Morgunblaðið - 03.12.2006, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2006 C 7
www.radning.is
Krókháls 5a • 110 Reykjavík • Sími: 588 7700
Fjöldi starfa í boði
Persónuleg og fagleg þjónusta
Vefstjóri
Helstu verkefni felast í ritstjórn vefsins, daglegum
rekstri, kröfugerð og stýringu vefverkefna. Um er
að ræða síbreytilegt og krefjandi starf þar sem
vænst er sjálfstæðra vinnubragða, metnaðar og
atorkusemi.
Við leitum að hugmyndaríkum og vel ritfærum
einstaklingi sem getur sameinað tæknilega
þekkingu og færni í mannlegum samskiptum.
Háskólamenntun eða sambærileg menntun
er æskileg en ekki nauðsynleg ef reynsla af
vefmálum er fyrir hendi.
Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá með
tölvupósti á umsokn@skjarinn.is fyrir 9. desember.
Skjárinn leitar að vefstjóra fyrir skjarinn.is.
Óskað er eftir kraftmiklum og framtakssömum
einstaklingi með góða samskiptahæfileika.
Viðkomandi mun starfa sem ritstjóri eins
vinsælasta vefs landsins ásamt því að hafa
umsjón með rekstri hans og þróun.
- Einn vinnustaður
Framkvæmdasvið
Framkvæmdasvið óskar eftir að ráða verkamenn við
borgarframkvæmdir til starfa hjá dráttarvéladeild
sviðsins.
Starfssvið
Dráttarvéladeild Framkvæmdasviðs sér aðallega um
snjóruðning og hreinsun gönguleiða og slátt opinna svæða.
Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsmenn verða að hafa gott atgervi, vera verklagnir og
heilsuhraustir. Gerð er krafa um almenn ökuréttindi en einnig
er æskilegt að viðkomandi hafi dráttarvélapróf.
Um er að ræða framíðarstörf. Æskilegt er að starfsmenn geti
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Geirsson,
verkstjóri, Skrifstofu gatna og eignaumsýslu 411-8467 og
Pétur Kr. Pétursson (petur.k.petursson@reykjavik.is)
í síma 411 8000
Umsóknarfrestur er til 18. desember. Umsóknareyðublöð er
hægt að nálgast í afgreiðslu mannauðsdeildar, Skúlatúni 2,
sem er opin 8.20-16.15 alla virka daga eða senda umsóknir
með tölvupósti til mannaudsdeild.fs@reykjavik.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Eflingar, nánari upplýsingar um þau veita starfsmenn man-
nauðsdeildar í síma 411 11 11.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Starfsmenn í dráttarvéladeild