Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 49
Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Forðist að koma kerti fyrir nálægt opnum glugga þar sem vindur getur sveiflað gluggatjöld- um í kertalogann Munið að slökkva á kertunum ikl. 17. Kaffi eftir samkomu. Allireru velkomnir! Hátíðamessa og aðventukvöld í Langholtskirkju FYRSTA sunnudag í aðventu verð- ur að venju mikið um að vera í Langholtskirkju. Hátíðamessa og barnastarf verður kl. 11 þar sem að Gradualekórinn syngur. Kl. 20 verður aðventukvöld fyrir börn sem fullorðna þar sem Kór kórskól- ans flytur Lúsíuhelgileik og Kór Langholtskirkju syngur. Ingibjörg Pétursdóttir iðjuþjálfi flytur hug- vekju og einnig verður upplestur, einsöngur og almennur söngur. Boðið verður upp á kaffisopa eftir samverurnar. Lindasókn – jólaföndur í Salaskóla VIÐ kveikjum einu kerti á … í Sala- skóla kl. 11. Stutt helgistund við að- ventukransinn. Jólaföndur. Að loknu föndri verður haldið yfir í Safnaðarheimili Lindasóknar þar sem í boði verða piparkökur og kakó. Kveikt verða ljós á jólatré við Safnaðarheimilið. Aðventukvöld í Grensáskirkju AÐVENTUKVÖLD verður í Grens- áskirkju sunnudaginn 3. desember og hefst kl. 20. Sr. Hreinn S. Há- konarson fangaprestur flytur hug- vekju og kynnir hugmyndina eng- latréð. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn organistans, Árna Arinbjarnarsonar, og nem- endur í Tónskóla Björgvins Þ. Valdimarssonar leika á hljóðfæri. Kl. 11 um morguninn verður að venju barnastarf og messa. Göngum inn í aðventuna í sam- fylgd Jesú Krists og leyfum návist hans að helga allan undirbúning jólanna. Komum saman í húsi Drott- ins til að njóta kyrrðar og uppbygg- ingar strax í upphafi aðventu. Kirkjudagurinn Árbæjarkirkju KIRKJUDAGURINN haldinn í Ár- bæjarkirkju á fyrsta sunnudegi í að- ventu. Sunnudagaskólinn er kl. 11. Tendrað verður á fyrsta kertinu af fjórum á aðventukransinum. Byrjað á að rifja upp jólalögin. Konur í líkn- arsjóði Kvenfélagsins selja happ- drættismiða en afrakstur þeirra fer til líknarmála í söfnuðinum. Hátíð- arguðsþjónusta kl. 14. Prestar kirkj- unnar þjóna fyrir altari. Prédikun flytur dr. Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla. Jóhann Friðgeir Valdimarsson syngur einsöng. Magnea Árnadóttir flautuleikari spilar ásamt organistanum Kristine Kallo Skzlenár. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng. Kaffisala og líkn- arsjóðshappdrætti kvenfélagsins í safnaðarheimili kirkjunnar. Aðventukvöld í Seltjarnarneskirkju Í upphafi nýs kirkjuárs býður Sel- tjarnarneskirkja til aðventuhátíð- ar, sunnudagskvöldið 3. desember, kl. 20. Aðventan er tími vonar, þeg- ar skuggar skammdegisins þéttast og þá kveikjum við aðventuljós sem vitna um komu ljóssins eilífa. Aðventuljósin í gluggunum fjöl- mörgu og aðventukransarnir eru í raun bæn: Kom Drottinn Jesús, kom. Boðið verður upp á fjöl- breytta dagskrá. Ræðumaður kvöldsins er Þorsteinn Pálsson rit- stjóri og fyrrverandi ráðherra. Kammerkór Seltjarnarneskirkju ásamt Barnakór Seltjarnarness syngja jólatónlist undir stjórn hjónanna Pavel og Vieru Manasek. Einleikari á trompet er Eiríkur Örn Pálsson. Eftir stundina er gestum boðið til safnaðarheimilis kirkj- unnar í kaffi og konfekt. Njótum fallegrar