Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 28

Morgunblaðið - 19.03.2007, Page 28
28 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Helgi Hafliða-son fæddist 10. nóvember 1922 á Bergþórugötu 43 í Reykjavík. Hann lést á Landakots- spítala föstudaginn 9. mars sl. For- eldrar hans voru hjónin Hafliði Bald- vinsson, fæddur í Laugabóli við Ísa- fjarðardjúp 5.5. 1888, d. 10.4. 1949, fiskkaupmaður í Reykjavík, og Jó- nea Hólmfríður Fríðsteinsdóttir, fædd í Valgerðarbæ við Grund- arstíg í Reykjavík 24.8. 1889, d. 18.5. 1967. Systkini Helga eru Há- kon, f.1918, d. 1981, Halldóra, f. 1920, d. 1992, og Ástríður, f. 1926. Hálfsystir Helga, samfeðra, er Baldvina H. Hafliðadóttir, f. 1908, d. 1991. Móðir hennar var Ágústína M. Aradóttir, f. 1883, d. 1954. Eiginkona Helga var Guðmund- ína Jóhanna Júlíusdóttir, f. 4.2. 1934, d. 28.2. 1994. Þau gengu í hjónaband 26.12. 1953. Foreldrar hennar voru Karel Júlíus Jak- obsson, fæddur á Kvíabryggju 29.7. 1896, d. 7.7. 1968, ávallt kenndur við Sæból í Grundarfirði, og kona hans, Dagbjört I. Jóns- Anna Kristín Hannesdóttir, f. 4.1. 1966. Börn þeirra eru Auður, f. 1999, Helgi Ari, f. 2002, Jóna Lísa og Þorbjörn, f. 2003. Helgi ólst upp á Bergþórugöt- unni til fimm ára aldurs, síðan við vatnsþróna, þar sem Hverfisgata og Laugavegur koma saman, þ.e. á Hverfisgötu 123 í Reykjavík. Helgi gekk í Austurbæjarbarna- skólann, síðan í Iðnskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan 1943. Hann fékk meistararéttindi í málaraiðn 1950. Hann starfaði við málaraiðn en tók svo við fyr- irtæki föður síns, Fiskverslun Hafliða Baldvinssonar við Hlemm, árið 1953 og starfaði við það þar til hann hætti störfum 1994 og synir og tengdabörn tóku við rekstrinum. Þá höfðu stjúpsonur og synir Helga rekið fyrirtækið með honum frá því í byrjun ní- unda áratugarins. Um 1986 flutt- ist meginstarfsemi fyrirtækisins, sem þá var orðin heildsala og fiskverkun, í Örfirisey og árið 1992 flutti fyrirtækið í nýtt hús þar sem reist var yfir starfsem- ina. Verslunin við Hlemm var þó starfrækt áfram fram til ársins 2005. Helgi bjó á Hverfisgötu 123 allt þar til hann fluttist í íbúð hjá yngsta syni sínum árið 1994, er hann var orðinn ekkill. Helgi tók alla tíð mikinn þátt í félagsstörf- um. Útför Helga fer fram frá Hall- grímskirkju mánudaginn 19. mars kl. 13.00. dóttir úr Hergilsey, f. 28.6. 1881, d. 3.8. 1959. Helgi og Jóhanna eignuðust fjögur börn saman en Jó- hanna átti son áður er Helgi ól upp, Ragnar Hauksson, f. 26.5. 1951, kona hans er Josephine C. Tangolamos, f. 22.6. 1970. Börn þeirra eru Rakel Jóhanna, f. 1994, og Ragnar Jósef, f. 1997. Börn Helga og Jóhönnu eru: Hafliði, f. 11.2. 1953, kona hans er Barbara Helgason, f. 27.10. 1961. Börn þeirra eru Dagbjört Eva, f. 1988, og Helga f. 1991. Júlíus Baldvin, f. 10.4. 1955, kona hans er Hildur Sverrisdóttir, f. 11.12. 1955. Börn þeirra eru Ívar Baldvin, f. 1985, og Ragnhildur Jóhanna, f. 1988. Dagbjört, f. 17.11. 1958, maður hennar er Þorkell G. Hjaltason, f. 30.3. 1957. Börn þeirra eru Hjalti, f. 1980, og Jóhanna Helga f. 1991. Sonur Dagbjartar frá fyrra sam- bandi og fóstursonur Þorkels er Ragnar Karel, f. 1.11. 1977, sam- býliskona hans er Unnur Berglind Reynisdóttir, f. 13.1. 1981, og eiga þau Helenu Karen, f. 2006. Helgi, f. 22.9. 