Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 31
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
Hálfur mánuður í Kína, mjög vel skipulögð ferð þar sem það sem Kína er frægust fyrir verður skoðað. Hér má nefna
Terrakotta herinn, einn merkilegasta fornleifafund veraldar, siglingu á skemmtiferðaskipi um Yangtze fljót sem er
þekkt fyrir gljúfrin þrjú og að sjálfsögðu Kínamúrinn. Helstu borgir Kína, Shanghai og Beijing sóttar heim. Hér gefst
tækifæri til að kynnast bæði hinu þjóðlega Kína en einnig þeim ótrúlega miklu breytingum sem orðið hafa á síðustu
áratugum. Sagan er heillandi og menningin ólík okkar, við kynnumst hefðum og smökkum á þjóðlegum réttum.
Verð 288.200 kr. á mann í
tvíbýli...allt innifalið!
Aukagjald fyrir einbýli er 55.540 kr.
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
N á n a r i u p p l ý s i n g a r í s í m a 5 7 0 2 7 9 0 e ð a w w w . b a e n d a f e r d i r . i s
27. september – 12. október
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
6. – 20. september
Fararstjóri: Magnús Björnsson
ævintýraheimur
ENDALAUS ORKA!
Hin sívinsæla metsölubók
loksins komin aftur!
Yfir 200 bráðhollir ávaxta- og
grænmetissafar sem bæta, grenna og kæta.
Bók um holla lifnaðarhætti, fagurfræði og lífsgleði.
ÞEIM fjölgar stöðugt sem vilja eyða
fríinu sínu á óvenjulegum stöðum
fjarri hefðbundnum ferðamanna-
slóðum. Og samtök tileinkuð um-
hverfismálum sem ekki eru rekin í
hagnaðarskyni hafa verið dugleg að
bregðast við þessara vaxandi þörf
með því að auglýsa og aðstoða við
skipulag umhverfisvænnar ferða-
mennsku – og í leiðinni náð að auka
sýnileika sinn og bæta fjárhagsstöðu
eigin málstaðar.
Samkvæmt upplýsingum frá sam-
tökunum International Ecotourism
Society heldur markaðurinn fyrir
umhverfisvæna ferðamennsku
áfram að vaxa. Árið 2004 óx um-
hverfis- og náttúruvæn ferða-
mennska þrefalt hraðar en ferðaiðn-
aðurinn í heild. Vinsældir þessarar
gerðar ferðamennsku vaxa raunar
svo hratt að Sameinuðu þjóðirnar
sáu ástæðu til að halda sérstaka ráð-
stefnu tileinkaða vistvænni ferða-
mennsku og tileinka árið 2002 þess-
um málstað. Sem frekara dæmi um
vinsældir umhverfisvænnar ferða-
mennsku má benda á að 55 milljónir
Bandaríkjamanna sýna þessum
ferðamáta áhuga samkvæmt könnun
sem gerð var af Travel Industry
Association of America samtökunum
með aðstoð National Geographic
Traveler.
Að skipta máli
„Þetta fólk er að leita að tvennu;
aðgengi að óvenjulegum svæðum
sem fæstir ferðamenn geta heimsótt
og eins leiðum til að bæta lífskjör
íbúanna á stöðunum sem það heim-
sækir,“ hefur New York Times eftir
Duane Silverstein, framkvæmda-
stjóra Seacology – bandarískra nátt-
úruverndarsamtaka sem ekki eru
rekin í hagnaðarskyni. En í ár opn-
aði Seacology styrktarferðir sínar,
sem áður voru lokaðar öllum nema
stærstu styrktaraðilum, fyrir al-
menningi.
Og ferðaiðnaðurinn getur reynst
öflugur í umhverfisvernd, hefur
blaðið eftir Alisdair Harris, stofn-
anda og framkvæmdastjóra Blue
Venture, breskra samtaka sem ekki
eru rekin í hagnaðarskyni en bjóða
upp á þriggja til sex vikna ferðir fyr-
ir vísindamenn og sjálfboðaliða í haf-
rannsóknastöð sína á Madagaskar.
Önnur umhverfisverndarsamtök,
sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni,
eins og Nature Conservancy, Sierra
Club Outings og Earthwatch Insti-
tute bjóða einnig upp á áhugaverðar
ferðir þar sem unnið er að umhverf-
ismálum. Þannig býður Nature Con-
servancy í samstarfi við Mountain
Travel Sobek upp á ferðir um
hlykkjótt gljúfur Yangtze-árinnar
áður en stíflan gleypir það árið 2009,
á meðan síðarnefndu samtökin
tvenn bjóða almenningi tækifæri til
að starfa sem aðstoðarfólk í vís-
indaleiðöngrum.
