Morgunblaðið - 19.03.2007, Síða 37
Músíktilraunir hefj-ast í kvöld í Loft-kastalanum, enþetta verður í
25. sinn sem tilraunirnar eru
haldnar. Líkt og verið hefur
síðustu ár verður und-
ankeppnin haldin á hverju
kvöldi út vikuna, en útslitin
síðan í lok næstu viku. Und-
ankeppnin verður í Loftkast-
alanum, en úrslitin haldin í
Listasafni Reykjavíkur.
Helstu verðlaun Músíktil-
rauna eru hljóðverstímar að
vanda. Þannig fær hljóm-
sveitin í fyrsta sæti 20 hljóð-
verstíma með hljóðmanni í
Sundlauginni, hljóðveri Sigur
Rósar. Fyrir annað sætið fást
20 hljóðverstímar ásamt
hljóðmanni í Stúdíó sept-
ember og þriðja sætið 20
hljóðverstímar ásamt hljóð-
manni í Stúdíó Sýrlandi, en
einnig fær athyglisverðasta
hljómsveitin framleiðsla (upp-
töku og frágang) á einu lagi
hjá TÍMA – Miðstöð fyrir
tímalistir, en eigendur Tíma
velja þá hljómsveit.
Til viðbótar við þetta fá sig-
ursveitirnar ýmis verðlaun
önnur, en einnig fá efnileg-
ustu hljóðfæraleikarar verð-
laun og veitt verða sérstök
verðlaun fyrir textagerð á ís-
lensku.
Hestasveitin
Sextettinn Hestasveitin kem-
ur úr Reykjavík. Sveit-
armenn, hestamenn, eru þeir
Arnór Ýmir Guðjónsson
bassaleikari, Bjarki Sigurðs-
son píanóleikari, Guð-
mundur Óli Norland
trommuleikari, Gylfi Bragi
Gunnlaugsson söngvari,
Kristján Norland gítarleik-
ari og Bergur Ástráðsson
slagverksleikari. Þeir eru
þrettán til sextán ára.
25. tilraunirnar
Í kvöld hefst hljómsveitakeppnin Músíktilraunir í 25. sinn, Árni Matthíasson segir
frá hljómsveitum kvöldsins, en tíu hljómsveitir víða að keppa um sæti í úrslitum.
Davíð Arnar
Fjölmennasta hljómsveit tilraunanna að þessu
sinni er Davíð Arnar úr Hafnarfirði, þrettán
manna sveit. Hún hefur nafn sitt frá píanóleik-
aranum Davíð Arnar Sigurðssyni, en aðrir í
sveitinni eru Anton Örn Árnason gítarleikari,
Rúnar Steinn Rúnarsson trommuleikari, Egill
Fabian Posocco túbuleikari, Guðmundur Hólm
Kárason bassaleikari, Gígja Jónsdóttir fiðlu-
leikari, Hlín Þórhallsdóttir hornleikari, Inga
EldBorgir
EldBorgir er ársgamall kvartett úr Reykjanesbæ. Sveitina
skipa Hrói Ingólfsson trommuleikari, Konráð Sigurvinsson
gítarleikari og söngvari, Jón Karl Halldórsson bassaleikari og
Aron Jens Sturlusson gítarleikara og forsöngvari. Þeir eru
allir fimmtán nema Aron sem er sextán, og leika melodískan
metal.
Fúx Frá
Meðlimir Reykjavíkursveitarinnar Fúx Frá eru
Sigurður Ingi Einarsson trommuleikari og
söngvari, Magnús Ingvar Ágústsson bassaleikari,
og Tómas Hrafn Ágústsson og Davíð Stefánsson
gítarleikarar. Þeir eru á sextánda og sautjánda
árinu og spila melodískt popprokk.
Kynslóð625
Kynslóð625 frá Ólafsfirði tók einnig þátt í síðustu Músíktil-
raunum. Sveitin kemur frá Ólafsfirði og er skipuð þeim Alex-
ander Magnússyni trommuleikara, Atla Tómassyni gítarleik-
ara, Helga Má Guðmundssyni gítarleikara, Hjalta A. Njálssyni
bassaleikara, Jóni Má Ásbjörnssyni gítarleikara og Sonju
Geirsdóttur hljómborðsleikara. Þau eru öll fimmtán nema
Hjalti sem er fjórtán. Þess má geta að Sonja var valinn efni-
legasti hljómborðsleikarinn á síðustu tilraunum.