1961, kona hans er Ég fæ mér sæti að kvöldlagi og tek penna í hönd og ætla að skrifa fáein orð um föður minn. Hann pabbi var gæðablóð fram í fingur- góma, mikill gleðimaður og fé- lagsvera. Hann var hreykinn af sín- um uppruna og kom fram við aðra af fullri jafnaðarmennsku. Ég minnist pabba þegar ég var barn sem vinnu- sams manns og hafði hann ekki mikil samskipti við okkur börnin, enda var gríðarleg vinna sem tengdist fisk- búðinni á þeim tíma. Þegar móðir mín deyr 1994 og pabbi flytur til okkar Önnu í Hátúnið þá kynnist ég honum fyrir alvöru. Öðru eins gæða- blóði hef ég ekki kynnst um ævina. Svo komu börnin og þá varð kátt í höllinni. Hann passaði fyrir okkur, hló og kættist og punktaði niður af- mælisdagana. Hann vildi hafa allt í röð og reglu í kringum sig og lét mig vita ef málningin var farin að láta á sjá á húsinu, eða ef vantaði stöku peru einhvers staðar. Mér er minn- isstætt þegar pabbi kallaði á mig „Helgi, taktu þessa happadrætt- ismiða, ég hef ekkert með þá að gera“. Þetta var þykkur bunki. Þá hafði hann keypt alla happadrætt- ismiða af flestöllum líknarfélögum sem sendu honum miða. Það var ekki í hans huga að líta á númerin, enda voru sumir miðarnir útrunnir. Þetta var týpískt fyrir pabba. Ég þakka þér fyrir allt sem við höfum brallað saman, það er mikill söknuður í Hátúninu, en við vitum að þú ert kominn á góðan stað. Guð bessi minningu pabba. Helgi Helgason. Tengdafaðir minn Helgi Hafliða- son fisksali er fallinn frá. Fyrir rúm- um tuttugu árum kynntist ég yngsta syni hans, Helga. Ég var þá tvítugur unglingur og full óöryggis við ný kynni. Strax fann ég að það var óþarfi að vera með einhver látalæti fyrir framan þennan væntanlega tengdaföður minn, hann tók mér ákaflega vel. Það var augljóst að hér var á ferðinni umburðarlyndur og réttsýnn maður og góð tilhugsun að tengjast honum fjölskylduböndum. Ekki löngu eftir að við Helgi sonur hans hófum sambúð fór ég að að- stoða tengdapabba við bókhaldið í fiskbúðinni sem hann rak, Fiskbúð Hafliða við Hlemm. Þá var ekki búið að innleiða tölvu í fyrirtækið og heil- mikil vinna var fyrir tengdapabba að handskrifa allar færslur í þar til gerðar sjóðbækur. Þótt ég hafi verið ráðin til að aðstoða við færslurnar man ég helst eftir skottúrum út í sjoppu eftir appelsíni og súkkulaði handa okkur, með viðkomu í Bún- aðarbankanum sem yfirvarp. Svo settist ég gegnt honum við stóra skrifborðið á skrifstofunni og sorter- aði bréfaklemmur og nagaði blýanta. Fyrir þetta fékk ég töluvert hærra tímakaup en ég þekkti áður. Alltaf var hann brosmildur og léttur í lundu og vart hægt að hugsa sér betri vinnufélaga. Það er auðvelt að gleyma sér í upprifjun á liðnum tíma. Tengdamóðir mín og kona Helga, hún Jóhanna, var jafnsam- tvinnuð þessum árum í fiskbúðinni og Helgi sjálfur. Snemma árs 1994 urðu umskipti í lífi Helga þegar Jó- hanna lést langt fyrir aldur fram, að- eins sextug að aldri. Á haustmán- uðum það ár flutti Helgi til okkar hingað í Hátúnið og bjó um sig í kjallaraíbúðinni. Það fjölgaði í fjöl- skyldunni á efri hæðinni og fæddust 4 börn á árunum 1999–2003. Helgi samgladdist okkur af alhug í hvert sinn sem nýr einstaklingur bættist í hópinn. Mér fannst það sérstakt að maður á hans aldri tæki svona mik- inn þátt í lífi smákrílanna og af svo miklum áhuga. Börnin okkar öll hafa notið þess