Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 44
MÁNUDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2007 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Óveður og snjóflóð Það var ekki vor á Íslandi í gær. Vegum var lokað víða um landið, tugir bíla festust og starfsmaður Vegagerðarinnar lenti í snjóflóði. » Forsíða Skellt í lás á Alþingi Þingmenn gengu út í kosningavorið í fyrrinótt. 114 frumvörp urðu að lög- um þetta árið og 29 þingsályktanir samþykktar. 13 þingmenn hafa nú ákveðið að hætta afskiptum af stjórnmálum. » 10 Brotin fyrnast nú ekki Kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga hefur verið breytt mikið og m.a. eru kynferðisbrot gegn börnum orðin ófyrnanleg. Ágúst Ólafur Ágústsson fagnar, en hann hefur barist fyrir þessu. » 2 Alcan-málið óklárað Frumvarp um að Alcan á Íslandi gangi inn í almenna skattkerfið var eitt af þeim málum sem stóðu út af hjá fráfarandi Alþingi. » Forsíða Grátt eða grænt Ísland Framtíðarlandið býður ráðamönn- um jafnt og íslensku þjóðinni að staðfesta sáttmála um framtíð- arlandið Ísland. » 6 Finnsk þungamiðja Miðjuflokkur Matti Vanhanen, for- sætisráðherra Finna, vann nauman sigur í þingkosningum í Finnlandi. Kosningabaráttan þótti fremur daufleg í ár. » 14 Hærra fasteignaverð Tólf mánaða hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er nú um 5% og hækkaði það um 0,3% í febrúar. Kaupþing segir húsnæðisverð á landsbyggðinni líka hafa hækkað. » 13 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Spennan magnast Staksteinar: Slúður formannsins Forystugreinar: Réttur heyrnar- lausra og bót í kynferðisbrotamálum UMRÆÐAN» Rokkið lifir á X-inu Slúður í Mogga Mun evrusvæðið liðast í sundur? Laugardalurinn Kaffihúsið hjá Eymundsson Bráðum fer að vora Að hengja bakara fyrir smið Sérbýli lækkar að raungildi FASTEIGNABLAÐIÐ » Heitast 0 °C | Kaldast -10 °C  Norðan 10–15 metrar á sekúndu og él með austurströnd- inni, annars mun hæg- ari og bjartviðri. » 8 Músíktilraunir hefj- ast í kvöld í tutt- ugasta og fimmta skiptið er tíu sveitir keppa um sæti í úr- slitum. » 37 TÓNLIST» Tilrauna- mennska LEIKLIST» Gagnrýnandi er hrifinn af Draumalandinu. » 38 Það var mikil stemn- ing þegar Reykja- vík! og Bang Gang spiluðu á tónlistar- hátíðinni South by South West. » 36 TÓNLIST» Stútfullt og stuðið mikið FÓLK» Börn stjarnanna bera mörg skrítin nöfn. » 38 FÓLK» ICY og Olsen-bræður spiluðu í Höllinni. »41 reykjavíkreykjavík VEÐUR» Eftir Gísla Árnason og Önnu Pálu Sverrisdóttur SÁTTMÁLI um framtíð Íslands var kynntur af forsvarsmönnum Framtíðarlandsins í Þjóðmenn- ingarhúsinu í gær. Ráðamönnum og öðrum er boð- ið að skrifa undir sáttmálann „grátt eða grænt“. Andri Snær Magnason og María Ellingsen kynntu verkefnið og meðal þess sem Andri Snær sagði var að ein kynslóð væri að taka risavaxnar ákvarðanir á gríðarlegum hraða. Eitt af því sem sáttmálinn byggist á er að áætlanir um náttúru- vernd séu lögfestar áður en nokkuð verði frekar aðhafst í orkuvinnslu. Framtíðarlandsfólk segir að virkja þurfi sem nemur orku frá þremur Kárahnjúkavirkjunum á 25–30 nýjum svæðum á Íslandi, gangi núverandi áætlanir um stóriðju eftir. Reynt að gera þingmennina græna Um ellefuleytið í gærkvöldi höfðu tæplega 600 manns skrifað undir sáttmálann á framtidarland- id.is, m.a. nokkrir þingmenn. „Ég vil að komandi kynslóðir hafi sömu tækifæri og mín kynslóð,“ skrifar Sigurrós Jónsdóttir sem er ein þeirra sem þegar hafa undirritað. Á síðu Framtíðarlandsins er auk þess hægt að „gera þingmann grænan“ og fær þá viðkomandi skilaboð með áskorun um að skrifa undir.  