Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 47 Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði LEGSTEINAR SteinsmiðjanMOSAIK Hamarshöfða 4 – sími 587 1960 www.mosaik.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Þegar ég reyni að rifja upp eins langt aftur í tímann og ég get þá man ég eftir mér pínulítilli í jepp- anum með ömmu Ellu og afa Stjána. Ferðinni var heitið upp í Skorradal, þar sem þau áttu sum- arbústað. Á leiðinni milli Akraness og Skorradals, sem tók kannski um 45 mín., þurfti ávallt að stoppa í sjoppu fyrir nesti. Ég man þá hvað mér þótti þau æðisleg. Pínulítil, al- sæl með kók í annarri og pulsu í hinni og amma lumaði alltaf á súkkulaðirúsínum í eftirrétt, sem var toppurinn á tilverunni. Frá Skorradal vakna margar góðar minningar. Amma og afi voru einstaklega dugleg að taka mig með upp í bústað. Þar veiddum við síli, spiluðum krikket, tókum þátt í veislum, spil- uðum spil og svona má lengi telja. Þau voru mínir bestu vinir. Alltaf Elín Frímannsdóttir ✝ Elín Frímanns-dóttir fæddist í Hafnarfirði 5. apríl 1924. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Akra- ness 23. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akraneskirkju 30. nóvember. klár í eitthvað skemmtilegt. Árið 1991 fluttu hjónin af Háholtinu á Höfðagrundina. Heiman frá mér var stutt að fara og fyrir vikið var ég tíður næturgestur. Afi var mikið úti á sjó og amma því oft ein heima. Við amma dúlluðum okkur mikið saman, föndruðum og máluðum eins og við ættum lífið að leysa. Leigðum okkur vídeóspólur og fór- um í snyrtileik. Henni fannst líka svo gott að borða góðan mat og átt- um við það sameiginlegt. Einn dag kom ég sársvöng úr skólanum til hennar og bað hana að elda kjöt- súpu, ömmu þótti það nú ekkert til- tökumál og skellti í súpu sem tók um tvær klukkustundir að elda! Amma var einstök kona. Hún vildi allt fyrir mig gera. Elsku besta amma mín, ég vil þakka þér fyrir allar samverustund- irnar sem við áttum. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og ein af mínum bestu vinkonum. Ég á eftir að sakna þín mikið en ég veit að nú ert þú komin á betri stað til afa Stjána. Þín Dagrún. varpsfréttum sem glumdu úr gamla útvarpinu í fjósinu. Að mjöltum loknum tóku við þrif þar sem við afi töluðum saman um allt milli himins og jarðar. Draumar, kvenfólk, bílar og veiði voru aðeins hluti þess efnis sem rædd voru í fjósinu. Ég hitti á afa minn fyrir stuttu þar sem við drukkum saman kaffi og spjölluðum um lífið og tilveruna. Mér fannst einkenna afa hversu hress og ánægður hann virtist vera. Ég er innilega þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að hitta á elsku afa minn áður en hann fór og mun ég minnast hans eins og ég sá hann síðast, ánægðan með lífið og sáttan. Afi minn var alltaf góður vinur minn og kenndi mér marga góða hluti í lífinu. Hann var ein af mínum stóru fyrirmyndum og mun ég sárt sakna hans. Sverrir Steinn Sverrisson. Það eru margar góðar minning- arnar sem fara um huga minn núna. Sú elsta er líklegast þegar ég var fjögurra til fimm ára, trítlandi á eftir afa út í fjós. Hann í túttunum sínum, bláa sloppnum með baggabönd í vös- unum og með gömlu húfuna á höfð- inu, tilbúinn að kenna enn einni „frænkunni“ að vinna sveitastörfin. Þegar ég var ellefu ára var ég send í sveitina til að lesa fyrir sögu- próf. Áhuginn á sögubókinni var ekki mikill og endaði það með því að amma og afi sögðu mér sögur allan daginn á meðan ég hjálpaði afa að hreinsa söl við eldhúsborðið. Að sjálfsögðu fékk ég tíu á prófinu og verður mér oft hugsað til þessa dags er ég sit sveitt yfir bókunum. „Mikið er ég nú ríkur,“ sagði afi með stoltið í augunum er hann leit yfir barnahópinn í stofunni hjá sér. „Hvenær ætlið þið að fjölga mann- kyninu?