Loobyloo
Reykvísku sveitina með skrýtna nafninu, Loobyloo, skipa Þórður Páll Pálsson gítarleikari og
söngvari, Tómas Haraldsson bassaleikari, Ólafur Axel Kárason trommuleikari og Bergþór
Frímann Sverrisson hljómborðs- og gítarleikari. Þeir eru ýmist fimmtán eða sextán ára og
spila einhverskonar rokk að eigin sögn.
Magnyl
Úr Garðabænum kemur pön-
krokktríóið Magnyl. Liðsmenn
þess eru Ragnar Már Jónsson
gítarleikari og söngvari, Guðjón
Ragnarsson bassaleikari og
söngvari og Helgi Einarsson
trommuleikari. Ragnar er fimm-
tán, en Guðjón og Helgi fjórtán.
NoneSenze
NoneSenze er úr Reykjavík, skipuð fimm fimmtán ára piltum.
Þeir heita Matthías Ólafsson söngvari, Bergur Vilhjálmsson
gítarleikari, Darri Snær Finnbogason bassaleikari, Leifur
Daníel Sigurðsson gítarleikari og Aron Ingi trommuleikari,
sem er reyndar úr Kópavogi. Þeir félagar hafa til þessa að-
allega lagt áherslu á að spila lög sem gaman er að dansa við á
böllum og nefna Bon Jovi, Leonard Cohen og Weezer sem
áhrifavalda.
NÓBÓ
Hljómsveitin NÓBÓ kemur frá Höfn í
Hornafirði og er skipuð þeim Óskari
Haukssyni gítarleikara, Þorsteini Jó-
hannssyni trommuleikara og Pálma
Geir Sigurgeirssyni bassaleikara. Þeir
Óskar og Þorsteinn eru fimmtán ára, en
Pálmi fjórtán, en þeir félagar segjast
kátir og hressir rokkarar.
Burnin’ Crosses
Kúrekarokktríóið Burnin’ Crosses er úr
Grafarvoginum. Sveitina skipa Rúnar Þór
Friðriksson trommuleikari, Stefán Örn
Snæbjörnsson gítarleikari og ótilgreindur
bassaleikari.
Rún Sumarliðadóttir fiðluleikari, Rakel Þór-
hallsdóttir sellóleikari, Róbert Steingrímsson
trompetleikari, Rúnar Arnarson trompetleik-
ari, Rúnar Steinn Rúnarsson trommu- og slag-
verksleikari og Stefanía Svavarsdóttir söng-
kona. Davíð Arnar semur öll lög og útsetur, en
hann lýsir tónlistinni sem hrærigraut af indí,
poppi, rokki, post-rokki, fönki með smá keim
af suðrænni tónlist.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 37
músíktilraunir
Í TILEFNI þess að í kvöld
eru Músíktilraunir haldnar í
25. sinn verður opnuð sýn-
ing í Loftkastalanum á ljós-
myndum Bjargar Sveins-
dóttur sem hún hefur tekið
á Músíktilraunum í gegnum
árin. Björg tók fyrst myndir
á Músíktilraunum 1987 og
hefur tekið myndir nánast
öll tilraunakvöld upp frá
því. Hún sýnir myndir frá
1987 til dagsins í dag, en
myndunum verður varpað á
vegg í anddyri Loftkast-
alans.
Björg hefur átt myndir í
bókum, dagblöðum og tíma-
ritum og einnig haldið þrjár
einkasýningar á myndum
sínum, í Reykjavík og
Lundúnum, auk þess sem
sýningin Humar eða frægð
– Smekkleysa í 20 ár, sem
sett hefur verið upp víða
um heim, byggðist að
stórum hluta á myndum
hennar af tónlistarmönnum
sem starfað hafa með
Smekkleysu.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Skagarokk Þungarokksveitin Batterí af Akranesi tók þátt í
Músíktilraunum 1989 og komst í úrslit en ekki lengra.
20 ár af Músíktilraunamyndum