hann krappan
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
VITAÐ er um 205 eldgos hér á landi
frá því land byggðist. Grímsvötn eru
langvirkasta eldstöðvakerfið með
um 70 eldgos á þessum tíma. Þau
eru á svonefndu Eystra gosbelti
sem einnig er mikilvirkasta eldgosa-
svæði landsins og þar sem um 79%
af öllum gosefnum hafa komið úr
jörðu á síðastliðnum 11 öldum.
Hefti helgað Íslandi
Þetta kemur m.a. fram í fræði-
grein jarðfræðinganna Guðrúnar
Larsen og Þorvaldar Þórðarsonar í
fræðiritinu Journal of Geodynamics.
Greinin er ein tíu fræðigreina um
jarðfræði Íslands sem birtast í
næsta hefti tímaritsins og er þegar
hægt að lesa greinarnar í vefútgáfu
þess. Þeir Magnús Tumi Guðmunds-
son, prófessor við Háskóla Íslands,
og Wolfgang Jacoby við jarðvísinda-
deild Johannes Gutenberg-háskól-
ann í Mainz, Þýskalandi, ritstýrðu
Íslandshluta heftisins.
Þau Guðrún og Þorvaldur rita um
eldvirkni á Íslandi á sögulegum
tíma, mismunandi gerðir eldfjalla og
eldgosa og eldgosasögu. Þar kemur
m.a. fram að gosvirkni hér á landi sé
óvenju fjölbreytt fyrir úthafseyju.
Hér megi finna nær allar gerðir eld-
fjalla og eldgosa sem þekkt séu á
jörðinni. Þessi fjölbreytni stafi m.a.
af sérstökum jarðfræðilegum og
veðurfarslegum aðstæðum hér á
landi.
Að meðaltali hafa orðið 20–25
eldgos á öld frá landnámi
Alls er vitað um 205 eldgos af
ýmsu tagi hér á landi á sögulegum
tíma, þ.e. frá því land byggðist. Af
þessum 205 atburðum eru 192 ein-
stök eldgos og þrettán eru flokkuð
sem eldar. Í slíkum eldum hafa orð-
ið allt frá tveimur og upp í ellefu
eldgos í röð í sömu gosstöð og hefur
hver eldgosahrina staðið frá mán-
uðum og upp í ár. Sem dæmi um
elda má nefna Kröfluelda 1975–84,
Surtseyjargosið 1963–67 og Skaft-
árelda 1783–85.
Tíðni eldgosa hefur verið breyti-
leg frá 10–12 gosum á áratug niður í
eitt eða jafnvel ekkert gos, en að
meðaltali hafa orðið 20–25 eldgos á
hverri öld frá því land byggðist.
Þótt svo virðist sem eldgosatíðni sé
meiri síðustu 400 árin en aldirnar
þar á undan er líklegast að það end-
urspegli betri skráningu viðburða
fremur en raunverulega aukningu.
Svonefnt Eystra gosbelti hefur
verið langvirkast frá því land byggð-
ist. Eldstöðvakerfið sem kennt er
við Grímsvötn er virkasta eldstöðva-
kerfið á sögulegum tíma hvað varð-
ar tíðni eldgosa með um 70 eldgos.
Næst koma Hekla með 23 viðburði
og Bárðarbunga – Veiðivötn með
a.m.k. 23 staðfest eldgos. Fjórða í
röðinni hvað fjölda eldgosa varðar
er Katla með a.m.k. 21 eldgos frá
því seint á 9. öld. Önnur eldgos-
asvæði á þessu gosbelti eru Vest-
mannaeyjar, Eyjafjöll og Torfajök-
ull.
Tvöfalt meira magn gosefna
en áður var talið
Þau Þorvaldur og Guðrún áætla
að á liðnum 1.130 árum hafi alls
komið upp í eldgosum um 122 rúm-
kílómetrar af hrauni og gjósku. Það
samsvarar um 87 rúmkílómetrum af
bergkviku. Þetta er um það bil tvö-
falt meira magn gosefna en áður var
talið að komið hefði upp í eldgosum
hér á landi á sögulegum tíma.