“ spurði hann iðulega er við komum í heimsókn að Hrauni. Hans heitasta ósk var að sjá sem flesta af- komendur sína og var hann enda- laust að minna mig á að það væri kominn tími á barneignir hjá mér. „Þið verðið að drífa í þessu áður en þú verður orðin steingeld og þarft að koma með götubarn heim frá Kína“. Bréfin sem afi sendi mér er ég bjó erlendis eru mér alltaf kær. Karlinn, kominn yfir nírætt skrifaði skemmtilegustu og lengstu bréfin sem ég fékk, stundum voru það gamlar minningar sem hann vildi deila með mér en oft voru það áhyggjur hans af þjóðfélaginu, rík- isstjórninni og eyðslusemi lands- manna. „Kann hann að fara með peninga?“ var oftar en ekki spurt er við ræddum um einhverja frænkuna eða frændann. Honum var mikið í mun að við lærðum að fara með pen- inga sem og annað fólk í þjóðfélag- inu. Ég er þakklát fyrir þær stundir sem ég átti með afa í gegnum árin, þær voru margar og góðar og mun ég ávallt minnast hans með stolti. Elsku afi Megir þú hvíla í friði. Þín dótturdóttir Ingunn. Óli bóndi, eins og við krakkarnir í austurbænum á Hrauni kölluðum hann, hefur nú kvatt eftir langa ævi. Kynslóð hans tók þátt í að færa þjóð- félagið úr örbirgð til góðra bjarg- álna. Ólafur og systkini hans gengu í gegnum mikla erfiðleika í æsku þeg- ar þau misstu föður sinn, en hann var þá á fjórða ári, næstyngstur 5 systkina. Þessi lífsreynsla setti mark sitt á fjölskylduna en barátta móðurinnar, Vigdísar Sæmunds- dóttur, var erfið. Henni tókst þó að halda börnunum og jörðinni með góðum stuðningi nágranna og vina. Þessar kringumstæður mótuðu Ólaf og það fylgdi honum ætíð að fara vel með og eyða aldrei um efni fram. Hann fór eins og aðrir jafnaldrar hans á þessum tíma í barnaskóla sveitarinnar og síðar í Héraðsskól- ann að Laugarvatni. Bræðurnir Karl og Ólafur tóku við búi af móður sinni eftir seinna stríð og höfðu þeir félag um reksturinn fyrst um sinn, en síðar ráku þeir sín bú hvor fyrir sig. Samvinna þeirra bræðra við nýtingu hlunnindanna var góð, þótt ólíkir væru. Þeir skiptu með sér verkum eftir kunnáttu eða getu á hverju sviði. Bræðrunum þótti gott að fá sér í staupinu og var þá oft stutt í stráksskapinn og stríðnina þegar þeir áttust við. Óli var vel lesinn og sögumaður ágætur. Hann hafði ætíð mikinn áhuga á landsmálum og skrifaði oft í dagblöð um ýmis mál sem heit voru hverju sinni svo og margar greinar um veiðimál. Það var oft mikið um að vera á æskuárum mínum á Hrauni því systkinahópurinn var stór á báðum bæjum. Dæturnar í vesturbænum eru 6, allar kröftugar og ákveðnar, en við bræður oft erfiðir í sambúð, stríðnir og uppátektasamir, en sjald- an lét Óli okkur finna fyrir því. Hef- ur sjálfsagt haft í huga prakkara- strik sín þegar hann var að alast upp, en hann sagði mér af mörgum slíkum. Óli var góður veiðimaður, var oft með stöngina með sér þegar farið var í ána að leggja. Góðar minningar á ég með honum við veiðar í Ölfusá, ekki síst frá þeim árum þegar land- burður var af laxi. Þegar netin voru keyrð út af bátnum og laxinn byrjaði strax að hlaupa í gekk oft mikið á. Leiðir okkar lágu einnig saman í skotveiðum og er mér það minnis- stætt að við