Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 11 JÓLA- TILBOÐ Kringlunni - sími 568 1822 www.polarnopyret.se 25% afsláttur af öllum gjafabolum og meðgöngufatnaði Skólavörðustíg 41 - s. 551 2136 Þumalína fyrir mæður og börn 10-15% jólaafsláttur! Ullar- og silkinærföt, lífrænt ræktuð fyrir litla krílið og mömmu. Ullarteppi, húfur og vettlingar og silkimjúkar ullargærur. Brjóstaullarinnlegg, besta vörnin, brjóstagjafapúðar, brjóstahöld og bolir, liljupúðar, stuðningsbelti og allt sem þarf. Fyrirburafatnaður í úrvali og sérhönnuð tónlist fyrir þau minnstu, fædd og ófædd. Í heilsuhorninu: Gullverðlauna hljóðbylgjunuddtækið NOVAFON gegn gigt og hrukkum! 60% afsláttur af öllum meðgöngu- fatnaði meðan birgðir endast. GUNNAR Gunnarsson rithöfundur var ekki nasisti heldur frjálslyndur þjóðernissinni. Þetta fullyrðir Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í grein í tímaritinu Þjóð- málum. Tilefni greinarinnar eru fullyrðingar Halldórs Guðmunds- sonar bókmenntafræðings í Morgunblaðinu í síðasta mánuði um að Gunnar hafi verið „einlægur stuðningsmaður þýskra stjórnvalda á fjórða áratugnum.“ Hannes Hólmsteinn segir í grein sinni að þarna sé Halldór að gera flókið mál einfalt. Hann vitnar í bréf sem Gunnar skrifaði sænska bókmenntafræðingnum Stellan Arvidsson á nýársdag 1939, en Arvidsson hafði spurt Gunnar hvort hann væri nasisti. Gunnar svarar og segir: „Auðvit- að er ég ekki þjóðernisjafnaðar- maður. En ég lít öðrum augum á hlutina en margir aðrir hér á fjall- inu, sem hafa hátt um frelsi, en eru ekki reiðubúnir til að veita öðrum það. Ég skil, að þessu lauk og hlaut að ljúka á þennan veg í Þýskalandi. Ég hef frá fyrstu tíð talið Versala- samningana hreinan glæp og það sem verra er en glæpur, heimska og brot á reglum mannúðarinnar. Ég er reiðubúinn til að meta Þjóðverja jafnmikils og allar aðrar þjóðir, – og koma á mannúðlega fram við all- ar þjóðir. Mér hafa fyrir löngu orðið ljósir veikleikar Þjóðabandalagsins og sviksamlegar blekkingar. Ég dæmi Mussolini, þegar hann lagði Abessiníu [Eþjópíu] undir sig (en ég formælti honum opinberlega vegna árásanna á sænsku sjúkrabílana), ekki harðar en Laval, sem lét á sér skilja, að hann fengi að komast upp með það, en gaf veslings Negus- inum [keisara Eþjópíu] annað í skyn í ræðustóli Þjóðabandalagsins.“ Arvidsson og Gunnar áttu aftur í bréfaskiptum árið 1943 þegar Arvidsson spurði Gunnar út í gagn- rýni danskra stúdenta á vináttu hans við Þjóðverja. Gunnar segir þá í bréfi að hann hafi í aðdraganda stríðsins viljað mynda norrænt varnarbandalag og halda Norður- löndunum þannig utan við ófriðinn. Hann segist ekki hafa gengið í neinn flokk „en er líklega frjáls- hyggjumaður í hinum gamla skilningi orðs- ins.“ Niðurstaða Hannesar Hólm- steins er að Gunnar hafi ekki verið nasisti: „Gunnar Gunnarsson var ekki hlynntur þjóðernisjafn- aðarstefnu. Hann var frjálslyndur þjóðernissinni, enda hafði hann tek- ið út þroska fyrir Norðurálfuófrið- inn mikla, þegar sú stefna naut enn mikils fylgis. Hann var einnig fylg- ismaður norrænnar samvinnu og einlægur Þjóðverjavinur,“ segir í grein Hannesar. „Gunnar sekur um barnaskap“ „Gunnar var auðvitað sekur um barnaskap, því að hann gerði ekki nægilega skýran greinarmun ann- ars vegar á þýsku þjóðinni, sem var alls góðs makleg, og hins vegar þýskum valdhöfum. En honum var vorkunn því að grimmdarverk þýsku nasistanna urðu ekki öllum ljós fyrr en eftir stríð, þótt sumt ætti raunar ekki að fara fram hjá neinum.