Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Misheppnaðar opinberar
byggingar
NÝLEGAR skemmdir á náttúru-
gripum leiða hugann að niður-
gröfnum kjallara Þjóðarbókhlöðu
sem umflotin er kastalasíki. Það
hefði betur átt við Alþingishúsið.
Hvernig er varið hitaveitulögnum
um sali Þjóðarbókhlöðu? Hin fárán-
lega bygging Þjóðminjasafns með
inndreginni hæð og lekastöðum á
samskeytum sem orsaka vatns-
skemmdir í gegnum árin á safninu
og við endurnýjun hússins var bygg-
ingaforminu ekki breytt. Þessi galli
á byggingunni er búinn að kosta of-
fjár í gegnum árin og skemmdum á
munum og minjum. Reglur hafa orð-
ið til þess að ekki hefur mátt breyta
arkitektúr hússins. Hvað eru mis-
heppnaðir arkitektar búnir að kosta
þjóðina í gegnum árin?
Einar Vilhjálmsson.
Vel heppnuð árshátíð
ÁRSHÁTÍÐ Félags eldri borgara
var haldin í húsi Ferðafélags Íslands
3. nóv. sl.
Þangað fórum við nokkrar vinkon-
ur og sáum ekki eftir því. Dagskráin
var öll hin vandaðasta. Þar voru flutt
gamanmál o.fl., einsöngur Signýjar
Sæmundsdóttur var alveg frábær.
Hátíðarræðu flutti Guðrún Helga-
dóttir, var hún hnit-
miðuð og fyndin. Fjögur
ungmenni sýndu dans,
með miklum tilþrifum.
Gaman var að sjá örygg-
ið og ánægjuna í svip
þeirra. Þau stóðu sig
með prýði. Fleira var á
dagskrá en svo fór að
berast ilmandi matar-
lykt. Þá vissum við að
maturinn var á næsta
leiti. Ekki urðum við
vonsviknar því maturinn
var huggulega fram bor-
inn, sérstaklega var
kjötið fínt skorið, sem gerði það enn
lystugra. Þetta var vel útilátin mál-
tíð. Svo fór að líða á kvöldið, byrjaði
þá hljómsveitin að spila og hleypti
fjöri í mannskapinn.
Nokkrir herrar voru svo huggu-
legir að bjóða okkur upp í dans, svo
við þyrftum ekki að sitja allan tím-
ann, eða dansa hver við aðra. Fyrir
þetta vorum við þakklátar. Svo var
dansleiknum lokið og við þrömm-
uðum heim á leið. Saddar og sælar
en allsgáðar eftir að hafa notið þess-
arar frábæru skemmtunar. Þess
vegna langar mig að koma á fram-
færi litlum þakklætisvotti fyrir
þessa ánægjulegu kvöldstund sem
var þeim til sóma er að þessu stóðu.
Kær kveðja,
Sóley.
Svartur leðurhanski týndist
SVARTUR leðurhanski nr. 8, fóðr-
aður með ull og með silfurlitaðri
spennu, týndist sl. föstudag líklega í
hverfi 104 eða á Skúlagötu. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
898 4440 eða 553 5441.
Gsm-sími í óskilum
GSM-SÍMI var skilinn eftir hjá
Kjartani Snorrasyni, Snorrabraut
56b, 8. hæð. Eigandi getur vitjað
hans á staðnum eða haft samband í
síma 561 0000.
velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is.
Hlutavelta | Þessir duglegu drengir,
Sindri, 10 ára, og Magni, 8 ára, söfnuðu
5.375 kr. og færðu Rauða krossinum.
Strákarnir héldu tombólu fyrir framan
verslanir Krónunnar og 10–11 á Holt-
inu í Hafnarfirði. Félagarnir söfnuðu
dóti hjá íbúum í grennd við heimili sín
og bjuggu svo til númer á allt dótið.
Það var því allt eftir bókinni og tomból-
urnar skiluðu þeim félögum þessum
góða árangri.
Á hverju ári leggur fjöldi barna
Rauða krossinum lið með tombólu-
haldi. Framlag barnanna sannar svo
um munar að margt smátt gerir eitt
stórt því í ár verður tombólupeningum
þessa árs varið til verkefna fyrir börn í
Síerra Leóne.
