Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 10

Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 10
10 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ● ÁRNI Þór Sig- urðsson segir í Morgunpósti Vinstri grænna að ef samstjórn Vg og Samfylking- arinnar eigi að verða að veru- leika þurfi Sam- fylkingin að ná fylgi frá stjórn- arflokkunum. „Í vor er sögulegt tækifæri til breytinga. Undanfarinn hálfan ann- an áratug hefur verið við völd hér á landi ríkisstjórn undir forystu Sjálf- stæðisflokksins, fyrst í samstarfi við Alþýðuflokkinn heitinn en lengst af með Framsóknarflokkinn í kjöltu sinni. Margar vísbendingar eru um að nú sé loks runninn upp tími breytinga í íslenskum stjórnmálum. Morgunblaðið hefur birt niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup ger- ir fyrir blaðið og Ríkisútvarpið. Sam- kvæmt könnuninni vilja flestir að Samfylkingin og Vinstri græn myndi næstu ríkisstjórn. Jafnframt kemur fram að um 60% kjósenda vilja að Vinstri græn verði í næstu stjórn, álíka margir og nefna Sjálfstæð- isflokkinn. Það er mikil eftirspurn eftir Vinstri grænum áherslum í næstu landsstjórn. Þessar nið- urstöður eru um margt áhugaverðar. Það er greinileg þreyta meðal þjóð- arinnar með langa stjórnarsetu nú- verandi stjórnarflokka og eftirspurn eftir nýrri og kröftugri ríkisstjórn. Kjósendur sjá það helst gerast með því að Vinstri græn og Samfylkingin nái meirihluta saman. Skoð- anakannanir að undanförnu benda til að slík stjórn gæti orðið að veru- leika. Einkum ræður þar hin sterka staða Vinstri grænna í hverri könn- uninni á fætur annarri en jafnframt er ljóst að Samfylkingin þarf að ná betur vopnum sínum ef róttæk og víðsýn velferðar- og jafnaðarstjórn á að verða að veruleika. Til þess þarf hún að sækja fylgi inn í raðir núver- andi stjórnarflokka. Í mínum huga er engum blöðum um það að fletta að samstjórn Vg og Samfylkingar yrðu mikil tíðindi í íslenskum stjórn- málum og myndi valda mestum straumhvörfum. Greinilegt er að það er einnig sjónarmið flestra sem svöruðu í þessari Gallup-könnun. Þá er vitaskuld líka athyglisvert hversu margir kjósendur vilja að við Vinstri græn verðum þátttakendur í næstu stjórn. Um það bil jafn margir vilja Vg í stjórn og þeir sem vilja Sjálf- stæðisflokkinn og hefðu það nú ein- hvern tímann þótt tíðindi. Meira en þriðjungi fleiri nefna Vg til sögunnar en Samfylkinguna þegar spurt er hvaða flokka fólk kýs helst í næstu ríkisstjórn.“ Samfylkingin þarf að sækja fylgi inn í stjórnarflokkana Árni Þór Sigurðsson 114 frumvörp urðu að lögum og 29 þingsályktanir voru sam- þykktar á Alþingi sem lauk á laugardagskvöld. Þetta kom fram í ræðu Sólveigar Pétursdóttur, forseta Alþingis, en hún stýrði Alþingi í síðasta sinn þar sem hún óskar ekki eftir endurkjöri. Sólveig sagði að þegar hún tók við embætti hefði hún látið í ljós vilja til að endurskoða þingsköp Alþingis en ekki hefði náðst sam- staða um jafn víðtæka endur- skoðun og hún hefði viljað. Nýs þings biði að taka ákvarðanir um frekari breytingar, svo sem á ræðutíma, þingnefndum og starfstíma Alþingis. Þá kom fram hjá Sólveigu, að forsætisnefnd þingsins hefði sam- þykkt að óska eftir breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Al- þingisreitinn með það í huga að fyrir liggi hvernig uppbyggingu á reitnum verður hagað þegar hafist verður handa við byggingu skrifstofuhúsnæðis á lóðum Al- þingis við Vonarstræti og Tjarn- argötu. Sagði Sólveig, að jafnframt fælist í breyttu deiliskipulagi að húsið Skjaldbreið við Kirkju- stræti yrði tekið niður en fram- hlið þess endurbyggð og að húsið við Vonarstæti 12 yrði flutt og sett við hlið Skjaldbreiðar. Þá sagði Sólveig, að fyrirhugað væri að ljúka utanhússviðgerðum á þinghúsinu í sumar. Morgunblaðið/Sverrir Kveðjustund Jón Kristjánsson, Sólveig Pétursdóttir og Halldór Blöndal sátu sinn síðasta þingfund á laugardag. 