„Fólk getur verið sjálfselskt í því
að það vill að upplifanir sínar séu
raunverulegar – það vill ekki nið-
ursoðnar ferðir. Það vill hitta þjóð-
garðsvörðinn, það vill rétta hjálp-
arhönd á munaðarleysingjahælinu,“
segir Blue Magruder, almanna-
tengslastjóri Earthwatch. „Þeim fer
stöðugt fjölgandi sem vilja að tími
þeirra á þessari jörð hafi eitthvað að
segja.“
Fínleg og áhrifarík leið
Ekki leggja þó allir upp með slík-
ar hugsjónir. „Það gerist oft að við
fáum fólk í okkar ferðir sem lítur
ekki á sig sem umhverfisvernd-
arsinna, það vill bara skemmta sér í
fríinu,“ segir Tanya Tschesnok, tals-
kona Sierra Club Outings. Kynni
þeirra af umhverfisvænni ferða-
mennsku verða hins vegar oft til
þess að viðkomandi enda á að gerast
styrktaraðilar. „Þetta er fínleg –
sumir segja laumuleg – aðferð sem
er verulega áhrifarík þegar kemur
að því að vekja tilfinningatengsl
gagnvart náttúrunni.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Yangtze Gljúfrin tilheyra brátt sögunni til.
Ferðast til að bjarga heiminum
www.seacology.org
www.nature.org
www.mtsobek.com
wwww.blueventures.org
www.earthwatch.org
www.sierraclub.org/outings
Kína og Tíbet
Haustferð Kínaklúbbs Unnar er
áformuð 26. ágúst til 16. september
til Kína og Tíbet. Farið verður vítt og
breitt um landið í fimm innanlands-
flugferðum.
Það helsta, sem er að sjá í höf-
uðborg Tíbet, Lhasa, verður skoðað
eins og Potala höllin, Jokhang
klaustrið og Sera klaustrið. Í Beijing
má m.a.nefna Forboðnu borginaog
Garð sólarinnar. Stórborgin Xian
verður heimsótt svo og Guilin í Suð-
ur-Kína þar sem siglt verður á Lí-
fljótinu til þorpsins Yangshou.
Í Shanghai verður Búddahofið heim-
sótt og ýmis merkileg söfn skoðuð.
Farið verður á fjöllistasýningu og
JuJuan garðurinn skoðaður. Farið
verður til Suzhou til að skoða silki-
iðnaðinn og í lok ferðarinnar verður
gengið á Kínamúrnum. Ferðin kostar
370 þús. kr. á mann með öllu inni-
földu, en þetta mun vera 25. hóp-
ferðin sem Unnur Guðjónsdóttir
skipuleggur og leiðir til Kína.
Gönguferð um Færeyjar
TREX-Hópferðamiðstöðin efnir til
gönguferðar um gamlar þjóðleiðir í
fjórum af átján eyjum Færeyja 23.-
30. maí nk. Einnig verður gengið upp
á nokkur fjöll í leiðinni eftir því sem
útsýni og veður bíður upp á. Gist
verður í uppbúnum rúmum á farfugla-
heimilum og gistihúsum með morg-
un- verði. Ferðin kostar 115 þús. kr.
á mann. Kvöldverður er innifallin í
fimm skipti og
nestispakki í
sex skipti. Far-
arstjóri verður
Sigrún Val-
bergs- dóttir.
Meðal
skemmtilegra
staða og leiða má nefna gömlu póst-
leiðina á eynni Vágar yfir í Gásadal
sem lengi vel var einangruð byggð en
er nýlega komin í vegasamband.
Siglt verður í og gengið um vestustu
eyju Færeyja Mykines sem er kletta-
ey með lítilli byggð, rík af sögu og
fuglalífi.
Gengið verður um fornar þjóðleiðir á
stærstu Eyjunni Straumi og annan
dag farið yfir til Tjörnuvíkur. Stefnt er
að Göngu á Slættaratind, hæsta fjall
eyjanna (882m) og farið um fleiri
leiðir á Austurey. Undir lokinn verður
svo dvalið í Þórshöfn og m.a. gengið
yfir fjallið til Kirkjubæjar sem er fræg-
asti sögustaður Færeyja.
VÍTT OG BREITT
TENGLAR
.....................................................
www.simnet.is/kinaklubbur
www.trex.is