Morgunblaðið - 20.12.2006, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Gjafakarfa sælkerans
n á t t ú r u l e g a
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla & Selfossi
Margar tegundir af gjafakörfum
með spennandi sælkeravörum.
! ! "# ""$ %
& '""( )* +%, "
% -% *.)'./* 0" & 1
)$ * %" &* * )*.%2 * 0"
%22!)$ * + % &3
4 !) & 2 %/
- - &"25* / 21
# +4 6,* 7 /
8 ) %/29 /#". )*.
%2 *" " 2
( * "" /% ! "$ *1
" #$%
"#&
" #$%
' #$%
:++0 %(%2 *& !)$ * %"
. 0" &6$&* !2 %, *1
;"'* 6* !)$ * %"
.(""/!)$ * **.1
< % + /"2.%
" ""0" & 2. " *.
*.%)*..2 *2""0""%2
!)$ * !" . "" .$*.1
)*)! ! "*. ! *.
!)$ * !"**.6& 6%2&"/)' *.
2. & & !2 1
= 4 6,* !) )$( 0 )'*.2
". (>& %/* &*%%+ 1
?+% ) & /"2&' "1
" #$%!
&' ()
* ((%
+
.
#* % * ", * , +.@
2 **.'"" 1
*-(! "% %, 2.
+*22 */ "$*% *
)' %, 2./+ 1
- !-4
2." " 2""
$ *. 2" &. 4 6
,* *.!2 /A2B**
--!-
2. " " 26'&
* !0 !)$ *+% ) 1
" 6/&6'&"% *2
%2 *2. & !2 % +1
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
Mjög erfiðar aðstæður voru á
strandstað kýpverska flutninga-
skipsins Wilson Muuga, skammt
suður af Sandgerði snemma í gær-
morgun, kolniðamyrkur, hvassviðri
og 5–6 metra ölduhæð, að sögn
Halldórs B. Nellett, framkvæmda-
stjóra aðgerðasviðs Landhelgis-
gæslunnar.
Halldór segir að hjálparbeiðni
hafi borist rétt fyrir klukkan hálf-
fimm í fyrrinótt. Það hafi ekki ver-
ið neinn aðdragandi og skipið kom-
ið upp í fjöru. Skipstjórinn hafi
ekki lýst yfir neyðarástandi og
óskað eftir aðstoð dráttarbáts til
að koma sér á flot. Hann hafi ekki
viljað aðstoð þyrlu og sagt að það
væri ekki hætta á ferðum, en þyrl-
urnar hafi fljótlega verið settar í
viðbragðsstöðu þrátt fyrir það.
Varðskip hafi strax verið ræst út
og stefnt á staðinn, annað þeirra
hafi verið við Vestmannaeyjar og
hitt í Reykjavík. Þá hafi allar ná-
lægar björgunarsveitir verið kall-
aðar út og björgunarbátar slysa-
varnarfélagsins Landsbjargar.
Einnig hafi komið í ljós að danska
varðskipið Triton hafi verið næst
strandinu en það var statt rétt
norðan Garðskaga og óskað hafi
verið eftir að það færi á staðinn og
athugaði aðstæður.
Tveimur bátum hvolfir
Halldór segir að fljótlega hafi
komið í ljós að skipið hafi verið
komið mjög langt upp í fjöru sem
hafi gert allar aðgerðir frá sjó
mjög erfiðar þar sem björgunar-
skip hafi ekki getað komið nær
flutningaskipinu en mílu, eða rétt
rúmlega það, vegna grunnsævis.
Þar með hafi verið ljóst að það
yrði mjög erfitt að koma taug um
borð vegna mikillar fjarlægðar.
Halldór segir að síðan hafi það
gerst að Triton hafi ákveðið að
setja út bát um sexleytið. Hann
kunni ekki að greina nákvæmlega
frá atvikum, en svo virðist sem sá
bátur hafi lent í erfiðleikum og
þeir sent út annan bát til þess að
aðstoða þann fyrri. Rétt fyrir sjö
berist síðan tilkynning um það frá
Triton að báðum bátunum hafi
hvolft og átta menn sem verið hafi
um borð séu týndir.
Halldór segir að skömmu áður
en það hafi gerst hafi verið búið að
ákveða að senda stýrimann og lög-
reglu um borð í skipið með þyrlu
til þess að kanna allar aðstæður
um borð. TF-LÍF hafi umsvifa-
laust verið send til þess að leita að
mönnunum og fundið sjö þeirra á
lífi, þar af einn sem hafi verið orð-
inn mjög kaldur, enda hafi þeir
verið búnir að vera rúman klukku-
tíma í sjónum. Einn skipverja hafi
verið látinn. Tekist hafi að hífa
skipverjana um borð í þyrluna og
hafi hún lent með þá í Keflavík
rúmlega átta.
