Morgunblaðið - 19.03.2007, Qupperneq 17
Reuters
Hljómsveitarmeðlimir Söngvarinn Bono og gítarleikarinn The Edge eru hér saman í góðri sveiflu.
|mánudagur|19. 3. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Daglegt líf kíkir í heimsókn til
fimm manna fjölskyldu á Sel-
tjarnarnesi þar sem hundur og
tveir kettir búa líka. » 20
gæludýr
Unnur H. Jóhannsdóttir veltir
fyrir sér ánægju, sektarkennd
og aðskilnaðarótta í fjármálum
heimilanna. » 18
fjármál
Ellen Ruth Ingimundardóttir,
Steinunn Geirsdóttir og Sif
Traustadóttir ákváðu að byggja
dýralæknamiðstöð. » 21
dýralæknar
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
R
okkhundarnir í U2, sem
gjarnan klæðast leður-
buxum og hylja augu
sín með svörtum sól-
gleraugum, eru mjög
trúaðir menn og ófeimnir við að koma
boðskapnum á framfæri í gegnum
tónlist sína.
Guðni Rúnar Agnarsson hóf fjög-
urra þátta röð á Rás 2 síðastliðinn
sunnudag þar sem hann fjallar um
guðfræðina hjá þeim félögum í U2, en
hann segir að tónlist sveitarinnar
bergmáli orð Jesú Krists.
„U2 er frábært rokkband sem
hægt er að hlusta á og njóta á svo
marga vegu. Það er ákveðin dýpt og
vídd í þeirra tónlist sem mig langar
að vekja athygli á í þessum þáttum.
Ég ætla ekki að kryfja textana þeirra
og segja að svona eða hinsegin sé trú
þeirra, heldur ætla ég að reyna að
opna leiðina inn í tónlist þeirra, þann-
ig að fólk geti séð ákveðinn boðskap í
textunum og líka til að gefa fólki
tækifæri á að verða snortið af guð-
spjallinu í tónlistinni.“
Fá kraft sinn í tónlistar-
flutningnum frá Guði
Guðni Rúnar verður að sjálfsögðu
með tóndæmi í þáttunum.
„Ég ætla að spila lög þar sem eru
greinilegar skírskotanir í Biblíuna.
Til dæmis er lagið 40 á skífunni War í
raun fertugasti Davíðssálmur sem
þeir hafa klætt í nýjan búning og gert
að flottri rokktónlist. Eins er lagið „I
will follow“ játning þeirra á því að
þeir fylgja Guði, því þetta er bein til-
vitnun í orð Krists þegar hann kallaði
lærisveinana til sín og sagði: Fylg þú
mér.“
Í upphafi ferils U2, áður en þeir
urðu frægir, þá skrifaði Bono föður
sínum bréf og sagði að það væri Guð
sem gæfi þeim þennan kraft til tón-
listarflutnings og hann sagðist sann-
færður um að sá kraftur myndi koma
þeim á toppinn í tónlistarbransanum,
sem og varð raunin.
Vekja fólk til að taka afstöðu
„Við sjáum á tónleikum hjá U2 að
þeir kunna messuna. Þeir eru með öll
táknin á hreinu og bjóða upp á þessa
opnun án þess að segja of mikið. Það
er ekkert mál fyrir fólk að njóta tón-
leika þeirra án þess að því finnist það
vera komið til kirkju. Mér finnst það
einmitt vera hið stóra í tónlist þeirra
að þeir eru ekki að reyna að þröngva
upp á fólk hvernig það eigi að trúa.
Þeir vilja miklu frekar vekja fólk og
fá það til að hugsa og taka afstöðu.“
Það hefur varla farið fram hjá þeim
sem eitthvað hafa hlustað á U2 að
þeir eru talsmenn kærleikans og rétt-
lætisins enda hefur Bono sjálfur sagt
að kristin trú sé ekkert án samkennd-
arinnar og þess að láta sér annt um
þá smæstu.
„En trúin er ekki einfalt mál og
Bono og félagar hans í hljómsveitinni
eru stundum ráðvilltir rétt eins og
aðrir og vita ekki alltaf hver svörin
eru við lífsins spurningum. Þeir nota
Davíðssálmana til dæmis mikið í tón-
listinni en þar er einmitt þó nokkuð
um örvæntingu og vegvillur, en hann
tapar aldrei trúnni.“
Voru í trúarhreyfingu
Yfir 90% Íra eru kaþólikkar og þar
eru trúmálin mikið hitamál.
„En Bono var ekki alinn upp á
ströngu kaþólikkaheimili heldur var
annað foreldri hans mótmælenda-
trúar og reyndar eru fimm af átta
foreldrum hljómsveitarmeðlima mót-
mælendatrúar. Það hefur ábyggilega
gefið þeim ákveðið frelsi og svigrúm
að Guðsmyndin er ekki njörvuð niður
heldur opin,“ segir Guðni Rúnar og
ítrekar að trúmál séu ekki einfalt fyr-
irbæri um að tala.
„Þetta er jú það sem hefur sundr-
að fólki og heilu þjóðunum og þeir fé-
lagarnir í U2 þekkja það manna best
hjá írsku þjóðinni.“
Bono, gítarleikarinn The Edge og
trommarinn Larry eiga sameigin-
legan hinn sterka kristna bakgrunn
og þeir voru á tímabili í trúarhreyf-
ingu á Írlandi. „En bassaleikarinn
Adam stóð utan við þetta og þá var
meiri togstreita hjá þeim. Tog-
streitan snerist líka um hvort þeir
gætu verið kristnir og verið rokk-
arar á sama tíma. En þeir komust
yfir þetta og Bono fékk Adam til að
vera svaramann hjá sér þegar hann
gifti sig og það segir allt um gott
samband þeirra. Bono hefur líka
sagt að Adam sé sá andlegasti af
þeim öllum.“
Guðni Rúnar er lærður prestur og
starfar sem slíkur í Svíþjóð en hann
segist ekki alltaf ganga á Guðs veg-
um. „En ég reyni, rétt eins og Bono
og félagar.“
Á bæn? Það er engu líkara en Bono
sé að biðja til Guðs almáttugs.
Trú og tónlist Guðni Rúnar við
prestsstörf í Svíþjóð.
Friður Bono hefur
löngum barist fyrir
friði á jörð, rétt eins
og Kristur.
Trúaðir rokkhundar
Þeir bera það ekki beinlínis utan á sér svölu kapparnir í írsku hljómsveitinni U2 að vera mjög trúaðir.
Þættirnir Áfram gakk verða á dag-
skrá Rásar 2 á sunnudögum kl. 15.
www.U2.com