Morgunblaðið - 02.12.2006, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 57
menning
Að morgni þakkargjörð-ardagsins í Bandaríkjunumlést í Los Angeles ein helsta
djasssöngkona allra tíma, Anita
O’Day, áttatíu og sjö ára gömul.
Hún er eina hvíta djasssöngkonan
sem nefnd er í sömu andrá og Ella,
Billie og Sarah og með henni er lok-
ið hinu glæsta skeiði stórsveita-
söngkvennanna, sem seinna hösl-
uðu sér völl með eigin meðleikurum
og báru hróður djassins um heim
allan, ekki síður en einleikararnir
miklu.
Anita O’Day varð heimsþekkt erhún söng með stórsveit tromm-
arans Gene Krupa á árum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Þar blés og
söng þá meistaratrompetleikarinn
Roy Eldridge, einn fyrsti blökku-
maðurinn er lék með hvítri stór-
sveit, og varð dúett þeirra: Let Me
Off Uptown, geysivinsæll.
Anita söng um skeið með stór-
sveit Stans Kentons og hafði mikil
áhrif á June Christy og Chris Con-
nor. Hún sló síðan rækilega í gegn á
Newportdjasshátíðinni 1958, sem
sjá má í kvikmyndinni Jazz On a
Summer’s Day, er á sínum tíma var
sýnd í Austurbæjarbíói. Þaðan eru
eftirminnilegustu atriðin er Louis
Armstrong og Jack Teagarden
syngja Rockin’ Chair, Mahalia Jack-
son beljar Didn’t It Rain í hellirign-
ingu og Anita O’Day, með barða-
stóra hattinn sinn, syngur með
ógnarhraða Sweet Georgia Brown,
án þess að sveiflan falli nokkru sinni
um millimetra og fraseringarnar
svo rýþmískar að aðeins Ella Fitz-
gerald hefði leikið það eftir.
Plötur hennar, sem NormanGranz gaf út á Verve, seldust í
stórum upplögum á þessum árum
og gera enn. Þær má nú fá á geisla-
diskum og kannski er Anita Sings
The Most frá 1957 mögnuðust
þeirra allra. Þar er Oscar Peterson
píanistinn og stundum reynir hann
hvað hann getur til að klekkja á
Anitu í firnahröðu tempói, en hún
stenst allar raunir. Þar er líka að
finna yndislegan ballöðusöng og
hvíldi Peterson þá trommara sinn.
Eitt af meistaraverkum djasssöngs-
ins.
Eftir áramót er von á heim-ildamynd um Anitu O’Day og
geta áhugasamir farið á heimasíðu
hennar, www.anitaoday.com, og
séð brot úr myndinni, en ævisögu
sína hafði hún gefið út. High Times
Hard Times nefnist hún og er ótrú-
leg lesning. Í 15 ár háði þessi mikla
listakona baráttu við fíkniefnadjöf-
ulinn og hafði sigur. 86 ára gaf hún
út síðustu skífuna en þá var röddin
farin að gefa sig. Hvorki hún né Ella
léku það eftir að geta haldið hlust-
andanum föngnum til hins síðasta –
þar var Billie Holiday ein á báti
djasssöngkvenna.
Djassdrottning fallin
Drottningin Anita O’day
Vernharður Linnet
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
MYNDLISTARSÝNINGAR lýsa
vetrarmyrkrið nú sem endranær,
margar í gangi og bætist enn við í
dag.
Samræmi-Identity, kallar Gunn-
hildur Þórðardóttir sýningu sína
sem hún opnar í Suðsuðvestur í
Reykjanesbæ kl. 16 í dag en þetta
er fyrsta einkasýning hennar á Ís-
landi.
Það sérstaka við verk Gunn-
hildar er að hún vinnur þau út frá
hugmyndum rússnesk-bandaríska
sálfræðingsins Abrahams Maslows
um þarfapýramídann og notar til
þess liti og hluti eða tákn tengd
hversdagsleikanum. Mér segir svo
hugur að með þessu sé átt við hug-
myndir um þarfir okkar fyrir nær-
ingu, öryggi, félagsleg tengsl,
sjálfsvirðingu, lífsfyllingu og slíka
þætti. Vísbendingarnar segja að
verk hennar séu í formi skúlptúra
og málverka og flest eru unnin á
þessu ári. Suðsuðvestur er á Hafn-
argötu 22 í Reykjanesbæ.
Óræðar myndasögur
Við tökum strikið norður í land,
í Café Karólínu á Akureyri, en kl.
