Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta gengur nú ekki, það er hvert einasta hundkvikindi landins búið að frétta að Japanir
nota orðið kjötið bara í hundafóður.
VEÐUR
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-maður Samfylkingar, gerði at-
hugasemd hér í blaðinu í gær við
fréttaskýringu eftir Agnesi Braga-
dóttur, blaðamann, sem birtist á
forsíðu Morgunblaðsins sl. laug-
ardag.
Í athugasemd-inni segir for-
maður Samfylk-
ingarinnar að
samþykkt hafi
verið á þing-
flokksfundi
flokksins hinn 5.
marz sl. að efna
til blaðamanna-
fundar á vegum
stjórnarand-
stöðuflokkanna vegna stjórn-
arskrármálsins. Síðan segir Ingi-
björg Sólrún um fréttaskýringu
Morgunblaðsins:
Þar er því haldið fram að ÖssurSkarphéðinsson hafi efnt til
fundarins í „fullkominni óþökk
flestra samfylkingarmanna“, eins
og það er orðað. Það er einfaldlega
ekki satt og rakalaust með öllu hjá
blaðamanni Morgunblaðsins.“
Hvað sagði Agnes Bragadóttir ífréttaskýringu sinni? Hún
sagði eftirfarandi:
„Formaður Samfylkingarinnar,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kann
svila sínum Össuri Skarphéðinssyni
litlar þakkir fyrir þann einleik, sem
hann hefur í nafni Samfylking-
arinnar leikið í auðlindaákvæð-
ismálinu í fullkominni óþökk flestra
Samfylkingarmanna, samkvæmt
mínum heimildum.“
Hvar er talað um blaðamanna-fund? Hvergi.
Hvernig stendur á því að Ingi-
björg Sólrún fer með svona slúður?
Hvernig stendur á því að Ingibjörg
Sólrún fer með rakalaus ósannindi?
Hvernig stendur á því að Ingibjörg
Sólrún heldur uppi „ómálefna-
legum árásum“ á starfsfólk Morg-
unblaðsins?
STAKSTEINAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Slúður Ingibjargar Sólrúnar
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
!
"##
!
!
$
%%#
%!% &% &
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
!
9
)#:; %%%%
! "
) ##: )
'!()%
%(%
*
<1 <
<1 <
<1
'
) %+ # ,%-
.
=
< >76
/(% )%! %
%
%
%( # 0%%
%
%
% &
1 % ( &
1( %$ "%
% $
%
0%% % % # &
1 %! ) %
&
5
1
'%%
, %
% "##
% %%!%( (
#0%%
%)%
% "
22% % &%%1 #%(&
3" %!%22
%!%4
%+ #
2&34 ?3
?)<4@AB
)C-.B<4@AB
+4D/C (-B
&
& 5
0
60
0
&
&
& & 5&
& 5& 5& 5&
5&
& 5
& & 0
0
0
0
60
60
60
0
0
0
0
0 60
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Helgi Jóhann Hauksson | 17. mars
Afhverju ekki 16 ár?
Það hefur verið sví-
virða lengi á Íslandi að
14 ára eigi börn að telj-
ast kynferðilega sjálf-
ráða, þannig að þegar
þeim aldri væri náð frí-
aði það fullorðið fólk
ábyrgð á kynathöfnum sínum með
börnunum [...]. Í USA er þessi aldur
18 ára en víðast í Evrópu 16 ára. Af-
hverju hækkuðu þeir það ekki í 16 ár
nú í stað 15? Það er enginn að tala
um að þessi mörk séu notuð gegn
jafnöldrum [...].
Meira: hehau.blog.is
Gunnar Pétur Garðarsson | 17. mars
Skref í rétta átt
Þetta er skref í rétta
átt og mikið er ég feg-
inn, það var ótækt að
brot gegn börnum gátu
yfir höfuð fyrnst en
með þessu frumvarpi
er komið í veg fyrir
það. [...] ég er nú ekki löglærður en
mér finnst það ekki vera brot á
mannréttindum eins eða neins ef
hann er lögsóttur fyrir brot sem
hann framdi, óháð því hvað langt er
um liðið síðan brotið var framið. En
svona er þetta nú, [...].
Meira: gunnarpetur.blog.is
Ágúst Ólafur Ágústsson | 18. mars
Uppskeran
Mitt fyrsta þingmál
laut að því að afnema
þessa fyrningarfresti.
Á hverju ári þessa
kjörtímabils hef ég svo
lagt frumvarpið fram
og það var þess vegna
sérstaklega ánægjulegt að kjör-
tímabilið skyldi enda á því að þessi
mikilvæga réttarbót næðist fram.
Mjög margir hafa tekið þátt í bar-
áttunni fyrir afnámi fyrningarfrests
í kynferðisafbrotum gegn börnum.
Meira: agustolafur.blog.is
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir | 18. mars
Trúin á hagvöxtinn
Ef við gerum ráð fyrir
því að stjórnmálamenn
trúi á það sem skiptir
þá mestu máli þá ligg-
ur fyrir að þeir trúa
margir á hagvöxtinn.
