Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í SÍÐUSTU viku
gerði fyrirtæki
Friðriks Karls-
sonar, River of
Light Records,
dreifingarsamn-
ing við New Leaf
Distribution í
Bandaríkj-
unum.
Fyrirtækið er
stærsta dreifingarfyrirtækið í
Bandaríkjunum á sviði nýald-
artónlistar. Það hefur starfað í um
tuttugu ár og dreifir í rúmlega tólf
þúsund verslanir vítt og breitt um
Norður-Ameríku. Þetta er því stór
áfangi í uppbyggingu fyrirtækis
Friðriks sem sérhæfir sig í gerð
slökunartónlistar og er það nú þegar
með dreifingu á tónlist sinni í tutt-
ugu löndum víðsvegar um heiminn.
Þess má geta að Friðrik er með
tvær plötur til útgáfu á Íslandi núna;
Álfa og fjöll, þar sem hann nýtur að-
stoðar leik- og söngkonunnar Þór-
unnar Lárusdóttur, og hina tvöföldu
plötu Móður og barn.
Stór
áfangi
Friðrik Karlsson
gerir góðan samning
Friðrik Karlsson
SEX brjóst-
myndum úr
bronsi hefur ver-
ið stolið af nokkr-
um 19. aldar leið-
um í Père--
Lachaise kirkju-
garðinum í París.
Þeirra á meðal er
stytta af leiði
tónskáldsins
Georges Bizets sem samdi m.a.
Carmen. Brjóstmyndirnar eru frá
síðari hluta 19. aldar og eru verk
frægra listamanna frá þeim tíma.
Er verðmæti hverrar þeirra talið
vera á bilinu 650 þúsund til einnar
og hálfrar milljónar íslenskra
króna.
Að sögn lögreglu lítur út fyrir að
um verk sérfræðinga sé að ræða en
talið er að mikill markaður sé fyrir
listmuni úr frönskum kirkjugörðum.
Í Père-Lachaise kirkjugarðinum
eru m.a. grafir Molières, Marcels
Prousts og Edith Piafs. Árlega
heimsækja um tvær milljónir
manna garðinn.
Stolið af
leiði Bizets
Georges Bizet
RITHÖFUNDURINN El-
ísabet Jökulsdóttir hefur sent
frá sér bókina Ísbjörninn á
Hótel Viktoría. Á kápubaki
útskýrir Elísabet tilurð bók-
arinnar; fyrir tólf árum hafi
hún sagt tvíburunum sínum
að henni hafi ekki enn tekist
að gráta andlát föður síns
sem á þeim tíma hafi átt sér
stað sextán árum áður. Tví-
burarnir hafi þá hvatt hana til
að hugsa í viku um allt það góða og fallega sem
tengdist honum. Nú hefur Elísabet fest hinar
góðu og fallegu minningar á blað og telur bókin
34 frásagnir.
Bókmenntir
Elísabet Jökuls
með minningarbók
Elísabet Kristín
Jökulsdóttir
ÁRLEGIR styrktartónleikar
útvarpsstöðvarinnar X-ins 977,
X-mas, fara fram á Nasa við
Austurvöll í kvöld. Húsið opnar
klukkan 20 og er aðgangseyrir
977 krónur. Rennur hver ein-
asta króna til Barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans,
BUGLS.
Á tónleikunum koma fram:
Brain Police, DR Spock, Skak-
kamanage, Reykjavík!, Toggi,
Lay Low, Pétur Ben, Sprengjuhöllin, Dikta, Fut-
ure Future, Noise, Ultra Mega Teknóbandið Stef-
án og Wulfgang. Kynnir kvöldsins er Gunnar Sig-
urðsson.
Tónleikar
X-mas 2006 á Nasa
við Austurvöll
Pétur
Ben
ANNAÐ kvöld, fimmtudags-
kvöldið 21. desember, klukkan
22 heldur Dómkórinn jóla-
tónleika i dómkirkjunni. Þar
gefst tilvalið tækifæri að slaka
á eftir jólaverslunina og láta
kórinn koma sér í jólaskap. Á
efnisskrá eru mótettur gömlu
meistaranna frá 16. og 17. öld
og jólasálmar í fallegum út-
setningum.
Stjórnandi Dómkórsins er
Marteinn H. Friðriksson dómorganisti. Sesselja
Kristjánsdóttir syngur einsöng.
Aðgangur að tónleikunum er öllum opinn og
ókeypis.
Tónleikar
Dómkórinn syngur
jólasöngva
Marteinn H.
Friðriksson
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
ÞAÐ VAR mikið um dýrðir þegar Sam-
tímalistastofnunin í Boston (ICA) lukti upp
dyrunum að nýjum húsakynnum sínum hinn
10. desember sl. Öllum íbúum Boston var boðið
til opnunarinnar og mátti þá
telja í þúsundum sem nýttu
sér tækifærið og börðu aug-
um innviði tilkomumikillar
byggingarinnar og nutu
þeirrar dagskrár sem blásið
var til í tilefni dagsins.
Vegna fjöldans var fólki
hleypt inn á safnið í hollum.
Það var þó séð til þess að
engum leiddist meðan beðið
var og hafði flennistóru, upp-
hituðu tjaldi verið slegið upp
fyrir framan safnið þar sem
boðið var upp á skemmtan af ýmsu tagi, þó
fyrst og fremst af tónlistartaginu.