frændurnir vorum stundum ósammála um hvor hefði hæft bráðina. Hjá hjónunum, Óla og Helgu var oft mannmargt og þar áttu margir skjól í lengri og skemmri tíma. Það er sannindamerki um gott hjartalag þeirra. Þegar við Sigga hófum búskap hér á Hrauni studdu þau vel við bakið á okkur með góðum ráðum og sýndu öllu sem við fengumst við mikinn áhuga. Þau tóku dætrum okkar eins og þau ættu þær og hafa alltaf vakað yfir velferð þeirra. Nærvera og umhyggja Þórhildar dóttur hans og hennar fjölskyldu gerði það kleift að hann gat dvalið heima allan sinn aldur, það var hon- um mikils virði. Við hjónin sendum Helgu, systr- unum og fjölskyldum þeirra samúð- arkveðjur. Hrafnkell Karlsson. Óli bóndi, eins og við kölluðum hann alltaf, var verðugur fulltrúi þeirra eftirminnilegu Íslendinga sem maður stöku sinnum hitti á ferðalagi sínu um landið. Í dag virð- ast flestir steyptir í sama mótið og þessir sérstöku einstaklingar nánast orðnir ófinnanlegir, því miður. Það er margt sem einkenndi Óla bónda. Þar ber hæst sterka lykt af tóbaki og reyktum laxi, og stundum var við- kunnanleg fjósalyktin líka greinileg. Blái vinnusloppurinn, pípan, neftób- akið, snýtuklúturinn, gúmmískórnir og slitni hatturinn. Í kringum Óla var andrúmsloftið óformlegt og þægilegt, sama hvort maður hitti á hann í fjósinu, í herberginu sínu á loftinu eða við endann á eldhúsborð- inu með kaffibollann, candirel-syk- urinn og pípuna, já og auðvitað með fréttirnar í botni. Óli var gamansam- ur, passasamur, ern og áhugasamur um allt og alla. Það er óhætt að segja að alltaf hefur verið nóg til af hjarta- hlýju í Vesturbænum á Hrauni. Óli bóndi lærði á tölvu tæplega ní- ræður að aldri og hafði gaman af því að skrifa, bæði greinar í blöðin og eins löng og skemmtileg bréf til ætt- ingja sem bjuggu erlendis. Þar lýsti hann mörgum áhugamálum sínum, m.a. atriðum úr æsku sinni, fyrstu kynnum af kvenmannslíkamanum, áhuga á sundi og heilsurækt. Eft- irfarandi kafli er úr skemmtilegu bréfi sem hann skrifaði 2003 og lýsti því þegar hann byrjaði í Héraðsskól- anum á Laugarvatni: „Ég hef getið þess hér að framan að ég var áhuga- samur um íþróttir, hafði mikinn áhuga á að læra sund. Það var því það fyrsta sem ég gerði, þegar ég var búinn að koma mér fyrir, að fara að sundlauginni og sjá krakkana synda. Og hvað sá ég nú. Þarna var fullt af bráðfallegum stelpum, sem ekki voru í neinu, nema vesældarleg- um sundbol. Þær voru sko ekkert að fela á sér kroppinn. Undarleg til- finning, sem var áður óþekkt hrísl- aðist um mig allan. Ég uppgötvaði þarna á laugarbarminum, að ég var karlmaður, og líklega rétt skapaður. Þarna var enn einni forvitninni sval- að. Ég lærði þarna sund, á mettíma, og varð sundkóngur á að giska hálf- tíma, í hvorri grein, langsundi og sprettsundi, en þá tóku fyrri sund- kóngar titilinn af mér.“ Óli var áhugasamur um sund allt frá því að hann var á Laugarvatni og seinna meir byggði hann sér sund- laug í bakgarðinum og var iðinn við að synda. Það hefur sjálfsagt haft sitt að segja um hve langlífur hann var. Óli átti góða að sem hann þakkaði að hann gæti verið heima svo lengi sem hann var. Við endum með eigin orðum Óla úr áður nefndu bréfi þar sem hann segir: „Það er nú óðum að styttast leiðin að gullna hliðinu, ef við lendum þá þeim megin. Maður heldur þó að Lúsifer sé nú tilbúinn líka að taka á móti okkur. En eins og gefur að skilja, viljum við nú heldur eiga vist hjá Lykla-Pétri, því við hann getur maður þó frekar rifið kjaft, minnt hann á að hann afneitaði því tvisvar, að þekkja Jesús, þó hann væri einn af lærisveinum hans.