Morgunblaðið - 19.03.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 19.03.2007, Qupperneq 41
Olsen-bræður og ICY í Höllinni Morgunblaðið/Golli Olsen Olsen Bræðurnir Jørgen og Niels Olsen hafa áður heimsótt Ís- land, þegar þeir spiluðu á Broad- way fyrir fullu húsi árið 2001. ÞAÐ MÁ með sanni segja að þema kvöldsins hafi verið tekið alla leið á árshátíð Kaupþings sem fram fór á laugardagskvöldið. Þemað var Evró- visjón og kom hver Evróvisjón-farinn á fætur öðrum fram og skemmti þeim tæplega 2.000 manns sem sam- ankomnir voru í Laugardalshöllinni. Fyrstur á svið steig sjálfur Eiki Hauks – rauðhærður að því er gest- um sýndist – og tók „Valentine Lost“ við mikinn fögnuð viðstaddra. Selma var næst á sviðið og söng „If I had yo- ur love“ en síðar um kvöldið flutti hún svo að sjálfsögðu „All Out of Luck“. Páll Óskar kom næstur með „Minn hinsti dans“. Allt brjálað Það varð svo uppi fótur og fit þegar sjálfir Olsen-bræður mættu með sig- urlag sitt frá 2000, „Fly on the Wings of Love“, sem þeir tóku einnig í dönsku útgáfunni ásamt því að syngja nokkur önnur lög. Það ætlaði hins vegar fyrst allt um koll að keyra þegar ICY-tríóið, með þeim Eiríki Haukssyni, Pálma Gunn- arssyni og Helgu Möller, flutti hinn eina sanna „Gleðibanka“ frá 1986. Var mál manna að Eiki Hauks væri ekki sá eini af þremenningunum sem ætti erindi í keppnina eftir öll þessi ár. Margfaldir Evróvisjón-kynnar, Sigmar Guðmundsson og Logi Berg- mann Eiðsson, kynntu atriði kvölds- ins til sögunnar og Páll Óskar spilaði Evróvisjón-lög fram eftir nóttu. Morgunblaðið/Eggert Eiríkur rauði Sjónarvottum til mik- illar ánægju skartaði Eiki Hauks rauðum lokkum á ný. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Listamaður Hörður er vísnaskáld, leikstjóri og baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is TÓNLISTARMAÐURINN og leik- stjórinn Hörður Torfason vinnur nú að ævisögu sinni ásamt rithöfund- inum Ævari Erni Jósepssyni. Ljóst er að margir gleðjast við þessi tíðindi en Hörður á um margt merkilegan feril að baki, sem tónlistarmaður, leik- stjóri og baráttumaður fyrir mann- réttindum samkynhneigðra. „Þetta er mjög skrítið. Það kemur ýmislegt upp þegar maður hverfur svona aftur í tímann,“ svarar Hörður aðspurður hvernig sé að horfa svona staðfast um öxl. „Það hefur eðlilega margt gerst á nærri 40 árum og það er merkileg tilfinning að setjast niður og segja frá sjálfum sér og því sem maður hefur verið að vinna að í öll þessi ár.“ Hörður hófst handa við heim- ildasöfnun á síðasta ári. „Mér til mik- illar undrunar er heilmargt fólk sem man mikið. Sjálfur hef ég ekki hirt um að halda heimildum til haga. Mað- ur er ekki að hugsa mikið um sjálfan sig þegar maður hefur einfaldlega verið að vinna sína vinnu,“ útskýrir hann og auglýsir eftir ljósmyndum, vatnslitamyndum, ljóðum og lögum eftir sig sem fólk kann að luma á. Ævar miskunnarlaus Það var ákvörðun Harðar að fá Æv- ar Örn til samstarfs. „Hann er góður rithöfundur og hefur fylgst vel með því sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina. Hann er mjög athugull, skemmtilegur og ekkert að hlífa mér, enda væri ekkert gaman að þessu ef maður fengi bara að mala um sjálfan sig. Þá færi maður bara þessa mann- legu leið, að segja hvað maður sé góð- ur. Það er ekki tilgangurinn. Það þarf að hafa mann sem er svona miskunn- arlaus.“ Þeir félagar hafa unnið hörðum höndum síðan í febrúar en taka smá hlé núna þar sem Hörður verður með svo kallaða Kertaljóstónleika í stóra sal Borgarleikhússins 2. apríl næst- komandi. Þráðurinn verður svo tekin aftur upp að þeim loknum en Hörður treystir sér ekki til að fullyrða hvenær bókin er væntanleg. „Þegar byrjað var að ræða þetta fyrir rúmu ári var afstaðan einfald- lega: þegar hún er búin þá er hún bú- in. En ég hef það nú á tilfinningunni að henni ljúki í ár.“ Snertir allt þjóðfélagið Að sögn Harðar mun ævisagan snerta fleiri en hann. „Margt segir mikið um mig sem einstakling og listamann en annað snertir allt þjóðfé- lagið. Ég er ekki að leggjast í sólbað, það er ekki tilgangurinn með þessu. Þetta verður meira í þeim anda sem ég hef unnið, að fást við þjóðfélagið. Ég hef alltaf litið á það sem mitt starf. Hér áður fyrr, þegar ég kom í eitt- hvert bæjarfélag þá fór allt á hvolf – þegar homminn mætti. Það var eins og maður væri bara eina eintakið í veröldinni og áttunda undur verald- arinnar. En þetta hefur breyst mikið, sem betur fer... og svo kannski ekki,“ bætir hann hlæjandi við. „Nú er mað- ur allt í einu kominn yfir í það að vera „virtur listamaður“ og þá breytist svolítið inntakið í því sem ég hef verið að gera.