Morgunblaðið - 20.12.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 23
SUÐURNES
HUGMYNDIR eru uppi um end-
urgerð Fischershússins í gamla
bænum í Keflavík og byggingu
listatorgs við Hafnargötu 2 þar sem
komið yrði upp vinnustofum lista-
manna, sýningarsölum, kaffihúsi
listasmiðju og íbúðum.
Kemur fram í framtíðarsýn
Reykjanesbæjar að þessar hug-
myndir hafi komið fram hjá einka-
aðilum. Í plagginu er lögð áhersla á
að Félag myndlistarmanna í
Reykjanesbæ fái þar góða framtíð-
araðstöðu. Jafnframt er tekið fram
að vinna þurfi að deiliskipulagi áð-
ur en unnt verði að taka endanlega
ákvörðun og semja um verð og skil-
mála vegna Fischershúss.
Það markmið er sett fram að
deiliskipulagið fyrir svæðið verði
auglýst næsta sumar. Framhaldið
ráðist af niðurstöðu kynningar og
samningum.
Byggt við Duus
Á undanförnum árum hefur verið
unnið að endurbótum og end-
urbyggingu Duushúsa sem eru
gömul fiskverkunarhús. Þar hefur
Listasafn Reykjanesbæjar aðstöðu
og Bátasafn Gríms Karlssonar auk
annarra sýningarsala. Fjöldi gesta
sækir þessi söfn og sýningar.
Áfram verður unnið að uppbygg-
ingu aðstöðu í Duushúsum til sýn-
ingarhalds og listviðburða. Stefnt
er að því að gestafjöldi í Duus-
húsum verði orðinn 45 þúsund í lok
árs 2010, segir í framtíðarsýn.
Byggt verður nýtt anddyri og
salernisaðstaða á næsta ári og
hafnar framkvæmdir við Bryggju-
hús sem reiknað er með að verði
fullgert haustið 2010.
Hugmynd
að listatorgi
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | „Verkefnið gengur
út á það að veita betri þjónustu við
fjölskyldufólk í bæjarfélaginu. Það
er liður í þeirri viðleitni að vinna að
heilbrigði og hamingju íbúanna.
Þetta er vissulega flókið hugtak en
við viljum samt leggja áherslu á
það,“ segir Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar. Meirihlutinn
í bæjarstjórn, fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, lögðu fram framtíðarsýn
fyrir bæjarfélagið á bæjarstjórnar-
fundi í gær og var hún samþykkt.
„Tími til að lifa og njóta“ er yf-
irskrift framtíðarsýnar bæjarstjórn-
ar fyrir árin 2006 til 2010. Plaggið
tekur á mörgum málum og er byggt
á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í
vor en þar eru einnig nýmæli. Jafn-
framt eru settar fram tímasettar
áætlanir um framkvæmd verkefn-
anna og árangursmælingar.
Vilja nýjan framhaldsskóla
Árni segir að haldið verði áfram
viðamikilli aðstoð við yngstu kynslóð
bæjarbúa og uppalendur, með
áframhaldandi uppeldisnámskeiðum
og umönnunargreiðslum sem teknar
voru upp í haust. Hann segir að ráð-
ist verði í forvarnaverkefni fyrir
unglinga sem byggist á sömu aðferð-
um og uppeldisnámskeiðin, þau miði
að því að styrkja sjálfsmynd ung-
linga. Gert sé ráð fyrir hvata-
greiðslum til margskonar afþreying-
arstarfs ungmenna, með líku sniði og
íþróttastarfið nýtur nú þegar í
Reykjanesbæ.
Í framtíðarsýninni kemur fram að
unnið verður að undirbúningi nýs
framhaldsskóla í Reykjanesbæ og
bent á að áhugavert væri að tengja
hann vísindum, íþróttum og listum.
Staðsetning hefur ekki verið ákveðin
enda þarf að hafa samráð við
menntamálaráðuneytið um það. Gert
er ráð fyrir að hugmynd um þetta
mál liggi fyrir vorið 2008.
Framkvæmdum verður haldið
áfram við nýtt íþrótta- og útivistar-
svæði vestan við Reykjaneshöll með
knattspyrnuvöllum fyrir UMFN og
Keflavík og aðalleikvangi bæjarins.
Vallarhús fyrir UMFN verður byggt
á næsta ári og knattspyrnusvæði
Keflavíkur lokið í áföngum á árunum
2008 til 2010 en þá verði hafin vinna
við nýjan aðalleikvang. Sérstakt fim-
leikahús á að vera risið vorið 2009.
Ráðgert er að koma upp félagsað-
stöðu fyrir Keflavíkurfélagið í
Íþróttahúsinu við Sunnubraut, fyrir
vorið 2009.
Skrúðgarðarnir í Keflavík og
Njarðvík verða endurgerðir á kjör-
tímabilinu og sú hugmynd er sett
fram í plagginu að ylströnd verði
gerð í Njarðvík í tengslum við fram-
kvæmdir við nýjar höfuðstöðvar
Hitaveitu Suðurnesja sem þar gætu
risið á næstu árum.
Unnið að heilbrigði
og hamingju íbúanna
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Bæjarlíf Reyknesingar upplifa margt saman á árlegri Ljósanæturhátíð.
NÝI tónlistarskólinn og ráðstefnu-
miðstöðin sem fyrirhugað er að
byggja við félagsheimilið Stapann
mun fá heitið Hljómahöllin, sam-
kvæmt hugmynd sem fram kemur í
framtíðarsýn Reykjanesbæjar.