14 í dag opnar Stefán Boulter þar
sýningu á verkum sínum, sýningu
sem hann kallar Ósagðar sögur.
Nafnið er viðeigandi, og gefur fyr-
irheit um hlutverk áhorfandans –
að hann fái hugsanlega að spinna
með sjálfum sér einhvern þráð út
frá myndefninu. Verk Stefáns á
sýningunni eru allt teikningar,
sem eiga sér þann möguleika að
verða að myndasögum, en mynda-
sagan er gleðiríkt sköpunarform
sem margir njóta.
Listamennirnir í Hoffmannsgall-
eríi tóku smávegis forskot á helg-
arsæluna með því opna sýningu
sína í fyrradag. Þetta eru þau Ein-
ar Garibaldi, Einar Falur Ingólfs-
son, Georg Guðni, Guðmundur
Ingólfsson, Helgi Þorgils Frið-
jónsson, Kristín Hauksdóttir,
Ragnar Axelsson, Sigurlaugur Elí-
asson og Sigurður Árni Sigurðs-
son. Sýningarstjóri er Einar Falur
Ingólfsson. Sýning þeirra heitir
Vegvísar og voru listamennirnir
níu valdir saman með hliðsjón af
því að öll hafa þau fengist við
„ferðalagið“ í verkum sínum.
Í pistli með sýningunni skrifar
Einar Falur:
„Á þessari sýningu eru vegvísar
níu listamanna. Þeir eru jafn ólíkir
og staðirnir sem þeir vísa á og
sýna. Sumir eru framandi, aðrir
standa okkur nær. Hvert verk er
eins og ferð, ýmist erfiðið sjálft
eða upplifunin sem ferðalangur
stendur frammi fyrir við ferðalok;
áður en snúið er við og haldið
heim aftur.“
Hoffmannsgallerí er í húsnæði
ReyjavíkurAkademíunnar að
Hringbraut 121.
Eilífðarmál í Skaftfelli
Austfirðingar geta líka notið
myndlistar um helgina, því kl. 16 í
dag verður opnuð í Skaftfelli á
Seyðisfirði sýning á verkum Har-
aldar Jónssonar. Sýning Haraldar
heitir Framköllun, og í sýning-
arskrá skrifar Kristín Ómarsdóttir
skáld undir yfirskriftinni Eilífð-
armál. Grípum niður í texta henn-
ar:
„Eilífðin bankaði upp á vinnu-
stofu Haraldar Jónssonar og rað-
aði sér upp í líki litríkra plastbala,
eða skúringarfatna, og myndaði úr
þeim myndarlega súlu sem gnæfir
hátt í herberginu og krýnir sig
með titlinum Pípa. Ekki þarf að
snúa höfðinu til að skynja óravídd-
ir nafngiftarinnar. Þá krumpaði
hún sig saman, eilífðin, skrapp
saman, hnipraði sig og lagðist
hringandi sig eins og syfjaður
hundur, í gólfið: Krumpað myrkur.
Á meðan fiðrildin leggjast á
gluggann í kalklituðum bókstöfum
sem munu fá að veðrast undir
áhrifum frá samlituðum vindinum
og hverfa, eins og eilífðin, en ekki
út um dyrnar, eins og gestir yf-
irleitt, heldur eitthvað sem manns-
andinn veit ekki hvert. Því Har-
aldur hleypur ekki á eftir henni
með gulan eða rauðan eða bleikan
eða grænan bláan háf á lofti.“
Vegvísar og Ósagðar sögur
Auðnudís Magdalena Margrét
Kjartansdóttir sýnir grafíkmyndir
af kvenlíkömum í Dalí galleríi á Ak-
ureyri. Sýning verður opnuð í dag
og stendur til 17. desember.
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
11
/0
6
Greenland
dúnúlpa frá
The North Face
Jólatilboð
22.990 kr.
verð áður 26.990 kr.
BARNABÓKAVEISLA!
Búkolla
Glæsilegar myndir
Kristins G. Jóhannssonar prýða
Búkollu og gera hana að sannkallaðri
listaverkabókfyrir börnin.
Ævintýri Nonna
Æsispennandi Nonnaævintýri
prýtt fallegum myndum
Kristins G. Jóhannssonar.
Bestu
barnabrandararnir
Bestu barnabrandararnir - að
sjálfsögðu bók fyrir börn á öllum
aldri, enda hafa allir gott af því að
skellihlæja.
Spurningabókin 2006
Er hægt að hnerra með opin augu?
Ómissandi bók við öll tækifæri.
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100