Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 27

Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 27 ✝ RagnheiðurKristín Péturs- dóttir fæddist í Reykjavík 6. febr- úar 1952. Hún lést á heimili sínu að Skógarseli 7 í Reykjavík að morgni 9. mars síð- astliðins. Foreldrar Ragn- heiðar voru Pétur Valdimarsson hafn- arvörður og Þór- unn Matthíasdóttir sjúkraliði sem lést 21. júlí árið 2002. Sonur þeirra var Valdimar Viðar sem lést af slysförum 16. september 1966. Eftirlifandi eiginmaður Ragn- heiðar er Tómas Sveinbjörnsson klæðskeri og eru synir þeirra tveir; Valdimar Viðar fram- kvæmdastjóri, k.h. Anna Karen Kristjánsdóttir framkvæmda- stjóri og börn þeirra Tómas Hrói og Ösp, dáin 2. desember 2002. Valdimar Viðar á einnig soninn Steinar; og Sigurður Sveinbjörn við- skiptafræðingur. Ragnheiður Kristín stundaði verslunar- og fyr- irsætustörf að loknu námi í Landakots- og Melaskóla, en vann síðan við silfur- og gullsmíði hjá Halldóri Sigurðssyni gullsmið á Skóla- vörðustíg 2 í Reykjavík. Hún hóf að því búnu eigin rekstur í list- munasmíð og sinnti honum með- an heilsa leyfði. Útför hennar verður gerð frá Seljakirkju í dag, mánudaginn 19. mars 2007, og hefst athöfnin kl. 13:00. Mér stendur það enn ljóslifandi fyrir sjónum þegar Ragnheiður Kristín kom í heimsókn til foreldra minna og sameiginlegrar ömmu okkar og alnöfnu hennar á Akureyri. Hún bar með sér það nýjasta úr Reykjavík, stefnu og strauma í tísku, dönsum og framkomu. Það þótti okkur ekki ónýtt bræðrunum Haraldi Inga og mér sem vorum á líkum aldri og hún. Ragnheiður Kristín var stórglæsileg ung stúlka og stundaði um tíma fyrirsætu- og módelstörf. Hún var kjörin ungfrú Reykjavík árið 1969 og tók í fram- haldi af því þátt í alheimsfegurðar- samkeppninni Miss World. Á unglingsárunum fengum við bræður stundum að fylgjast með móðurömmu okkar í heimsóknir til barna hennar í Reykjavík. Þessar ferðir höfðu á sér ævintýraljóma því þótt Akureyri sé höfuðborg Norður- lands stóð höfuðborg landsins henni framar á ýmsum sviðum. Þar kynntumst við Pétri og Lóló á Ránargötunni, en svo var Þórunn móðir Ragnheiðar jafnan kölluð, og var hún einnig glæsileg kona á sín- um bestu árum. Ragnheiður var ung að aldri þeg- ar leiðir hennar og Tómasar lágu saman. Það er erfitt að skilja þau að í huganum því að svo lengi hef ég þekkt þau sem par og félaga. Að leið- arlokum þakka ég fyrir þau kynni og samskipti sem verið hafa mikil, sér- staklega í nábýli okkar á síðari ár- um. Það var bjart í kringum Ragnheiði á yngri árum og oft mikið um að vera, en sorgirnar sóttu einnig að. Það var stórt áfall fyrir 14 ára stúlku að missa bróður sinn tveimur árum eldri í dráttarvélaslysi við Korpúlfs- staði. Valdimar Viðar var einstak- lega vel gerður og ljúfur drengur sem miklar vonir voru bundnar við. Öll fjölskyldan átti um sárt að binda og það var eins og strengur brysti hjá mæðgunum. Ragnheiður Kristín var mjög list- hneigð og kom það vel fram í störf- um hennar hjá Halldóri Sigurðssyni gullsmiði. Það leiddi síðan til þess að hún setti á stofn eigin rekstur í list- munagerð og seldi listmuni sína víða, bæði hérlendis og erlendis, meðan henni entist heilsa. Móðir Ragnheiðar lést á miðju sumri árið 2002 og í desember sama ár andaðist Ösp sonardóttir hennar, tveggja ára gömul. Ösp fæddist mik- ið fötluð og hafði Ragnheiður annast hana mikið af einstakri natni og um- hyggju. Þegar hér var komið sögu var eins og lífsvilji Ragnheiðar frænku minnar fjaraði smám saman út, og eftir þetta fór heilsu hennar hrakandi. Ég mun um ókomna tíð geyma mér í huga minninguna um mína glæsilegu frænku og sendi innilegar samúðarkveðjur til Tómasar vinar míns og fjölskyldu hans. Megi guð vera með ykkur öllum! Jakob Örn