Hljómahöllin verður miðja tónlistar-
kennslu í bænum, tónlistarkynninga
og varðveislu popp- og rokktónlist-
arsögu Íslendinga. Með því er ætl-
unin að leggja grunn að auknum at-
vinnutækifærum Íslendinga í
sköpunar- og afþreyingariðnaði.
Áhersla verður lögð á að gera að-
stöðu Hljómahallarinnar að aðdrátt-
arafli fyrir innlenda og erlenda
áhugamenn um tónlist. Með teng-
ingu tónlistarskólans og sýning-
araðstöðu Poppminjasafns Íslands
við félagsheimlið skapast aðstaða
fyrir tónlistar- og ráðstefnumiðstöð.
Þá kemur fram að hægt verður að
reka félagsheimilið áfram í núver-
andi mynd.
Heitið Hljómahöllin vísar ekki
einungis til Hljóma frá Keflavík
heldur einnig til litrófs og mik-
ilvægis hljóma með litlum staf í
menningu heimsins. Hljómsveitin
Hljómar mun fá sinn sess í húsnæð-
inu. Það fyrirheit er gefið að
Hljómahöllin verði vígð haustið
2009.
Alþjóðlegar æfingabúðir
Sú hugmynd er sett fram að stofn-
aðar verði alþjóðlegar æfingabúðir
fyrir hljómsveitir á fyrrverandi
varnarliðssvæði á Keflavík-
urflugvelli. Þeirri starfsemi verði
stjórnað úr Hljómahöllinni.
Hljóma-
höllin í
Stapanum
LANDIÐ
Eftir Örn Þórarinsson
Siglufjörður | Gestkvæmt var á heil-
brigðisstofnuninni á Siglufirði síð-
astliðinn laugardag en þá var því
fagnað að 15. desember voru 40 ár
liðin síðan núverandi húsnæði var
formlega tekið í notkun. Jafnframt
var því fagnað að nú er nánast lokið
fyrri áfanga í talsvert umfangsmikl-
um breytingum og lagfæringum á
húsnæðinu sem staðið hafa yfir í
nokkur ár. Þá má geta þess að búið
er að bjóða út viðbyggingu við
sjúkrahúsið.
Fjöldi bæjarbúa ásamt boðsgest-
um kom af þessu tilefni og skoðaði
húsakynnin. Fram kom í ræðu sem
framkvæmdastjóri heilbrigðisstofn-
unarinnar, Konráð Baldvinsson,
flutti við þetta tækifæri að breyting-
arnar sem byrjuðu í raun árið 2002
hefðu kostað um 70 milljónir króna.
Breytingarnar voru á fyrstu og ann-
arri hæð suðurálmu og eru þær nú
sem nýtt hús. Þar var m.a. skipt um
allar rafmagns- og vatnslagnir, nýtt
sjúkra- og viðvörunarkerfi sett upp
sem og nýtt loftræstikerfi.
Viðbygging verður
500 fermetrar
Áður höfðu eldhús og borðstofa
verið mikið endurnýjuð að því er
fram kom á samkomunni. Eftir eru
framkvæmdir við norðurálmu húss-
ins en ekki verður ráðist í þær fyrr
en væntanleg viðbygging er komin í
gagnið. Það kom fram í máli Konráðs
að sú bygging verður 500 fermetrar
að grunnfleti á tveimur hæðum,
áætluð verklok eru um mitt ár 2008.
Endurbæturnar hafa að stærstum
hluta verið unnar af heimamönnum,
aðalverktaki var byggingafélagið
Berg.
Á samkomunni í sjúkrahúsinu
voru stofnuninni afhentar gjafir frá
heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
og Verkalýðsfélaginu Vöku. Einnig
færði Kvenfélag Sjúkrahússins
stofnuninni tvær milljónir króna að
gjöf sem ætlaðar eru til tækjakaupa.
Þegar Konráð þakkaði þessa höfð-
inglegu gjöf lét hann þess getið að
kvenfélagið hefði oft áður gefið
stofnuninni peninga til tækjakaupa.
Hann hefði nú fyrir skömmu látið
reikna þær gjafir til núvirðis og
væru þær komnar á annað hundrað
milljónir króna. Einnig hefði kven-
félagið Von á Siglufirði stutt stofn-
unina dyggilega með fjárframlögum
gegnum tíðina. Við athöfn á sjúkra-
húsinu við þetta tækifæri fluttu einn-
ig ávörp Andrés Magnússon yfir-
læknir og Anna Gilsdóttir
hjúkrunarforstjóri. Einnig var söng-
ur á dagskrá og í lokin voru höfð-
inglegar kaffiveitingar í boði stofn-
unarinnar.
Fagna stórum áfanga í
uppbyggingu húsnæðis
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Afmælisveisla Fjölmenni var samankomið til að fagna góðum áföngum í
starfsemi sjúkrahússins í Siglufirði og sumir komu færandi hendi.
Haldið upp á tíma-
mót hjá heilbrigð-
isstofnuninni
Í HNOTSKURN
» Fjörutíu ár eru liðin fráþví heilbrigðisstofnunin á
Siglufirði flutti í núverandi
húsnæði.
» Unnið hefur verið að mikl-um endurbótum á húsnæð-
inu og boðin út viðbygging við
húsið.