Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG er ótrúlega heppin að hafa komist lifandi frá slysinu en mér skilst að þetta hafi staðið tæpt um tíma,“ segir Vicki Smith sem lenti í alvarlegu um- ferðarslysi 4. mars sl., aðeins ellefu dögum eftir að hún fluttist búferlum frá Skotlandi til Íslands. Hún var í bíl ásamt fimmtán ára dóttur sinni, Courtney Jaffrey, á ferð um Suðurland skammt frá Hvols- velli þegar bíll hennar er talinn hafa farið yfir á öf- ugan vegarhelming en þar lenti hann í árekstri við sjúkrabíl sem kom á móti. Beita þurfti klippum til að koma Vicki Smith úr bílflakinu og var hún flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann þar sem hún hefur dvalið síðan. Vicki Smith slasaðist alvarlega í árekstrinum en dóttir hennar slapp nánast ómeidd, fyrir utan hið sálræna áfall sem eðlilega fylgir svona alvarlegu slysi. „Ég hef mestar áhyggjur af dóttur minni og vona að hún fái áfallahjálp til að takast á við þetta, því hún fékk eðlilega mikið sjokk þegar hún þurfti að horfa upp á mig svona mikið slasaða,“ segir Vicki, sem er illa mjaðmagrindarbrotin, marg- brotin á báðum fótum með þeim afleiðingum að hún hlaut taugaskaða, brotin á hægri handlegg og braut fimm rifbein. Þetta er algjört áfall „Það eina sem er óbrotið er vinstri handlegg- urinn,“ segir Vicki, sem var strax við komuna á spítalann send í aðgerð þar sem brotin bein í fót- leggjum og mjöðm voru negld. Stuttu síðar féll annað lunga hennar saman og þurfti Vicki að vera í öndunarvél í níu daga. Aðspurð segist hún munu dvelja á spítalanum í einhverjar vikur til viðbótar. Þegar hún verður útskrifuð fer hún á endurhæf- ingardeild spítalans við Grensás og er ljóst að hennar bíður margra mánaða endurhæfing áður en hún getur farið að vinna aftur. Spurð um slysið segist Vicki muna ágætlega eft- ir sumu þótt aðrir hlutir séu í móðu. „Við dóttir mín vorum í sunnudagsbíltúr í því skyni að skoða nýju heimkynnin okkar betur. Við vorum búnar að aka um allan daginn. Ég einbeitti mér allan tímann að því að passa upp á að halda mig hægra megin á veginum,“ segir Vicki, en í heimalandi hennar er vinstri umferð. „Ég man alls ekki eftir því að hafa farið yfir á rangan vegarhelming,“ segir Vicki og tekur fram að hún muni hins vegar aldrei gleyma högginu sem varð við áreksturinn. „Ég man næst eftir mér í bílnum þar sem þurfti að beita klippum til að koma mér út en ég man ekkert eftir flugferðinni og óljóst eftir veru minni á gjörgæslu,“ segir Vicki og tekur fram að hún sé alveg miður sín yfir slysinu. „Ég hreinlega trúi ekki að þetta hafi gerst. Þetta er algjört áfall. Ég hef aldrei áður lent í neinum vandræðum í umferðinni og er ég þó búin að keyra í meira en 25 ár,“ segir Vicki og tekur fram að verst þyki sér að hafa lent í árekstri við sjúkrabíl. Aðspurð segist Vicki sannfærð um að vakað hafi verið yfir sér. „Ég er alveg viss um að mamma hef- ur vakað yfir mér. Hún lést fyrir nokkrum árum en hún var alla tíð afar hugrökk og sterk kona. Ég trúi því að hún hafi veitt mér styrk,“ segir Vicki og tekur fram að hún telji að allir búi yfir nauðsyn- legum styrk þegar á reyni við alvarleg áföll í lífinu. En hvernig sér hún framtíðina fyrir sér? „Ég er staðráðin í að fara að vinna um leið og ég hef