Meðal þeirra sem glöddu hina bíðandi gesti
var tónlistarhópurinn Andromeda. Íslenski
fiðluleikarinn Íma Þöll Jónsdóttir er einn af
fjórum meðlimum hópsins sem annars er skip-
aður þeim Evan Harlan á harmóniku, Andrew
Blickenderfer á kontrabassa og Adam Larra-
bee sem spilar á banjó, gítar og mandólín.
Alls konar fólk á öllum aldri
Að sögn Ímu sveif mikil hátíðarstemning yfir
vötnum þennan dag. „Þetta var mjög gaman,“
segir hún og upplýsir að fólk hafi þurft að bíða
í tvo til þrjá tíma eftir að komast inn. Það hafi
þó ekki verið að sýta biðina og skemmt sér vel.
„Þetta voru mjög góðir áhorfendur,“ heldur
hún áfram. „Þarna var saman komið alls konar
fólk og úr öllum aldurshópum sem átti það
sameiginlegt að vera þarna til að skemmta sér.
Við spiluðum fyrir fullt af fólki sem hefur ekki
heyrt í okkur áður og það er alltaf gaman að
komast að nýjum áhorfendum.“
Spurð um safnið sjálft segir hún það vera
„alveg meiriháttar flott“. „Ég mæli mikið með
því að Íslendingar sem koma hingað í ferðir
skoði það. Það er vel þess virði.“
Hún segir staðsetningu safnsins ekki síst vel
heppnaða en jafnframt óhefðbundna. Bygg-
ingin standi við hafnarbakkann í suðurhluta
Boston en fram að þessu hafi lítið verið gert til
að laða fólk að þeim hluta borgarinnar. Því
stendur hins vegar til að breyta og er safnið
fyrsta skrefið í þá átt.
Þetta er í fyrsta skipti á u.þ.b. hundrað ár-
um sem safn tileinkað samtímalistum er reist í
Boston og er það von yfirvalda að það verði
kennileiti sem dragi að ferðafólk og auki hróð-
ur borgarinnar. Byggingin, sem er hönnuð af
arkítektunum Diller Scofidio og Renfro, er að
stórum hluta úr gagnsæju og hálfgagnsæju
gleri, viði og dökkum málmi. Hún er á fjórum
hæðum, samtals 6.000 fermetrar og tók um tvö
ár í byggingu. Kostaði framkvæmdin andvirði
tæpra þriggja milljarða króna. Þar eru nokkrir
sýningarsalir auk 325 sæta salar undir sviðs-
listir og aðrar uppákomur.
„Meiriháttar flott safn“
Hljómsveitin Andromeda, með fiðluleikarann Ímu Þöll Jónsdóttur innanborðs,
spilaði við opnun Samtímalistastofnunarinnar í Boston hinn 10. desember
Safnið Samtímalistastofnunin í Boston er í glæsilegri byggingu. Að sögn Ímu Þallar Jónsdóttur er
hún sömuleiðis tilkomumikil að innan. Hún mælir með að Íslendingar í Boston heimsæki safnið.
Íma Þöll
Jónsdóttir
www.icaboston.org
www.andromeda4.com
NÚ FYRIR jólin komu út á mynd-
diskum nýjustu þáttaraðir gam-
anþáttanna Stelpurnar, Strákarnir
og Svínasúpan sem allir voru sýnd-
ir á Stöð 2 í vetur. Mynddiskarnir
hafa allir selst mjög vel, hver í yfir
fimm þúsund eintökum.
Af því tilefni var leikurum og að-
standendum þáttanna afhentir gull-
diskar síðastliðinn laugardag en
gullsala miðast við að fimm þúsund
eintök séu seld.
Afhendingin fór fram í húsnæði
Hjálparstarfs kirkjunnar og
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
en við sama tækifæri var Mæðra-
styrksnefnd afhent eintök af þess-
um mynddiskum og spurn-
ingaspilið Meistarann til að gefa
þeim fjölskyldum sem neyðast til
að leita aðstoðar við að halda jól-
in.
Þetta er ennfremur gert til að
minna sérstaklega á það góða og
mikilvæga starf sem Mæðra-
styrksnefnd vinnur í þágu íslensks
samfélags á aðventunni, að því er
segir í fréttatilkynningu frá 365.
Stelpurnar, Strák-
arnir og Svínasúpan
Gjafmild Fulltrúar frá Mæðrastyrksnefnd veittu gjöfunum viðtöku úr
hendi Strákanna, Stelpnanna og Svínasúpugengisins.
Yfir 15 þúsund eintök seld af mynd-
diskum með gamanþáttunum
TYRKNESKI
rithöfundurinn
Opek Calisar
hefur verið sýkn-
uð af ákæru um
að hafa móðgað
stofnanda lýð-
veldisins Tyrk-
lands og fyrsta
forseta þess, Mu-
stafa Kemal
Ataturk. Sak-
sóknari hélt því fram að Calisar
hefði gerst sek um umræddan glæp
þegar sagði í ævisögu Latife, eig-
inkonu Ataturks, að hann hefði eitt
sinn flúið dulbúinn sem kona. Ef
Calisar hefði verið fundin sek hefði
hún þurft að dúsa allt að fjögur ár í
fangelsi.
Í Tyrklandi eru mjög ströng lög
gegn ófrægingu þess sem tyrkneskt
er. Í krafti þessara sömu laga hafa
fjölmargir rithöfundar og blaða-
menn mátt sæta ákærum, m.a. Or-
han Pamuk, handhafi Nóbelsverð-
launanna í bókmenntum 2006.
Mustafa Kemal
Ataturk
Opek Cal-
isar saklaus
♦♦♦
♦♦♦