“ Við minnumst með þakklæti allra stundanna sem við fengum að vera hjá Óla og Helgu og sendum Helgu og fjölskyldunni samúðarkveðjur. Steinunn, Kolbrún og Brynja Hrafnkelsdætur Steinunn Hrafnkelsdóttir Óli bóndi, eins og hann var oft kallaður, var föðurbróðir minn. Hann og pabbi bjuggu hvor sínu búi að Hrauni með konum sínum, systr- unum Helgu og Brynhildi. Hlunn- indi voru sameiginleg og mikil sam- vinna hjá fólkinu á bæjunum tveimur. Fáir metrar eru á milli og samgangur fjölskyldnanna afar mik- ill. Ég man eftir Óla bónda frá því að ég var agnarsmár. Alltaf var hann ríflega fjörutíu árum eldri en ég, en þrátt fyrir það dró ég í raun á hann alla tíð í aldri. Óli bóndi breyttist aldrei í augum mínum. Hann deyr því alltof snemma – vantar enn nokkur ár í hundrað. Það er svo margt að minnast á að skrif um Óla bónda gætu hæglega fyllt þykka bók. Allt frá því er hann gaukaði að mér súrsuðum selshreifa, til þess að við fórum í laxveiði saman mörg sumur. Frá því að hann líkti okkur bræðrum í skánarvinnu við Hálsbræður og til þess að ég heim- sótti hann nú í haust og spjallaði við þau Helgu við gamla eldhúsborðið þeirra eins og hér áður fyrr. Það var gaman að alast upp á Hrauni. Hlaupa vestur í bæ, þar sem Óli, Helga, dætur þeirra og margir liðléttingar voru. Óli bóndi hafði gaman af krökkum – sínum dætrum, okkur bróðurbörnum hans og vandalausum. Alltaf var fjölmennt á heimilinu, gestrisni mikil og í fjölda ára tóku þau Helga börn til dvalar jafnt sumar sem vetur. Auðvitað lenti umstangið mest á Helgu konu Óla bónda, en án hans stuðnings hefði barnafánan orðið fábreyttari. Einna best man ég eftir þeim fjöl- mörgu stundum sem við Óli bóndi áttum saman í laxveiðinni í Ölfusá. Í mörg sumur vorum við saman annan hvern dag í veiðinni. Hann kenndi mér mörg flókin handtök í ánni og við áttum margar ánægjustundir þegar vel bar í veiði. Skemmtilegast var með Óla bónda þegar við vorum nýbúnir að leggja netin og fengum okkur kaffi eða þegar beðið var eftir aðfallinu niðri við árósinn. Þá var oft sögustund. Aldrei gleymi ég skírum degi í júlí sumarið 1974. Vel leit út með veiðina því laxinn hljóp strax í þegar netin voru lögð. Við skutumst svo í land eftir að hafa lagt, settumst í gamla Land Roverinn – Við Óli bóndi fram í og Binni léttastrákur aftur í. Við strákarnir vorum rétt byrjaðir að troða í okkur þegar eitthvað stór- kostlega fyndið kom frá Óla bónda. Það skipti engum togum nema okk- ur Binna svelgdist á í senn, opnuðum báðir sínar dyr á bílnum og ultum hóstandi og hlæjandi út og niður í sandinn. Þetta vissi á gott, því þenn- an tæra júlídag veiddum við fleiri laxa en þekktist í áraraðir og allar götur upp frá því – fleiri en ég þori nokkurn tíma að segja frá. Óla bónda þótti fallegur fiskur laxinn. Það er komið að því að kveðja Óla bónda, en hann var síðastur sex systkina að falla frá. Kveðja hann, sem var svo snar þáttur í tilverunni austur á Hrauni í hátt í hundrað ár. Rödd hans hefur hljóðnað og sporin mást út. Ég sendi Helgu, dætrunum, afkomendum þeirra og öðru vensla- fólki innilegar samúðarkveðjur. Þorlákur Karlsson.  Fleiri minningargreinar um Ólaf Þorláksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höf- undar eru: Sigurður Tómas, Hjör- leifur M. Jónsson, Edda María Guð- björnsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.