Haraldsson. Ragnheiður Kristín Pétursdóttir var dóttir föðursystur okkar, Þór- unnar (Lóló) Matthíasdóttur og Pét- urs Valdimarssonar. Hún var yngra barn þeirra, eldri var bróðirinn Valdimar Viðar sem lést 16 ára gam- all af slysförum. Hann var fjölskyld- unni mikill harmdauði, enda svo efni- legur, yndislegur og fallegur drengur. Fögur var Ragnheiður líka. Hún gerðist snemma fyrirsæta og starfaði sem slík fyrir Módelsamtökin. Mynd- ir af glæsilegri Ragnheiði skreyttu m.a. bæklinga Álafoss, Rammagerð- arinnar, Úrvals og Útsýnar. Árið 1969 tók hún þátt í fegurð- arsamkeppni og var kjörin ungfrú Reykjavík. Árið 1970 tók hún þátt í fegurðarsamkeppni í London og fékk í kjölfar mörg atvinnutilboð erlendis sem hún hafnaði. Ragnheiður nam listmunasmiði hjá Halldóri Sigurðssyni gullsmiði, smíðaði skartgripi sem m.a. voru seldir um borð í Loftleiðavélum og það var hún sem smíðaði hólkana sem bindisklúta íslenska herrabún- ingsins. Ragnheiður giftist Tómasi Svein- björnssyni klæðskera og eignaðist með honum tvo drengi: Viðar og Sig- urð Sveinbjörn. Ragnheiður var m.a.s. orðin amma að Steinari og litlum Tómasi Hróa. Elsku Ragnheiður okkar, þú varst svo ljúf og svo bóngóð. Þú hafðir svo fallega rödd, svo falleg augu, fallegan líkama, svo fallega sál, allt var fallegt við þig. Um þig eins og ömmu okkar og alnafna þín passar kvæðið: (Ragnheiður) Kristín var kvenna fríðust/ kunna það menn að sanna/ brúnin er bogadregin / brosið er ekki frosið. Við sáumst ekki oft. Aðallega í fjöl- skylduveislum, eða þegar Kristin amma tók okkur með í heimsókn til Lólóar og þín á Meistaravelli og síð- an á Seltjarnarnesið. Nokkrar myndir úr endurminn- ingunni: Við munum eftir þér fjög- urra ára gamalli, yndislega fallegri í tjullkjól með hringskornu, stuttu pilsi, hvítum stuttsokkum og lakk- skóm. Líklega saumaði Kristín amma þennan kjól, alveg eins og hún saumaði alltaf alla kjólana okkar. Við munum eftir þér eftir þér í fermingu Hönnu Kristínar, fermingu Ragnars og fermingu Matthíasar. Við munum eftir þér og Tomma fullum af vinnu- orku, bjartsýni og gleði. Seinna þeg- ar við heimsóttum þig í vinnuna fagn- aðir þú okkur af sömu alúð og innileika og elsku góða mamma þín gerði í Vesturbæjarapótekinu, mamma þin, hún fallega Lóló, föð- ursystir okkar og yngsta stelpan hennar Ragnheiðar Kristínar ömmu. Æ, hvað það hefði verið gott, ef við hefðum haft meira samband og hefð- um þekkst betur. En oft er fjarlægð- in í Reykjavík meiri en fjarlægðin á milli landa. Maður ætlar jú alltaf að bæta úr því, en allt í einu rankar maður við sér, líf er farið og allt um seinan. Við sendum Tomma, sonum þín- um, Önnu Karen, Tómasi Hróa og ástvinum innilegar samúðarkveðjur og biðjum guð um að huggun og styrk þeim til handa. Guð blessi þig, elsku Ragnheiður. Fyrir handan eru nú miklir fagnað- arfundir. Lóló, mamma þín, Ösp litla, Viðar, bróðir þinn, og amma Kristín og aðrir kærir ástvinir faðma þig, leiða þig og gæta þín. Fyrir hönd afkomenda Ragnheið- ar Kristínar ömmu og Guðmundar Matthíassonar: Hanna Kristín Guð- mundsdóttir og Margrét Rún Guðmundsdóttir. Ragnheiður Kristín Pétursdóttir ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURVEIG STELLA KONRÁÐSDÓTTIR, Þangbakka 8, andaðist á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 13. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Guðmundur Þ. Björnsson, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Þorsteinsson, Kolbrún Jónsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Ásmundur Karlsson, Birna Guðmundsdóttir, Eyjólfur Ó. Eyjólfsson, Konráð Guðmundsson, Rósa Björg Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN SIGRÍÐUR BALDVINSDÓTTIR , áður Klettaborg 3, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð aðfaranótt laugardagsins 10. mars. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 20. mars kl. 13:30. Innilegar þakkir til starfsfólks Birki- og Beykihlíðar fyrir frábæra umönnun. Birgir Tryggvason, Anna Margrét Tryggvadóttir, Hörður Guðmundsson, Gyðný Tryggvadóttir, Ólafur G. Viktorson, Ólöf Guðrún Ólafsdóttir, Thibaut P.M.Guilbert, Anna Margrét Ólafsdóttir, Júlíus Aron Thibautson Guilbert. minningunni en þá var afi aldursfor- seti Gromsaranna og naut sín vel inn- anum stórfjölskylduna. Hann fór með göngugrindina um allt og virtist tíu árum yngri þessa helgi. Hann var nú samt örugglega örþreyttur þegar hann kom heim aftur eftir þetta fjör- uga og skemmtilega ættarmót. Það verður skrýtið að mæta næst án hans. Algóður Guð blessi minningu þína afi minn. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Dagmar Björnsdóttir. Elsku afi, þú varst alltaf til staðar, oftast þögull og rólegur í lund. Í dag er ég það langt í burtu að ég næ ekki að kveðja þig í hinsta sinn. Huggun harmi gegn er þó að ég tel að þú hafir nú fundið ró. Elsku afi minn, hvert sem ég um heiminn fer þá verður þú ætíð í huga mér, og ég geymi þig innst inni í hjarta mér. Vertu sæll, elsku afi, ég trúi og treysti að þér líði vel og að við sjáumst aftur í framtíðinni. Þinn sonarsonur, Guðmundur Ragnar Rúnarsson og fjölskylda. Hinn 12. mars sl. féll frá heiðurs- maðurinn Guðmundur Móeses Jóns- son, tengdafaðir minn, bridgefélagi og vinur. Hann hafði lifað tímana tvenna eins og sagt er, fæddur 30. júní 1917, en margt hefur breyst síðan þá. Fað- ir hans var sjómaður sem sigldi með Leifi heppna og fórst í Halaveðrinu mikla 8. febrúar árið 1925 er Guð- mundur var sjö ára. Fórust þá tveir togarar með 68 manns, en aðrir tog- arar komust við illan leik að landi, huldir klakabrynju. Móðir hans var þá húsmóðir og fiskvinnslukona með 3 börn. Þrjátíu árum seinna á Ísafirði, Guðmundur, dökkhærður, hár, grannur, svipsterkur og alvarlegur, var vinsæll dansherra á gömlu döns- unum, hafði áhuga á bridge og fót- bolta. Hann var ráðsettur eiginmað- ur með 4 börn. Hafði verið skipstóri, var einn af stofnendum Norðurtang- ans. Norðurtanginn gerði út nokkra báta, svo sem Víking II, Víking III, Orra ÍS 20, Guðbjart ÍS 16 og fleiri og rak mjög gott frystihús. Í frysti- húsinu vann Guðmundur í ein 50 ár, sem yfirverkstjóri og þótti standa sig vel. Sérstaklega þótti hann fær í að ákveða í hvers konar vinnslu og pakkningar hráefnið færi svo úr yrði sem mest verðmæti. Seinna bættist svo eitt barn við, börnin lærðu á hljóðfæri, eins og við var að búast í tónlistarbænum Ísafirði. Margt skemmtilegt var gert, til dæmis farið til Noregs með Gullfossi og Sunnu- kórnum. Best kynntist ég Guðmundi eftir að hann flutti til Reykjavíkur árið 1997 tæplega áttræður, en þá vantaði hann bridgefélaga. Hann var áhuga- samur og góður spilari. Við spiluðum hátt í átta ár á föstudögum hjá Bridgefélagi Reykjavíkur, þar sem hann var virtur vel. Þegar ég sótti hann á föstudögum talaði hann um spilin frá vikunni áður sem hann mundi flest. Tvisvar tókum við þátt í alþjóðlegum Flugleiðamótum og stóð hann sig vel þótt hann væri elstur. Spilafélagar hans voru oft undrandi á því hvernig hann spilaði, en hann náði árangri og fékk stundum einum slag meira en menn sem klóruðu sér í hausnum reiknuðu með. Hann hafði mjög gaman af fótbolta og hélt með Man. United. Árið 2002 fórum við og synir hans til Manchest- er, en þá var Guðmundur 85 ára. Þar horfðum við, ásamt 70.000 öðrum, sem við sungum með og fögnuðum, Man. United sigra Fulham 3-0. Einn- ig fórum við til Liverpool, en yngri sonur Guðmundar hefur þann ósið að halda með Liverpool. Þar unnu þeir Leeds 3-1 og sungu mikið. Margs er að