Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menningstaðurstund
Vernharður Linnet fer yfir þrjár
djassplötur sem koma út fyrir
þessi jól og virðist nokkuð sátt-
ur við safnið. » 55
djass
Söngkonan Britney Spears
þykir ekki góður hundaeigandi
og hið sama gildir um vinkonu
hennar, Paris Hilton. » 59
fólk
Ólöf Helga Einarsdóttir segir að
fyrsta plata Guðrúnar Jóhönnu
Ólafsdóttur og Víkings Heiðars
Ólafssonar sé vel heppnuð. » 53
tónlist
Hinir geðþekku Radíusbræður
ætla að koma saman að nýju og
skemmta gestum á Hverf-
isbarnum í kvöld. » 56
grín
Á næsta ári verða 100 ár liðin
frá fæðingu Hergé, höfundar
Tinnabókanna, og stendur ým-
islegt til á afmælisárinu. » 55
bókmenntir
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Ég var að koma heim íjólafrí,“ segir tónlist-arkonan RagnheiðurGröndal hress þegar
blaðamaður hringir í hana einn
drungalegan desembermorgun.
Ragnheiður getur ekki annað en ver-
ið ánægð með lífið þessa dagana enda
hefur nýjasti geisladiskurinn hennar,
Þjóðlög, fengið frábærar viðtökur og
henni líður vel í New York, þangað
sem hún flutti í haust.
„Ég er í New School of Jazz and
Contemporary Music sem er á besta
stað í Greenwich Village á Manhatt-
an. Það er rosalega gaman að vera í
New York, þar er svo margt að ger-
ast og mikið af áhugaverðu fólki.
Námið tekur þrjú ár og ef ég klára
það fæ ég BFA gráðu en ég er ekki að
stefna að því, ætli ég klári ekki eina
eða tvær annir í viðbót og sjái svo til
hvað ég geri.“
Það er auðheyrt á Ragnheiði að
hún er mjög hrifin af New York, enda
segir hún áhrif frá borginni nú þegar
byrjuð að koma fram í tónlist-
arsköpun sinni.
„Ég er búin að semja fullt af nýjum
lögum í NY, þar er gott að vera skap-
andi,“ segir Ragnheiður sem ætlar að
leyfa landanum að heyra aðeins í sér
um jólin.
„Ég verð með tónleika á Þorláks-
messukvöld í sal SÁÁ í Efstaleiti. Þar
mun ég flytja þjóðlögin í bland við
jólalög. Svo verð ég á Bolungarvík 28.
desember og eftir áramót held ég
kannski djass- og blústónleika. Ég er
í algjörri spilaþörf enda ekki spilað
neitt opinberlega í langan tíma.“
Krefjast tærleika
Diskur Ragnheiðar, Þjóðlög, fékk
fimm stjörnur af fimm mögulegum
hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins og
var sagður einn af bestu diskum árs-
ins. Að vonum er Ragnheiður mjög
ánægð með öll þau góðu viðbrögð
sem hún hefur fengið við disknum.
„Þetta verkefni hafði blundað lengi
í mér og Hauki bróður sem vann
diskinn með mér. Við reyndum að
vinna hann eins vel og við gátum og
umgangast efnið af virðingu en samt
koma með eitthvað nýtt inn í það. Í
bland við þjóðlögin eru þrjú lög eftir
sjálfa mig á disknum og reyndi ég að
hafa þau í sama þjóðlagastíl.“
Spurð hvers vegna ung og vinsæl
söngkona gefi út íslensk þjóðlög,
hvort það sé ekki svolítið gamaldags
hlær Ragnheiður og segir það ekki
vera.
„Ég og Haukur vorum búin að
skoða þessi þjóðlög í dálítinn tíma.
Okkur fannst þau falleg, með flotta
texta og svolítið tregafull, mér fannst
það í takt við Ísland fyrri tíma og
langaði að minnast þess. Ég vona líka
að diskurinn veki áhuga hjá yngra
fólki á íslenskri tónlistarhefð.“
Ragnheiður segir að hún hafi ekki
kunnað mörg af þessum þjóðlögum
áður og því hafi verið ánægjulegt að
kynnast þeim.
„Ég og Haukur fórum í gegnum
Búlgarskur söngur,
kántrí eða blús?
Morgunblaðið/Kristinn
Heimsborgari Ragnheiður býr nú í New York, og líkar vel.
