Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EGGERT Skúlason, fráfarandi rit-
stjóri tímaritsins Veiðimannsins,
hefur gagnrýnt þær ákvarðanir
stjórnar Stangaveiðifélags Reykja-
víkur að banna maðk í tveimur af
vinsælustu ám félagsins, og banna
jafnframt dráp á tveggja ára laxi.
Segir Eggert þá sem vilja friða lax-
inn, veiða og sleppa, ata þá auri sem
eru ósammála þeim og að stjórn
SVFR taki of mikið mark á nafn-
lausum skrifum á spjallsíðum.
Alinn upp við að taka lax heim
„Ég tek undir margt í skrifum
Eggerts,“ segir Bjarni Júlíusson for-
maður SVFR. „Ég er sjálfur alinn
upp við það að veiða mér til matar og
koma heim með laxinn. Vandinn er
bara sá að margt er að breytast, lax-
inn á undir högg að sækja og allar
ákvarðanir sem við í stjórninni höf-
um tekið, eru samkvæmt tilmælum
okkar færustu vísindamanna.
Við ákváðum að laxi sem veiðist
síðustu tvær vikurnar í Stóru-Laxá
næsta sumar verði að sleppa. Það
var eftir að fiskifræðingarnir sögðu
hrygninguna allt of litla í ánni.“
Bjarni segir að þegar hann hóf að
veiða í Norðurá hafi um 20% af
stofninum verið stórlax. Síðasta
sumar veiddust hátt í 2.300 laxar í
ánni en aðeins um 100 stórlaxar.
„Þessi stóri fiskur er nánast horf-
inn úr ánni. Ef við ætlum ekki að
tapa þessum fiski alveg verðum við
að gera eitthvað. Í fyrra tókum við
undir tilmæli Veiðimálastofnunar
um að menn sleppi stórlaxinum.
Menn fóru ekki að þeim tilmælum
okkar og þess vegna göngum við nú
skrefinu lengra.
Ég er vanur því við opnun Norð-
urár að við konan tökum lax heim og
grillum. Það verður ekki þannig í
vor. Ef við setjum í laxa þá verður
þeim gefið líf og við munum sækja
fisk í búðina til að setja á grillið.“
Bjarni segir rétt hjá Eggert að
meira heyrist í þeirri fylkingu sem
styðji veiða og sleppa, en samkvæmt
óformlegri könnun á vef félagsins
séu þetta álíka stórir hópar.
„Okkar tillögur og reglur eru
samt ekki settar vegna þess að við
séum að hlusta meira á annan hóp-
inn en hinn, heldur erum við með
gild rök vísindamanna á bakvið okk-
ur. Ekki nafnlausa menn á spjall-
vefjum.“
Með gild rök vísinda-
manna bakvið okkur
Formaður SVFR segir lax eiga undir högg að sækja
Í HNOTSKURN
»Eggert Skúlason gagn-rýnir ákvörðun stjórnar
SVFR um að banna maðk í
tveimur vinsælustu ám félags-
ins, og að skylt sé að sleppa
tveggja ára laxi.
»Bjarni Júlíusson formaðurfélagsins segir að gild rök
vísindamanna á Veiði-
málastofnun séu á bak við all-
ar ákvarðanir sem lúti að
veiðistjórnun.
EVRÓPSK yfirlýsing um samstarf
læknastéttarinnar og lyfjaiðnaðar-
ins sem samtök framleiðenda frum-
lyfja á Íslandi og Læknafélag Ís-
lands (LÍ) hafa ákveðið að virða er
ófullnægjandi að því leyti að í hana
vantar ákvæði um samstarfs-
grundvöll lækna og lyfjadreifing-
arinnar. Þetta er skoðun Sig-
urbjörns Sveinssonar, formanns
Læknafélags Íslands.