Víkverji dagsins erannálaður ritsóði,
en hefur engu að síður
unun af að hafa skoðun
á íslensku máli og láta
meðferð þess fara í
taugarnar á sér. Hafi
lesandinn ekki þegar
getið sér þess til eru
orðin hér fyrir ofan
vitaskuld inngangur að
nöldri – í þessu tilfelli
málfarsnöldri. Víkverji
lætur nefnilega sér-
staklega fara í taug-
arnar á sér ofnotkun á
orðalaginu „það var
jón, sem gerði hitt og
þetta“. Til hvers að
skrifa: „Það var Jón Jónsson, sem
stofnaði fyrirtækið Svik og prettir
hf. árið 1714,“ þegar sýnu einfaldara
er að segja: „Jón Jónsson stofnaði
fyrirtækið Svik og prettir hf. árið
1714“? Er fyrri útgáfan gáfulegri?
Þykir þetta slíkt stílbragð að líkja
megi við sniðglímu á lofti? Eða er
hér einfaldlega á ferðinni hugsunar-
leysi og máldoði?
x x x
Fyrir margt löngu var Víkverjakennt að ekki mætti leggja að
jöfnu „þó“ og „þó að“ eða „þótt“.
Þetta er hins vegar gert í gríð og erg
í íslensku máli og gera þetta jafnt
annálaðir pennar sem minni spá-
menn. Var Víkverja
sagt að þó væri notað í
sömu merkingu og
samt. Nota mætti
dæmið „Sæmundur
kemur seint í ver en
siglir þó.“ Rétt eins
mætti segja „siglir
samt“. Orðið „samt“
mundi hins vegar seint
ganga í málshættinum
„margur er knár þótt
hann sé smár“, svo
dæmi sé tekið.
x x x
Í aðdraganda fæðing-arhátíðar Krists er
við hæfi að velta fyrir
sér uppruna orðsins „jól“. Orðið er
notað á Norðurlöndum og heyrist
reyndar í ensku (yule), en á sér hins
vegar ekki rætur í kristni heldur
heiðni. Í orðsifjabók Ásgeirs Blön-
dals Magnússonar er gefið að eldri
merking sé heiðið miðsvetrarblót, en
sé ætlað að um geti verið að ræða
hljóðfirringarmynd af orðinu hjól og
upphafleg merking sé því vetrar-
sólhvörf eða árshringur. Kannski er
þetta dæmi um það hvernig ákveð-
innar íhaldssemi þarf að gæta þegar
leiddur er inn nýr siður.
x x x
Það var Víkverji, sem skrifaðiþennan pistil.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og
þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp-
lokið verða. (Matt. 7, 7.)
80 ára afmæli. Í tilefni 80 ára af-mæla sinna á þessu ári, Gest-
heiðar Guðrúnar Stefánsdóttur sem
verður 80 ára hinn 21. desember og
Elinbergs Sveinssonar, sem varð 80
ára hinn 14. júlí sl. efna þau hjónin til
kaffisamsætis fyrir vini og vandamenn,
nær og fjær, fimmtudagskvöldið 21.
desember kl. 20–23 á Hótel Ólafsvík.
eee
SV, MBL
BNA GEGN JOHN LENNON
THE U.S. VS.
JOHN LENNON
TÓNLISTARMAÐUR. MANNÚÐARVINUR. ÞJÓÐARÓGN.
"SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN!"
