Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 60
Börnin eru í ánauð því
foreldrar þeirra hafa
tekið lán og þurft að setja
þau að veði fyrir láninu… 62
»
reykjavíkreykjavík
Á MÁNUDAGINN hefst tónleikaferðalag
Bjarkar Guðmundsdóttur um heiminn, en þá
heldur hún tónleika í Laugardalshöll, sína
fyrstu hérlendis í sex ár. Tónleikaferðalagið
er vegna nýrrar hljóðversplötu, Volta, sem
kemur út 7. maí næstkomandi. Á tónleikunum
nýtur Björk m.a. fulltingis blásarasveitar sem
skipuð er tíu ungum stúlkum, svokallaðs blás-
aradesetts (oktett, nónett, desett).
Þær Brynja Guðmundsdóttir (túba) og
Sylvía Hlynsdóttir (trompet) nýttu hádeg-
ishléið í að ræða við blaðamann en desettinn,
ásamt Björk og fleiri hljómveitarmeðlimum,
er nú eðlilega við stífar æfingar. Aðrir með-
limir desettsins eru þær Sigrún Kristbjörg
Jónsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Erla Axels-
dóttir, Særún Ósk Pálmadóttir, Bergrún
Snæbjörnsdóttir, Valdís Þorkelsdóttir, Sigrún
Jónsdóttir og Björk Níelsdóttir.
Það var í nóvember síðastliðnum sem Björk
og hennar fólk fór að safna hópnum saman,
sem er á aldursbilinu átján upp í tuttugu
fimm. Þær stöllur Brynja og Sylvía segja að
sá hópur sem mætir þessum kröfum (ungar
íslenskar stúlkur sem leika á blásturshljóð-
færi) sé lítill og flestar hafi þær þekkst eitt-
hvað áður.
Þær rifja upp að viðbrögð við símtölunum
upprunalega voru á ýmsa vegu, og sumar
stúlknanna skelltu óðar á, töldu að það væri
verið að gera at í sér.
„Ég man að ég öskraði í símann JÁ! ÉG
ER TIL!" segir Sylvía og hlær. „Það var auð-
vitað ekki hægt að segja nei við svona tæki-
færi. Hmmm … hvort á ég að klára 7. stigið
eða fara í tónleikaferð um allan heim með
Björk? Þessi ákvörðun var ekkert sérstaklega
erfið. Það verður ekki amalegt að hafa þetta á
ferilskránni og svona nokkuð býðst ekki á
hverjum degi. Ég myndi segja að þetta væri
algerlega einstakt tækifæri, og ég hefði séð
eftir því alla ævi ef ég hefði ekki stokkið á
þetta.“
Brynja samsinnir þessu og viðurkennir að
þetta sé alveg ný reynsla fyrir sig. Hún hafi
ekkert unnið með fólki úr dægurlagaheim-
inum áður, hafi mest verið að spila með lúðra-
sveitum og vinna hennar til þessa hafi verið
svo gott sem rígbundin við hinn klassíska
heim.
„Ég upplifi þetta mjög svart og hvítt.“
Sylvía hefur hins vegar aðra sögu að segja,
hefur starfað nokkuð við djass og hefur leikið
með Benna Hemm Hemm t.d. En vissulega er
það vinnuferli sem hún og stúlkurnar eru að
ganga í gegnum núna sem nýr heimur.
Hjálpast að
Desettinn hefur nú starfað náið saman í
fimm vikur. Hópurinn er að þéttast en á ýmsu
hefur gengið segir Sylvía og glottir.
„Þú getur rétt ímyndað þér, tíu stelpur í
hóp, mikil samvera, spenna og pressa. Mér
finnst þó einkennandi að við erum allar sem
ein staðráðnar í að standa okkur og hjálpast
að við þetta.“
Stúlkurnar eru búnar að skuldbinda sig í
rúmt ár og eiga eftir að ferðast til allra heims-
álfanna, utan Suðurskautslandsins. Brynja og
Sylvía eru nánast hlessa yfir því að Björk
skuli hafa valið að nota þær, því að hún er í
þeirri stöðu að geta fengið nánast hvern sem
er til liðs við sig.
„Þetta gerir mikið fyrir okkur og maður er
þakklátur að eiga kost á að taka þátt í þessu,“
segir Brynja. „Björk sjálf hefur sagt okkur að
við séum að láta draum hennar rætast. Það er
líka merkilegt að hún skuli hafa sett sér þetta
viðmið hvað hópinn varðar, og sumir blásturs-
strákar sem ég þekki eru hálfabbó út í okkur
(hlær).“
Báðar eru þær sýnilega í skýjunum yfir því
að vera að vinna með Björk.
„Hún er með einstaka nálgun á tónlist, og
sem ungur tónlistarmaður er maður að læra
mjög mikið,“ segir Sylvía. „Hún er sömuleiðis
mjög sveigjanleg og opin fyrir nýjum hug-
myndum og uppástungum frá okkur.“
Þær segjast ekki kvíða ferðalaginu, segjast
bara spenntar og tilhlökkun sé mikil. Þá
hjálpar það til að þær verða ekki stanslaust á
túrnum, skroppið verður heim á milli. Sylvía
segir að margar þeirra séu ábyggilega að
færa einhverjar fórnir en reikningsdæmið er
einfalt; svo miklu miklu meira komi í staðinn.
„Það er mikill hugur í hópnum … og ég veit
að þetta verður brjáluð reynsla.“
Tíu blásarar Brynja, Sylvía, Sigrún Kristbjörg, Harpa, Erla, Særún Ósk, Bergrún, Valdís, Sigrún og Björk.
Tíu stúlkna her
Á nýrri plötu sinni, Volta, og á
meðfylgjandi tónleikaferða-
lagi um heiminn styðst Björk
Guðmundsdóttir m.a við blás-
aradesett, skipaðan ungum ís-
lenskum stúlkum. Arnar Egg-
ert Thoroddsen ræddi við
tvær stúlknanna um ævintýr-
ið framundan.
Miðasala á tónleikana fer fram í verslunum
Skífunnar (Kringlunni, Smáralind og Lauga-
vegi 26), BT Egilsstöðum, Selfossi og Ak-
ureyri og á www.midi.is. Miðaverð er 3.900
krónur í stæði en 6.900 krónur í stúku. Húsið
er opnað 18.30 og Björk fer á svið 20.00.
Einnig leikur breska rafpoppsveitin Hot Chip.
arnart@mbl.is