að eiga Helga afa að í kjallaranum. Þeim fannst gott að rölta niður stigann og sækja sér einn mola í sælgætisskálina eða litla blá- berjaskyrdós. Rukka svo inn einn koss á ennið á leiðinni upp aftur. Af- inn var boðinn og búinn að gæta barnanna stund og stund. Það var ómetanlegt að fá slíka aðstoð í erli dagsins. Helgi var líka ákaflega til- litssamur. Ekki var alltaf hægt að segja það sama um okkur, það gat stundum verið erfitt fyrir hann að ná heilum fréttatíma í sjónvarpinu ef allir lögðust á eitt við að búa til há- vaða í stofunni hans. En aldrei fannst honum hann þurfa að brýna raustina, hann bað afabörnin blíð- lega um að hætta að fikta í rofunum. Stundum enduðu leikar með því að hann eftirlét börnunum hæginda- stólinn og fór að gera eitthvað ann- að. Undanfarna mánuði hrakaði heilsu Helga mikið. Hann kvaddi líf- ið saddur lífdaga á líknardeild Landakots. Sú hugsun hefur gerst ágeng í kolli mér að ef ég gæti óskað mér einhvers væri það að líkjast tengdaföður mínum í því æðruleysi sem einkennt hefur hann í veikind- um hans. Ég kveð minn kæra tengdaföður með ómældri virðingu og þökk fyrir samfylgdina. Anna Kristín Hannesdóttir. Í dag fylgjum við til grafar Helga Hafliðasyni tengdaföður mínum. Við leiðarlok kemur margt upp í hugann en upp úr stendur samferð sem engan skugga hefur borið á og hefur einkennst af umhyggju og væntumþykju við okkur fjölskylduna. Helgi hafði frá mörgu að segja og víðförull var hann um óbyggðir landsins, en hann hafði ásamt vinahópi keypt Dodge-kariól af Sölu varnarliðseigna eftir seinni heimsstyrjöldina og ferðast víða um landið. Meðal annars fóru þau inn að Snæfelli og í Kringilsárrana og víðar um Fljótsdalsöræfin. Ferðir fór hann einnig með Páli Arasyni og fleirum. Myndir átti hann úr mörg- um þessara ferðalaga af upphafi jeppaferða sem gefa skemmtilega innsýn í þessi ferðalög. Einnig fór hann hjólandi um Vestfirði ásamt nokkrum félaga sinna. Ógleymanlegar eru heimsóknir hans ásamt Hjalta föður mínum sem voru orðnar árvissar um verslunar- mannahelgina í sumarbústað okkar og þá ómaði söngur þeirra um Hval- fjörðinn, hvort sem það var Hamra- borgin eða Ég er þreyttur. Ekki er ólíklegt að þeir syngi nú saman á nýjum slóðum. Með þakklæti fyrir samstarfið, vináttuna og umhyggj- una. Farðu í friði. Þorkell Hjaltason. Elskulegur tengdafaðir minn er látinn. Frá fyrstu tíð tók hann mér opnum örmum. Það tók ekki langan tíma að átta sig á því hvern mann Helgi hafði að geyma. Heilsteyptur og vel gefinn, jákvæður og glaðlynd- ur og vildi öllum vel. Hann var fé- lagslyndur og vinmargur. Helgi var málarameistari og starfaði við það, en tók svo við fyrirtæki föður síns, Fiskverslun Hafliða Baldvinssonar, 1953. Hann rak fyrirtækið að mestu einn í mörg ár. Það var mikil vinna, allur fiskur keyptur, sóttur og verk- aður, svo farið með sendingar og loks staðið við búðarborðið. Versl- unin var í sama húsi og Helgi bjó í frá fimm ára aldri. Þar ólst hann upp, þar stofnaði hann sína fjöl- skyldu og þar fæddust börnin. Júlíus sonur hans minnist þess hve gott það var að geta farið niður í búð til pabba og hjálpa til. Einnig var oft reynt að vakna snemma til að fara með pabba í útkeyrslu með send- ingar. Þá var farið um Þingholtin, á Hvítabandið, Matstofu Austurbæjar og fleiri staði, það var hlýtt í bílnum