minnast úr þeirri ferð, til dæmis lögreglumennirnir á stóru hestunum, sem hikuðu ekki við að þrengja sér inn í hóp þar sem einhver óróleiki var. Guðmundur var í dagvist á Múla- bæ síðustu tvö árin og var ánægður með dvölina. Fjölskyldan er þakklát starfsfólki Múlabæjar fyrir góða umönnun. Guðmundur var gæfumaður, átti góða fjölskyldu, hvort sem var eigin eða stjúpfjölskylda, átti góðar konur, gat notið augnabliksins, hvort sem það var fallegt mark hjá Man. Unit- ed, vel spilað spil í bridge, skip á sigl- ingu, dansandi gömlu dansana, eða upplestur og umræða um góða bók. Blessuð sé minning Guðmundar Móesesar Jónssonar. Hans Óskar Isebarn. Þegar Mósi stóð saddur lífdaga upp frá lífsins græna borði urðu margvísleg þáttaskil. Genginn er reyndasti fiskvinnslumaður landsins og þó víðar væri leitað. Í tæpan mannsaldur stjórnaði hann daglegri vinnslu eins stærsta sjávarútvegsfyr- irtækis landsins. Engin dæmi veit ég önnur um slíka reynslu og tæpast verður met hans slegið. Ungur að árum stofnaði hann ásamt föðurbróður sínum Hálfdáni í Búð og fleiri mætum mönnum til at- vinnureksturs á Ísafirði sem með tímanum óx og dafnaði. Þá var hann skipstjóri en snemma á fimmta ára- tug síðustu aldar kom það í hans hlut að stýra fiskvinnslu fyrirtækisins og þann starfa hafði hann með höndum í rúmlega hálfa öld. Ólíkt ýmsum frændum sínum var hann sjaldnast maður stórra orða eða háværra yfirlýsinga. Sjaldnast fór hann hratt yfir en komst þrátt fyrir það oftast að settu marki eða í það minnsta eins nálægt því og hægt var hverju sinni. Um áratuga skeið rak hann ásamt félögum sínum fyrirtæki sem var einn af burðarásum byggðar. Í þá daga fylgdu því ýmsar óskráðar skyldur sem menn tókust á hendur með glöðu geði og ýmsar þessar skyldur fundu þeir félagar upp sjálf- ir. Samfélagið naut ávaxtanna í ríku- legum mæli. Á seinni árum þegar eingöngu er krafist hámarksarðsemi fjármagns þykja slík vinnubrögð sem áður voru tíðkuð ekki til eftirbreytni. Afleiðingarnar má sjá víða. Mósi var afar vel liðinn af sam- starfsfólki sínu. Það sást best á með- alstarfsaldri starfsmanna hans. Sem stjórnandi eins stærsta fiskvinnslu- fyrirtækis landsins þurfti að hafa vakandi auga með nýjungum og það gerði Mósi svo sannarlega. Kominn á efri ár var hann án efa ennþá einn framsæknasti fiskvinnslumaður landsins. Ávallt tilbúinn til þess að prófa nýjar leiðir ef mætti verða til þess að auka verðmæti þess afla sem á land barst. Aðstæður á mörkuðum breyttust og sömu sögu var að segja af verði, að ekki sé talað um geng- ismálin. Alla þessa þætti þurfa menn að hafa á hreinu þegar tekin er ákvörðun um vinnsluleiðir. Ekki voru tölvurnar í kringum kappann til að- stoðar. Hvernig hann fór að því að halda utan um allar slíkar upplýsing- ar er hulin ráðgáta. En lífið var ekki aðeins fiskur hjá Mósa. Fjölskyldan var stór og á stundum virtist manni fleiri fara heim til hans í kaffitímum en dvöldu í kaffisal fyrirtækisins. Hann var mik- ill áhugamaður um íþróttir. Hann var um langan aldur einn af okkar fremstu bridgespilurum landsins. Átti þar langan keppnisferil og tók þátt í keppni á landsmóti ungmenna- félaganna kominn á níræðisaldur. Skákmaður var hann og góður og annálaður var áhugi hans á knatt- spyrnu. Naut sú íþrótt, sem og aðrar, ríkulegs stuðnings hjá honum og fyr- irtæki hans. Eftir langa og gifturíka ævi er margs að minnast og margt ber að þakka. Þakkirnar verða í tilfelli Mósa ekki í neinu samræmi við það sem hann á skilið. Hann var heldur ekki í leit að þakklæti. Verk sín vann hann af hógværð og forðaðist sviðsljósið. Um leið og aðstandendum er vottuð samúð við fráfall hans er honum þökkuð áratuga tryggð og vinátta. Halldór Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.