Þjóðin og samfélagið á
að fórna öllu á altari hagvaxtarins til
þess að hann megi vaxa. Karl Marx
og Margaret Tatcher áttu það sam-
eiginlegt að þau trúðu því (og athug-
ið þetta eru trúarbrögð) að efna-
hagsleg gæði væru það eina sem
skipti máli í samfélaginu. Ef efna-
hagsleg gæði væru tryggð þá myndi
allt annað fylgja í kjölfarið. En er
það svo ? Nú hefur efnahagsleg vel-
sæld verið lengi há á Íslandi. Samt
sem áður virðist tillitsleysi í sam-
félaginu hafa aukist og harkan í dag
er meiri en nokkru sinni fyrr. Hvað
gerist ef ofuráhersla er lögð á efn-
isleg gæði en aðrar þarfir mannsins,
samfélagslegar, lýðræðislegar og
trúarlegar eru virtar að vettugi ? Í
kapítalískum samfélögum nútímans
er hagvöxturinn guð, hagspeking-
arnir prestarnir og altarið í banka-
kerfinu. Er nema von að fólk sé
óhamingjusamt ? Okkur er einnig
sagt að við neyðumst til að fórna
náttúrunni á altari hagvaxtarins.
Þjóðin skal gera allt til þess að auka
hagvöxt, einnig selja landið í hendur
erlendum stórfyrirtækjum. Er ekki
kominn tími til þess að fólk spyrji:
Hvað er það sem raunverulega
skiptir mestu máli ?
Meira: ingibjorgelsa.blog.is
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir | 16.
mars
Kom ekki á óvart
Það fór eins og við
var að búast að tákn-
málsfrumvarpið kæm-
ist ekki í gegn, ég ótt-
aðist einmitt að þessi
staða kæmi upp. Þetta
ber vissulega að harma
og það letur mig ekkert í að ná þessu
fram í fjórða skiptið á næsta kjör-
tímabili, það eflir mig frekar en let-
ur. Það er bara svona og var vitað
fyrirfram að bætt aðgengi og vel-
ferðarmál í bland sem sögð eru sjálf-
sögð mannréttindi er ekki að finna í
stjórnsáttmála þessarar rík-
isstjórnar.
Meira: sms.blog.is
BLOG.IS
BIRGIR Há-
konarson fram-
kvæmdastjóri
umferðaröryggis-
sviðs Umferðar-
stofu hefur verið
ráðinn til að vera
samhliða starfi
sínu fram-
kvæmdastjóri
Umferðarráðs.
Óli H. Þórðarson lét af störfum sem
formaður og framkvæmdastjóri Um-
ferðarráðs 1. október sl. eftir ára-
tuga störf í þágu umferðaröryggis á
Íslandi.
Birgir mun ásamt Kjartan Magn-
ússyni borgarfulltrúa, formanni Um-
ferðarráðs, hafa umsjón með þeim
störfum sem varða Umferðarráð.
Umferðarráð er skipað 24 fulltrúum,
sem tilnefndir eru af ýmsum aðilum
sem rétt eiga til að velja fulltrúa til
að hafa áhrif á málaflokkinn.
Umferðarráð sendi á síðasta fundi
frá sér ályktun þar sem fagnað er
þeim fyrirætlunum, sem fram koma í
tillögu samgönguráðherra til þings-
ályktunar um samgönguáætlun, að
haldið verði áfram kerfisbundnum
aðskilnaði akstursstefna á fjölförn-
ustu þjóðvegunum í nágrenni
Reykjavíkur.
„Þrátt fyrir að breikkun Reykja-
nesbrautar sé ekki lokið, hefur sú
framkvæmd þegar fækkað alvarleg-
um slysum á brautinni og sannað
gildi sitt í þágu umferðaröryggis. Í
tillögunni er kveðið á um að aksturs-
stefnur verði einnig aðskildar á um-
ferðarþungum köflum Suðurlands-
vegar og Vesturlandsvegar út frá
Reykjavík.
Umferðarráð telur að aðskilnaður
akstursstefna á Suðurlandsvegi milli
Reykjavíkur og Selfoss og á Vest-
urlandsvegi milli Reykjavíkur og
Borgarness séu einhverjar brýnustu
aðgerðir í umferðaröryggismálum
hérlendis um þessar mundir og hvet-
ur Alþingi til að flýta þeim eins og
kostur er. Rannsóknir sýna að
óverulegur munur sé á umferðarör-
yggi svonefndra 2+1 og 2+2 lausna
en kostnaðarmunur er hins vegar
mikill 2+1 lausninni í hag. Það er því
skoðun Umferðarráðs að heppileg-
ast sé að hefja sem fyrst fram-
kvæmdir við breikkun umræddra
vegarkafla með 2+1 framkvæmd
með þeim valkosti að unnt verði síð-
ar að breikka þá enn frekar í 2+2
vegi. Með því móti nýtist fjármagnið
best í því skyni að hámarka umferð-
aröryggi umræddra vegarkafla á
sem skemmstum tíma auk þess sem
unnt verði að fara í nauðsynlegar
umferðaröryggisaðgerðir annars
staðar í vegarkerfinu,“ segir í álykt-
un Umferðarráðs.
Framkvæmdastjóri
Umferðarráðs
Birgir Hákonarson