Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 55 40.000 MANNS! 450 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu - Verslaðu miða á netinu Eragon kl. 6, 8.20 og 10.40 B.i. 10 ára Casino Royale kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 6 Hátíð í bæ / Deck the Halls kl. 5.50 Mýrin With english subtitles/M. enskum texta kl. 8 og 10.10 Borat kl. 8 og 10 Cameron Diaz Kate Winslet Jude Law Jack Black JÓLAMYNDIN Í ÁR Aðeins 500 kr. Frábær fjölskyldu- og gamanmynd sem kemur öllum í gott jólaskap eeee S.V. MBL. eeee V.J.V. TOPP5.IS. eee S.V. MBL. eee MMJ, KVIKMYNDIR.COMKVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK 80.000 gestir! Now with english subtitles in Regnboginn -bara lúxus Sími 553 2075 Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 B.I. 10 Sýnd kl. 6 ÍSL. TAL www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6 og 9 Sýnd kl. 8 og 10.15 Strangl. B.I. 16Sími - 551 9000 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30. Vinnustofa opin frá kl. 9. Postulíns- málun frá kl. 10. Gönguhópur kl. 11. Frjáls spilamennska alla daga. Hádegismatur kl. 12–13. Miðdegiskaffi kl. 15–16. Allir velkomnir. Árskógar 4 | Kl. 8.15 bað, kl. 10–11.30 heilsugæsla. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað- gerð, spiladagur, blöðin liggja frammi. Dalbraut 18 – 20 | Félagsstarfið er öllum opið. Fastir liðir eins og venju- lega. Kíkið við, gluggið í Moggann og hin blöðin og fáið ykkur rjúkandi kaffi hjá Erlu og Rósu. Jólahlaðborð kl. 17 föstudag 15. des. Uppl. 588 5533. Handverksstofa Dalbrautar 21–27 er opin frá kl. 8 til 16 virka daga. FEBÁ, Álftanesi | Litlakot kl. 13–16. Jólastund. Bjartur Logi Guðnason organisti og Jóhanna Ósk Valsdóttir söngkona flytja jólatónlist. Heitt súkkulaði og jólakökur. Akstur annast Auður og Lindi, sími 565 0952. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofa FEBK, Gullsmára 9, er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 10–11.30. Viðtalstími FEBK í Gjábakka á miðvikudögum kl. 15–16. Félagsvist í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga kl. 10 frá Stangarhyl 4. Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl. 9.30. Handavinna kl. 10. Félagsvist kl. 13. Bobb kl. 17. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Myndlistanámskeið kl. 9. Postulíns- námskeið kl. 13. Bridshópur kl. 13. Grettissaga kl. 16. Postulínsnámskeið kl. 16. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30. Brids spilað í Garðabergi eftir hádegi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar. Í hádeginu er skötuveisla í Kaffi Bergi, allir vel- komnir. Frá hádegi spilasalur opinn. Á morgun kl. 14 er jólahelgistund í sam- vinnu við Fella- og Hólakirkju, á eftir er hátíðarkaffi í Kaffi Bergi. Strætis- vagnar S4, 12 og 17 stansa við Gerðu- berg. Allar uppl.á staðnum og í síma 575 7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin, postulínsmálun. Kl. 10 fótaaðgerð. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi. Kl. 9 hárgreiðsla, sími 894 6856. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Línudans kl. 11. Glerskurður kl. 13. Saumar kl. 13. Pílukast kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, silki- og gler- málun. Samverustund kl. 10.30. Böð- un fyrir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrting 517 3005/ 849 8029. Hæðargarður 31 | Það eru allir vel- komnir í félagsstarfið. Endilega kom- ið við, kíkið í blöðin og fáið ykkur kaffisopa! Tilvalið að bjóða allri fjölskyldunni í síðdegiskaffi undir stóra jólatrénu okkar. Fastir liðir eins og venjulega og auk þess alltaf eitt- hvað nýtt á hverjum degi! Maður er manns gaman! Uppl. 568 3132. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfræðingur frá heilsugæslunni kl. 10. Verslunarferð í Bónus kl. 12. Handavinnustofur kl. 13. Kaffiveit- ingar kl. 14.30. Fótaaðgerðarstofan sími 552 7522. Hárgreiðslustofan sími 552 2488. Morgunblaðið liggur frammi í setustofunni. Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 9 opin fótaaðgerða- stofa, sími 568 3838, kl. 14 félags- vist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd- mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafnistu- laug). Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–14 spurt og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinnustofan opin allan daginn, morgunstund og söngur kl. 10, hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofa opin frá kl. 9 og eru opnar fyrir alla, Kóræfing kl. 13, söngur og dans kl. 14. Allir velkomnir. Komið og kynnið ykk- ur starfið í Félagsmiðstöðinni. Uppl. í síma 411 9450. Þórðarsveigur 3 | Kl. 13 opinn salur. Kl. 13.15 leikfimi. Kirkjustarf Bessastaðasókn | Foreldramorgnar eru í Holtakoti frá kl. 10–12, Bjartur Logi Guðnason organisti kemur og spilar jólalög. Opið hús eldri borgara er í Litlakoti frá kl. 13–16, Bjartur Logi og Jóhanna Ósk flytja jólalög og margir góðir gestir koma í heimsókn. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt- ur málsverður í safnaðasal eftir stundina. Dómkirkjan | Hádegisbænastund alla miðvikudaga. Léttur hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum veitt móttaka í síma 520 9700 og domkirkjan@domkirkjan.is Garðasókn | Foreldramorgnar hvern miðvikudag kl. 10–12.30. 13. og 20. des. gerum við jólaföndur með börn- unum, borðum piparkökur og syngj- um jólalög. Fjölmennum og höfum gaman af. Gott tækifæri fyrir mömm- ur og börn að hittast og kynnast. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir- bænir, léttur hádegisverður á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, organ- isti Hörður Bragason. Allir velkomnir. TTT fyrir börn 10–12 ára í Rimaskóla kl. 17–18. TTT fyrir börn 10–12 ára í Korpuskóla kl. 17–18. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8 árdegis með altarisgöngu og einföld- um morgunverði eftir messuna. Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar eru í Hjallakirkju á miðvikudögum kl. 10–12. Tólf spora námskeið er á miðviku- dögum kl. 20 í Hjallakirkju. Kristniboðssalurinn | Samkoma verður í Kristniboðssalnum Háaleitis- braut 58–60 miðvikudaginn 20. des- ember kl. 20. „Orðið varð hold.“ Hall- dóra Lára Ásgeirsdóttir talar. Bjarni Gíslason segir frá götubörnum í Addis Abeba. Kaffi eftir samkomuna. Allir eru velkomnir. Laugarneskirkja | Athugið að ekkert barnastarf er í Laugarneskirkju í dag, en boðið verður upp á Jólasöngva barnanna kl. 16 á aðfangadag og sunnudagaskóla á jóladag kl. 14 um leið og hátíðarmessa fer fram. ÞAÐ er komin hefð á jólatónleika Stór- sveitar Reykjavíkur með Bogomil Font og nú er kominn út jólaplata með þeim og sú er aldeilis skemmtileg – full af sprelli og húm- or einsog Bogomil er einum lagið. Samúel Jón útsetur flest lögin, ut- an þrjú sem Daniel Nolga- ard hefur skrifað upp, og stjórnar hljómsveitinni af miklum jólakrafti. Helstu söngstjörnur Bandaríkj- anna svinga jafnan jóla- slagarana og það gerir Stórsveitin með miklum ágætum. Textar Bogomils við hin ýmsu lög leiftra af kímni og sólóar helstu einleikara Stórsveitarinnar eru stuttir og hnitmiðaðir. Þeir fá flestir að þeyta nokkra takta í „Hinsegin jólatré“, þarsem Sigtryggur fer á kostum í textagerð og söng. Sama má segja um söng hans í „Ég sá mömmu kyssa jólasvein“. Á tónleikum hefur hann á stundum skellt pabba í mömmuhlutverkið, en hér fær Hinrik Bjarnason að ráða ferð. „Majones jól“ og „Mele kalikimaka“ eru perlur, og sama má segja um „Söng jólasveinanna“ eftir Jónas og Jón Múla, þótt það falli ekki að svinglín- unni eins kabarettlegt og það er í eðli sínu. Bogomil sleppur sæmilega frá Jóni bassa og Jóhönnu Erlings, „Jólin allstaðar“, en ræður ekki allskostar við „Jólavalsinn“ hans Samma. Þrátt fyrir það fullyrði ég að hann sé besti krúner sem við höfum eignast síðan Haukur, Clausen og Raggi Bjarna komu fram á sjónarsviðið, en Sigtryggur mætti oftar bregða sér í gervið. Þetta er ekki fyrsta jóladjassplatan íslensk; það var skífa Kristjönu Stefánsdóttur: Ég verð heima um jólin. Hún kom fyrst út fyrir tíu ár- um og seldist fljótlega upp. Nú hefur Dimma endurútgefið hana í nýjum búningi. Krist- jana var orðin glettilega góð söngkona í ár- daga ferils síns áður en hún hélt til Den Haag í framhaldsnám. Björt röddin og inn- borin sveiflan er aðall hennar hér sem nú. Það er skemmtilegt hversu vel þessi skífa hefur elst, ef undan eru skilin samsöngs- lögin tvö, og gæti þessvegna verið tekin upp í ár. „Þorláksmessukvöld“ (The Christmas Song Mel Torme) og „Hvít jól“ (White Christmas Irvings Berlins) eru enn fersk en kannski er einna skemmtilegust útfærsla kvartettsins á spænsku jólalagi við ljóð Friðriks heitins Guðna: „Á jólunum er gleði og gaman“. Þeir Selfyssingar, Vignir Þór Steingrímsson píanisti, Smári Kristjánsson bassaleikari og Gunnar Jónsson trommari, eru pottþéttir í spilamennsku sinni og Vign- ir á margan smekklegan sólóinn. Ég var næstum búinn að gleyma hversu gaman var að hlusta á kvartett Kristjönu á Selfossi í gamla daga. Kristjana og kvartett Sigurðar Flosasonar eru útnefnd til íslensku tón- listarverðlaunanna sem flytjendur ársins, enda hafa þau verið iðin við að flytja um allt land hina stórgóðu tónlist Sigurðar við ljóð Aðalsteins Ásbergs af tvö- falda geisladisknum Hvar er tunglið? Nú eru lögin 24 komin út á nótum og eiga því söngvarar og hljóðfæraleikarar greiðan að- gang að lögunum. Þetta er önnur nótnabók- in sem út kemur með íslenskum djasslögum, en á vaðið reið Tómas R. Einarsson með Tómasarbiblíu sína. Yfirleitt er laglínan skrifuð einradda og hljómar með og ljóðin undir. Hver einasti tónlistarskóli landsins ætti að eiga þetta hefti, svo og söngvarar sem hafa tilfinningu fyrir sveiflu. Vonandi verður framhald af íslenskri djass- nótnaútgáfu og þá geta íslenskir djass- listamenn snúið sér í ríkara mæli að því að leika verk eftir kollegana í stað erlendra djassstandarða. Frágangur allur er fyrsta flokks. Jóladjass TÓNLIST Geisladiskar og nótur Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur: Majones jól Stjórnandi Samúel Jón Samúelsson. SR 0001. 2006. Kvartett Kristjönu Stefánsdóttur: Ég verð heima um jólin Dimma. DIM 24. 2006. Sigurður Flosason og Aðalsteinn Ásberg Sigurðs- son: Hvar er tunglið? 24 jazzlög. Nótnahefti. Dimma 2006. Þrjár djassplötur Vernharður Linnet HALDIÐ verður upp á aldarafmæli belgíska teiknarans Hergés, eða Georges Remi, eins og hann hét fullu nafni, á næsta ári. Hergé er þekktastur fyrir sögurnar um blaðamanninn Tinna og fylgifiska hans, en hann fæddist í maí ár- ið 1907. Gefin verða út frímerki af þessu til- efni, sýningar haldnar og safn tileinkað Hergé verður opnað í Belgíu. Í Pompidou-safninu í París var í gær opnuð sýningin „Hergé“, sem standa mun til 19. febr- úar. Í Musée des Beaux-Arts í Brussel verður sýningin Hergé og list opnuð í mars, í kjölfar- ið á sýningu sem kallast Tinni og bílarnir. Í Stokkhólmi verður sýningin Tinni, Kol- beinn og skipin opnuð í júní í Sjóminjasafninu, en þessi sýning kemur frá París, þar sem um 300.000 manns sáu hana. Í Quebec-borg í Kanada verður sýningin Í Perú með Tinna opnuð 6. janúar í Musée de la Civilisation. Í Belgíu, Frakklandi og Sviss verða gefin út sérstök afmælisfrímerki, og í London verður sett upp leikrit um Hergé og gamansöngleikur í Hollandi. Þá verður á næsta ári hafist handa við byggingu Musée Herge í bænum Louvain-la- Neuve í Belgíu, og á að opna það 2009. Hergé lést árið 1983. Hergé hundrað ára Tinni Hergé hefði orðið hundrað ára á næsta ári. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.