Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 35
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið
mánud.–föstud. 11–18
laugard. 11–16
afsláttur
hefst í dag
10–70%
ÚTSALAN
MEÐAL bóka, sem komu út fyrir
jólin er bókin „Guðni í Sunnu“. Ég
fékk strax áhuga á þessari bók og
gafst tækifæri til þess að lesa hana
yfir jólin. Ég varð ekki fyrir von-
brigðum með bókina. Hún er
skemmtileg aflestrar enda hefur
Guðni Þórðarson frá mörgu að
segja, frá litríkum blaðamannsferli,
ferðaskrifstofurekstri og flug-
rekstri. Guðni telst merkur braut-
ryðjandi á sviði íslenskra ferða-
mála.
Heimur flokksblaðanna
Guðni var kornungur ráðinn
blaðamaður á Tímann. Kynntist ég
honum er ég hóf störf sem blaða-
maður á Alþýðublaðinu árið 1953. Á
þessum tíma voru Tíminn og Al-
þýðublaðið flokksblöð, Tíminn gef-
inn út af Framsóknarflokknum og
Alþýðublaðið gefið út af Alþýðu-
flokknum. Guðni gefur lesendum
innsýn í þennan heim flokksblaða
og flokksforingja. Hann skýrir frá
því að Hermann Jónasson, formað-
ur Framsóknarflokksins, hafi ráðið
hann sem blaðamann á Tímann og
síðar hafi Hermann ráðið hann sem
framkvæmdastjóra Tímans en þá
var Hermann forsætisráðherra.
Sama kerfi ríkti við útgáfu Alþýðu-
blaðsins. Guðmundur Í. Guðmunds-
son var formaður blaðstjórnar Al-
þýðublaðsins þó hann væri
utanríkisráðherra. Þannig gáfu
æðstu embættismenn landsins, for-
sætis- og utanríkisráðherra, sér
tíma til þess að vasast í dagblaða-
útgáfu fyrir flokka sína. Slíkt væri
óhugsandi í dag.
Frumkvöðull í myndablaða-
mennsku
Guðni Þórðarson vakti strax at-
hygli sem blaðamaður. Voru það
einkum myndskreyttar stórar
greinar hans um menn og málefni
sem vöktu eftirtekt en hann tók
ljósmyndirnar sjálfur. Var þetta
nýjung í íslenskri blaðamennsku
sem Guðni varð fyrstur til þess að
kynna hér.
Guðni ferðaðist mikið til útlanda
sem blaðamaður og hafði mörg járn
í eldinum sem ungur maður. Er ég
fór í mína fyrstu utanlandsferð
1954 til Danmerkur var ég sam-
ferða Guðna í flugvélinni til Kaup-
mannahafnar en hann hélt þá áfram
til Hamborgar í viðskiptaerindum
og var þá að huga að innflutningi.
Brautryðjandi í hópferðum til
sólarlanda
Ferðalög Guðna til útlanda vöktu
áhuga hans á ferðamálum. Hann
var fljótlega beðinn að vera far-
arstjóri í utanlandsferðum og í
framhaldi af því ákvað hann 1959
að stofna ferðaskrifstofu. Valdi
hann nafnið Sunna á skrifstofuna.
Guðni varð fyrstur Íslendinga til
þess að skipuleggja ódýrar hópferð-
ir til sólarlanda. Hann lagði strax
áherslu á að hafa ferðirnar ódýrar.
Hann miðaði verðið við mán-
aðarlaun Sóknarkvenna, þ.e. verð á
orlofsferð til sólarlanda t.d. til Mal-
lorka sem var uppáhaldsstaðurinn
lengi vel, en Guðni varð fyrstur til
þess að skipuleggja hópferðir þang-
að. Guðni Þórðarson vann mjög
merkilegt brauðryðjendastarf við
að skipuleggja ódýrar sólar-
landaferðir og orlofsferðir til ann-
arra landa. Það má segja að hann
hafi gert slíkar ferðir að almenn-
ingseign.
Stofnaði flugfélagið Air Viking
Umsvif Guðna Þórðarsonar í
ferðaskrifstofurekstri urðu fljótlega
mjög mikil og leiddu til þess að
hann stofnaði sitt eigið flugfélag,
Air Viking. Keypti Guðni 3 þotur
fyrir þann flugrekstur. Guðni lýsir
rekstri Sunnu og Air Viking vel í
bók sinni. Á þeim tíma sem Guðni
starfaði við þennan rekstur voru
ströng gjaldeyrishöft í gildi og allar
lántökur erlendis háðar leyfum. Á
þessum tíma sat viðreisnarstjórn
Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks við völd í
landinu. Það var ekki
vel séð af öllum að
Guðni Þórðarson skyldi
hefja millilandaflug og
rjúfa þá einokun sem
verið hafði í flugrekstr-
inum. Með því var veg-
ið að Kolkrabbanum.
Guðni tók ekki aðeins
viðskipti frá Flug-
leiðum heldur einnig
frá dótturfyrirtæki
þess, ferðaskrifstofunni
Úrvali. Guðni lýsir því vel í bók
sinni hvernig samgönguráðherra
reyndi að torvelda og
stöðva rekstur hans.
Hvað eftir annað var
honum neitað um
gjaldeyrisyfirfærslur
vegna leigu á flug-
vélum og skemmti-
ferðaskipum. Þurfti
Guðni iðulega að
ganga á fund Gylfa Þ.
Gíslasonar við-
skiptaráðherra til
þess að fá leiðréttingu
mála sinna. Guðni ber
Gylfa vel söguna.
Guðni skýrir frá því í bók sinni að
Seðlabankinn (og Alþýðubankinn) í
samráði við samgönguráðuneytið
hafi að lokum stöðvað flugrekstur
hans. Birtir Guðni minnisblað ráðu-
neytisstjóra samgönguráðuneytis
því til staðfestingar. Var ákveðið af
þessum aðilum að loka öllum reikn-
ingum Air Viking í Alþýðubank-
anum vegna skulda að því er sagt
var. Skuldir Air Viking voru þó
ekki meiri í bankanum en margra
annarra fyrirtækja sem voru í við-
skiptum þar. Vegna þessara að-
gerða stöðvaðist flugreksturinn
fljótlega. Guðni segir í bók sinni að
hér hafi verið um hreinar ofsóknir
að ræða gegn honum og fyr-
irtækjum hans til verndar Kol-
krabbanum.
Ævintýri líkast
Í bókinni er skýrt frá ýmsum
öðrum atvinnurekstri sem Guðni
stundaði eða átti aðild að. Það má
sjá í bókinni að ævi Guðna hefur
verið ævintýri líkust. Hann er kom-
inn af alþýðufólki og hóf sig upp á
eigin verðleikum og iðjusemi. Hvað
eftir annað var reynt að stöðva
hann en hann lét aldrei bugast.
Guðni er enn að þrátt fyrir háan
aldur.
Merkur brautryðjandi í ferðamálum
Björgvin Guðmundsson fjallar
um bókina um Guðna í Sunnu » Það má sjá í bókinniað ævi Guðna hefur
verið ævintýri líkust.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.