Eystra gosbeltið er langafkasta-
mest þegar kemur að framleiðslu
gosefnanna á sögulegum tíma. Þar
hafa komið upp gosefni sem sam-
svara um 69 rúmkílómetrum af
bergkviku, eða 79% af heildinni.
Grímsvötn, Katla, Hekla og Bárð-
arbunga – Veiðivötn hafa skilað um
97% þeirra gosefna sem komið hafa
úr jörðu á Eystra gosbeltinu.
Meira en helmingur bergkviku
kom í fjórum gosum
Þá benda þau Guðrún og Þorvald-
ur á að um 54% allrar bergkviku
sem komið hefur hér úr jörðu á síð-
astliðnum 1.130 árum megi rekja til
fjögurra eldgosa sem fylgdu sann-
kölluð hraunflóð, þ.e. Eldgjárgoss á
árunum 934–938, gosanna sem
mynduðu Hallmundarhraun um árið
950 og Frambruna nokkrum öldum
síðar og Skaftáreldanna 1783–1785.
Grímsvötn virkust eldstöðva
Íslands á sögulegum tíma
Morgunblaðið/RAX
Mikilvirkust Grímsvötn eru virkasta eldstöð Íslands og hafa orðið þar um 70 eldgos frá því land byggðist. Myndin
var tekin í gosinu í október 1996. Flugvélin á myndinni gefur svolitla hugmynd um umfang eldgossins.
Í HNOTSKURN
» Af 205 eldgosum á sögu-legum tíma eru 192 einstök
eldgos og 13 eldar þar sem
urðu fleiri en eitt eldgos.
» Um 70 eldgos hafa orðið íGrímsvötnum, í Heklu hafa
orðið 23 gos og Bárðarbunga –
Veiðivötn eru með a.m.k. 23
staðfest eldgos. Fjórða í röð-
inni er Katla með a.m.k. 21 eld-
gos frá því seint á 9. öld.
» Eystra gosbeltið er lang-virkasta eldfjallasvæði
landsins en ofantaldar eld-
stöðvar eru á því.
» Á Eystra gosbeltinu hafa79% allra gosefna á sögu-
legum tíma komið og helm-
ingur allrar bergkviku kom í
Eldgjárgosinu, gosum sem
mynduðu Hallmundarhraun og
Frambruna og í Skaftáreldum.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
lagt fram á Alþingi frumvarp um
breytingu á lögum um trygginga-
gjald þar sem lagt er til að trygg-
ingagjald verði lækkað um 0,45%
frá 1. janúar nk. Breytingin er gerð
til samræmis við yfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar frá 7. mars 2004
vegna kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði. Einnig er lagt til að
ríkissjóður veiti tilteknum hluta af
gjaldstofni tryggingagjalds til
jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða,
eða sem svarar 0,15% árið 2007,
0,20% árið 2008 og 0,25% frá og
með árinu 2009.
Ríkisstjórnin lýsti því yfir fyrr á
árinu að hún væri reiðubúin að
greiða fyrir jöfnun á örorkubyrði
lífeyrissjóða á samningssviði ASÍ
og SA til að greiða fyrir sam-
komulagi um áframhaldandi
gildi kjarasamninga. Að mati
fjármálaráðuneytisins er gengið
lengra í frumvarpinu en kveðið er á
um í yfirlýsingunni og lagt til að
jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða
eigi sér stað til frambúðar og nái til
allra lífeyrissjóða þegar jöfnunin er
að fullu komin til framkvæmda.
Jafna örorku-
byrði lífeyr-
issjóðanna
ÍSLENDINGAR eru sú þjóð sem
einna síst óttast hryðjuverk en að-
eins um fjórðungur Íslendinga telur
hryðjuverk ógna landinu. Albanía
er eina landið þar sem þetta hlutfall
er lægra. Í flestum vestrænum
löndum er hins vegar hlutfall
þeirra sem telja hryðjuverk ógna
eigin landi á bilinu 45–95%. Í
Bandaríkjunum er hlutfallið 93%,
82% í Þýskalandi, 71% í Danmörku,
69% í Noregi og 47% í Svíþjóð.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í alþjóðlegri könnun Gallup
International, sem gerð var í 63
löndum síðsumars og greint er frá í
nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup.