Þjóðlagasafnið hans Bjarna Þor-
steinssonar í leit að lögum. Þjóðlögin
eru yfirleitt einföld og stutt þannig að
það var vinna að finna lög sem hent-
uðu. Að syngja þessi lög er líka eitt
það erfiðasta sem ég hef gert söng-
lega séð, þetta eru einföld lög sem
þarf að syngja með ákveðnum tær-
leika. Ég hef alltaf hlustað mest á
djass, blús og íslensk dægurlög sem
liggur nærri mér að syngja en mig
langaði að reyna að ná valdi á þessum
þjóðlagasöngstíl.“
Heimildarmynd um Þjóðlög
Þjóðlög var tekin upp í Danmörku,
á Íslandi og í Búlgaríu og segir Ragn-
heiður Búlgaríuferðina vera ein-
staklega eftirminnilega.
„Við fórum til Búlgaríu og ætl-
uðum að taka þar upp strengjakvart-
ett en enduðum á því að taka bara
upp slagverksleik. Það voru ekki al-
veg þau gæði á strengjakvartettinum
sem við vildum, það var óheppni en
líka fyndið.
Það fylgdi okkur tökulið út sem
náði þessu öllu á spólu, en Elsa María
Jakobsdóttir hjá Sjónvarpinu er að
vinna heimildarmynd um gerð Þjóð-
laga sem verður líklega sýnd eftir
áramót.
Það komu upp ýmis vandamál við
gerð plötunnar sem flest áttu rætur
sínar að rekja til Búlgaríu, en allt
endaði þetta vel,“ segir Ragnheiður
sposk.
Blús og kántrí
Ragnheiður vill sem minnst um
það spá á hverju sé von frá henni
næst.
„Nú er ég komin með eitthvað ann-
að á heilann en íslensk þjóðlög. Hauk-
ur hefur mikinn áhuga á búlgarskri
þjóðlagatónlist og hefur smitað mig
af honum og mig langar mikið til
Búlgaríu til að læra búlgarskan söng.
Ég er líka mikið að spá í að skoða blús
næst, svo hefur dvöldin í Bandaríkj-
unum kveikt áhuga hjá mér á kántrí
og „bluegrass“. Ég er með margar
hugmyndir í gangi og vona að ég nái
að hrinda þeim öllum í framkvæmd,“
segir Ragnheiður sem er aðeins 22
ára og getur því líklega prófað hinar
ýmsu tónlistarstefnur mörgum sinn-
um áður en tónlistardagar hennar
verða taldir.
Í nóvember kom í búðir fjórða sólóplata hinnar ungu og hæfileikaríku tónlist-
arkonu Ragnheiðar Gröndal. Þjóðlög nefnist sú plata og inniheldur eins og
nafnið bendir til nokkur íslensk þjóðlög og eitt sænskt í bland við þrjú frum-
samin lög eftir Ragnheiði sjálfa. Ragnheiður er nú í námi í New York en mun
halda nokkra tónleika hér á landi yfir jólahátíðina, m.a á Þorláksmessukvöld.
Tónlist | Ragnheiður Gröndal er komin heim í jólafrí og gleður aðdáendur með tónleikum
Tónleikar Ragnheiðar Gröndal á
Þorláksmessu hefjast kl. 21 og
fara fram í Von, Efstaleiti 7. Miða-
sala er á www.midi.is.
Í HNOTSKURN
»Ragnheiður stundar tón-listarnám í New School of
Jazz and Contemporary Music
í New York.
»Hún kláraði söngnám fráF.Í.H. vorið 2005 og tók
einnig nokkra píanótíma.
»Þjóðlög er fjórða sólóplataRagnheiðar á jafn mörg-
um árum. Haustið 2003 kom út
platan Ragnheiður Gröndal.
Árið 2004 kom Vetrarljóð út
og veturinn 2005 var það Af-
ter the Rain , sem inniheldur
eingöngu frumsamin lög
Ragnheiðar.
»Ragnheiður er 22 ára gömul.
»Ragnheiður sigraði ísöngvakeppni Samfés þeg-
ar hún var fimmtán ára gömul
og sautján ára var hún farin
að reka eigin djasssveit.
» Hún var söngkona hljóm-sveitarinnar Ske frá 2002
til 2005.
»Aðdragandinn að Þjóð-lögum var tvö ár, 12 Tónar
gefur plötuna út.
»Þjóðlög fékk fimm stjörn-ur af fimm mögulegum hjá
tónlistargagnrýnanda Morg-
unblaðsins.
»Meðal laga á Þjóðlögumer: Gefðu að móðurmálið
mitt, Sofðu unga ástin mín,
Vísur Vatnsenda-Rósu og
sálmurinn Allt eins og
blómstrið eina.
»Heimasíða RagnheiðarGröndal er: www.rgron-
dal.com