eeee
HJ, MBL
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS
WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919
DÉJÁ VU kl. 6:15 - 9 - 10:30 B.i. 12 ára
BOSS OF IT ALL kl. 5:50 - 8 - 10:10
THE U.S. VS. JOHN LENNON kl. 5:50 - 8 B.i. 12 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 5:50 LEYFÐ
THE NATIVITY STORY kl. 5:50 - 8 B.i. 7.ára
MÝRIN kl. 8 - 10:10 B.i. 12.ára
THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16.ára
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
Frá framleiðendum og
eeee
S.V. -MBL
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
GÓÐA SKEMMTUN! GLEÐILEG JÓL
VIÐ PÖSSUM BÖRNIN Á MEÐAN ÞÚ VERSLAR Í KRINGLUNNI
BÍÓPÖSSUN
JÓNAS : SAGA UM ... m.ísl. tali kl. 14:45 LEYFÐ
VALIANT m.ísl. tali kl. 13:00 LEYFÐ
JÓNAS : SAGA UM ... m.ísl. tali kl. 18:30 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m.ísl. tali kl. 16:40 LEYFÐ
FRÁ JERRY BRUCKHEIMER
(“PIRATES OF THE CARIBBEAN”)
ÓBORGANLEG GRÍNMYND EFTIR LARS VON TRIER UM ÁREKSTRA ÍSLENDINGA
OG DANA, ÞAR SEM FRIÐRIK ÞÓR OG BENEDIKT ERLINGS STELA SENUNNI.
LEIÐIN TIL BETLEHEM
BNA GEGN JOHN LENNON
HINIR FRÁFÖLLNU
JÓLASVEININN 3
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS
ENDURUPPLIFUNIN
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL.
FRÁ TONY SCOTT LEIKSTJÓRA „CRIMSON TIDE“
árnað heilla
ritstjorn@mbl.isdagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er miðvikudagur
20. desember, 354. dagur
ársins 2006
Þeir félagar Steinn ÁrmannMagnússon og Davíð Þór Jóns-
son, sem þekktir eru sem Radíus-
bræður, munu leiða saman hesta
sína í kvöld. Þeir hafa verið í löngu
fríi og því mun endurkoma þeirra ef-
laust gleðja marga. Radíusbræður
eru þekktir fyrir að fara með gam-
anmál af ýmsu tagi, meðal annars í
útvarpi og sjónvarpi. Radíuskvöldið
verður haldið á Hverfisbarnum í
kvöld og hefst það klukkan 21. Að-
gangseyrir er 1.000 krónur og fylgja
léttar veitingar með.
Breski söngvarinn Robbie Willi-ams vill hætta að reykja. Willi-
ams er steinhættur að drekka áfengi
og nota eiturlyf, en hann reykir hins
vegar um 60 sígarettur á degi hverj-
um. Hann var sektaður fyrir að
reykja á sviði í Ástralíu á dögunum,
og hann er nú svo ákveðinn í því að
hætta að hann hefur pantað tíma hjá
dávaldi á gamlárskvöld. „Mig langar
alveg að hætta að reykja árið 2007.
Mér finnst því góð hugmynd að
heimsækja dávald á gamlárskvöld,“
sagði Williams, sem hefur oft reynt
að hætta að reykja. Hann hefur hins
vegar alltaf byrjað aftur, meðal ann-
ars vegna þess að hann hefur
áhyggjur af því að fitna ef hann
hættir að reykja. „Ég reyki alveg
rosalega mikið og mig langar virki-
lega að hætta. En ég er samt mjög
hræddur við að hætta. Ég er mjög
feitur að innan og um leið og ég
hætti að reykja bæti ég á mig kílóun-
um.“
Þá hefur Williams, sem er 32 ára
gamall, sagt að hann hafi engan
áhuga á að eignast börn. Hann þjáð-
ist eitt sinn af þunglyndi og hann
segist ekki hafa nokkurn áhuga á að
sjá börnin sín ganga í gegnum það
sama og hann gerði. „Ég trúi því
ekki að eina leiðin að lífshamingj-
unni sé að eignast börn. Til hvers í
ósköpunum ætti maður þá að gera
það?“
Kryddpíanfyrrverandi
Geri Halliwell
hefur að undan-
förnu hjálpað
annarri fyrrver-
andi Kryddpíu,
Mel B, eftir að
hin síðarnefnda
hætti með banda-
ríska leikaranum Eddie Murphy.
Halliwell, sem er 34 ára gömul, var í
svipuðum sporum og Mel B fyrr á
þessu ári þegar hún hætti með sín-
um kærasta, Sacha Gervasi,
skömmu eftir að hafa eignast þeirra
fyrsta barn. Hún var því fljót til þeg-
ar Mel B hætti með Murphy, en Mel
er sem kunnugt er barnshafandi og
Fólk folk@mbl.is