Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 28
daglegt líf 28 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Það er ekki laust við að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sé svo-lítið hás þegar hann mætir til vinnu árla morguns mánudaginn 18.desember, enda búinn að syngja heilmikið undanfarið í heimsóknumsínum til eldri borgara í félagsmiðstöðvum og hjúkrunarheimilum. „Ég hef tekið nokkur lög með Ragga Bjarna og Þorgeiri Ástvaldssyni, eins og til dæmis Suður um höfin, Ó, borg mín borg og Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig. Það er mjög gaman að heimsækja þetta fólk og þau eru ófeimin við að taka undir. Raggi er svo mikill sjarmör að það lifna allir við þegar hann fer af stað. Ég gef mér tíma til þessara heimsókna núna fyrir jólahátíðina af því mér finnst það vel við hæfi. Ég legg mikið upp úr því að heilsa sem flestum með handabandi og fólk er mjög þakklátt.“ Dagskráin er þétt skipuð hjá Vilhjálmi þennan dag eins og flesta aðra daga. Enginn dagur er eins og stundum geta hlutirnir breyst með skömmum fyr- irvara. „Ég reyni að hitta sem flesta þeirra sem óska eftir fundi með mér sem borg- arstjóra um hin ýmsu mál borgarinnar en staðreyndin er sú að það er engin leið að koma öllum fyrir á dagskránni. Ætli það séu ekki um áttatíu manns á bið- lista núna sem óskað hafa eftir viðtali en ég hef þegar tekið um 850 viðtöl,“ seg- ir Vilhjálmur og bætir við að lítill tími hafi gefist til að undirbúa jólin heima fyr- ir eða kaupa jólagjafir. Boðskort Nýmættur til vinnu fagnaði Vilhjálmur boði í sextugsafmæli golfarans og fyrrver- andi bekkjarsystur sinnar, Guðrúnar Garðarsdóttur, sem halda átti þá um kvöldið. Hádegismatur Vilhjálmur notaði tímann og borðaði á sama tíma og hann fundaði með borg- arstjórnarflokknum. Hanna Birna sló á létta strengi og Júlíus Vífill fylgdist með. Morgunblaðið/Ómar Innlifun Þeir sungu af lífs- og sálarkröftum Ó, borg mín borg, félagarnir Raggi Bjarna og Vilhjálmur, fyrir gesti í Félagsmiðstöðinni við Vitatorg. Ekki var annað að sjá en viðstaddir kynnu vel að meta sönginn. Lof í lófa Þær ljómuðu konurnar þegar Raggi Bjarna og Vilhjálmur sungu fyrir þær. Nefndarstörf Degi er tekið að halla þegar Vilhjálmur kemur í félagsmálaráðuneytið til að sitja fund með Stjórnarnefnd, sem hann á sæti í, um málefni fatlaðra. Dagur í lífi borgarstjóra á aðventu 08:30 - 09:00: Vilhjálmur byrjar daginn snemma á því að fara yfir daginn með ritara sínum Kristínu Vilhjálmsdóttur og skrif- stofustjóranum Magnúsi Þór Gylfasyni á stofu borgarstjóra. 09:00 - 09:30: Því næst er fundur í Mar- íubúð með öllu starfsfólki skrifstofu borg- arstjóra þar sem farið er yfir þau mál sem liggja fyrir í vikunni. 09:30 - 11:00: Birgir Hlynur Sigurðsson sviðsstjóri Skipulags- og byggingarsviðs og Hanna Birna Kristjánsdóttir forseti borg- arstjórnar og formaður Skipulagsráðs, koma til fundar við Vilhjálm. 12:00 - 13:00 Hádegisverðarfundur með borgarstjórnarflokknum. Milli þess sem þorskur er snæddur er fjárhagsáætlun árs- ins 2007 rædd. Gríðarleg eftirspurn er eftir fjármagni frá borginni til hinna ýmsu mál- efna og Vilhjálmur minnir á að peningar falli ekki af himnum ofan. 13:15 - 13:45: Fundur með Garðari Eyland framkvæmdastjóra Golfklúbbs Reykjavíkur. 14:00 - 15:00: Heimsókn í Félagsmiðstöðina við Vitatorg þar sem Vilhjálmur tekur lagið með Ragga Bjarna fyrir eldri borgara. 15:00 - 16:00: Vilhjálmur heimsækir Íþrótta- og tómstundasvið á Fríkirkjuvegi og heilsar upp á starfsmenn, en hann hefur heimsótt öll svið borgarinnar undanfarið. 16:00 - 17:00: Undirbúningur fyrir borg- arstjórnarfund vegna Fjárhagsáætlunar 2007 og ekki ólíklegt að Vilhjálmur þurfi að vaka frameftir við að semja ræðu og hnýta hnúta. 17:00 - 18:00: Vilhjálmur fer í Félagsmála- ráðuneytið á fund með Stjórnarnefnd um málefni fatlaðra, þar sem hann á sæti. 18:00 - 20:30: Vilhjálmur mætir í sextugs- afmæli Guðrúnar Garðarsdóttur sem er tengdamóðir Helgu Bjarkar dóttur hans og auk þess bekkjarsystir hans frá því í Austur- bæjarskólanum. Þétt dagskrá Afmæli Langur og strangur dagur Vilhjálms fékk að þessu sinni góðan endi í fjölmennri af- mælisveislu Guðrúnar Garðarsdóttur sem hér fagnar gestum sínum. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.