og margt spjallað og á mörgum stöð- um var þeim feðgum boðið upp á ný- steiktar kleinur! Þegar synirnir uxu úr grasi unnu þeir ýmis störf en fóru svo að vinna með föður sínum einn af öðrum eftir því sem fyrirtækið stækkaði. Síðar komu tengdabörnin til starfa og loks barnabörnin. Þetta var sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Það orð fór af Helga að hann væri duglegur og heiðarlegur og hann var mjög vel liðinn af viðskiptavinum. Hann var elskulegur og hjálpsamur við alla og eftirminnilegur þeim sem kynntust honum. Helgi svaraði þannig í síma að eftir var tekið. Margir kynntust honum fyrst í gegnum síma og fannst sem þeir hefðu alltaf þekkt hann. Helgi var þekktur undir nafninu Helgi Haf- liða. Svo mjög að Helgi og strák- arnir hans, synirnir og tengdason- urinn, voru oft kallaðir „Hafliðarnir“. Margir þekkja þá að- eins undir því nafni. Oftlega kom það fyrir að sagt var í símann: Get ég ekki fengið að tala við Hafliða sjálfan! Á síðustu árum áttaði hann sig á því að gamla verklagið og saga fiskverkunar og viðskipta með fisk á árum áður var að glatast. Þá hóf hann að skrifa endurminningar sín- ar og jafnframt sögu fiskverkunar og fiskviðskipta í Reykjavík á síð- ustu öld Allt er þetta handskrifað og einstaklega skemmtilegt aflestrar. Árið 2002 birtist einnig skemmtilegt viðtal við Helga í Mbl. þar sem hann sagði frá fyrri tímum. Helgi var góð- ur afi og tengdafaðir. Hann lagði áherslu á að muna eftir afmælisdög- um og lagði oft mikið á sig í því skyni, sérstaklega síðustu árin þeg- ar hann átti orðið erfitt um gang. Í mörg ár kom hann alltaf til mín með blóm á afmælisdeginum, sem gladdi mig mikið. Helgi var lífið og sálin í öllum fjölskylduboðum. Minnisstæð- ir eru sumardagar í sumarbústað dótturinnar inni í Hvalfirði, þegar fjölskyldan safnaðist þar saman. Þá tóku þeir oft lagið saman, Helgi og Hjalti á Kiðafelli. Nú eru þeir báðir farnir. Það eru forréttindi að hafa kynnst Helga og orðið honum sam- ferða um stund. Ég kveð elskulegan tengdaföður minn með virðingu og söknuði. Blessuð sé minning Helga Hafliðasonar. Hildur Sverrisdóttir. Elsku tengdafaðir. Mér þykir svo vænt um þig að það er erfitt að hugsa að þú sért farinn elsku tengdafaðir. Það var ríkidæmi að fá að kynnast þér, frá því að ég kom til Íslands og til enda. Þú varst mér alltaf svo góður að svona góðan vin eins og ég kalla þig er hvergi hægt að fá. Ég vil þakka þér fyrir þær minningar, sem munu lifa áfram í hjarta mínu, ég mun sárt sakna þín. Megi Drottinn Jesús blessa þig. Þín tengdadóttir Barbara. Elsku afi okkar, það er svo skrítið að sjá þig ekki aftur, það er mjög sárt og erfitt að þurfa að kveðja þig, svona sprækan og góðan afa eins og þú varst, það var alltaf svo notalegt að heimsækja þig í Hátúni. Alltaf tókstu vel á móti okkur systrum með hlýjum orðum, og brosmildur eins og þú varst, og alltaf var til hjá þér, eins og þú kall- aðir, moli í skálinni þinni. Við viljum þakka þér fyrir dýr- mætar samverustundir sem við átt- um með þér. Þín verður sárt saknað og okkur þykir svo vænt um þig að minningarnar um þig munu lifa áfram og verða alltaf til í hjörtum okkar. Megi góði Guð blessa þig og varð- veita. Þínar afastelpur, Dagbjört Eva og Helga Hafliðadætur Afi var einn sá yndislegasti maður sem ég hef kynnst. Hann var ráða- góður, tillitssamur, góður og hrein- lega fyrsta flokks afi! Helgi afi var tíður gestur heima hjá mér og spil- uðum við mikið saman. Oftast spil- uðum við Ólsen ólsen, en þó líka stundum önnur spil. Í hvert sinn sem hann vann hrósaði hann sigri með háværum og smitandi hlátri og með því að hrópa: ,,Yess! Yess!