Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 16

Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 16
16 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is „ÉG hef gengið með þessa hugmynd í fjögur ár eða frá því ég flutti á Akranes. Það voru nokkrir staðir sem komu til greina en þegar þetta húsnæði var laust þá var valið einfalt. Að mínu mati hefur vantað slíkan stað hér á Akranesi og miðað við þær viðtökur sem við höfum fengið frá opnun staðarins þá sýnist mér að það hafi verið rétt hjá mér,“ segir María Nolan veitingamaður í Skrúðgarð- inum á Akranesi en nýverið opnaði hún kaffihús og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í gamla miðbænum á Akranesi. „Ég held að það sé vakning á með- al þeirra sem búa hérna að það sé í raun verkefni bæjarbúa að sjá til þess að bærinn okkar blómstri. Kaffihúsið er bara viðbót við þá ágætu þjónustu sem er til staðar hér.“ Þegar tekið var hús á Maríu á nýja staðnum á laugardaginn mátti hún ekkert vera að því að ræða við blaðamann. Hópur Norðmanna stormaði prúðbúinn inn í Skrúðgarð- inn og staðurinn fylltist á auga- bragði. „Strætisvagnar Reykjavíkur eru með endastöð hérna fyrir utan stað- inn. Flestir nota Strætó áður en kaffihúsið opnar á morgnana en ég tel að það sé mjög gott fyrir bæj- arfélagið að upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn sé staðsett í hjarta bæj- arins.“ Gamalt fangelsi Á veggjum kaffihússins eru mynd- ir frá ýmsum tímum sem tengjast húsinu og sögu þess. Bæjarskrif- stofur Akraness voru lengi til staðar á efri hæðinni, tónlistarskóli, bóka- safn, lögreglustöð og fangelsi. Mynd- irnar eru því fjölbreyttar og segja frá ýmsum atvikum sem tengjast staðn- um. „Það er fólk á öllum aldri sem kemur hingað. Ég hafði svo sem ekki hugmynd um hverjir myndu koma en miðað við fyrstu vikurnar í þessum rekstri þá get ég alveg fullyrt að fólk á öllum aldri er að heimsækja okkur. Kaffihúsamenning á Íslandi er alltaf að sækja í sig veðrið og þeir sem hafa búið erlendis vilja flestir geta gengið að því vísu að slíkir staðir séu í þeirra bæjarfélagi.“ María á íslenska móður en faðir hennar er enskur, John Nol- an, og kenndi íslenskum kylfingum golfíþróttina á árum áður. „Ég er fædd og uppalin hérna á Ís- landi og ég lít á mig sem Íslending. Ég hef búið um tíma í Manchester á Englandi og ég á fjölmarga ættingja og vini á Englandi. Ég hugsa kannski aðeins öðruvísi en venjulegir Íslend- ingar enda hef ég verið mikið á flakki um veröldina. Eigum við ekki að segja að ég sé Íslendingur með enskri slettu. Ég hef ferðast mikið og um tveggja ára skeið bjó ég í Tyrk- landi þegar ég var 19 ára gömul. Það var mikil lífsreynsla og á þeim tíma var Tyrkland ekki búið að ganga í gegnum þær breytingar sem hafa orðið þar í landi á undanförnum ár- um. Ég var að vinna við að taka á móti ferðamönnum í Tyrklandi og ég hef því alltaf haft mikinn áhuga á því að fá að umgangast fólk og starfið hér á kaffihúsinu er því kjörið tæki- færi fyrir mig að halda því áfram.“ Á meðan rætt er við Maríu kemur unglingur inn á kaffihúsið til þess að leita sér skjóls úr nepjunni utandyra. „Ertu að bíða eftir Strætó vinur,“ spyr María og ungi maðurinn svarar því játandi. „Þú getur fengið þér sæti ef þú vilt,“ svarar veitingamaðurinn en drengurinn er eitthvað feiminn. Breyttir tímar „Ég held að Íslendingar séu smátt og smátt að breyta venjum sínum. Það virtist vera þannig að fólk drakk bara kaffi í eldhúskróknum heima hjá sér og braut kannski saman þvott á meðan. Ég sé mikið af pörum og hjónum sem koma hingað til okkar, fá sér einn kaffibolla og köku, ræða málin við aðrar aðstæður en heima hjá sér. Og kannski fara þau að brjóta saman þvott þegar heim er komið. Barnafólk er líka duglegt að koma á kaffihúsið enda er staðurinn reyklaus og við erum með fína að- stöðu fyrir börnin.“ Kraftur og ákefð einkennir allt fas Maríu og hún er staðráðinn í því að vera með kröftuga dagskrá fyrir bæjarbúa og gesti bæjarins á næstu misserum. „Hugmyndirnar eru óþrjótandi en nú þegar er þéttskipuð dagskrá. Blústónleikar, ljóðalestur, bókalest- ur og sýningar af ýmsum gerðum,“ sagði María Nolan. Íslendingur með enskri „slettu“ „Það er verkefni bæjarbúa að sjá til þess að bærinn okkar dafni vel og blómstri,“ segir Skaga- og veitingamaðurinn María Guðrún Nolan. Kraftur María Guðrún Nolan ætlar að krydda menningarlífið á Akranesi á næstu misserum. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Eftir Eyþór Árnason ÞORVALDUR Árni Þorvaldsson á Rökkva frá Hárlaugsstöðum lenti í fyrsta sætinu á móti í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS, en mótið fór fram á fimmtudag. Gæðingafimi byggist þannig upp að hver keppandi ríður frjálst um reiðgólfið við tónlist að eigin vali. Keppandinn þarf að sýna minnst þrjár gangtegundir og fimm fimi- æfingar og hefur hann fjórar mín- útur til þess. Þessi grein er gríð- arlega krefjandi á samspil hests og manns og reynir mjög á hæfileika hestsins, ekki eingöngu gangteg- undahæfileika heldur einnig kunn- áttu hans í hinum ýmsu fimiæf- ingum. Þrjú dómarapör dæma hversu vel fimiæfingarnar eru út- færðar, hreinleika gangtegundanna og flæði og fjölhæfni sýningarinn- ar. Í forkeppninni voru sýningarnar misgóðar og tókst ekki mörgum keppendum að halda fullkomlega athygli áhorfenda. Hefðu mjög margir mátt huga betur að hvernig tónlistin var valin. Það hefði verið gaman að sjá einhvern vera með samsetta tónlist sem væri sett saman eftir því hvernig æfingar væri verið að gera og þannig byggja upp spennu í sýningunni. Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi voru áberandi bestir. Þeir félagar sýndu hvers þeir voru megnugir og voru með kraftmikla og skemmtilega sýningu með óvæntum fimiæfingum. Fóru þeir inn í úrslit með langhæstu ein- kunnina, 7,43. Næstur kom svo Atli Guðmundsson á Dynjanda frá Dalvík með 7,10. Í úrslitum var augljóst að allt var lagt undir hjá knöpunum og komu þeir flestir enn einbeittari til leiks. Þorvaldur Árni Þorvaldsson sem kom inn í fjórða sæti í úrslit og ætlaði sér augljóslega ekki að gefa eftir toppsætið í Meistara- deildinni. Það var allt annað að sjá til hans og Rökkva í úrslitunum en í forkeppninni fyrr um kvöldið. Sýningin var mun hnitmiðaðri og ákveðnari og Rökkvi var líflegri og sáttari. Ekki er vitað hvað Þor- valdur hefur hvíslað að Rökkva í hléinu en það hreif augljóslega. Með einkunnina 7,53 unnu þeir keppnina sem fyrr segir. Viðar Ingólfsson, sem allir höfðu gengið útfrá að ynni, var ekki nálægt því sem hann hafði sýnt í forkeppn- inni. Það mikla öryggi sem hann sýndi í forkeppninni var horfið og náðu þeir engan veginn sama flugi og því sem kom þeim í efsta sætið í forkeppninni. Enduðu þeir í þriðja sæti og máttu vel við una. Annar varð Sigurður Sigurðarson á Sporði frá Höskuldsstöðum eftir feikilega vel heppnaða sýningu. Athyglisvert var að þrír efstu voru þeir sömu þrír efstu í stiga- keppni knapa í réttri röð. Þannig að sem fyrr er Þorvaldur Árni efstur með 32 stig og jók þar með forskot sitt á aðra með þessum sigri. Annar er Sigurður Sigurð- arson með 25 stig og þriðji er Við- ar Ingólfsson með 22 stig. Í liðakeppninni heldur lið Kaup- þings efsta sætinu með 325 stig en lið Málningar náði að vinna sig upp um eitt sæti og er nú í öðru sæti með 319 stig. Næst kemur svo lið Icelandair og restina rekur sem fyrr lið IB.is Næsta mót fer fram 29. mars en þá verður keppt í fimmgangi. Þorvaldur Árni eykur forskotið Ljósmynd/Eyþór Sigur Þorvaldur Árni og Rökkvi komu ákveðnir inn í úrslit og sigruðu. Það var spenna á móti í gæðinga- fimi í Meistara- deild VÍS HESTAR Úrslit í Gæðingafimi 1. Þorvaldur Árni Þorvaldsson Rökkvi frá Hárlaugsstöðum 7,53 2. Sigurður Sigurðarson Sporður frá Höskulds- stöðum 7,40 3. Viðar Ingólfsson Tumi frá Stóra-Hofi 7,27 4. Atli Guðmundsson Dynjandi frá Dalvík 6,87 5. Hulda Gústafsdóttir Tónn frá Hala 6,77 6. Sævar Örn Sigurvinsson Þota frá Efra-Seli 6,67 7. Valdimar Bergstað Leiknir frá Vakursstöðum 6,50 8. Sölvi Sigurðsson Óði-Blesi frá Lundi 6,40 9. Hinrik Bragason Völsungur frá Reykjavík 6,27 10. Sigurbjörn Bárðarson Mark- ús frá Langholtsparti 6,27 Staðan í stigakeppni knapa 1. Þorvaldur Á. Þorvaldss. 32 2. Sigurður Sigurðarson 25 3. Viðar Ingólfsson 22 4. Atli Guðmundsson 16 5. Sölvi Sigurðarson 14 6. Jóhann G. Jóhannesson 13 7. Sigurbjörn Bárðarson 9 8. Hulda Gústafsdóttir 8 9. Hinrik Bragason 5 10. Ríkharður Fl Jensen 4 11. Sævar Örn Sigurvinsson 3 12. Sigurður V. Matthíasson 2 13. Valdimar Bergstað 2 14. Elsa Magnúsdóttir 1 Staðan í liðakeppninni: Lið Kaupþings: 325 stig. Lið Málningar: 319 stig. Lið Icelandair: 300 stig. Lið IB.is: 256 stig. Úrslit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.