Sigurbjörn lagði í fyrra fram til-
lögur í stjórn LÍ vegna hugmynda
að endurnýjun samnings þess og
Samtaka verslunarinnar, fyrir
hönd lyfjafyrirtækja, um samstarf
lækna og lyfjafyrirtækja. Þar var
meðal annars kveðið á um samráð
vegna fræðslu- og kynningarmála,
sem lyfjafyrirtæki tengdust. Lagði
Sigurbjörn til að skipuð yrði
þriggja manna samráðsnefnd um
lyfjaupplýsingar. Í henni ættu sæti
fulltrúi LÍ, fulltrúi Samtaka versl-
unarinnar og einn sem skipaður
væri af landlækni. Tillögur Sig-
urbjörns fengu hins vegar ekki
brautargengi hjá stjórninni.
Sigurbjörn
segir samskipti
lækna og lyfja-
fyrirtækja nauð-
synleg, en hann
vilji láta taka fyr-
ir risnuna, hún sé
óþörf. Allt sem
hægt sé að túlka
sem olíu sem
liðki fyrir notkun
þeirrar fram-
leiðslu sem verið sé að veita upplýs-
ingar um, sé óeðlilegt.
Fram hefur komið í fréttum að í
fundarboði vegna jólafundar Geð-
læknafélags Íslands sagði að lyfja-
fyrirtækið Eli Lilly styrkti fundinn,
en í fundarboðinu var ekki að finna
kynningu á faglegri dagskrá.
Í yfirlýsingu sem stjórn félagsins
sendi frá sér í gær segir að stjórnin
hafi afturkallað styrkbeiðnina til
Eli Lilly á Íslandi vegna fræðslu-
fundar á væntanlegum jólafundi
Geðlæknafélags 2. desember. Verði
fundurinn því algjörlega á kostnað
Geðlæknafélags Íslands.
Evrópsk viðmið
ófullnægjandi
Sigurbjörn
Sveinsson
Styrkbeiðni geðlækna var afturkölluð
ÞRÍR ungir menn og ein stúlka
hafa viðurkennt hjá lögreglunni til-
raun til þjófnaðar á hraðbanka í
Landsbankanum við Klettháls í
Reykjavík á miðvikudag. Þrír
mannanna fóru inn í anddyri bank-
ans og reyndu að fjarlægja hrað-
banka þaðan, en gáfust upp við
hálfnað verk því bankinn reyndist
þeim ofviða. Stúlkan beið í bíl fyrir
utan á meðan.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík höfðu piltarnir
búið sig sérstaklega undir verkið,
en gleymdu eftirlitsmyndavél sem
skráði brotið.
Tilgangurinn með hraðbanka-
þjófnaðinum var að komast yfir
peninga til að kaupa fíkniefni. Tvö
umræddra ungmenna höfðu komið
við sögu árása á blaðbera í Fossvogi
mánuði áður, en fjórir ungir menn
auk stúlkunnar hafa viðurkennt að
hafa ráðist á tvo blaðbera í aust-
urborginni þann 31. október. Ung-
mennin kröfðust peninga og tóku
farsíma af blaðberunum. Annar
blaðberanna hlaut minniháttar
meiðsl er ráðist var á hann.
Játa þjófn-
aðartilraun
og árás
BORGARRÁÐSFULLTRÚAR
Samfylkingar deildu hart á fulltrúa
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
vegna landakaupa borgarinnar af
Kjartani Gunnarssyni í Norðlinga-
holti á fundi borgarráðs á fimmtu-
dag. Vildu þeir fá lagt fyrir fundinn
samkomulag um landakaupin. Þá
mótmæltu þeir því harðlega að borg-
arstjóri hefði ákveðið að hverfa frá
því að fara með uppgjör vegna eign-
arnáms á landi Kjartans fyrir dóm
þrátt fyrir skýra niðurstöðu þess
efnis, sem lögð var fyrir borgarráð í
vor, að matsnefnd eignarnámsbóta
hefði ekki rökstutt niðurstöðu um
fjárhæð eignarnámsbóta sem hefði
verið miklu hærri en búist var við.
Því hefði verið fullt tilefni til að fara
með málið fyrir dómstóla. Jafnframt
spurðu Samfylkingarfulltrúar hvaða
fjárheimildir væru fyrir gerð sam-
komulagsins án samþykktar borgar-
ráðs.