heilsu til þess, því ég þarf að geta séð dóttur minni og mér farborða. Stundum hvarflar að mér hvort ég hafi gert rétt í því að flytjast með dóttur mína milli landa en ég er sannfærð um að ég sé að gera rétt og þetta verði okkur fyrir bestu,“ segir Vicki sem hafði ráðgert að læra íslensku ásamt dóttur sinni með því að sækja námskeið í kvöldskóla. Það verði hins vegar að bíða betri tíma. Heillaðist af Íslandi En af hverju valdi Vicki að setjast að á Íslandi? „Ég taldi mig geta boðið dóttur minni betra líf og öruggara umhverfi hér á landi. Í Aberdeen, þar sem við bjuggum, fer glæpum sífellt fjölgandi og ég hafði stöðugar áhyggjur af dóttur minni í því umhverfi,“ segir Vicki sem þekkir býsna vel til Ís- lands og hefur heimsótt það nokkrum sinnum á sl. árum. Ástæðan er sú, að yngri bróðir hennar, Scott Smith, hefur sl. níu ár búið og starfað á Hellu, þar sem hann býr með íslenskri konu. „Ég heillaðist fljótt af landinu, enda er þetta yndislega fallegt land. Auk þess sem öryggið er meira hér og glæpatíðnin mun lægri. Við systkinin höfum alltaf verið mjög náin. Scott hjálpaði mér að útvega mér íbúð og vinnu á Hellu og ég var nýbyrjuð að vinna hjá Reykjagarði við pökkun kjúklinga þegar slysið átti sér stað,“ segir Vicki og tekur fram að hún hafi þurft að segja upp íbúðinni þar sem hún geti ekki staðið straum af leigunni meðan hún hafi engar tekjur. Sökum þessa dvelur dóttir hennar um þessar mundir hjá móðurbróður sínum og konu hans. „Við Courtney tölumst við daglega og erum afar nánar. Ég hlakka til að komast aftur heim á Hellu og geta verið til staðar fyrir hana. Ef eitthvað er, þá hefur slysið gert mér enn betur ljóst, að hér á Íslandi vil ég dvelja til frambúðar,“ segir Vicki og tekur fram, að hún sé starfsfólki Landspítalans ævarandi þakklát fyrir hlýhug þess og framúrskarandi vinnu. Lánsöm að vera á lífi Morgunblaðið/RAX Á Íslandi vil ég vera Vicki Smith segist lengi hafa verið heilluð af Íslandi og hún telur sig geta boðið dóttur sinni upp á öruggara umhverfi hér en það, sem hún hefur vanist í Aberdeen.  Vicki Smith lenti í alvarlegu bílslysi aðeins 11 dögum eftir að hún fluttist bú- ferlum til Íslands  Hún vonast til þess að geta farið að vinna aftur sem fyrst » „Ég er alveg viss um að mamma hefur vakað yfir mér. Hún var alla tíð afar hug- rökk og sterk kona. Ég trúi því að hún hafi veitt mér styrk.“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is LÖGREGLAN á Hvolsvelli hyggst í samstarfi við Flugbjörgunarsveitina á Hellu og Landhelgisgæsluna stór- efla eftirlit sitt á þeim hluta hálend- isins sem tilheyrir umdæmi hennar. Er þar m.a. um að ræða Laugaveg, Fjallabaksleiðir, Veiðivötn, Sprengi- sand og Landmannalaugar. Í samtali við Svein K. Rúnarsson, yfirlögregluþjón á Hvolsvelli, segir hann síaukinn fjölda ferðamanna á hálendinu allt árið um kring, hvort heldur er fótgangandi eða akandi, kalla á aukið eftirlit til frambúðar, en mörg þúsund manns leggja leið sína inn á svæðið á ári hverju. „Því miður er töluvert um ölvun- arakstur á hálendinu, sem hefur haft í för með sér alvarleg slys,“ segir Sveinn og tekur fram að ölvunar- akstur sé ekki síður hættulegur á há- lendinu í grennd við t.d. sprungu- svæði og vötn en á þjóðvegum landsins. Að sögn Sveins