114 frumvörp urðu að lögum ALÞINGI sam- þykkti á laug- ardag þingsálykt- unartillögu þess efnis að íslenska þjóðfánanum verði fundinn staður í þingsal. Flutningsmaður var Guðmundur Hallvarðsson en þetta var í þriðja sinn sem tillagan var flutt og að þessu sinni stóð 31 þingmaður að henni. Lagt er til að fáninn verði sýnilegur við eða nærri forsetastól enda yrði það bæði Alþingi og þjóð- fánanum til sóma. ALÞINGI hefur ályktað að fela heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, í samráði við landlækni, að hefja undirbúning að skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi þannig að skipuleg leit hefjist ekki síðar en 1. júlí. Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var flutningsmaður tillögunnar ásamt þingmönnum úr þremur öðrum flokkum og í greinargerð segir: „Krabbamein í ristli og endaþarmi eru í dag orsök mikils heilsutjóns og eru þriðja algengasta dán- arorsök af völdum krabbameina meðal Íslendinga.“ ALÞINGI hefur samþykkt þings- ályktunartillögu frá Samfylkingunni um að fela ríkisstjórninni að skil- greina öll störf á vegum ríkisins sem unnt er að vinna að mestu eða öllu leyti óháð staðsetningu. Markmiðið er m.a. að auka möguleika fólks af landsbyggðinni til að gegna störfum á vegum ríkisins. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ALÞINGI hefur nú lokið störfum í bili og þing- menn fara að einbeita sér að kosningabaráttunni enda ekki nema tæpir tveir mánuðir til kosninga. Þingfundur stóð allan laugardaginn. Fyrst var stefnt að því að klára dagskrána í björtu, síðan átti að klára um kvöldmatarleytið en svo fór að lokum að fundur stóð fram yfir miðnætti. Á þessum mara- þonfundi samþykkti Alþingi fjölda frumvarpa sem verða að lögum á næstu mánuðum. Samningar náð- ust milli stjórnar og stjórnarandstöðu um hvaða mál mættu bíða betri tíma sem og um breyting- artillögur. Stjórnarandstaðan náði t.a.m. í gegn breytingum á frumvarpi um íslensku friðargæsl- una sem færa áhersluna alfarið á borgaraleg verk- efni. Þá voru vegalögin samþykkt eftir að Vinstri græn fengu í gegn breytingu á ákvæði um að Vega- gerðinni bæri að leitast við að bjóða út alla hönnun, nýbyggingar, viðhald, þjónustu og eftirlit. Alþingi samþykkti m.a. á þessum síðasta fundi sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands, sauðfjársamningana, frumvarp um gróð- urhúsalofttegundir sem felur í sér að fyrirtæki fá úthlutað eða þurfa að fjárfesta í losunarkvótum, breytingar á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, samgönguáætlun fyrir árin 2007–2010, þingsálykt- unartillögu um að forsætisráðherra skipi nefnd til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn og frumvarp um að fjármagnstekjuhafar borgi einnig í framkvæmdasjóð aldraðra. Þingmál sem ekki komust á dagskrá voru m.a. frumvarp um vátryggingasamninga sem m.a. felur í sér auknari heimildir tryggingafyrirtækja til að leita upplýsinga um viðskiptavini, frumvarp um sölu léttvíns í búðum, frumvarp um að eignarhlutur ríkisins í Orkubúi Vestfjarða og Rafmagnsveitu ríkisins gangi til Landsvirkjunar og samgöngu- áætlun hin lengri fyrir árin 2007–2018. Kjörtímabilið sem nú er að klárast hefur að mörgu leyti verið sérstakt enda sjaldan eins mikil „starfsmannavelta“ í þingsal, ef svo má að orði komast. T.a.m. hættu formenn beggja stjórnar- flokkanna störfum, þingmenn hafa farið út af þingi og aðrir komið í staðinn, auk þess sem nokkrir þingmenn hafa breytt um flokk. Margir að hætta Sá hópur þingmanna sem kemur saman að lokn- um kosningum verður talsvert breyttur, að hluta til vegna prófkjara og kosninga, en jafnframt hafa þrettán þingmenn tilkynnt formlega að þeir ætli að hætta afskiptum af pólitík. Það eru: Dagný Jóns- dóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðmundur Hallvarðs- son, Guðrún Ögmundsdóttir, Halldór Blöndal, Hjálmar Árnason, Jóhann Ársælsson, Jón Gunn- arsson, Jón Kristjánsson, Margrét Frímannsdótt- ir, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigríður Anna Þórð- ardóttir og Sólveig Pétursdóttir. Síðasti fundur Alþingis í bili Talsverð nýliðun verður á Alþingi þegar það kemur saman að nýju en nú þegar hafa þrettán þingmenn tilkynnt að þeir ætli að hætta afskiptum af pólitík ÞETTA HELST … ALÞINGI ÁLYKTAR „FUNDI er slitið“ er líklega sú setning sem fékk þingmenn til að varpa öndinni léttar á aðfaranótt sunnudags enda hefur Alþingi fundað stíft undanfarið og þennan daginn eina fjórtán tíma