Greiddu Kjartani 118 milljónir
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokks létu bóka að
fyrrverandi meirihluti hefði greitt
Kjartani tæpar 118 milljónir króna
vegna kaupa á Selásbletti 2a og 3a
þann 26. maí sl. Sú ákvörðun hefði
ekki verið kynnt borgarráði eða
samþykkt þar. Samkvæmt ein-
dreignum ráðleggingum borgarrit-
ara var fallist á niðurstöðu mats-
nefndar eignarnámsbóta. Var síðan
fyrrverandi meirihluti sakaður um
að hafa með aðgerðaleysi sínu skað-
að borgina um tugi milljóna króna.
Þessu svöruðu Samfylkingar-
fulltrúar með því að innágreiðsla til
Kjartans í maí hefði verið hluti af
undirbúningi málshöfðunar borgar-
innar sem samþykkt var að höfða 6.
apríl. Greiðslan hefði verið innt af
hendi með vísan til krafna borgar-
innar um niðurstöðu málsins fyrir
nefndinni og dómstólum og hefði
verið ætlað að lágmarka dráttarvexti
vegna málsins.
Deildu hart á meirihlut-
ann vegna landakaupa
Fyrrverandi meirihluti sakaður um dýrkeypt aðgerðaleysi
NJÖRÐUR P. Njarðvík hlaut Barna-
menningarverðlaun Velferðarsjóðs
barna árið 2006 fyrir ómetanlegt
starf til hjálpar munaðarlausum
börnum í Afríku. Verðlaunaféð,
fjórar milljónir króna, verður nýtt
til frekari uppbyggingar á heim-
ilum fyrir munaðarlaus börn í Vest-
ur-Afríku-ríkinu Tógó á vegum
hugsjónafélagsins SPES. Alls var
úthlutað 11 milljónum króna úr Vel-
ferðarsjóði barna í gær, þ. á m. 1½
milljón króna til nýs stuðningsverk-
efnis fyrir drengi, sem eru ofvirkir
eða með skyldar hegðunarraskanir,
og tveimur milljónum til að styðja
börn sem flosnað hafa upp úr skóla
og vilja bæta grunnmenntun sína.
Þetta er í annað sinn sem Barna-
menningarverðlaun Velferðarsjóðs
barna eru veitt og í greinargerð
með verðlaununum kemur fram að
þau hljóti að þessu sinni ein-
staklingur sem „hefur lyft Grett-
istaki til hjálpar munaðarlausum
börnum í Afríku“.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, afhenti
Nirði P. Njarðvík verðlaunin. Hug-
sjónafélagið SPES starfar undir
kjörorðinu „Sá sem bjargar einu
barni bjargar mannkyninu“. Stefna
þess er að koma upp og reka heimili
fyrir munaðarlaus börn í þróun-
arlöndum og er allt stjórnarstarf
unnið í sjálfboðavinnu.
Mörg börn missa
foreldra sína úr eyðni
„Fjórar milljónir hafa mikla þýð-
ingu fyrir samtökin og kemur börn-
um til góða því þetta dugir til að
reisa tvo þriðju úr heilu húsi fyrir
þrjátíu börn,“ segir Njörður, sem
stofnaði félagið SPES og er auk
þess formaður heildarsamtakanna.
„Það er mikil fátækt í Tógó,“ seg-
ir Njörður. „Það er ekki beinlínis
hungursneyð og ekki eins mikil
eyðni og í Austur-Afríku en börn
missa mörg foreldra sína úr eyðni.
Það er hins vegar nokkuð um það að
mæður deyi af barnsförum. Það er
einnig dálítið um það að ungar
stúlkur eignist börn áður en þær
eru færar um það. Síðan kemur það
líka fyrir að fólk skilji börn sín eftir
þar sem þau muni finnast. Þannig
koma nú börnin til okkar.“
SPES vinnur nú að því að reisa
barnaþorp og hefur nú 62 börn á
framfæri. Þegar því verkefni lýkur
á næstu tveimur árum verða þar
120 börn. Þá er félagið að leggja
grundvöll að öðru barnaþorpi í
Tógó.
Hugsjónafélagið SPES styrkt
Morgunblaðið/ÞÖK
Viðurkenning Njörður P. Njarðvík tekur við verðlaununum.