tónlistar, tendrum ljós, uppbyggjumst í orði Guðs og finnum frið frá öllu amstri hversdagsins í upphafi aðventu. Allir velkomnir. Sóknarnefnd Seltjarnar- neskirkju. Jónsi í Svörtum fötum í Óháða söfnuðinum HIÐ árlega endurkomukvöld/ aðventukvöld í Óháða söfnuðinum verður sunnudagskvöldið 3. desem- ber kl. 20. Ræðumaður verður poppsöngvarinn Jónsi í Svörtum fötum. Kór kirkjunnar syngur und- ir stjórn Arngerðar Árnadóttur, auk flautu- og fiðluleiks. Í enda samkomunnar verður kirkjan myrkvuð og fermingarbörnin kveikja á kertum kirkjugesta. Að lokum er öllum boðið upp á veit- ingar og smakk á smákökunum. Allir velkomnir. Aðventuhátíð fjölskyld- unnar í Hjallakirkju AÐVENTUHÁTÍÐ fjölskyldunnar verður í Hjallakirkju fyrsta sunnu- dag í aðventu, 3. desember, kl. 16. Um er að ræða skemmtilega stund fyrir alla fjölskylduna með léttri jóladagskrá, söngvum og sögum. Barnakór úr Hjallaskóla kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Þá mun Stoppleikhópurinn sýna nýtt jólaleikrit, Jólin hennar Jóru, en leikritið segir frá lítilli tröll- astelpu sem býr í fjöllunum. Einn daginn stelur hún kíkinum hans Skrepps en hann er einn helsti að- stoðarmaður jólasveinanna. Allt er í pati á jólasveinaheimilinu því án kíkisins góða geta þeir ekki vitað hvort börnin séu nógu þæg og góð til að fá í skóinn. Er Skreppur send- ur á eftir henni til að hafa uppi á kíkinum en það verður ekki auðvelt því Jóra er farin af stað til manna- byggða að upplifa þessi jól sem allir eru að tala um. Í leikritinu er komið inn á boðskap jólanna og tilgang þeirra en Jóra litla veit ekkert um hátíð ljóssins og fæðingu frels- arans. Hún þarf því að læra margt og standast ýmsar freistingar í mannabyggðum áður en hún snýr aftur heim reynslunni ríkari. Auk þessa munum við öll syngja saman jólasöngva og njóta stund- arinnar í kirkjunni. Þau sem vilja geta mætt fyrr, svona upp úr kl. 15, og fengið sér kakó og piparkökur í safnaðarsal áður en hátíðin hefst. Við hvetjum fjölskyldur til að fjöl- menna á aðventuhátíðina þennan fyrsta sunnudag aðventunnar. Bjarni Harðarson á að- ventukvöldi í Hraun- gerðiskirkju HIÐ árlega aðventukvöld verður í Hraungerðiskirkju sunnudags- kvöldið kl. 21. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Ræðumaður kvöldsins verður Bjarni Harðarson ritstjóri. Söngkór Hraungerðisprestakalls undir stjórn Inga Heiðmars Jóns- sonar flytur nokkur tónlistaratriði og leiðir fjöldasöng í lokin. Her- mundur Guðsteinsson syngur ein- söng og Birgit Myschi og nemendur hennar, Ingunn Harpa Bjarkadóttir og Hanna Einarsdóttir, munu flytja vönduð tónlistaratriði. Vænst er þátttöku fermingarbarna og að- standenda þeirra og þátttöku barna úr Flóaskóla til að syngja hefð- bundin aðventulög. Sóknarprest- urinn, sr. Kristinn Ágúst Friðfinns- son, flytur ritningarlestur og stutta hugleiðingu um aðventuna. Í lok samverunnar verður fjöldasöngur. Aðventusamkoma í Mýrdal 2006 AÐVENTUSAMKOMA verður í fé- lagsheimilinu Leikskálum í Vík, sunnudaginn 3. desember kl. 15. Helgileikur, upplestur, söngur og tónlist sem tengist aðventu og jól- um. Léttar veitingar á eftir í boði allra kvenfélaga og sókna í Mýrdal. Að lokinni samkomunni verða ljósin tendruð á jólatré Mýrdælinga. Sam- koman er samstarfsverkefni