“ þannig að maður gat ekki annað en brosað. Mér finnst ég enn heyra hláturinn og ég sé hann enn bros- andi fyrir mér. Ég var heppin að fá að þekkja svona yndislegan mann. Jóhanna Helga. Kæri elskulegi afi, við þökkum þér allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Þú varst alltaf glaður og góður og það var gott að sitja í fanginu þínu. Við borðuðum saman kvöldmatinn og þá sneru andlit okk- ar barnanna oftar en ekki í átt að sjónvarpstækinu þar sem teikni- myndirnar drógu til sín athyglina. Þá gerðir þú þér að leik að reyna að ná sambandi við okkur og jafnvel í bjartsýni þinni að halda uppi sam- ræðum, spyrja hvernig hefði verið í leikskólanum þann daginn. Svo hlóstu bara að okkur og hristir haus- inn. En þegar þú ætlaðir að fara aft- ur niður til þín að lokinni máltíð kom eitt stórt „Jæja“ (endurtekið eftir þörfum) þar til þú fékkst þau við- brögð frá okkur sem þú vildir, að við vinkuðum þér bless. Eftir matinn eltum við mömmu gjarnan niður í þvottahús og þaðan beint inn í stofu til þín og að nammiskálinni. „Meg- um við fá mola?“ „Spyrjiði mömmu.“ „Mamma, megum við fá einn mola?“ „Ef afi leyfir.“ „Já, við megum.“ „Fáiði ykkur þá.“ Og ef maturinn uppi var ekkert spes var kríuð út skyrdolla til að fylla upp í tómið. Eða banani. Þú passaðir upp á að eiga nóg til. Og þú áttir nóg til af bæði mat og hlýju. Og þú passaðir okkur og rabbaðir við okkur og varst okkur svo góður, en nú verðum við að kveðja þig. Vertu blessaður, kæri afi. Takk fyrir samfylgdina. Auður, Helgi Ari, Jóna Lísa og Þorbjörn Á árunum upp úr fyrra stríði stóð opinn fiskmarkaður Reykvíkinga, þar sem nú er vinsælasti veitinga- staður borgarinnar – Bæjarins bestu – við Tryggvagötu. Árið 1922 – árið sem Helgi frændi minn, Haf- liðason, fæddist fyrir áttatíu og fjór- um árum – byrjaði faðir hans að selja reykvískum húsmæðrum ferskan fisk beint af kerrunni. Þetta var upphafið að Fiskbúð Hafliða, sem alla tíð síðan hefur verið stofn- un í bæjarlífinu, hvernig svo sem allt annað hefur velkst og horfið í tímans ólgusjó. Fiskbúð Hafliða var einn af þessum föstu punktum í tilverunni, sem stóð af sér áreiti tímans. Faðir Helga var Hafliði Baldvins- son, bróðir Jóns Baldvinssonar, sem var forseti Alþýðusambandsins og þar með formaður Alþýðuflokksins fyrstu tvo áratugina og rúmlega það. Þeir skiptu með sér verkum, þessir bræður að vestan. Annar sá alþýðu manna fyrir hollri næringu við vægu verði; hinn barðist fyrir bættum kjörum hins stritandi lýðs sam- kvæmt boðorðinu, að verður væri verkamaðurinn launanna. Eftir að Jón Baldvinsson féll frá, skildi leiðir milli Alþýðusambands- ins og Alþýðuflokksins. Þá upphóf- ust flokkadrættir, þar sem bræður börðust, og sér ekki fyrir endann á þeim viðsjám enn í dag. En Fiskbúð Hafliða hélt sínu striki. Allt frá því að byrjað var að selja nýmetið beint af kerrunni upp úr fyrra stríði og til Helgi Hafliðason Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birt- ist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.