Í könnunni kemur einnig fram að
afstaða Íslendinga til hlutverks
Bandaríkjanna í baráttunni gegn
hryðjuverkum er gagnrýnin en lið-
lega 60% þjóðarinnar telja Banda-
ríkin gegna neikvæðu hlutverki í
þeirri baráttu, 22% álíta þau gegna
jákvæðu hlutverki og 4% eru hlut-
laus. Afstaða Íslendinga sker sig úr
frá meðaltalinu en 44% allra íbú-
anna í löndunum 63 sem könnunin
tók til telja að Bandaríkin gegni já-
kvæðu hlutverki í baráttunni við
hryðjuverk, 36% töldu það vera nei-
kvætt en 15% voru hlutlaus.
Óttast síst
hryðjuverk
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Reyðarfjörður | Jarðvegsskriða, um 40
rúmmetrar, féll úr hárri uppfyllingu
á milli gatnanna Bakkagerðis og Vall-
argerðis og niður á milli húsa á Reyð-
arfirði snemma í gærmorgun. Ekki
varð manntjón og aðeins lítilsháttar
skemmdir á mannvirkjun, en mikið af
aur liggur í görðum við Vallargerði.
Úrhelli hefur verið á svæðinu und-
anfarna daga og var um tíma óttast
að vatn flæddi í nálæg hús og því kall-
aðir til björgunarsveitarmenn.
Fjögur tveggja hæða parhús voru
fyrir nokkrum misserum byggð á
rúmlega 8 metra hárri uppfyllingu
við Bakkagerði, sem liggur við lóða-
mörk húsa við Vallagerði. Hefur jarð-
vegur verið að síga inn í garða þar
síðan og húseigendur við götuna
mjög óhressir með ástand mála. Tré-
smiðja Fljótsdalshéraðs, sem nú er
gjaldþrota, byggði húsin við Bakka-
gerði og hafa íbúar neðan uppfylling-
arinnar átt í langvinnum viðræðum
við sveitarfélagið um úrlausnir og
eru að vonum áhyggjufullir þar sem
uppfyllingin dúi öll og sé á hreyfingu.
Klaki og krapi
lokaði niðurföllum
Aurskriðan féll á milli Vallargerðis
7 og 9 og vatn fór einnig að renna á
milli Vallargerðis 5 og 7. Virðist vatn
hafi safnast upp á bakkanum þar sem
klaki og krapi hafði lokað niðurföll-
um, með þessum afleiðingum.
„Það safnaðist vatn fyrir innan
bakka sem liggur ofan við hús í Vall-
argerði, utarlega í þorpinu“ sagði
Ingi Lár Vilbergsson, varaformaður
björgunarsveitarinnar Ársólar.
Hann segir nánast ekkert af aur-
skriðunni hafa farið inn í húsin, en
vatnið haldið áfram að flæða eftir að
skriðan fór niður og upp að glugga á
Vallargerði 7. „Við mættum 11
manns á staðinn og fórum í fráveitu,
að moka frá glugganum og veita
vatninu í burtu svo það færi ekki í
kjallarann.“
Bjarni Ólafur Birkisson sem býr í
húsinu var að moka aurbleytunni úr
innkeyrslunni hjá sér þegar Morgun-
blaðið náði tali af honum. „Garðurinn
hjá okkur er fullur af drullu og einnig
kom nokkuð af jarðvegi inn um
glugga á neðri hæðinni þar sem er
leiguíbúð. Það hafa verið vandræði af
þessari uppfyllingu lengi og fæst ekki
við neitt ráðið enn sem komið er“
sagði Bjarni þar sem hann stóð í hart-
nær hálfs metra djúpu lagi af mold og
grjóti í garði sínum.
Garðurinn fullur af
drullu eftir aurskriðu
Ekkert manntjón en lítilsháttar skemmdir á mannvirkjum