er einnig ástæða til þess að hafa aukið eftirlit með utanvegaakstri sem og búnaði hálendisfara. Aðspurður segir hann ráðgert að vera með um fimm manna teymi í eftirlitinu hverju sinni. Ann- ars vegar munu lögreglumenn taka þátt í flugi yfir hálendinu í þyrlu Landhelgisgæslunnar og hins vegar munu lögreglumenn ásamt björgun- arsveitarmönnum fara akandi í eft- irlitsferðir inn á hálendið. Bendir Sveinn á að lögreglan hafi aukið eft- irlit sitt með þessum hætti um síð- ustu páska með góðum árangri og því hafi þótt ástæða til að endurtaka leikinn, en eftirlitið hefst strax í dag, skírdag. Tekur Sveinn fram að aukið eftirlit nú sé hins vegar hugsað til frambúðar. Ölvunarakstur á hálendi  Töluvert er um ölvunarakstur á hálendinu  Lögreglan hyggst stórefla eftirlit sitt á svæðinu nú um páskana Í HNOTSKURN »Flugbjörgunarsveitin áHellu hefur útbúið einn björgunarbíla sinna sem fullbúinn sjúkrabíl og verður hann á ferð um hálendið nú um páskana. Með í för verður hjúkrunarfræðingur. »Markmiðið með auknu eft-irliti lögreglunnar á há- lendinu er að fækka alvar- legum slysum þar. »Á ári hverju verður a.m.k.eitt dauðaslys á þeim hluta hálendisins sem tilheyrir lög- reglunni á Hvolsvelli. »Lögreglan vill ekki sístkoma í veg fyrir ölvunar- akstur á hálendinu. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is GÖTUSMIÐJUNNI stendur til boða að flytja inn í húsnæðið á Efri-Brú þar sem Byrgið var áður. Þetta til- kynnti Magnús Stefánsson félags- málaráðherra Götusmiðjunni í gær. Á vegum Götusmiðjunnar er rekin meðferð fyrir fíkniefna- neytendur og hef- ur starfsemin að undanförnu verið í húsnæði í Gunn- arsholti sem orðið var lélegt. Treysti Götusmiðjan sér ekki lengur til að vera þar og hefur óskað úrbóta af hálfu félagsmálaráðuneytisins frá því í júní 2006. Ráðuneytið kemur að málefnum Götusmiðjunnar í gegnum samning við Barnaverndarstofu. Mikill munur á aðkomu ráðu- neytisins vegna Byrgisins og Götusmiðjunnar Að sögn Magnúsar Stefánssonar er mikill munur á aðkomu ráðuneyt- isins annars vegar gagnvart Götu- smiðjunni og hins vegar Byrginu á sínum tíma. „Barnaverndarstofa er með samning við Götusmiðjuna um tiltekna þjónustu, en það var ekki um slíkt [samning] að ræða varðandi Byrgið, heldur eingöngu fjárstyrk. Samkvæmt samningnum fylgist Barnaverndarstofa með starfsemi Götusmiðjunnar og Ríkisendurskoð- un hefur einnig haft eftirlit með henni. Á síðasta ári gerði stofnunin úttekt á Götusmiðjunni og gaf henni mjög góða einkunn,“ segir Magnús. Eftir páska munu ráðuneytismenn setjast niður með Götusmiðjunni og ganga frá nánari atriðum varðandi ráðstöfunina. Magnús segir að af- skipti ráðuneytisins af Götusmiðjunni muni verða á sömu lund og verið hef- ur, þ.e. í gegnum Barnaverndarstofu. „Ég er ánægður með að geta leyst úr málum Götusmiðjunnar, og tel starfsemi hennar mjög mikilvæga, enda hefur hún sýnt það,“ segir Magnús. Götu- smiðjan á Efri-Brú Barnaverndar- stofa með eftirlitið Magnús Stefánsson Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður www.lyfja.is - Lifið heil ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 36 81 2 03 /0 7 FÁÐU REYKLAUSA BÓK Í NÆSTU VERSLUN LYFJU BETRI LEIÐTIL AÐ HÆTTA FRÍ BÓK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.