Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 6

Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 6
6 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SAMTÖKIN Framtíðarlandið kynntu í gær, undir slagorðinu „grátt eða grænt“, sáttmála um framtíð Íslands sem ráðamönnum og allri íslensku þjóðinni er boðið að staðfesta á vefsíðu samtakanna eða með smáskilaboðum. Í sáttmálanum er hvatt til að unnið verði að um- hverfisvernd og framsæknu og fjöl- breyttu atvinnulífi á næsta kjör- tímabili og gert ráð fyrir að lögfest verði áætlun um náttúruvernd áður en frekar verður aðhafst í orku- vinnslu. Einnig er hvatt til þess að ís- lenska ákvæðið í Kyoto-bókuninni verði ekki notað frekar í bili en þeg- ar hefur verið gert. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti Íslands, er verndari verkefnisins, sem kynnt var á blaða- mannafundi í Þjóðmenningarhúsinu, en Andri Snær Magnason, rithöf- undur, og María Ellingsen, leikari og stjórnendaþjálfari, kynntu verk- efnið. Taka stórar ákvarðanir á miklum hraða Andri Snær gagnrýndi stóriðju- stefnu og sagði eina kynslóð vera að taka risavaxnar ákvarðanir á gríð- arlegum hraða. Með þeim áformum sem fyrir lægju um stækkun og byggingu stóriðju myndi orkuþörf aukast úr níu terawattstundum í um þrjátíu. „Núna er verið að tala um að virkja nánast tvo þriðju af öllu sem hægt er að virkja á landinu, þá er spurning, ef við erum komin í 30 terawattstundir árið 2015, á þessum hraða, munu menn vilja hætta þá?“ sagði Andri Snær. Þá gagnrýndu forsvarsmenn Framtíðarlandsins m.a. að ef fram færi sem horfði yrðu 85% af orku- framleiðslu Íslands bundin í álver- um, sem væru afar orkufrekur iðn- aður, til langs tíma, meðan allur íslenskur iðnaður notaði um 0,5 terawattstundir á ári. Engin frekari rannsóknarleyfi verði gefin út Sagði Andri tilhneiginguna þá að álver um allan heim færu stækkandi og spurði hvort ekki yrði lögð fram sú krafa að þau álver sem nú væru fyrirhuguð fylgdu þeirri þróun og yrðu stækkuð í um 500 þúsund tonn hvert. „Fullvirkjað Ísland, 2,5 milljónir tonna, myndi skila um 2.070 störf- um, eða atvinnu fyrir 0,69% þjóð- arinnar,“ sagði Andri. Í sáttmálanum er kveðið á um að áður en ráðist verði í frekari virkj- ana- eða stóriðjuframkvæmdir verði búið að afgreiða fyrsta og annan áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og áætlun- inni gefið lögformlegt vægi. Tekið er fram að þetta útiloki í bili ný álver í Helguvík og á Húsavík, sem og stækkun álveranna í Straumsvík og á Grundartanga, auk þess sem eng- in frekari rannsóknarleyfi verði gef- in út. Bjóða stjórnmálamönnum að stað- festa sáttmála Framtíðarlandsins Morgunblaðið/Sverrir Framtíðarlandið Andri Snær Magnason, Vigdís Finnbogadóttir og María Elllingsen ræða saman á blaðamanna- fundinum í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Með þeim á myndinni eru Þóra Ellen Þóhallsdóttir og Birkir Björnsson. Framtíðarlandið vill gera sáttmála um framtíð Íslands. Þessi sáttmáli, „grátt eða grænt“, var kynntur á blaðamanna- fundi í gær. Gísli Árna- son kynnti sér hug- myndir samtakanna. Á MEÐAL fyrstu stuðningsmanna sáttmálans eru eft- irtalin: Sigurbjörn Einarsson, biskup, Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time Warn- er, Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætis- ráðherra, Jón Eiríkssson, bóndi á Vorsabæ, Skeiðum, Tryggvi Guðmundsson, markaðsráðgjafi og knatt- spyrnumaður úr FH, Vilhjálmur Árnason, heim- spekiprófessor, Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndafram- leiðandi, Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor í eðlisfræði, Orri Vésteinsson, fornleifafræðingur, Bjarni Haukur Þórsson, leikari og leikhúsframleiðandi, Margrét Harð- ardóttir arkitekt, Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í fé- lagsráðgjöf við HÍ, Mugison, tónlistarmaður, Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins CCP, Margrét Vilhjálmsdóttir, leikkona, sr. Örn Bárð- ur Jónsson, sóknarprestur, Guðný Halldórsdóttir Lax- ness, kvikmyndaleikstjóri, sr. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur og prófastur, Steinunn Stefánsdóttir að- stoðarritstjóri Fréttablaðsins, Guðrún Agnarsdóttir, læknir og forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, Hjálm- ar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, Orri Vigfússon, viðskiptamaður og formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna í Norður-Atlantshafi, Sigurður Gísli Pálmason, viðskiptamaður, dr. Hörður Arnarson, for- stjóri Marels og Ólafur Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik. Fjölbreyttur hópur stuðningsmanna Eftir Bryndísi E. Jóhannsdóttur Í ÁR verður Jafn- ingjafræðsla Hins Hússins í boði fyrir unglinga sem hafa nýlokið við níunda bekk, en jafningja- fræðslan hefur yf- irleitt verið fyrir unglinga sem eru að ljúka við tí- unda bekk. Ástæðu þessarar breytingar segir Ösp Árnadóttir, framkvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar, vera þá að áhættuhegðun ungs fólks sé að fær- ast neðar samkvæmt könnunum Rannsóknar og greiningar. Jafningjafræðslan er forvarnar- starf þar sem ungt fólk ræðir við unglinga um fíkn, siðferði kynlífs, heilbrigðan lífstíl og jákvæða hugs- un. Þrír leiðbeinendur fara í fimmtán manna hópa hjá Vinnuskóla Reykja- víkur í sumar þar sem fræðslan fer fram í formi samtala við unglingana. Nú er leitað að ungu fólki til starfa hjá Jafningjafræðslunni. Unglingarnir ánægðir Almenn markmið fræðslunnar eru meðal annarra að styrkja einstak- linginn, hvetja ungt fólk til að takast á við erfiðar aðstæður á jákvæðan hátt og að vekja það til umhugsunar um að fólk ber ábyrgð á eigin lífi óháð aðstæðum. Ösp sagði í samtali við Morgun- blaðið að Jafningjafræðslan hefði mælst mjög vel fyrir í fyrra. „Ung- lingum fannst gott að tjá sig við ann- að ungt fólk sem er nálægt því í aldri og þeim sem veittu fræðsluna þótti starfið bæði þroskandi og gefandi.“ Fjölbreytni er lykillinn Í könnun sem var lögð fyrir ung- linga í Vinnuskólanum í fyrra kom fram að þeir voru sérstaklega ánægðir með sitt hlutverk í fræðslunni. Fræðsluformið er óformlegt og hópurinn stýrir um- ræðuefninu í sameiningu. Þetta býð- ur upp á virka þátttöku unglinganna. Líka er hægt að vera með nafnlausar fyrirspurnir í hópnum sem dregnar eru úr hatti í lok hverrar umræðu. Samkvæmt könnuninni þótti unga fólkinu þægilegt að hafa annað ungt fólk í forsvari, var þannig óhræddara við að bera upp viðkvæmar spurn- ingar. Starfsmenn Jafningjafræðslunn- ar, sem eru á aldrinum 16 til 25 ára, fara á tveggja vikna námskeið þar sem þeir fræðast um margvísleg málefni eins og fíkn, sjálfsmynd, leik- list, átraskanir og unglingamenn- ingu. Ösp sagði að hópurinn sem starfaði að fræðslunni í fyrra hefði verið mjög fjölbreyttur, fólk með mismunandi bakgrunn og um margt ólíkt. Fjölbreytileikinn hefði stuðlað að velgengi Jafningjafræðslunnar því hópurinn hefði verið frábær. Jákvæðni meðal jafningja Í könnun sem var lögð fyrir unglinga í Vinnuskólanum á síðastliðnu ári kom fram að þeir voru sérstaklega ánægðir með sitt hlutverk í jafningjafræðslunni Ljósmynd/Hitt húsið Fræðsla Jákvæðni, virðing og traust er markmið Jafningjafræðslunnar. Ösp Árnadóttir SEX voru teknir grunaðir um ölv- unarakstur í fyrrinótt og þurfti lög- regla að veita einum ökumannanna eftirför. Sá sinnti ekki stöðv- unarmerkjum lögreglu á Vest- urlandsvegi og veitti lögregla hon- um eftirför. Eftirförinni lauk þegar maðurinn ók bifreið sinni á lög- reglubíl sem kominn var á vettvang til að aðstoða við eftirförina á Vík- urvegi við Þúsöld. Ók drukkinn á lögreglubíl FRUMVARP til laga um aukna refsivernd handhafa lögregluvalds var samþykkt samhljóða á nýaf- stöðnu þingi. Með hinum nýju lög- um er hegningarlögum breytt á þann veg að sá, sem ræðst með of- beldi eða hótunum að opinberum starfsmanni, sem að lögum hefur heimild til líkamlegrar beitingar, skuli sæta allt að átta ára fangelsi. Fyrir breytinguna var ekki gerður greinarmunur á eðli þeirra starfa sem opinberir starfsmenn hafa með höndum, heldur aðeins kveðið á um 6 ára hámarksrefsingu við brotum gegn opinberum starfsmönnum. Fram kemur í athugasemdum við frumvarpið að rökrétt sé að refsi- vernd opinberra starfsmanna sé í réttu hlutfalli við þá hættu á lík- ams- eða heilsutjóni sem leiðir af eðli starfsins. Með lögunum sé refsivernd opinberra starfsmanna sem heimild hafa til líkamlegrar valdbeitingar, skerpt og aukin, enda lendi þeir mun oftar í þeirri aðstöðu að sæta ofbeldi eða hót- unum um ofbeldi en aðrir opinberir starfsmenn. Refsivernd lögreglu aukin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.