„Það er ekki gott að vera í
haugasjó og hífa menn upp í
svarta myrki þegar ölduhæðin er
fimm til sex metrar. Það er mjög
erfið aðgerð,“ segir Halldór.
Allir fluttir í land
Hann segir að eftir þetta hafi
fulltrúar Gæslunnar og lögreglu
farið um borð í skipið til að meta
aðstæður. Ákveðið hafi verið í
samráði við lögreglu, sem hafi yf-
irumsjón með aðgerðum í landi
þar sem um strand sé að ræða, að
flytja alla skipverja til lands og
hafi TF-SIF selflutt þá milli
klukkan tvö og þrjú í gærdag.
Ekki hafi þótt forsvaranlegt að
hafa menn um borð eftir að nátt-
myrkur skylli á þar sem veður
færi versnandi.
Halldór segir að björgunarað-
gerðirnar hafi gengið eftir atvikum
vel. Aðstæður hafi verið mjög erf-
iðar á slysstað, kolniðamyrkur,
hvasst og 5–6 metra ölduhæð. Það
sé hörmulegt að einn skipverja af
Triton skuli hafi látist við björg-
unaraðgerðirnar en því miður séu
björgunarstörf hættuleg, eðli
málsins samkvæmt, þó farið sé af
fyllstu gætni.
Mjög erfiðar aðstæð-
ur voru á strandstað
Í HNOTSKURN
»Skipstjóri flutningaskips-ins sendi út hjálparbeiðni
eftir að skipið strandaði en
lýsti ekki yfir neyðarástandi.
»Skipverjarnir tólf voru sel-fluttir í land af TF-SIF um
miðjan dag í gær meðan ennþá
var bjart.
»Svart- og gasolía er í skip-inu og hafa menn áhyggj-
ur af því að hún kunni að fara í
sjóinn. Byrjað er á vegagerð
niður í fjöru til að koma að
tækjum til að undirbúa dæl-
ingu úr skipinu.
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
DANSKI varðskipsmaðurinn, sem
drukknaði í fyrrinótt þegar gúmmí-
báti af danska varðskipinu Triton
hvolfdi undan Sandgerði, hét Jan
Nordskov Larsen
frá Kaupmanna-
höfn. Nordskov
Larsen var 25 ára
gamall, ókvæntur
og barnlaus.
Björgunarvesti
Larsens fór af
honum og flotgalli
hans rifnaði og
fylltist af sjó. Að
sögn talsmanns
stjórnstöðvar
danska sjóhersins héldu tveir félagar
Larsens honum uppi í sjónum lengi
vel uns þeir örmögnuðust og gátu
ekki meira og rak Larsen þá í átt að
landi en á þeim tíma mun ekki lengur
hafa verið lífsmark með honum.
Tveir áfallasérfræðingar frá
danska sjóhernum lögðu af stað til Ís-
lands í gær sem og tveir sjóslysaeft-
irlitsmenn frá hernum sem eiga að
rannsaka slysið og fara yfir at-
burðina.
Urðu alveg vélarvana
Varðskipsmennirnir af Triton sem
fóru í gúmmíbátinn komust að flutn-
ingaskipinu Wilson Muuga sem
strandaði sunnan við Sandgerði en
komust hins vegar ekki um borð í
skipið vegna mikil sjógangs, að sögn
talsmanns stjórnstöðvar danska sjó-
hersins. Stuttu síðar rofnaði talstöðv-
arsambandið milli Tritons og gúmmí-
bátsins sem síðan komst ekki til baka
að Triton þar sem báðar utanborðs-
vélarnar urðu aflvana. Við það varð
báturinn stjórnlaus og hvolfdi honum
síðan með dönsku varðskipsmönn-
unum átta.
Þyrlan ekki í lagi
Talsmaður danska sjóhersins segir
í samtali við Morgunblaðið að undir
öllum venjulegum kringumstæðum
hefði þyrlan af varðskipinu verið send
af stað en hún hafi hins vegar ekki
verið í fullkomnu lagi og því hafi verið
tekin ákvörðun um að setja út
gúmmíbátinn til þess að koma sjó-
mönnunum til hjálpar.
Hann segir menn meta áhættuna
hverju sinni þegar slík ákvörðun sé
tekin og fyrir liggi að það sé aldrei al-
veg áhættulaust að sigla í gúmmíbáti
í vondu veðri. Menn hafi hins vegar
metið stöðuna svo að nauðsynlegt
væri að reyna að koma skipverjum á
Wilson Muuga til hjálpar. Það hafi
verið mikið óhapp að drepist hafi á
báðum utanborðsvélum björg-
unarbátsins á svipuðum tíma.
Daninn
sem lést
Jan Nordskov
Larsen
Strand flutningaskipsins Wilson Muuga við Sandgerði í gærmorgun