Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 54

Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ M.M.J. Kvikmyndir.com eeee Blaðið eeee Þ.Þ. Fbl. Eragon kl. 5.50, 8 og 10:10 B.i. 10 ára The Holiday kl. 5.40 og 8 Saw 3 kl. 10.30 B.i. 16 ára Eragon kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 10 ára Eragon LÚXUS kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 The Holiday kl. 8 og 10:45 Casino Royale kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 14 ára Borat kl. 10.10 B.i. 12 ára Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 3.40, 5.50 og 8 Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 3.20 Mýrin kl. 5.40 B.i. 12 ára Skógarstríð m.ísl.tali kl. 3.40 JÓLAMYNDIN Í ÁR Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give. Cameron Diaz Kate Winslet Jude Law Jack Black - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir eee S.V. MBL. eee MMJ, KVIKMYNDIR.COM Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók JÓLAMYNDIN 2006 47.000 MANNS Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Að vanda eru fjölbreyttar sýn-ingar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tísku- hönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönnuðum í samhengi við íslenska náttúru. Berlin Excur- sion, bókagerðarlist frá forlagi rit- höfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Hand- ritin að auki. Opið kl. 11–17. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Kammerhópurinn Camerarcticaleikur ljúfa tónlist eftir Moz- art í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld kl. 21. Verður Hafnarfjarðarkirkja einungis lýst upp með kertaljósum á tónleikunum. Í tilefni afmælisárs Mozarts leik- ur hópurinn á hljóðfæri eins og þau tíðkuðust á klassíska tímanum. Allir velkomnir. Hjálparsjóður Selfosskirkjufékk 7. desember sl. mynd- arlega peningagjöf frá Kven- félagi Selfoss. 8. desember, af- henti Lionsklúbburinn Embla hjálparsjóðnum rausnarlega gjöf úr Líknarsjóði klúbbsins. Það er ósk gefenda að gjafir þessar hjálpi einhverjum til þess að gleðjast um jólin og njóta hátíð- arinnar. Bílasalan Hekla (Grund- ir ehf.) hefur fært Hjálparsjóði Selfosskirkju myndarlega peningagjöf. Gef- endur vilja með gjöf sinni stuðla að því að þeir sem búa við minni efni geti gert sér dagamun á jólahátíðinni. Ég vil þakka, hrærðum huga, þessa vel- vild og hugsunarsemi. Hjálparsjóður Selfosskirkju hefur reynt að styrkja eftir megni þá sem hafa þörf fyrir aðstoð á aðventunni. Góðhugur og gjaf- mildi Kvenfélags Selfoss, Lionsklúbbsins Emblu og Bílasölu Heklu eru dýr- mætt framlag til þess að Hjálparsjóður Selfosskirkju geti gegnt hlutverki sínu með sóma. Guð blessi glaða gjafara. Gunnar Björnsson sóknarprestur. Tónlist Dómkirkjan | Jólatónleikar Dómkórsins verða á fimmtudagskvöld, 21. desember, kl. 22. Dómkórinn syngur jólasálma og mót- ettur frá 16./17. öld. Stjórnandi kórsins er Marteinn H. Friðriksson. Aðgangur ókeypis. Hafnarfjarðarkirkja | Kammerhópurinn Camerarctica leikur ljúfa tónlist kl. 21 eftir Mozart í Hafnarfjarðarkirkju sem verður einungis lýst upp með kertaljósum. Í tilefni afmælisárs Mozarts leikur hópurinn á hljóðfæri eins og þau tíðkuðust á klassíska tímanum. Háteigskirkja | Kór Menntaskólans í Reykjavík heldur árlega jólatónleika kl. 20. Ókeypis aðgangur. Myndlist Anima gallerí | Bjarni Sigurbjörnsson, Jón Óskar og Kristinn Már. Til 23. des. Art-Iceland.com | Skólavörðustíg 1a er með smámyndasýningu frá 10. des. 2006 til 14. janúar 1007. Listamennirnir 20 og galleríið gefa 10% af sölu til Barnaheilla. Verkin á sýningunni eru mjög fjölbreytt og áhugaverð. Vikuna fyrir jól er opið frá kl. 11– 21. Eftir jól frá 12–18. Allir velkomnir. Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd- listarmaður sýnir teikningar og myndband á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni Tryggvagötu 15. Til áramóta. Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu- málverk. Sýningin stendur til áramóta. Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl. 8.30–16. Gallerí – Skálinn | Gallerí – Skálinn, Seyðis- firði. Garðar Eymundsson og Rúnar Loftur sýna teikningar, pastelmyndir, vatnslita- myndir og olíumyndir. Opið eftir hádegi alla daga til jóla. Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir með sýningu út desember. Opið virka daga frá kl. 14–18. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starf- ræktar voru sumrin 1988–2004. Til 21. jan. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skóla- börnum í samstarfi við Borgarbókasafnið. Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjars- infónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Til 21. jan- úar. Sjá www.gerduberg.is. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember. Verkin eru úr væntanlegri bók sem mun bera titilinn „Locations“. Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverr- issal og Apóteki. Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til 23. desember. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. i8 | Sýning Katrínar Sigurðardóttur, Stig, stendur nú yfir fram að jólum. Opið þri.– fös. frá kl. 11–17 og laugardaga frá 13–17. Sýning Péturs Más Gunnarssonar Eins og að sjálfsögðu. Til 23. des. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga. Elena fæddist 1984 í Úkraínu, byrjaði að teikna mjög ung. Til 5. janúar. Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sig- urðardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson sýna í Kling & Bang gallerí, Laugavegi 23. Sýningin heitir Ljósaskipti-Jólasýning Kling og Bang og stendur til 28. janúar. Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des- ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Musée des beaux-arts í Bordeaux í Frakk- landi, 52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verkum Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið kl. 11–17, lokað mánudaga. Ókeypis aðgangur. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn- ingunni. Listasetur Lafleur | Sölusýning stendur nú yfir í Listasetri Lafleur á myndverkum Benedikts S. Lafleur. Benedikt sýnir þar myndaskúlptúra sína og glerlistaverk. Myndaskúlptúrarnir eru nýjung í myndlist þar sem þau sameina listform á frumlegan hátt. Gestir geta notið bókakaffis Lafleur- útgáfunnar og slakað á í jógarými. Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýningin stendur til áramóta, opið á verslunartíma. Skaftfell | Haraldur Jónsson sýnir „Fram- köllun“ í Skaftfelli, menningarmiðstöð á Seyðisfirði. Bjargey Ólafsdóttir sýnir vinnuteikningar; „ég missti næstum vitið“ á Vesturveggnum. www.skaftfell.is Smiðjan-Listhús | Jólasýning Smiðjunnar- Listhúss, Ármúla 36, stendur nú yfir. Gömlu meistararnir í bland við yngri lista- menn þ.á m Þorvald Skúlason, Jón Stef- ánsson, Jóhann Briem, Kjarval, Hafstein Austmann, Valgarð Gunnarsson, og Tolla svo fátt eitt sé nefnt. Opið virka daga kl. 10–18 og laug. kl. 12–17. Allir velkomnir. Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð- minjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingimundar og Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga anda jólanna á sjöunda áratugnum. Margt í þeim ætti að koma börnum í jólaskap og fullorðna fólkið þekkir þar vafalaust hina sönnu jólastemningu bernsku sinnar. Þjóðminjasafn Íslands | Í Myndasal Þjóð- minjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðar- sonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Myndirnar tók hann við störf og ferðalög á tímabilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýning á útsaumuðu handverki listfengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson, textíl- og búningafræðings. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend- ur yfir á Bókatorg í Grófarhúsi, Tryggva- götu 15, 1. hæð, sýningin „ … hér er hlið himinsins“ sem Borgarskjalasafn Reykja- víkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Að- gangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands – háskóla- bókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóðdeildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasögum til Íslands í gegnum aldirnar. Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýningin stendur yfir til 31. desember. Sjá heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns | Í húsnæði Seðlabankans að Kalkofnsvegi 1 hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís- lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu safnsins. Þar er einnig kynningarefni á margmiðlunarformi um hlutverk og starf- semi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn um aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Sýningin er opin mán.–fös. kl. 13.30–15.30. Norska húsið í Stykkishólmi | Í Norska húsinu er jólastemningin allsráðandi og húsið er skreytt hátt og lágt. Heimsókn í Norska húsið á aðventunni er sannkallað ævintýri fyrir börn á öllum aldri og ógleym- anleg upplifun. Í krambúð hússins er jóla- krambúðarstemning og boðið er upp á heitan epladrykk og piparkökur. Til 23. des- ember. Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönn- uðum í samhengi við íslenska náttúru. Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Handritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er ævin- týralegt ferðalag gegnum 1.200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar, fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihúss. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Bækur Þjóðmenningarhúsið | Upplestrarserían Jólahrollur í hádeginu fer fram í Þjóðmenn- ingarhúsinu kl. 12.15 dag hvern til jóla. Í dag les Páll Kristinn Pálsson úr bók sinni og Árna Þórarinssonar, Farþeginn. Súputilboð á veitingastofunni. Safnbúð með forvitni- legum bókum og öðrum gripum. Skemmtanir Aflagrandi 40 | Jólasúkkulaði: Dagskráin hefst með stór-bingói kl. 14 föst. 22. des. Barnakór Neskirkju syngur, Gerður G. Bjarklind les upp, Magga Stína syngur jóla- lög, Vinabandið leikur fyrir dansi. Jólalegt meðlæti. Allir velkomnir. Uppákomur Barinn | PhuNk-hópurinn verður með uppákomur á BARNUM á Laugavegi 22. Þar verða myndverk til sýnis, föt til sölu, gjörningar í kringum atburðinn og Dj-ar til að halda uppi stemningu. Þjóðminjasafn Íslands | Bjúgnakræki má búast við 20. des. og hann kemur í Þjóð- minjasafnið kl. 11. Bjúgnakræki þykir best að borða bjúgu og pylsur og stelur þeim hvar sem hann kemst í færi. Börn eru sér- lega velkomin og ókeypis inn. Fyrirlestrar og fundir Orkugarður | Robert Zierenberg, prófess- or við Háskólann í Kaliforníu, Davis, fjallar um jarðhitaummyndun á rekhryggjum á sjávarbotni kl. 13. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Sjá nánar á vef Orkustofnunar www.os.is. Fréttir og tilkynningar Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti matvælum, fatnaði, leikföngum, borð- búnaði o.fl. alla miðvikudaga kl. 13–17 í Eskihlíð 2–4 í fjósinu við Miklatorg. Út- hlutun á matvælum alla miðvikudaga kl. 15–17. Sími 892 9603. Úthlutun til fólks óháð búsetu og kyni. Fjölskylduhjálpin hvetur landsmenn að gefa fatnað, leikföng og borðbúnað vegna flóamarkaðar í Eski- hlíð 2–4 Rvík í þágu efnalítilla fjölskyldna. Tökum á móti miðvikudaga eða eftir sam- komulagi kl. 13–17. Svarað í síma 892 9603. GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Hrjá- ir spilafíkn þig eða aðstandendur þína? Hringdu í síma 698 3888. Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins 20. desember er: 794. Börn Dimmuborgir | Jólasveinarnir í Dimmu- borgum, Mývatnssveit, taka á móti gestum á Hallarflöt frá kl. 13 til 15. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | Jóla- sveinn dagsins kíkir í heimsókn í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinn í dag kl. 14. Hann mun segja sögur af lífinu í fjöllunum og frá ýmsu sem á daga hans hefur drifið. Fyrir þá sem vilja koma fyrir hádegi er lesin jólasaga í fjósinu kl. 10.45. Kíktu í heim- sókn. Opið frá kl. 10–17. www.mu.is. Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sér- kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla- hús og sitthvað sem tengist jólasveinun- um, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börnunum til að skilja hin skrýtnu nöfn jólasveinanna. staðurstund Tónlist Camerarctica með ljúfa tónlist Söfn Fjölbreyttar sýningar Kirkjustarf Hjálparsjóður Selfosskirkju fær góðar gjafir frá velunnurum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.