Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 15
Fagmennska í fFagmennska í fyrirrúmi
Allt til rafsuðu
Þú færð allt til rafsuðu hjá okkur
Tæki, vír og fylgihluti
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf
S í m i 5 5 1 7 2 7 0 , 5 5 1 7 2 8 2 o g 8 9 3 3 9 8 5 .
Þ jónustus ími utan skr i fs to fut íma 893 3985.
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. skipasali
www.hibyliogskip.is hibyliogskip@hibyliogskip.is
Til útgerðarmanna í söluhugleiðingum
Vegna mikillar eftirspurnar eftir veiðiheimildum vantar okkur
veiðiheimildir í krókaaflamarkskerfinu og aflamarkskerfinu.
Góð kauptilboð og fjársterkir kaupendur.
• Einnig vantar hlutafélög með veiðiheimildum, með eða án skips.
• Önnumst einnig sölu skipa og báta.
Minnum á heimasíðu okkar
www.hibyliogskip.is
ÚR VERINU
,,ÞETTA verður um þúsund tonnum
meira en í fyrra sem við tökum á
móti í ár. Það er ágætt því það hefur
mjög lítið komið af fiski síðustu vik-
ur. Það hefur verið leiðindaveður og
bátarnir lítið komist á sjó en þegar
gefur fá þeir undantekningarlítið
ágætan afla,“ sagði Steingrímur Óli
Hákonarson, forstöðumaður Fisk-
markaðs Siglufjarðar, þegar frétta-
maður Versins hitti hann á dögun-
um.
Liðlega 5.000 tonn á markaðinn
Steingrímur sagði að Fiskmarkað-
urinn væri með löndunarþjónustu
fyrir alla smábáta sem legðu upp í
Siglufirði. Meirihluti aflans, liðlega
fimm þúsund tonn, hefur farið inn á
markaðinn þar sem hann er slægður
og ísaður. Í þeim tilfellum þegar fisk-
urinn fer annað sér fiskmarkaðurinn
um að ísa og merkja aflann og setja
hann á flutningatæki. Fiskurinn sem
landað hefur verið í Siglufirði hefur
að langstærstum hluta veiðst á línu.
Nokkuð var um aðkomubáta í Siglu-
firði í sumar og haust en nú er aðeins
einn slíkur eftir.
Langmest af þorski og ýsu
Mest af fiskinum var þorskur, um
1.300 tonn, um 940 tonn voru af ýsu
og afgangurinn var ýmsar tegundir.
Nú eru fjórir fastir starfsmenn hjá
fiskmarkaðnum en kallað er á auka-
mannskap í aðgerð og hefur ekki
verið neitt vandamál að fá fólk í slíkt,
að sögn Steingríms. Í febrúar á
þessu ári flutti Fiskmarkaðurinn í
nýtt og mun stærra húsnæði. Í því
var áður rekið netagerðarverkstæði.
Þetta húsnæði hentaði mjög vel fyrir
markaðinn og þurfti sáralitlar breyt-
ingar að gera á því. Húsið er við
höfnina þannig að nú er öllum fiski
ekið beint í hús á lyftara en áður
þurfti að setja körin á bíl og aka þeim
dágóðan spotta. Steingrímur segir
að mikill munur sé á allri aðstöðu í
þessu nýja húsi og þeir sem standi að
Fiskmarkaðnum séu bjartsýnir á að
umsetning muni fara vaxandi á
næstu árum.
Þúsund tonna aukning hjá
fiskmarkaði Siglufjarðar
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Markaðir Fiskurinn slægður á Fiskmarkaði Siglufjarðar. Markaðurinn er
nú kominn í stærra og betra húsnæði en áður.
Löndunarþjónusta
fyrir alla smábáta
sem leggja upp
í Siglufirði
!
#
$
&
# '
(
!""# "$ % # &' &&($ )* %$
#" $"+$$ $ &&($ $ #
" "
",
$
-
-
$
-
$
Fáðu úrslitin
send í símann þinn