Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 53
dægradvöl
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rf3 Be7 8.
Bc4 0–0 9. 0–0 Rc6 10. He1 b5 11. Bb3
Hb8 12. Bg5 Rd7 13. Bxe7 Dxe7 14.
Rd5 Dd8 15. c3 Rc5 16. Bc2 a5 17. b4
axb4 18. cxb4 Re6 19. Bb3 Red4 20.
Rxd4 Rxd4 21. Re3 Be6 22. Bd5 Hc8
23. a4 bxa4 24. Dxa4 Dg5 25. Hf1 Hb8
26. Kh1 Dh4 27. Hae1 Hfc8 28. Hb1 h6
29. b5 Bd7 30. Da7 Bxb5 31. Rf5 Rxf5
32. exf5 Df6 33. Hb3 Ha8 34. Dxf7+
Dxf7 35. Hxb5 Ha2 36. Bxf7+ Kxf7 37.
Hd5
Staðan kom upp á rússneska meist-
aramótinu sem er nýlokið í Moskvu.
Alþjóðlegi meistarinn Ildar Khariullin
(2.543) hafði svart gegn stórmeistar-
anum Dmitry Jakovenko (2.671).
37. … Hxf2! 38. Kg1 Hxf1+ 39. Kxf1
Ke7 40. Ke2 Hc5 og hvítur gafst upp
enda hróksendataflið gjörtapað.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Samgöngubót.
Norður
♠G42
♥D3
♦D7
♣Á98632
Vestur Austur
♠1085 ♠D96
♥G92 ♥K65
♦G10965 ♦8432
♣G4 ♣D107
Suður
♠ÁK73
♥Á10874
♦ÁK
♣K5
Suður spilar 3G og fær út tígulgosa.
Eigi að gera út á hjartalitinn þarf
legan að vera góð, helst kóngur þriðji í
vestur eða KGx í austur. Laufið er lík-
legri líflitur en vandinn er sá að sam-
göngur við blindan eru ótraustar og
alltof hægfara því vörnin er þegar
komin vel á veg með að fría tígulinn.
Samgönguvandann má þó leysa á ódýr-
an máta með því að nýta tíguldrottn-
inguna: Sagnhafi tekur tvo efstu í laufi,
spilar þriðja laufinu og hendir hátígli
heima! Ef austur á þriðja laufið vinnst
geimið örugglega því hann verður að
gefa sagnhafa innkomu hverju sem
hann spilar. Lendi vestur inni gæti
hann kannski klórað í bakkann með því
að spila hálit en í flestum legum næði
sagnhafi að byggja upp níu slagi í
rólegheitum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 geðrík, 8 brest-
ir, 9 starfað, 10 ætt,
11 slitna, 13 afkomenda,
15 höfuðfats, 18 drengur,
21 kriki, 22 kroppi,
23 vafinn, 24 sljór.
Lóðrétt | 2 skarð milli
fjalla, 3 böggul, 4 ásynja,
5 atvinnugrein, 6 espar,
7 starf, 12 hef gagn af,
14 greinir, 15 fornafn,
16 mannsnafn, 17 vitur,
18 áfall, 19 borðhaldinu,
20 framkvæma.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 flagg, 4 afber, 7 Leifs, 8 úlfúð, 9 súð, 11 rödd,
13 áran, 14 Íraks, 15 fugl, 17 tólf, 20 ess, 22 riðil, 23 kot-
ið, 24 kenna, 25 penna.
Lóðrétt: 1 falur, 2 aðild, 3 góss, 4 alúð, 5 bifar, 6 rúðan,
10 úrans, 12 díl, 13 ást, 15 fersk, 16 gæðin, 18 óttan,
19 fiðla, 20 elja, 21 skip.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
1 Sif Sigmarsdóttir hefur sent frásér bók um unga stúlku fyrir
ungar stúlkur og gefur Edda bókina
út. Hver er titill bókarinnar?
2 Hverjir voru kjörnir leikmenn árs-ins af Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu í kvenna- og karlaknatt-
spyrnu?
3 Bond-myndin missti toppsætið áíslenska bíólistanum. Hver
skákaði henni?
4 Varasamt „æði“ hefur gripið umsig hjá krökkum á Akureyri.
Hvað kallast það?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Bilun í sæstrengnum milli Kanada,
Danmerkur, Þýsklands og Bretlands með
leggjum til Íslands og Færeyja hefur valdið
erfiðleikum. Hvað kallast sæstrengurinn?
Svar: Cantat-3. 2. Unnið er að nýrri orða-
bók, þ.e. á íslnsku annars vegar en á
hvaða tungumál hins vegar? Svar: Kata-
lónsku. 3. Framsóknarflokkurinn fagnaði
90 ára afmæli um helgina og formaðurinn
og varaformaðurinn blésu á kerti afmælis-
kökunnar ásamt ritara flokksins. Hver er
ritarinn? Svar: Sæunn Stefánsdóttir. 4.