samfleytt. Þingmenn féllust í faðma og hat- römmustu andstæðingar breyttust í vini og vinnufélaga til fjögurra, átta, tólf, sextán, tuttugu ára. Alþingi er stundum eins og venjulegur vinnustaður, en ekki á dögum sem þessum. Alþingismenn ráða nefnilega ekki örlögum sín- um, heldur kjósendur og eftir til- vikum flokksfélagar. Þrettán þing- menn af 63 hafa þegar tilkynnt brotthvarf sitt úr stjórnmálum og hugtakið „öruggt þingsæti“ á sann- arlega ekki við í öllum tilvikum. Vinnufélagarnir sem gengu út í kosningavorið á laugardag munu ekki allir snúa til baka að loknum kosningum. Einu sinni las ég bók í samn- ingatækni sem heitir Getting to Yes: negotiating agreement with- out giving in (á íslensku: Já! Listin að semja án þess að gefa eftir). Þessi lesning kom oftar og oftar upp í huga mér á síðustu dögum þingsins. Deilur og plott undanfar- inna mánaða runnu allar saman í eitt. Komið var að uppgjörinu. Frumvörp og þingsályktun- artillögur hurfu. Sumt var svæft í nefnd, annað komst ekki á dag- skrá. Til að taka málin upp aftur þarf að leggja þau fram að nýju á næsta þingi, flytja ræðurnar aftur og há sömu bardagana. Og fjöl- miðlafólkið í bakherberginu segir fréttirnar aftur. Stjórnarandstaðan er líklega aldrei eins valdamikil og á síðustu dögum þingsins. Meirihlutinn vill ljúka þingstörfum en líki stjórn- arandstöðunni ekki við málalok getur hún rætt málin fram og aft- ur, og svo aftur og fram, ef svo ber við. Stjórnarflokkarnir eru því tilneyddir til að ganga til samn- inga; láta einhver mál liggja milli hluta og hleypa stjórnarandstöðu- málum að. Flokkarnir hafa sín markmið en það hafa líka einstaka þingmenn sem og ráðherrar. Í samningaviðræðunum völdu stjórnarandstöðuflokkarnir sér mál sem þeir höfnuðu að yrðu tekin fyrir og lofuðu kannski að tala ekki lengi um önnur mál í staðinn. Frjálslyndi flokkurinn lagðist t.a.m. gegn stofnfrumufrumvarp- inu og Vinstri græn vildu ekki sjá vegalögin í óbreyttri mynd. Sam- fylkingin fékk á dagskrá þings- ályktunartillögu um störf án stað- setningar á vegum ríkisins og fyrningarfrestur á alvarlegum kyn- ferðisbrotum gegn börnum var af- numinn á lokasprettinum. Stóra stjórnarskrárdramað setti sinn svip á síðustu daga þingsins. Úr varð að engar breytingar verða gerðar á stjórnarskrá þrátt fyrir það samkomulag sem þó náðist í stjórnarskrárnefnd um að stjórn- arskrárbreytingar færu eftirleiðis í þjóðaratkvæðagreiðslu, að gefnum ákveðnum skilyrðum. Forsætisráð- herra var ósáttur við ákvæðið eins og það kom frá stjórnarskrárnefnd og málið strandaði á rökræðum um orðalag. Ekki fór heldur svo að auðlinda- ákvæðið rataði í stjórnarskrá. For- menn stjórnarflokkanna sögðu stjórnarandstöðunni um að kenna en hún vísaði öllu til baka. Eftir stóðu fjölmiðlamenn, og líklega meirihluti þjóðarinnar, og veltu fyrir sér hvað í ósköpunum átti sér stað. Hvers vegna fór þetta mál af stað, hver var tilgangurinn og hvað nú? Allir hafa sínar tilgátur, jafn- vel samsæriskenningar. Og blaða- mennirnir reyna samviskusamlega að „skrifa söguna“, sem síðar verð- ur öll dæmd ýmist sönn eða ósönn. Meðan samningaviðræður standa yfir í þinghúsinu veit eig- inlega enginn neitt. Fólk bara heldur. Þingmenn halda, blaða- menn halda, ráðherrar halda. Átök eru milli flokka, innan flokka, milli einstaklinga, milli ráðherra, milli kjördæma, milli framkvæmdavalds og þings og svo framvegis. Það eina sem er alveg traust, og engin átök um, er mötuneytið sem hlýtur að vera með þeim betri á lands- vísu. „Getting to yes without giving in“, hugsaði ég þegar ég horfði á þreytulega þingflokksformennina ganga til enn eins fundarins og ímyndaði mér hvernig þeir næðu já-inu. „Allt í lagi, við gleymum þessu með léttvín í búðir og þið talið ekki lengi um sameiningu HÍ og KHÍ,“ og „tjah, ef þið viljið koma þessum vegalögum í gegn óbreyttum, þá skuluð þið muna að við höfum mjög mikið að segja um þau, og það getur tekið langan tíma.“ En einhvern veginn náðu þau já- inu. Samkomulag var í höfn, fundi slitið, þingmenn féllust í faðma og héldu svo út í kosningavorið. Samningar, samsæri og kveðjustundir ÞINGBRÉF Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.