Bjóða stjórnmálamönnum | 6 Frekar grænt en grátt  Framtíðarlandið býður almenningi og ráðamönnum að skrifa undir sáttmála um framtíð Íslands  Vigdís Finnbogadóttir er verndari verkefnisins Morgunblaðið/Sverrir Áskorendur Framtíðarlandsfólk hélt blaða- mannafund í gær til að kynna sáttmálann. ÞEGAR Alex Rafn, sjö ára, fór á sjóinn með Guðlaugi Rafnssyni pabba sínum um daginn, þá var sól um alla jörð, eða svona næstum því. Alex segir að sólin hafi í það minnsta skinið skært og öldurnar, sem hann segist ekki vitund hrædd- ur við, aðeins verið litlar. „Ég fór fyrst á sjóinn með pabba þegar ég var þriggja ára,“ segir Alex, en hann er í fyrsta bekk í grunnskólanum á Hellissandi á Snæfellsnesi. Alex þekkir flesta fiska með nafni, enda duglegur að fara á sjóinn, en viðurkennir að það hafi verið nokkuð strembið að lofta stóru golþorskunum sem hann og pabbi hans veiddu í fengsælli veiði- ferð nýverið. Þorskarnir geti verið mjög þungir og eigi það til að sprikla svo erfitt getur verið að ná á þeim taki. „Neibb, ég er ekkert hræddur á sjónum og alls ekkert hræddur við að detta í sjóinn,“ segir Alex. Hann segist þó þurfa að passa sig vel. Og veit nákvæmlega hvert hlutverk hans er um borð í Katrínu SH 575: „Ég tek fiskana og hendi þeim ofan í karið.“ Pabbi hans segir að það fiskist alltaf vel þegar Alex fer með á sjó- inn og því má segja að hann sé nokkurs konar lukkudýr um borð, þó hann kalli sig nú sjálfur frekar háseta. Golþorskarnir sem Alex veiddi voru um 30 kíló hvor, álíka þungir og hann sjálfur! „Það getur verið svolítið erfitt að lyfta þeim þegar þeir eru svona stórir,“ viðurkennir hann. „Þeir ná mér alveg upp að hálsi!“ En ætlar Alex að verða sjómaður þegar hann verður stór? „Ég ætla að verða lögga,“ segir hann ákveð- inn, en bætir við að hugsanlega fari hann í nokkra róðra inn á milli. „Stundum bragðast þeir vel“ Ljósmynd/Guðlaugur Rafnsson HINN ungi fiðlu- leikari Elfa Rún Kristinsdóttir fékk verðlaun úr evrópska menn- ingarsjóðnum Pro Europa sem veitt eru ungu og efnilegu tónlistar- fólki í álfunni. Margir frægir fiðluleikarar hafa áður hlotið verðlaunin, s.s. Anne- Sophie Mutter, Nikolaj Znaider og Julia Fischer. Elfa Rún var nýlega valin „bjartasta vonin“ við afhend- ingu íslensku tónlistarverðlaunanna. Elfa Rún hlýt- ur verðlaun Elfa Rún Kristinsdóttir FIMM bræður voru samtímis inni á vellinum í blakliði Stjörnunnar sem fagnaði sigri í bikarkeppninni í í gær gegn ÍS. Vignir Hlöðversson, einn af bræðrunum fimm, segir að aðeins vanti elsta bróðurinn með þeim inn á völlinn. Og er það næsta markmið þeirra bræðra. Stóra vandamálið er að sá elsti, Ólafur Ómar, hefur aldrei æft né spilað blak. | Íþróttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Bræður keppa saman í blaki ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.