Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 11 FRÉTTIR HB FASTEIGNIR Sími 534 4400 • Hús verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS UM HELGINA RJÚPNASALIR 12, 201 KÓPAVOGUR - LAUS STRAX 11. HÆÐ - GLÆSILEG EIGN 109,2 fm, 2 herbergi. Hægt að breyta í 3 herbergi. 2 stórar stofur. Vandaðar innréttingar. Flísalagðar svalir. Mikil lofthæð. Tvær lyftur. Stórglæsilegt útsýni. Bílastæði í kjallara. Áhvílandi lán 18 millj. með 4,15% vöxtum getur fylgt. Laus við kaupsamning Gunnar Valdimarsson, s. 895 7838 Viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali BÓKIÐ SKOÐUN Fjárhagsáætlun Kópavogs 2007 Dagskrá: Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri kynnir fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2007. Opið hús verður í dag, laugardaginn 2. desember, milli kl. 10 og 12 í Hlíðasmára 19 Allir velkomnir Sjálfstæðisfélag Kópavogs RÁÐHERRAR EFTA-ríkjanna undirrituðu í gær samkomulag um sameiginlega hagkvæmnikönnun vegna mögulegs fríverslunarsamn- ings milli EFTA-ríkjanna og Ind- lands. Þetta var gert á ráðherra- fundi EFTA-ríkjanna í Genf í Sviss í gær, en Valgerður Sverrisdóttir sótti fundinn fyrir Íslands hönd. Aukin samskipti við önnur ríki voru meginefni ráðherrafundarins, en viðskiptaráðherra Indlands kom til fundarins til að undirrita sam- komulag um hagkvæmnikönnunina. Í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu kemur fram að Indland sé í hópi mikilvægustu viðskiptaþjóða heims og því mikill akkur í þessum áfanga fyrir EFTA ríkin, sem von- ist til þess að fríverslunarsamning- ur komist á hið fyrsta. Nýtt sendi- ráð Íslands í Nýju-Delhi hafi ásamt sendiráðum hinna EFTA-ríkjanna gegnt mikilvægu hlutverki við und- irbúning málsins. Rætt um Doha-viðræðurnar Ráðherrarnir ræddu einnig stöð- una í Doha-viðræðum Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar (WTO) og hver áhrif viðræðnanna gætu orðið fyrir fríverslunarsamstarf EFTA- ríkjanna. Síðustu vikurnar hafa komið fram sterkar vísbendingar um að aðildarríki WTO hyggist reyna til þrautar að ná samningum næsta vor, að því er segir í tilkynning- unni. Ráðherrarnir hafi fagnað því og ítrekað mikilvægi alþjóðavið- skiptakerfisins fyrir efnahag og af- komu almennings. Tímabundin frestun viðræðna í haust hafi aukið áhuga á gerð fríverslunarsamninga, sem feli í sér tækifæri fyrir EFTA ríkin. Fríverslun við Indland? UNNIÐ er nú að stofnun ABC barnahjálpar í Færeyjum og er hún vel á veg komin. Mikill áhugi er í Færeyjum á að taka höndum saman við Íslendinga um að hjálpa bág- stöddum börnum víða um heim. Á undirbúningsfundi í Færeyjum um síðustu helgi var stofnuð bráða- birgðastjórn ABC barnahjálpar og þegar hefur fengist ókeypis hús- næði undir starfsemi skrifstof- unnar. Guðrún Margrét Pálsdóttir, for- maður ABC barnahjálpar, segir að í Færeyjum hafi 30 áhugasamir ein- staklingar úr ýmsum áttum þjóð- félagsins sýnt brennandi áhuga á starfinu. Mætti stór hluti þeirra á fundinn. „Þetta er fyrsta skrefið í að fá fleiri lönd að starfinu til að styrkja bágstödd börn,“ segir Guðrún Mar- grét, en í dag styrkja rúmlega 5.000 Íslendingar um 6.000 börn á Ind- landi, Filippseyjum, Pakistan og Úganda. Guðrún Margrét segir að það bráðvanti stuðningsaðila fyrir fjölmörg börn, eftirspurnin sé gríð- arlega mikil. Í haust bættist Kenýa í hóp landanna og Líbería mun fljót- lega einnig bætast við. ABC hjálparstarf, sem stofnað var á Íslandi fyrir átján árum, hefur þegar byggt þrjá skóla í Pakistan, þar sem starfsemi hófst í fyrra og tveir skólar til viðbótar eru í und- irbúningi þar í landi. Samtals stunda nú tæplega 1.000 börn nám í ABC skólum í Pakistan og eru yfir 200 þeirra í heimavist með fullri framfærslu. Á Heimili litlu ljósanna á Indlandi eru um 2.000 börn í heimavist og 300 börn í þorpsskólum barnahjálparinnar. „Nýjasta landið okkar er svo Kenýa þar sem við vinnum í einu versta fá- tækrahverfi Naíróbi og neyðin er ólýsanleg,“ segir Guðrún Margrét. ABC hjálparstarf leggur áherslu á að öll framlög skili sér sem næst 100% til barnanna í stuðningslönd- unum. „Við fylgjum okkar börnum eftir, einnig eftir að grunnskóla lýk- ur og reynum að hjálpa þeim til mennta svo þau útskrifist með próf- gráðu.“ Samstarfsaðilar ABC í þeim löndum sem styrkt eru, benda á börn sem illa eru stödd sem ABC tekur síðan ákvörðun um að styrkja. „Vandamálið er að við getum ekki sinnt öllum sem leita til okkar. Við reynum að láta fjölda stuðningsaðila og fjölda barna fylgjast að. Við byrj- uðum t.d. í Pakistan fyrir rúmu ári og þúsund börn eru komin í skóla en mörg hundruð börn enn á biðlista.“ Fyrirkomulag ABC er þannig að fólk getur farið á heimasíðuna, www.abc.is, eða á skrifstofu barna- hjálparinnar í Síðumúla og gerst styrktarforeldri. Þar er listi yfir börn sem nauðsynlega þurfa á stuðningi að halda. Sumir styrkja fleiri en eitt barn. „Foreldrarnir“ fá svo að fylgjast með sínum börnum. Á seinasta ári voru sendar frá samtökunum tæplega 117 milljónir í verkefnin í styrktarlöndunum frá ABC barnahjálp til þróunarhjálpar. Er það um 91% af heildartekjum barnahjálparinnar. Stjórn Guðrún Margrét Pálsdóttir ásamt bráðabirgðastjórn ABC barnahjálpar í Færeyjum, Karsten Hansen, þingmanni og fyrrverandi fjármálaráðherra, Rúnu Sivertsen blaðamanni og Hjördísi Petersen. ABC stofnað í Færeyjum Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.