“ Ævisaga Harðar Torfa skrásett MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 41 SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is SMOKIN' ACES kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.16.ára BREAKING AND ENTERING kl. 5:50 B.i.12 .ára THE BRIDGE TO TERABITHIA kl. 4 - 6 LEYFÐ VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ 300 kl. 5:30 - 8 - 9:15 - 10:30 B.i.16.ára 300 VIP kl. 5:30 - 8 - 10:30 BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 - 10:30 B.i.12 .ára MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ / ÁLFABAKKA / AKUREYRI 300 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára BLOOD & CHOCOLATE kl. 10 B.i. 12 ára MUSIC & LYRICS kl. 6 - 8 LEYFÐ / KEFLAVÍK 300 kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára THE LAST KING OF... kl. 10 B.i. 16 ára NUMBER 23 kl. 8 B.i. 12 ára STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM eeee V.J.V. RÓMANTÍSK GAMANMYND SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI eee H.J. - MBL eee L.I.B. - TOPP5.IS eee VJV, TOPP5.IS eee SV, MBL eee S.V. - MBL eeee VJV, TOPP5.IS eeee L.I.B. - TOPP5.IS HEILSÍÐA í nýjasta tölublaði spænsku útgáfu Rolling Stone tón- listartímaritsinns er tileinkuð söng- konunni Hafdísi Huld Þrastardóttur. Stór mynd þekur reyndar bróð- urpart síðunnar (myndin hér að of- an) en þrátt fyrir stuttan texta nær skríbentinn Dario Vico að hlaða Haf- dísi og tónlist hennar hástemmdu lofi. „Hin nýja Björk“ er fyrirsögn greinarinnar, undirfyrirsögnin sú að Íslendingurinn Hafdís Huld sé nýj- asta „lostætið“ í evrópsku poppi. Vico fullyrðir að Hafdís eigi ým- islegt annað en íslenskt vegabréf sameiginlegt með Björk, t.d. „þenn- an gáskafulla súrrealisma“, sem ein- kenni reyndar frekar tónlist Syk- urmolanna en sólóferil „álfkonunnar fallegu“, og þennan „lokkandi ynd- isþokka“ sem sé hvorki nútímalegur né klassískur heldur einfaldlega kvenlegur. Og Vico er ekkert að skafa utan af því. Eftir að hafa hlustað og horft á myndbönd Hafdísar er niðurstaðan einföld: „Þessi stúlka er með það sem þarf.“ Hafdís á Spáni Sólóplata Hafdísar, Dirty Paper Cup, kom út á Spáni í lok janúar á vegum franska fyrirtækisinns Ocean music. Í tilefni útgáfunnar fór hún ásamt hljómsveit í vikulanga tón- leika- og kynningarferð sem stóð fram í byrjun mars. Næstu tónleikar Hafdísar verða í The Me-klúbbnum í London 28. mars. Lostæti Blaðamaður hins spænska Rolling Stone er yfir sig hrifinn af Haf- dísi Huld og segir hana nýjasta lostætið í evrópsku poppi. Hafdís Huld hin nýja Björk „EF ÞAÐ er til íslensk útgáfa af Simon Cowell þá er það Einar Bárðarson.“ Þannig hefst umfjöllun um ten- órinn Garðar Thór Cortes sem birt- ist á vefsíðu breska dagblaðsins Daily Telegraph á laugardaginn. Tilefni greinarinnar er að geisla- diskur með söng Garðars, sem ber einfaldlega heitið Cortes, verður gefinn út í Bretlandi þann 26. mars næstkomandi. Þó nokkrum orðum er vikið að Einari Bárðarsyni í upphafi grein- arinnar, markaðsmanninnum á bak við útgáfuna og Nylon-flokkinn. „Og nú er Bárðarson í þann veginn að herja á Bretland með nýjasta verkefnið sitt, íslenska tenórinn Garðar Thór Cortes,“ segir blaða- maður Daily Telegraph og vindur sér að því mæltu í að fjalla um Garðar. „Þetta er fjári erfitt!“ Stiklað er á stóru í ferli Garðars og gerir blaðamaðurinn sér skilj- anlega mat úr tónelskri fjölskyldu Garðars: systkinum, móður og ekki síst föður og nafna söngvarans. Garðar segir meðal annars að hann hafi á sínum tíma haft hug á að leggja fyrir sig leiklistina. Söng- urinn hafi hins vegar orðið ofan á þrátt fyrir að faðir hans hafi varað hann við því að líf söngvarans væri enginn dans á rósum. „Þegar horft er til baka sér mað- ur að hann hafði á réttu að standa. Þetta er fjári erfitt! Þú afsakar orð- bragðið,“ er haft eftir Garðari að lokum. Garðar Thór í Telegraph Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Tenór Í viðtalinu kemur fram að Garðar hafi leikið í sjónvarpsþátt- unum um Nonna og Manna. Einar Bárðar sagður íslenskur Simon Cowell

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.