Morgunblaðið - 19.03.2007, Side 4
4 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Helgarferð til
Tallinn
19. apríl
frá kr. 39.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða frábært tilboð
á síðustu sætunum í fjögurra
nátta helgarferð til Tallinn í
Eistlandi 19. apríl. Gríptu þetta
frábæra tækifæri á helgarferð til
þessarar fegurstu borgar
Eystrasaltsins á frábærum kjörum
- fyrstur kemur fyrstur fær.
Verð kr.49.990-
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
með morgunverði í 4 nætur á Grand Hotel Tallinn
****.
Allra síðustu sætin - takmörkuð gisting!
Verð kr.39.990 -L'Ermitage
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
með morgunverði í 4 nætur á Hotel L'Ermitage
***.
***
Grand Hotel
Tallinn ****
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
LÍTIÐ ferðaveður var á landinu í
gær. Segja má að vegfarendur um
allt land hafi átt í erfiðleikum með að
komast leiðar sinnar þegar hvass-
viðri með snjókomu gekk yfir landið.
Á laugardag féllu nokkur snjóflóð á
Vestfjarðasvæðinu og þegar líða fór á
hádegi sunnudags fóru bílar að fest-
ast vegna ófærðar á Hellisheiði,
Holtavörðuheiði, í Víkurskarði og á
ýmsum öðrum vegum. Mikið rok,
nokkur ofankoma og mikill skafrenn-
ingur olli því að ökumenn á þessum
vegum sáu lítið fram fyrir sig og fest-
ust.
Barist við að halda leiðinni
til Ísafjarðar opinni
Á laugardagskvöldinu var veður
orðið slæmt á Norðvesturlandi og
féllu snjóflóð víða á Vestfjörðum.
Talið er að þrjú snjóflóð hafi fallið í
Kirkjubólshlíð milli Ísafjarðar og
Súðavíkur um kvöldið og nóttina.
Guðbjartur B. Ólafsson, starfsmaður
Vegagerðarinnar, lenti í einu flóð-
anna en slapp ómeiddur þrátt fyrir
að bíll hans kastaðist til í flóðinu. Á
svipuðum slóðum, við Kambsnes,
sátu 12 manns fastir þar til björg-
unarsveitarmenn hjálpuðu þeim til
Súðavíkur. Tvö flóð til viðbótar féllu
á Hnífsdalsveg norðan við Ísafjörð
aðfaranótt sunnudags. Ók bifreið inn
í flóðið og komu lögreglumenn far-
þegum hans til aðstoðar.
Tókst starfsmönnum Vegagerð-
arinnar að halda vegunum opnum en
á sunnudaginn var Kirkjubólshlíðinni
lokað og Óshlíðinni einnig á tímabili
vegna snjóflóða sem féllu á vegina
báða. Í gærkvöldi hafði þó tekist að
opna þessa vegi að nýju. Á laugardag
féll einnig snjóflóð á Siglufjarðarveg
og annað á leiðinni milli Ólafsfjarðar
og Dalvíkur.
Bílar skildir eftir á Hellisheiði
Hjálparsveit skáta í Hveragerði
var kölluð út um klukkan tíu í gær-
morgun þegar ökumenn gátu ekki
lengur komist greiðlega yfir Hellis-
heiði og var veginum lokað í kjölfarið
og bílum beint á Þrengslaveg. Reynt
var að opna heiðina klukkan tvö en
síðdegis varð að loka veginum aftur.
Hátt á þriðja tug bíla festist og
þurftu margir að skilja bíla sína eftir
á heiðinni. Hjálparsveit skáta var
með tvo bíla og átta menn við störf og
tókst að ná öllum bílum niður af heið-
inni í gærkvöldi.
Eitthvað var um árekstra sökum
veðursins á þessum slóðum. Fjórir
bílar lentu í árekstri nærri Hvera-
gerði í gærmorgun og jeppi keyrði
aftan á kyrrstæðan fólksbíl síðdegis.
Farþegar fólksbílsins, þrír útlend-
ingar ásamt barni, voru fluttir á
slysadeild en meiðsl þeirra voru ekki
talin alvarleg. Á Þingvöllum slasaðist
enginn þegar jeppi keyrði á rútu fulla
af ferðamönnum. Var umferð hleypt
aftur á Hellisheiði í gærkvöldi.
Árekstur jepplings
og snjómoksturstækis
Nokkru færri bílar festust á Holta-
vörðuheiði en veginum þar var lokað
skömmu upp úr hádegi eftir að
björgunarsveitir frá Hvammstanga
og Varmalandi voru kallaðar út til að
aðstoða vegfarendur. Tveir minni
háttar árekstrar urðu en klukkan
fjögur hafði tekist að losa alla bíla úr
snjónum. Höfðu þá sumir beðið í bíl-
um sínum í hátt á fjórðu klukku-
stund. Ákvað Vegagerðin í gærkvöldi
að ekki yrði reynt að moka heiðina
fyrr en nú í morgun.
Lögreglan á Akureyri fékk á ell-
efta tímanum í gærmorgun tilkynn-
ingu um árekstur jepplings og snjó-
moksturstækis í Víkurskarði.
Reyndust ökumenn ómeiddir en
jepplingurinn mikið skemmdur. Á
leið á vettvang komu lögreglumenn
að nokkrum fjölda bíla sem áttu í erf-
iðleikum með að komast leiðar sinnar
og þurfti lögreglan að snúa þeim við
og leiðbeina í gegnum bylinn. Björg-
unarsveitin á Svalbarðseyri var
skömmu síðar kölluð út og hjálpaði
ökumönnum tveggja bíla úr ófærð-
inni. Var skarðinu lokað í kjölfarið en
óvíst var í gærkvöldi hvenær það yrði
opnað á ný.
Fjölmargir vegir aðrir voru ill-
færir eða lokaðir. Vatnsskarð var
ófært til Borgarfjarðar eystra og
ekkert ferðaveður var í gærkvöldi frá
Mývatnssveit að Höfn í Hornafirði.
Var m.a. ófært milli Hafnar og
Djúpavogs vegna grjóthruns.
Ófærð víða um land
Á þriðja tug bíla festist á Hellisheiði Holtavörðuheiði og Víkurskarð lokuð vegna slysa og
blindbyls Snjóflóð tepptu vegi á Vestfjörðum Starfsmenn Vegagerðarinnar urðu frá að hverfa
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Fastur Fjölmargir ökumenn þurftu aðstoð til að komast leiðar sinnar í gær. Þessir menn hjálpuðust að við að
koma bíl af stað eftir að hann festist í ófærð á Ísafirði. Almennt voru þó fáir á ferli enda ekkert ferðaverður.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Snjóflóðahætta Veginum frá Ísafirði til Súðavíkur var lokað síðdegis í gær vegna snjóflóða-
hættu. Starfsmaður Vegagerðarinnar lenti í snjóflóði á veginum á laugardagskvöld.
Ljósmynd/Frank Bradford
Á vettvangi Björgunarsveitarmenn mættir á slysstað í Víkurskarði. Jepplingur á röngum
vegarhelmingi keyrði þar framan á snjóplóg. Veginum var lokað eftir óhappið.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Gerir klárt Þrátt fyrir óveður voru trillusjómenn á Ísafirði að gera línuna
klára fyrir næstu veiðiferð. Spáð er éljagangi og mun hægari vindi.