Norðmenn urðu Evrópumeistarar í hand-
knattleik kvenna og með þeim fagnaði ís-
lenskur aðstoðarþjálfari liðsins. Hver er
hann? Svar: Þórir Hergeirsson.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
ÞAU Víkingur Heiðar Ólafsson og
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir eru
flestum landsmönnum kunn enda má
segja að þau teljist til óskabarna
þjóðarinnar í hinum klassíska heimi
tónlistarinnar. Enda hafa þau bæði
hlotið verðskuldaða athygli fyrir af-
burðahæfileika, dugnað og afköst og
náð frábærum árangri á alþjóðlegum
vettvangi snemma á ferlinum. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem þau leiða
hesta sína saman, en þetta mun þó
vera þeirra fyrsta plata saman.
Flytja þau tvo ljóðaflokka Frauen-
liebe und -leben op. 42 eftir Robert
Scumann og Haugtussa op. 67 eftir
Edward Grieg auk fjögurra sönglaga
eftir Grieg.
Það er ferskur blær yfir plötunni,
eins og hafi tekist að fanga þann
mikla karakter sem bæði búa yfir á
sviði. Hljóðblöndunin er góð, þannig
bæði fá að njóta sín til fulls, eins og
við á í ljóðasöngvum sem þessum þar
sem tónskáldið gerir píanóinu og
röddinni jafn hátt undir höfði.
Guðrún Jóhanna er með sér-
staklega fallega rödd sem hún hefur
mikið vald á. Hún er listfeng og mjög
glögg á túlkun og tilfinningar. Hún
syngur alveg klukkuhreint og býr að
auki yfir mikilli snerpu, eins og heyra
má glögglega t.d. í hinum fjörlega
Killingdans (Kiðlingadansi) í ljóða-
flokki Grieg, Haugtussa (Huldan)
sem er ævintýralegt ferðalag um
krassandi náttúrustemningar, ástir
og tilfinningar norskrar smalastúlku.
Guðrún Jóhanna er sannfærandi
sögumaður og tekur hlustandann svo
sannarlega með sér á ferðalag, með
dyggri aðstoð Víkings Heiðars, sem
hefur augljóslega glöggan skilning á
efninu sem skilar sér í hverri nótu.
Í lok Haugtussa hefði mátt vera að-
eins lengra bil á undan næsta lagi til
aðgreiningar frá hinum sönglögunum
eftir Grieg. Af þeim finnst mér Vorið
(Våren) sem sungið er í íslenskri þýð-
ingu Þorsteins Gylfasonar alveg sér-
staklega fallegt, hrífandi söngur og
gullfallegur píanóleikur frá upphafi
til enda. Ég hjó þó eftir því að engin
ensk þýðing var á því ljóði í bækl-
ingnum, en þýðingar eru á öllum hin-
um ljóðunum bæði á íslensku og
ensku. Solveigs sang í flutningi Vík-
ings og Guðrúnar er mjög líklegt til
að verða klassík, lag sem flestir kann-
ast við, flutt á lævísan og lipran hátt
þar sem mild raddfegurð Guðrúnar
Jóhönnu nýtur sín sérstaklega vel.
Í Frauenliebe und -leben Schu-
manns er viðfangsefnið kvenlegar til-
finningar eins og í Haugtussa. Lögin
falla einstaklega vel að rödd Guð-
rúnar Jóhönnu sem skilar þeim frá
sér á næman og afslappaðan hátt.
Samspil þeirra Víkings er ótrúlega
nákvæmt og fullt af litlum augnablik-
um þar sem þau eru eins og ein
manneskja í styrkleikabreytingum og
hraða.
Víkingur Heiðar spilar ótrúlega
fallega á allri plötunni, hann hefur
sérstaklega tæran tón og ferska tján-
ingu sem einkennist af skýrri meðvit-
und um tempó, styrkleika og lit. Hon-
um er greinilega margt til lista lagt
eins og lipurlega skrifuð umfjöllun
hans um verkin í bæklingnum ber
glöggt vitni. Hún gefur hlustand-
anum mikilvæga innsýn í verkin, sem
og þýðingarnar á textunum sem gam-
an er að fylgja gegnum plötuna og
vera þannig fyllilega með á nótunum
um söguþráðinn.
Í stuttu máli er fyrsta plata Guð-
rúnar Jóhönnu og Víkings Heiðars
mjög vel heppnuð, aðgengileg og
eiguleg í alla staði. Vonandi verða
þær fleiri.
Vel að verki staðið
Ólöf Helga Einarsdóttir
TÓNLIST
Geisladiskur
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópr-
an og Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleik-
ari flytja ljóðasöngstónlist eftir Grieg &
Schumann. Hljóðritað í Salnum 10. og
11. júlí 2006 af tæknirekstrardeild Rík-
isútvarpins. Tónmeistari; Bjarni Rúnar
Bjarnason. 12 tónar gefa út.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Víkingur
Heiðar Ólafsson – Grieg & Schumann
Eitt „Þau eru eins og ein manneskja í styrkleikabreytingum og hraða.“