“ Hannes Hólmsteinn segir að Hall- dór Guðmundsson komist í nýút- kominni bók sinni, Skáldalíf, ískyggilega nærri því að leggja hlý- hug Gunnars Gunnarssonar í garð þýsku þjóðarinnar að jöfnu við þjónkun Halldórs Laxness við Stalín. „Gunnar var ekki nasisti, en Halldór var kommúnisti,“ segir Hannes Hólmsteinn í grein sinni. Hann segir að Halldór Laxness hafi beitt sér í stjórnmálum á fyrri hluta síðustu aldar og skrifað tvær ferða- bækur til dýrðar stjórnarfari Stalíns. Í greininni segir Hannes Hólmsteinn að saka megi Gunnar, sem hafi verið „hrekklaus hug- sjónamaður“, um barnaskap, en Halldór, sem hafi verið „kaldrifjað- ur valdahyggjumaður“, hafi hins vegar stundað blekkingar. Gunnar var „frjálslyndur þjóðernissinni“ Gunnar Gunnarsson HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef- ur dæmt karlmann um þrítugt til átján mánaða fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku og fyrir að hafa gefið henni áfengi þrátt fyrir vitneskju um að hún væri undir lögaldri. Maðurinn var dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 900 þúsund krónur í miskabætur og rúmar 800 þúsund kr. í sakarkostnað. Stúlkan var í júní sl. stödd í verbúð í Þorlákshöfn ásamt kærasta sínum og vini hans. Þau munu hafa setið inni í herbergi ákærða og horft á sjón- varpið og var áfengi haft um hönd. Kærasti stúlkunnar og vinur yfirgáfu síðar herbergið og var stúlkan þá ein eftir með ákærða. Bar stúlkan að hún hefði verið orðin nokkuð drukkin og verið að sofna í rúmi ákærða, sem hefði sjálfur verið sofandi í hæginda- stól. Hún vaknaði hins vegar við að maðurinn var að strjúka á henni bak- ið. Reyndi hún að ýta honum burt en engu að síður hélt hann áfram. Sleikti brjóst stúlkunnar Við skýrslutöku í Barnahúsi sagð- ist stúlkan hafa ætlað að yfirgefa her- bergið en ákærði togað í hana og hent henni á rúmið þannig að hún lenti á bakinu. Maðurinn hélt stúlkunni niðri og sleikti m.a. brjóst hennar og kyn- færi. Henni tókst að komast burt í kjöl- far þess að hafa beðið manninn að gefa sér eitthvað að drekka. Stúlkan fór á neyðarmóttöku Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvoginum þar sem m.a. voru tekin sýni til að t.d. leita eftir DNA úr munnvatni. Framburði bar saman um margt Ákærði neitaði staðfastlega sök í málinu en framburði hans um flesta atburði aðra en þá sem áttu sér stað eftir að þau voru orðin tvö ein í her- berginu bar saman við framburð stúlkunnar. Honum var kynnt niður- staða úr DNA-rannsókn þar sem fram kemur staðfesting á því að sýni sem rakið sé til hans hafi fundist á brjósti stúlkunnar en hann gat ekki skýrt hvernig það væri tilkomið. Héraðsdómararnir Hjörtur O. Að- alsteinsson sem dómsformaður, Ást- ríður Grímsdóttir og Ásgeir Magn- ússon kváðu upp dóminn. Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari flutti málið af hálfu ákæruvaldsins en Guðjón Ægir Sigurjónsson hrl. varði manninn. DNA-sýni stað- festi framburð Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞETTA eru mjög glæsilegir listar, báðir tveir. Á þeim er mjög mikil breidd. Hlutur kvenna er mjög sterk- ur sem og hlutur ungs fólks,“ segir Jón Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins, en framboðslistar framsóknarmanna í Reykjavíkur- kjördæmunum tveimur voru kynntir í gær. Að sögn Jóns voru listarnir sam- þykktir samhljóða með lófataki á kjördæmaþingum í gær. „Þannig að við erum mjög bjartsýn og baráttu- glöð,“ segir Jón og tekur fram að kosningabarátta flokksins fari af stað af fullum þunga strax á nýju ári. Sjálfur skipar Jón efsta sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jónína Bjartmarz umhverfisráð- herra skipar efsta sætið í Reykjavík- urkjördæmi suður. Að öðru leyti eru efstu sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður á þá leið að Guðjón Ólafur Jónsson alþingismaður skipar 2. sæti, Fanný Guðbjörg Jónsdóttir stjórnmálafræðinemi skipar 3. sæti og Jónína Brynjólfsdóttir viðskipta- lögfræðinemi skipar 4. sæti. Í Reykjavíkurkjördæmi suður skipar Sæunn Stefánsdóttir alþing- ismaður 2. sæti, Árelía Eydís Guð- mundsdóttir lektor í viðskipta- og hagfræðideild HÍ 3. sæti og Þórir Ingþórsson viðskiptastjóri 4. sæti. „Ég tel þetta vera sterkan og mjög sigurstranglegan lista,“ segir Jónína í samtali við Morgunblaðið. „Það var mikill samhugur um þessa tvo lista og mikill hugur í framsóknarmönn- um.“ Sjá 2. sæti sem baráttusæti Í síðustu alþingiskosningum fékk Framsóknarflokkur tvo menn kjörna í Reykjavíkurkjördæmi norður og einn mann kjörinn í Reykjavíkur- kjördæmi suður. Spurð hvort hún líti á fyrsta eða annað sæti listanna sem baráttusæti svarar Jónína: „Staða flokksins eins og hún er í dag er nátt- úrlega ekki til að hrópa húrra yfir. En ég kvíði þessu ekki. Það er heil- mikil vinna og barátta framundan.“ Jónína tekur fram að hún hafi fulla trú á að annað sæti beggja lista verði baráttusæti. Aðspurður segir Jón framsóknar- menn hiklaust stefna að því að halda sínum hlut í komandi kosningum og bæta hann. „Við störfum núna með umboð 18% kjósenda í landinu og Framsóknarflokkurinn mælist alltaf frekar lágur í skoðanakönnunum.“ Spurður hver verði helstu baráttu- mál flokksins í komandi kosninga- baráttu segir Jón þau sameinast und- ir kjörorðunum: „Vinna, vöxtur og velferð.“ Segir hann að lögð verði áhersla á fjölskyldumálin, velferðar- mál, það að skila arðinum af hagvext- inum til allrar þjóðarinnar og allra þeirra sem þurfandi eru í samfélag- inu. Einnig verði lögð mikil áhersla á þekkingarsamfélagið, menntasókn og styrka stöðu atvinnulífsins. Morgunblaðið/Kristinn Framlínusveitin Sæunn Stefánsdóttir, Jónína Bjartmarz, Jón Sigurðsson og Guðjón Ólafur Jónsson skipa efstu sæti á listum framsóknarmanna. „Við erum bjartsýn og baráttuglöð“ HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í tölvu sinni 259 ljósmyndir, sem sýna sýna börn á kynferð- islegan og klámfenginn hátt. Myndirnar fundust þegar lögregla gerði húsleit hjá manninum í októ- ber sl. Í dómi héraðsdóms segir, að margar myndanna séu mjög grófar og brotið teljist því stórfellt. Hins vegar er litið til þess að maðurinn hafi ekki gerst sekur um refsi- verða háttsemi áður. Með barna- klám í tölvu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.