grunn- skólans, tónskólans, kvennakórsins, beggja kirkjukóranna, allra kven- félaganna og allra sóknanna í Mýr- dal. Fjölmennum á sameiginlega að- ventuhátíð okkar allra. Samstarfshópurinn. Aðventutónleikar í Eyrarbakkakirkju AÐVENTUTÓNLEIKAR verða í Eyrarbakkakirkju mánudaginn 4. desember kl. 20. Kirkjukórar syngja fjölbreytt jólalög. Einsöng syngja þau Davíð Art Sigurðsson og Karitas Harpa Davíðsdóttir. Kórstjórn og orgelleik annast Haukur Arnarr Gíslason og flautu- leik Ingibjörg Birgisdóttir. Sóknarnefnd. Aðventukvöld í Stokkseyrarkirkju AÐVENTUKVÖLD verður í Stokkseyrarkirkju þriðjudaginn 5. desember kl. 20. Aðalræðu kvölds- ins flytur sr. Anna Sigríður Páls- dóttir. Kirkjukórar syngja fjöl- breytt jólalög. Einsöng syngja þau Davíð Art Sigurðsson og Karitas Harpa Davíðsdóttir. Kórstjórn og orgelleik annast Haukur Arnarr Gíslason og flautuleik Ingibjörg Birgisdóttir. Sóknarnefnd. Hátíðardagskrá fyrsta sunnudag í aðventu í Þorlákshöfn HEFÐ er fyrir aðventustund fyrsta sunnudag í aðventu í Þorlákskirkju og í kjölfarið verða tendruð ljós á jólatré við Ráðhús bæjarins. Dag- skráin verður næsta sunnudag, 3. desember og hefst kl. 16 með að- ventustund í Þorlákskirkju þar sem Þorsteinn Pálsson, ritstjóri, fyrr- verandi forsætisráðherra og áður 1. þingmaður Suðurlands, verður ræðumaður. Kirkjukórinn og Söng- félag Þorlákshafnar syngja að- ventulög undir stjórn Julian Edw- ard Isaacs og Róberts Darling. Þá er ráðgert að nýstofnaður kór leik- skólans Bergheima leggi sitt af mörkum. Fermingarbörn ganga inn með kerti og sr. Baldur Krist- jánsson les guðspjall og leiðir bæn. Þegar farið verður að skyggja, eða klukkan 18, verða tendruð ljós á jólatré við Ráðhús Ölfuss. Lúðra- sveit Þorlákshafnar spilar jólalög meðan fólk safnast saman við tréð og barnakórarnir syngja nokkur jólalög með lúðrasveitinni. Jóla- sveinar mæta á staðinn og munu syngja og dansa með ungum sem öldnum í kringum jólatréð. 1. sunnudagur í að- ventu í Seljakirkju Sunnudagaskólinn kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 16. Aðventukvöld kl. 20. Á aðventukvöldinu mun kirkju- kórinn og Seljur syngja. Æskulýðs- félagið SELA flytur leikþátt. Hauk- ur Ísfeld les aðventusögu. Sr. Bolli Pétur Bollason flytur hugvekju. Að- ventuljósin verða tendruð. Jón Bjarnason organisti sér um undir- leik. Allir velkomnir. Sjá heimasíðu Seljakirkju selja- kirkja.is Hátíðarmessa á breyttum tíma í Selfosskirkju FYRSTA sunnudag í jólaföstu, hinn 3. desember næstkomandi, verður messa í Selfosskirkju kl. 14. Sérstök athygli er vakin á breyttum messu- tíma. Eftir athöfnina verður borið fram veislukaffi í umsjá dýrfirskra kvenna, sem búsettar eru á Selfossi. Veitingarnar verða seldar við vægu verði og ágóði látinn renna í Hjálp- arsjóð Selfosskirkju. Kirkjukór Sel- foss syngur við athöfnina, undir stjórn organistans, Jörgs E. Son- dermanns. Mæður fermingarbarna, Lára Ólafsdóttir og Sigríður Sigurjóns- dóttir lesa ritningartexta. Allir vel- komnir, en fermingarbörn og for- eldrar þeirra erusérstaklega hvött til þess að koma til kirkju. Barnasamkoma verður á sama tíma í lofti safnaðarheimilis og börnunum boðið upp á hressingu á eftir. Sr. Gunnar Björnsson. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.